Morgunblaðið - 24.05.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 19
MENNING
50 LJÓÐ eftir
fimm íslensk ljóð-
skáld, allt konur,
hafa verið þýdd
yfir á hollensku
og gefin út á bók
sem verður kynnt
við setningu há-
tíðar í Groningen
í Hollandi sem
helguð er ís-
lenskri menn-
ingu. Hátíðin ber nafnið Raddir frá
Íslandi og hefst í dag. Bókin ber tit-
ilinn Morðsöngvar. Íslensk nútíma-
ljóð. Steinunn Sigurðardóttir og Sig-
urbjörg Þrastardóttir munu lesa
upp ljóð við setningu hátíðarinnar í
dag. Hin ljóðskáldin þrjú eru Vigdís
Grímsdóttir, Ingibjörg Haralds-
dóttir og Gerður Kristný Guðjóns-
dóttir. Þýðendur ljóðanna eru Roald
van Elswijk og Kim Middel frá út-
gáfunni Wilde Aardbeien.
Bókin er fimmta safnritið um ís-
lenska samtímaljóðlist sem kemur
út á hollensku, að sögn Sigurbjarg-
ar. „Roald van Elswijk þýddi ljóð
eftir mig í fyrra, þegar ég las upp á
ljóðahátíð í Rotterdam. Hann hefur
verið að vinna við það að þýða ljóð úr
færeysku, dönsku og íslensku. Hann
er menntaður í norrænum fræðum,“
segir Sigurbjörg.
„Hann býr í Groningen og er rosa-
lega áhugasamur um norrænar bók-
menntir, er að vinna að þýðingu fær-
eysks ljóðasafns um þessar mundir.
Hann hefur að því er ég best veit
aldrei komið til Íslands, hann er eig-
inlega fjarmenntaður,“ segir Sigur-
björg.
Íslandshátíðin stendur yfir í heila
viku. Skipuleggjendur hátíðarinnar
eru fyrrnefnt forlag, deild norrænna
fræða við Háskólann í Groningen,
sendiráð Íslands í Lundúnum og
Upplýsinga- og þýðingamiðstöð
Norðurlanda í Hollandi.
Íslensk
ljóð lesin
Hátíð helguð ís-
lenskri menningu
Sigurbjörg
Þrastardóttir
GUÐRÚN Jó-
hanna Ólafs-
dóttir mezzó-
sópransöngkona
hlaut síðastlið-
inn sunnudag
ljóðasöngsverð-
laun í Alþjóðlegu
söngkeppninni í
Zamora-borg á
Spáni, Concurso
Internacional de
Canto Ciudad de Zamora, fyrir
flutning sinn á laginu Ave María eft-
ir Sigvalda Kaldalóns.
Hátt í níutíu söngvarar frá ýmsum
þjóðlöndum tóku þátt í keppninni og
er þetta því glæsilegur árangur.
Guðrún Jóhanna hefur kynnt ís-
lenska tónlist með tónleikahaldi á
Spáni, hún flutti meðal annars fyrr-
nefnt lag Sigvalda Kaldalóns á ein-
söngstónleikum í menningarstofn-
uninni Fundación Juan March í
Madríd.
Þeim tónleikum var útvarpað
beint af á spænsku útvarpsstöðinni
Radio Clásica.
Í nóvember síðastliðnum var bein
útsending á sömu útvarpsstöð frá
tónleikum Guðrúnar og Víkings
Heiðars Ólafssonar píanóleikara í
Madríd. Þar fluttu þau 30 íslensk
lög, meðal annars lög eftir Sigvalda
Kaldalóns.
Guðrún kemur næst fram á Ís-
landi í titilhlutverki óperunnar
Carmen eftir Bizet með
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Guðrún Jóhanna mun einnig
syngja á tónlistarhátíðinni Bjartar
sumarnætur í Hveragerði í júní og á
Kammertónleikum á Kirkjubæjar-
klaustri í ágúst.
Verðlaunuð
á Spáni
Guðrún J.
Ólafsdóttir
MJÖG góð aðsókn hefur verið
á sýningu á vegum Listar án
landamæra sem nú er í Nor-
ræna húsinu. Á sýningunni
leiða saman hesta sína fimm-
tán listamenn, þeir eru: Guð-
rún Bergsdóttir og Gjörn-
ingaklúbburinn, Þórunn I.
Gísladóttir, Rut Ottósdóttir og
Soffía Þorkelsdóttir, Tolli og
Gígja Thoroddsen, Gauti Ás-
geirsson og Finnbogi Péturs-
son, Halldór Dungal og Hulda Hákon, Pétur
Thomsen og Trausti R. Traustason, Davíð Ö.
Halldórsson og Sigrún H. Hrafnsdóttir. Sýningin
er opin kl. 12-17, nema mánud., og er til 3. júní.
Myndlist
List án landamæra
í Norræna húsinu
Verk eftir Gauta
Ásgeirsson.
NORSKA húsið í Stykkishólmi
hefur sumarstarfsemi sína í
dag, fimmtudaginn 24. maí, kl.
17.30 með því að Per Landrø
og Vilde Høvik Røberg frá
norska sendiráðinu opna sýn-
inguna „Af norskum rótum“ í
húsinu.
Á sýningunni má sjá bygg-
ingasögu norsku sveitaseturs-
húsanna, sögu norsku kata-
lógshúsanna og
sveitaseturshúsa á Íslandi og norsk áhrif á ís-
lenska byggingasögu.
Sýningin er opin daglega kl. 11-17 og stendur til
22. júlí.
Opnun
Áhrif á íslenska
byggingasögu
Norska húsið
Stykkishólmi.
Í KVÖLD, 24. maí, mun Há-
skólakórinn undir stjórn Há-
konar Leifssonar flytja verkið
„Requiem“ eftir Maurice
Duruflé.
Kórinn nýtur dyggrar að-
stoðar Steingríms Þórhalls-
sonar sem leikur á orgel auk
þess sem Hrólfur Sæmundsson
barítón og Ásgerður Júníus-
dóttir messósópran syngja ein-
söng. Einnig flytur kórinn
ýmis smærri verk í léttum dúr.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Neskirkju við
Hagatorg. Miðaverð er 1.000 kr. og eru miðar
seldir við inngang.
Tónleikar
Háskólakórinn
flytur Requiem
Tónleikar í
Neskirkju.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
ÞRJÁR menningarstofnanir, Þjóð-
leikhúsið, Íslenski dansflokkurinn
og Listasafn Íslands, eru mjög neð-
arlega á lista sem byggður er á
könnun meðal félagsmanna SFR á
starfsskilyrðum þeirra og líðan á
vinnustað. Af 99 stofnunum á listan-
um er Þjóðleikhúsið í 91. sæti, ÍD í
92. sæti og Listasafn Íslands í 94.
sætinu. Í könnuninni var spurt um
átta atriði; trúverðugleika stjórn-
enda, launakjör, vinnuskilyrði,
sveigjanleika í vinnu, sjálfstæði í
starfi, álag og kröfur, stolt af stofn-
un og loks starfsanda.
Að sögn Tinnu Gunnlaugsdóttur
þjóðleikhússtjóra koma þessar nið-
urstöður ekki á óvart hvað Þjóðleik-
húsið varðar. „Að minnsta kosti ekki
miðað við aðstæður sem hafa verið
mjög erfiðar fyrir starfsfólk í vetur.
Það hefur verið mikill viðvarandi há-
vaði, mikið ryk og stöðugar óvæntar
uppákomur vegna þessara fram-
kvæmda. Ég held að það sé nú
meginskýringin,“ segir Tinna.
Ákveðið sóknarfæri
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar er starfsfólk Þjóðleik-
hússins afar ósatt við launakjör sín,
en sá liður fékk 10 af 100 mögu-
legum í könnuninni. Tinna segir
þetta ekki koma á óvart. „Enda er
þetta ríkisstofnun og við erum í því
launaumhverfi, við fáum fjárveit-
ingar í samræmi við það,“ segir hún.
Þá vekur athygli að trúverðug-
leiki stjórnenda fær aðeins 14 af 100
mögulegum stigum. „Ég lít ekki svo
á að það sé endilega yfirstjórnin.
Það eru líka stjórnendur á deildum,
það eru millistjórnendur og fleira,“
segir Tinna og bætir við að unnið sé
markvisst í því einmitt þessa dagana
að endurskipuleggja hið innra starf í
húsinu og skýra ábyrgðarsvið
stjórnenda, þetta sé unnið í góðri
sátt við starfsmenn, en vitanlega
komi það af stað róti og skapi ákveð-
ið óvissuástand meðan á því stend-
ur.
Skelfileg aðstaða
Tinna segir aðstöðuna í Þjóðleik-
húsinu um þessar mundir vera
skelfilega og það skýri hugsanlega
að hluta hina slæmu útkomu í könn-
uninni. „Það stendur til bóta að því
marki sem við höfum tækifæri til.
Nú er verið að gera við húsið að
utanverðu, það er búið að taka
áhorfendarýmið fyrir, en aðstaða
sem snýr að starfsfólki og vinnuað-
stöðu á deildum er ennþá skelfileg.
Brýnasta verkefnið er að tekið sé á
því og það er eina leiðin til að bæta
starfsaðstöðuna hérna,“ segir Tinna,
og bætir við að húsakynnin sjálf geri
starfsfólki erfitt fyrir þegar kemur
að því að skipta um leikmynd milli
verka. „Aðstöðuleysi baksviðs kallar
á stöðugar tilfæringar og ómælda
aukavinnu starfsfólks. Það þarf t.d.
að hluta allt niður í smáeiningar og
koma því inn í ranghala og geymslur
milli sýninga, sumt þarf að keyra
milli bæjarhluta. Þetta er ekki eins
og í nútímaleikhúsi á borð við
Borgarleikhúsið þar sem hægt er að
keyra leikmyndina inn á hliðarsvið,
við höfum ekkert hliðarsvið.“
Aðspurð segir Tinna að þrátt fyrir
niðurstöðu könnunarinnar ríki
bjartsýni innan Þjóðleikhússins.
„Ég held að það sé alveg ágætis
bjartsýni, við horfum allavega til
þess að ytra byrði hússins verður
glæsilegt í haust. Ég hef lagt metn-
að í að halda úti metnaðarfullu starfi
þrátt fyrir þessar aðstæður. Það
hefur náttúrlega komið niður á
starfsfólki að einhverju marki og
kannski má segja að við hefðum átt
að draga meira úr starfinu, en við
viljum halda úti eins mikilli þjónustu
við almenning og við mögulega get-
um.“
Hvorki náðist í forsvarsmenn ÍD
né Listasafns Íslands.
Stofnanir fá falleinkunn
Þjóðleikhúsið, ÍD og Listasafn Íslands koma illa út úr starfsmannakönnun SFR
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Óánægja Starfsfólk Þjóðleikhússins gaf launakjörum, vinnuskilyrðum og
álagi og kröfum falleinkunn samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar.
Í HNOTSKURN
» Könnunin var í átta liðum ogfengu stofnanirnar einkunn á
bilinu 0 til 100 fyrir hvern lið.
» Hjá Þjóðleikhúsinu fékk trú-verðugleiki stjórnenda 14,
launakjör 10, vinnuskilyrði 2,
sveigjanleiki í vinnu 55, sjálf-
stæði í starfi 19, álag og kröfur 6,
stolt af stofnun 42 og starfsandi
11.
» Hjá Íslenska dansflokknumfékk trúverðugleiki stjórn-
enda 20, launakjör 2, vinnuskil-
yrði 52, sveigjanleiki í vinnu 2,
sjálfstæði í starfi 15, álag og
kröfur 2, stolt af stofnun 44 og
starfsandi 46.
» Hjá Listasafni Íslands fékktrúverðugleiki stjórnenda 18,
launakjör 28, vinnuskilyrði 4,
sveigjanleiki í vinnu 3, sjálfstæði
í starfi 3, álag og kröfur 14, stolt
af stofnun 73 og starfsandi 5.
» Skattrannsóknarstjóri ríkis-ins kom best út úr könnun-
inni, en þar voru einkunnirnar á
bilinu 93 til 100.
Sjá má allar niðurstöður
könnunarinnar á www.sfr.is.
PRENTSMIÐJAN Oddi veitti gær
verðlaun fyrir bestu íslensku bók-
arkápur ársins 2006. Niðurstaða
dómnefndar varð sú að kápa bókar
Braga Ólafssonar, Sendiherrann,
bæri af öðrum en hana hönnuðu
Sigrún Pálsdóttir og Bjarney R.
Hinriksdóttir.
Í öðru sæti varð kápa bókar-
innar Halldór Laxness – Kvæða-
kver, sem Ragnar helgi Ólafsson
hannaði. Í því þriðja lenti bók
Andra Snæs Magnasonar,
Draumalandið – Sjálfshjálparbók
handa hræddri þjóð.
Í umsögn dómnefndar segir að
óvenju skemmtilegt uppbrot sé á
kápu Sendiherrans. Hún „komist
upp með að brjóta hefð með því að
setja bakkáputexta framan á sem
eins konar myndskreytingu og
nota sígilt letur“. Þá sé teikningin
á henni frjálsleg sem og tákn sem
kallist á við titil bókarinnar sem sé
í mjög óljósum tengslum við text-
ann en virki samt. Kápan dragi að
sér athygli og skili bókinni til
þeirra sem áhuga hafi á innihaldi
hennar. Einstök næmi sé fyrir efni
og prenttæknimöguleikum.
Tilkynnt var um verðlaunin við
hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum
í gær. Auk hönnuða fá útgefendur
bókanna verðlaun. Dómnefnd var
skipuð þeim Erni Smára Gíslasyni
frá Félagi íslenskra teiknara, Hall-
dóri Guðmundssyni rithöfundi og
Ragnheiði Sigurðardóttur frá Sam-
bandi íslenskra auglýsingastofa.
Auk fyrrgreindra verðlauna
voru veittar tvær viðurkenningar
fyrir athyglisverða bókargerð. Þær
voru veittar fyrir bækurnar Rice-
boy Sleeps, sem Jón Birgisson og
Alex Somers Þór hönnuðu kápu á
og Svavar Pétur & 20. öldin sem
Una Lorenzen hannaði á bókar-
kápu.
Bókarkápa Sendiherrans valin sú besta
Morgunblaðið/Kristinn
Best Bjarney R. Hinriksdóttir, sem hannaði kápuna ásamt Sigrúnu Páls-
dóttur, er hér með Ragnheiði Sigurðardóttur, formanni dómnefndar.
♦♦♦