Morgunblaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 49 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „ÉG ER nú dálítið hissa á því að Birgir hafi ekki talað við okkur,“ seg- ir Eiríkur og vísar í ummæli Birgis Arnar Steinarssonar í blaði gærdags- ins. Þar fullyrðir Birgir að enginn tónlistarmaður hafi fengið greitt fyrir sölu á tónlist í gegnum vefinn Tónlist.is frá því að hann opnaði fyrir fjórum árum síðan. „Við skoðum öll mál strax sem menn koma með til okkar. Við er- um þegar farin að skoða þetta mál og það kemur í ljós að samnorrænu höf- undaréttarsamtökin Nordisk Copy- right Bureau, sem eru staðsett í Kaupmannahöfn, sjá um að úthluta þessum greiðslum. Það sem við inn- heimtum fer til þeirra. Þar sem þetta hafa verið lágar greiðslur í upphafi, þá hafa NCB líklega beðið með að greiða þetta út, a.m.k. að stórum hluta. En það eru væntanlegar greiðslur til höfunda í næsta mánuði og okkur sýnist að það séu verulegar greiðslur, a.m.k. miðað við það sem áður hefur verið greitt, sem hefur verið sáralítið.“ Eiríkur tiltekur að þetta séu ekki háar greiðslur sem menn séu að inna af hendi til STEF vegna þessara nota á tónlist. „Þetta eru miklu minni tekjur en þeir fá fyrir plötusölu. Á Tónlist.is er oft bara um eitt lag að ræða þannig að þó að menn séu að taka niður heilmikið af lögum þá eru fjárhæðirnar því miður ekki háar. En við skilum öllu, ég fullyrði það og ábyrgist það. Við skilum öllu því sem við innheimtum til höfunda.“ Tveggja ára tilraunastarfsemi Aðspurður um hvort það sé ekki einkennilegt að ekkert sé greitt af sölu í fjögur ár segir Eiríkur að fyrsti formlegi samningurinn við Tónlist.is hafi verið gerður árið 2005. „Fram að þeim tíma var litið á Tónlist.is sem tilraunastarfsemi. Vef- urinn var rekinn án endurgjalds og með fullu samþykki frá okkur. Við höfum haft þá venju þegar menn eru að byrja á einhverju nýju, í þessu til- felli að bjóða tónlist til sölu á netinu á löglegan hátt, að gefa mönnum reynslutímabil. Þetta höfum við líka gert fyrir útvarpsstöðvar og annað slíkt. Frá árinu 2005 hefur Tónlist.is greitt samkvæmt samningi sem er sambærilegur við aðra samninga í öðrum löndum, þó að gjöldin hér séu í hærri kantinum miðað við það sem gengur og gerist annars staðar. Það þýðir ekkert fyrir okkur að hækka þessi gjöld þar sem við erum í beinni samkeppni við systursamtök okkar erlendis. Það væri þannig auðvelt fyrir tónlistarmenn að semja við önn- ur samtök og koma tónlistinni þaðan inn á netið.“ Von á verulegum greiðslum Stjórnarfundur var haldinn hjá FTT í fyrradag og þar veltu menn því fyrir sér hvort ástæðan fyrir því að greiðslurnar bærust ekki til lista- mannanna væri sú að þær væru skráðar sem sala á hringitónum en ekki sem sala á tónlist. „Það kann að hafa gerst í ein- hverjum tilvikum vegna mistaka. Mér sýndist það í fyrstu þegar við fórum að rýna í þetta. Frá NCB koma gríðarmiklar skilagreinar, upp á tugi milljóna, og þessar greiðslur frá Tónlist.is eru mjög lítið brot af því og við höfum bara hreinlega ekki fylgst með þessu. Ég tek það fram að skilagreinarnar frá Tónlist.is eru réttar og við töldum því að þetta væri að skila sér í gegnum NCB. Svo þeg- ar við fórum að skoða þetta betur, í kjölfar þessa máls alls, kom í ljós að þetta skilaði sér sáralítið. Við sendum fyrirspurn til NCB og vitum að það er von á verulegum greiðslum núna. Við ætlum síðan að fara mjög ná- kvæmlega yfir þessar greiðslur af þessu gefna tilefni og sjá til þess að allt skili sér. Við unum ekki öðru.“ Gagnagrunnurinn í eigu Samtóns Eiríkur segir að inn í þetta mál blandist önnur mál. „Við í STEF skiptum okkur t.d. ekki af flytjendum eða útgefendum. Ég hef heyrt af því að það sé verið að bjóða efni á vefnum án heimildar, en það er ekki mitt mál að kanna slíkt.“ STEF hefur verið gagnrýnt fyrir það að klúðra sínum málum með því að setja gagnagrunn íslenskrar tónlistar í hendurnar á einkaaðilum sem fari svo með grunn- inn að vild. Eiríkur hafnar þessu. „Þarna er um Samtón að ræða, sem er samstarfsvettvangur STEF og SFH (Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda). Samtónn fékk styrk á sínum tíma til að gera átak í því að koma öllu íslensku tón- listarefni á stafrænt form. Við kost- uðum heilmiklu til þessa. Þessi gagnagrunnur er í eigu Samtóns og hver sem er getur fengið aðgang að þessum grunni. Það er tryggt. Tón- list.is er hins vegar eini aðilinn sem hefur notfært sér grunninn hingað til. Ef einhver hefur hins vegar áhuga á að koma upp öðrum vef í samkeppni við Tónlist.is þá stendur þessi gagna- grunnur opinn.“ Frumskógur laga og réttinda Fram hafa komið kvartanir frá tónlistarmönnum um að verk þeirra séu seld á Tónlist.is að þeim óspurð- um. Eiríkur segir að það eigi ekki að vera hægt. „Það á ekki að vera hægt án samn- inga við rétthafa. Þeir eru búnir að ganga frá samningum við okkur vegna höfunda. En við veitum enga heimild fyrir flytjendur eða útgef- endur. Ég get bara svarað fyrir höf- unda.“ Eiríkur segir að lokum að STEF sé oft ranglega notað sem samheiti yfir hagsmunasamtök tón- listarmanna þegar mál af þessu tagi komi upp. „Það er verið að blanda saman mörgum málum sem er alveg skiljanlegt því að tónlistarmenn þekkja náttúrlega ekki þennan frum- skóg laga og réttinda sem þessu fylgir.“ „Við komum öllu til skila“ Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri STEF, heitir því að koma greiðslum til tón- listarmanna vegna sölu í gegnum Tónlist.is Tónlist.is Nokkur styr stendur um vefinn um þessar mundir en margir tón- listarmenn gagnrýna vinnuaðferðir stjórnenda hans og skort á greiðslum sem ættu að berast frá honum. Eiríkur Tómasson Örfáar prósentur af örfáum prósentum TÓNLISTARMAÐURINN Magnús Ómarsson, sem kallar sig Móra, seg- ir að hann hafi hafnað því að tónlist sín yrði seld á Tónlist.is, enda hafi honum ekki líkað það sem boðið var upp á. „Ég hló nú bara þegar ég sá þessa samninga þeirra þegar þeir voru að byrja, enda buðu þeir örfáar prósentur af örfáum prósentum, sem var nánast ekki neitt.“ Hann segir að hann hafi neitað að skrifa undir en plata hans hafi samt farið inn á vefinn og hann hafi staðið í stappi við að koma henni þaðan út. „Ég þurfti að hóta þeim lögfræðingi til að fá plötuna út af vefnum. Ég fékk svo þær upplýsingar að ekkert hefði selst af mínum lögum þrátt fyrir að vinur minn hefði sótt nokk- ur lög til þeirra, en þeir könnuðust ekkert við það. Ég ráðlagði öllum sem voru á mínum snærum að gera slíkt hið sama, enda fannst mér þetta ekki trúverðugt og ég hvet ís- lenska tónlistarmenn, hvort sem þeir eru rapparar eða rokkarar, til að kippa lögunum sínum út af þess- um arðránsvef í mótmælaskyni. Það er kominn tími á samstöðu hjá tón- listarmönnum til að sporna gegn sí- endurteknu arðráni á íslenskri tón- list.“ Þökkum samfylgdina á frábæru leikári www.leikfelag.is / 4 600 200 „Allt eins og það á að vera... 200.000 naglbítum hefur gengið vel að finna rokkið í lögunum... Samleikur er lipur, fumlaus og oft fyndinn.“ – ÞT, Mbl „gamanleikur af guðs náð... hitti í mark hjá krökkunum“ – SLG, RÚV „glæsilega unnið sviðsverk með skínandi beittan brodd... Frábær skemmtun – alvöru hrollur. Flott verk, flottur leikur, flott sýning.“ – PBB, Fbl „LA hefur hitt í mark og eignast fyndna og hæfilega ögrandi sýningu ... Drepfyndið“ – ÞT, Mbl „gríðarlega áhrifamikil sýning“ – SLG, RÚV „enn ein skrautfjöðurin í hatt LA“ – HMB, akureyri.is „fjögurra grímna hressandi helvíti... frábæra leiksýningu í heimsklassa...“ – JJ, dagur.net „mjög slípuð sýning... frammistaða leikendanna fjögurra örugg og jöfn“ – JVJ, Ísafold „Þráinn Karlsson lék með þvílíkum tilþrifum að ég minnist þess varla að hafa séð hann gera betur. Þráinn var ískrandi viðbjóðslegur frá upphafi til enda“ – JVJ, Ísafold „leikurinn var allur stórkostlegur... leiksigur Þráins“ – SLG, RÚV „Lýsingin afar áhrifarík ... sýningin nánast fullkomin“ – HMB, akureyri.is “skemmtilega teiknaðar klisjur úr nútímamenningu... mæli með Svörtum ketti“ – MK, Mbl „Óvenjuleg og áhrifamikil sýning... sem hefur mikið að segja“ – ÞT, Mbl „Forvitnileg og manneskjuleg sýning sem skilur mikið eftir sig... með frábærri músík“ – KHH, Fréttablaðið „Mjög ánægjuleg upplifun... ég mæli eindregið með þessari heillandi sýningu“ – HÁ, RÚV „Tekst vel að skapa hlýlega og innilega stemningu... tónlistin einfaldlega æðisleg“ – ÞES, RÚV „Ástúðlegt og lokkandi, hættulegt og spennandi“ – IS, Kistan „loksins, loksins! ...tímamóta- leikhús“ – HH, Dagur.net „gullfalleg tónlist Megasar... fer Kjartan um hann höndum hins þjálfaða leikhúsmanns; ég get ekki ímyndað mér að nokkur maður hefði getað gert betri sýningu“ – JVJ, Ísafold Sala áskriftakorta fyrir nýjan og spennandi leikhúsvetur hefst í ágúst. Vertu með! Fullkomið brúðkaup Litla hryllingsbúðin Skoppa og Skrítla Ævintýri á gönguför Píkusögur Ausa Best í heimi Les Kunz Pabbinn Auk þess buðum við upp á fjölbreytt úrval gestasýninga, sýninga frá fyrra ári, námskeiða og leiklestra:Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.