Morgunblaðið - 24.05.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 15
ÚR VERINU
NORSK-ÍSLENZKA síldin hefur að
undanförnu gengið ákveðið og hratt
suðvestur og vestur eftir. Hún er nú
í verulegum mæli innan íslenzku
landhelginnar austur og suðaustur
af Hvalbakshallanum og í norður
þaðan, að minnsta kosti til móts við
Glettinganes. Hún var einnig nánast
alls staðar í færeysku lögsögunni að
50 sjómílum norður af eyjunum fyrir
miðjan maí. Á sama tíma var norsk-
íslenzk síld komin allar götur vestur
í Hvalbakshallann og fékkst til dæm-
is sýni þar í fyrri hluta leiðangurs,
sem rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son tekur nú þátt í.
Mjög vestarlega
Sveinn Sveinbjörnsson, leiðang-
ursstjóri fyrri hluta leiðangursins,
segir að síldin hafi verið komin mjög
vestarlega. Hann muni ekki eftir því
að hún hafi verið gengin svona alveg
upp í kantinn um árabil. „Ég man
ekki eftir að hún hafi komið svona
vestarlega á þessum tíma. Nú verð-
ur bara þróunin að sýna hvað hún
gerir. Við erum alltaf að vonast eftir
því að hún fari að taka upp gamla
munstrið og fari að halda sig hérna
inni hjá okkur stóran hluta af árinu.
Ef hún kemur inn á Norðurlands-
miðin og tekur upp veturdvöl við
landið aftur eru þetta átta til níu
mánuðir sem hún er hérna hjá okk-
ur. Það munar miklu í sambandi við
stofninn og veiðar úr honum. Þetta
er nýtt á þessum nýju síldarárum.
Hún er komin vestar en við höfum
séð hana áður,“ segir Sveinn Svein-
björnsson.
Síldin er stór en frekar horuð, víða
mjög dreifð í ætisleit og því yfirleitt
ekki í veiðanlegu ástandi ennþá. Það
kom verulega á óvart að stórar torf-
ur af síld fundust í kalda Austur-
Íslandsstraumnum á um 300 m dýpi,
í sjó sem var rétt um 0°C.
Þéttar smátorfur
austur af Glettinganesi
Árni Friðriksson var á þriðjudag-
inn staddur um 65 sjómílur austur af
Glettinganesi og var nýbúið að taka
síldarsýni úr mjög þéttum smátorf-
um á um 20–40 m dýpi. Útbreiðsla
og göngur síldarinnar að þessu sinni
eru augljóslega mjög áhugaverðar
frá íslenzkum sjónarhóli. Flest und-
anfarin ár hefur norsk-íslenzka síld-
in ekki gengið svona langt suður og
vestur á bóginn, hún hefur lítið farið
vestur fyrir köldu tunguna, Austur-
Íslandsstrauminn, og staldrað stutt
við. Framvindan í ár ræðst væntan-
lega fyrst og fremst af því hvernig til
tekst með uppvöxt og þar með fram-
boð rauðátunnar sem er aðalfæða
þessarar síldar.
Leiðangurinn er hluti af sameig-
inlegri leit og bergmálsmælingum
Íslendinga, Norðmanna, Færeyinga,
Rússa og Evrópusambandsins á út-
breiðslusvæði þessara stofna, sem er
gríðarstórt að vor- og sumarlagi.
Leiðangurinn á Árna byrjaði á
Dohrnbanka í leit að kolmunna en
hans varð ekki vart fyrr en komið
var undir suðurströndina. Mest
reyndist af veiðanlegum kolmunna á
svæðinu norðvestur af Færeyjum
þar sem íslenzki flotinn hefur haldið
sig.
Í fyrri hluta leiðangursins voru
einnig teknar neðansjávarmyndir af
flotvörpum skipsins, bæði hegðun
þeirra við ýmiss konar aðstæður og
viðbrögðum kolmunna og síldar við
þeim. Um myndatökurnar sáu Einar
Hreinsson og Haraldur Einarsson.
Sveinn Sveinbjörnsson stjórnaði
fyrri hluta leiðangursins en Guð-
mundur J. Óskarsson seinni hlutan-
um. Skipstjóri er Guðmundur
Bjarnason. Áætlað er að leiðangrin-
um ljúki 31. þessa mánaðar.
Síld í miklum mæli
innan lögsögunnar
Norsk-íslenzka síldin komin mun vestar en áður hefur sézt
svo snemma vors á þessum nýju síldarárum hér við land
./%.
$.
.
%.
0.*
.
4
"
" Í HNOTSKURN
»Síldin er stór en frekar hor-uð, víða mjög dreifð í ætisleit
og því yfirleitt ekki í veiðanlegu
ástandi ennþá.
»Það kom verulega á óvart aðstórar torfur af síld fundust í
kalda Austur-Íslandsstraumnum
á um 300 m dýpi, í sjó sem var
rétt um 0°C.
»Flest undanfarin ár hefurnorsk-íslenzka síldin ekki
gengið svona langt suður og vest-
ur á bóginn, hún hefur lítið farið
vestur fyrir köldu tunguna.
AFLAVERÐMÆTI íslenskra skipa
nam 15,2 milljörðum króna á fyrstu
tveimur mánuðum ársins 2007 en var
11,3 milljarðar á sama tímabili 2006.
Aflaverðmæti hefur aukist um 3,9
milljarða eða 34,7% milli ára, sam-
kvæmt útreikningum Hagstofu Ís-
lands.
Hækkandi aflaverðmæti má rekja
til hækkana á verði fisks og fisk-
afurða erlendis. Það leiðir til hærra
verið á innlendum fiskmörkuðum,
sem skilar sér svo í auknum afla-
verðmætum til útgerðar og sjó-
manna.
Aflaverðmæti febrúarmánaðar
nam 9,5 milljörðum en í febrúar í
fyrra var verðmæti afla 7,7 milljarð-
ar. Aflaverðmæti botnfisks var í lok
febrúar orðið 10,5 milljarðar miðað
við 8,1 milljarð á sama tíma árið 2006
og er því um 29,4% aukningu að
ræða. Verðmæti þorskafla var 6,2
milljarðar og jókst um 22%. Afla-
verðmæti ýsu nam 2,2 milljörðum,
sem er 54,9% aukning, og ufsaaflinn
jókst að verðmæti um 23,3%, var 465
milljónir. Verðmæti flatfiskafla
dróst saman um 15,2%, nam 678
milljónum.
Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst
um 74,1% og nam 4 milljörðum.
Munar þar mest um verðmæti loðnu
sem nam 3,4 milljörðum samanborið
við 2 milljarða í fyrra. Verðmæti afla,
sem seldur er í beinni sölu útgerða til
vinnslu innanlands, var 7,2 milljarð-
ar króna, sem er aukning um 2,4
milljarða eða 48,6%. Verðmæti afla
sem keyptur er á markaði til vinnslu
innanlands jókst um 46,9%, var 2,8
milljarðar. Aflaverðmæti sjófryst-
ingar var 3,5 milljarðar og jókst um
2,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla
sem fluttur er út óunninn nam 1,4
milljörðum sem er 66,2% aukning.
Mest verðmæti fyrstu tvo mánuði
ársins bárust á land á Suðurnesjum,
eða sem nemur 3,3 milljörðum
króna. Það er hvorki meira né minna
en 57% aukning frá sama tíma í
fyrra. Á höfuðborgarsvæðinu var
landað afla að verðmæti 2,2 milljarð-
ar.
!""# !""$
%
!""#
&
'
%
())
*
+
,
-
.//$01
2#103
!"3$0/
."0.
/0!
!""$
4
/".5"03
#$$0#
2"//05
"0"
"0$
%
!""$
.1520/
25!0/
5/!"0#
"0"
"05
!""#
3/5301
$130#
!5"503
.!0.
!0!
Aflaverðmætið
eykst um þriðjung
KAMBUR á Flateyri hefur gengið
frá sölu á bátnum Friðfinni ÍS með
öllum aflaheimildum. Kaupandi er fé-
lagið Gústi Bjarna á Dalvík, sem er
að hluta til í eigu Ottós Jakobssonar,
útgerðarmanns og fiskverkanda.
Hinrik Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Kambs, vill ekki gefa
upp verðið, en segir að bátur og
heimildir hafi farið á markaðsverði.
Friðfinnur er smábátur í króka-
kerfinu, tveggja ára gamall. Honum
fylgja aflaheimildir sem nema meðal
annars 101 tonni af þorski, 29 tonn-
um af ýsu og 37 tonnum af steinbít.
Áætla má að söluverðið sé um 350
milljónir króna.
Unnið að sölu annarra báta
Enn er verið að vinna að sölu
tveggja annarra báta Kambs með
aflaheimildum. Þeir eru Siggi Þor-
steins og Steinunn. Þeir eru með
heimildir sem svara til 850 tonna af
þorski.
Þá standa eftir bátarnir Halli Egg-
erts og Kristján, sem saman eru með
heimildir sem nema 1.200 þorskígild-
um. Einn bátur, Egill Halldórsson,
hefur þegar verið seldur til Grinda-
víkur. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var söluverð hans
með 277 þorskígildistonnum um 700
milljónir króna. Kaupandi var
Stakkavík.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur verið ákveðið að hætta
starfsemi Fiskvinnslunnar Kambs og
selja báta og heimildir. Hinrik Krist-
jánsson segir að nú sé verið að vinna
að því að hjálpa starfsfólki félagsins á
sjó og í landi að finna nýja atvinnu.
Friðfinnur
seldur til
Dalvíkur
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Mi›ási 7 • Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njar›vík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfir›i
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
SparCreme ræstikrem
Frábært til a› fjarlægja erfi›a bletti, uppsöfnu›
óhreinindi, fitu, gúmmíför, kísil og sápuskánir.
Notist á postulín, keramik, ry›frítt stál o.fl.
Au›velt a› skola og skilur ekki eftir himnu.
NABC
Hlutlaus, sótthreinsandi ba›herbergishreinsir.
Hentar vel til daglegra flrifa á ba›herbergjum.
Hreinsar, sótthreinsar og ey›ir lykt.
ATTRACTIVE RYKKÚSTUR
Afflurrkunarkústur sem afrafmagnar.
Langir flræ›ir sem ná í afskekktustu
kima og skilja ekkert eftir!
Ótrúlega sni›ugt!
EXPRESS MOPPUSKAFT
fiú flarft enga fötu, fyllir bara handfangi›
me› vatni og hreinsiefni!
Ótrúlega einfalt!
BESTA VÖRURNAR
ÚR Innlit/útlit