Morgunblaðið - 23.06.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 169. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ÞAU STÆRSTU
LISTI YFIR TÍU VINSÆLUSTU OG TEKJU-
HÆSTU TÓNLISTARMENN ÍSLANDS >> 53
Í KJARVALSHÚSI ER
ALLTAF FALLEGT
VIÐ SJÓINN
INNLIT >> DAGLEGT LÍF
KOMIN Í
KILJU
Metsölubók
ársins 2006
,,Bók konungsins sjálfs...
Lesendur Arnaldar ættu
vart að verða fyrir
vonbrigðum ...“
Gauti Kristmannsson, RÚV
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stuðningur Fjölmenni var á landsleik Ís-
lands og Serbíu í knattspyrnu.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SIGURLEIKIR íslenska kvennalandsliðs-
ins á landsliðum Frakka og Serba í und-
ankeppni Evrópumótsins 2008 virðast hafa
valdið straumhvörfum í samfélaginu. Fyrir
það fyrsta var sett áhorfendamet á kvenna-
landsleik þegar um sex þúsund áhorfendur
sáu íslenska liðið gjörsigra það serbneska á
fimmtudag auk þess sem góðar líkur á sæti í
úrslitakeppni Evrópumótsins, sem fram fer í
Finnlandi á næsta ári, hafa aukið hróður liðs-
ins til muna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, mennta-
málaráðherra og starfandi forsætisráðherra,
segir þá miklu stemningu sem sé ríkjandi í
kringum liðið skila sér út í samfélagið. „Við
höfum alltaf verið með gott lið og þær staðið
sig en það er sérlega gaman að fylgjast með
þessari samfellu núna,“ segir Þorgerður sem
efast ekki um góð samfélagsleg áhrif af ár-
angri landsliðsins. „Þetta hefur jákvæð áhrif
á svo marga vegu, t.a.m. að ungar stúlkur
haldi áfram í íþróttum. Það skiptir miklu
máli að við missum ekki stúlkurnar úr íþrótt-
um á aldrinum 14-16 ára. Þetta hefur einnig
góð áhrif inn í skólakerfið og í raun þvert í
gegnum samfélagið.“
„Svo sannarlega „stelpurnar okkar““
Kristrún Heimisdóttir, fyrrverandi lands-
liðskona í knattspyrnu, núverandi aðstoð-
armaður utanríkisráðherra og stjórnar-
formaður afrekssjóðs ÍSÍ, segir liðið ekki
hafa fengið verðskuldaða athygli en það sé
loksins að springa út – og með látum. Hún
segir helstu hindrunina hafa verið vanmat á
kvennaknattspyrnu. „Það er full ástæða til
að kasta því burtu og gleðjast með þessum
frábæru knattspyrnukonum. Konur spila
fínan fótbolta og það er gott að fleiri og fleiri
eru að uppgötva það.“ Kristrún telur jafn-
framt að árangur landsliðsins sé lóð á vog-
arskálarnar þegar kemur að jafnréttisbar-
áttunni. Árangur landsliðsins muni blása
baráttunni anda í brjóst á öllum sviðum þjóð-
félagsins.
Undir það tekur Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra. „Þetta er ábyggilega
innslag í jafnréttisbaráttuna. Stelpurnar eru
þarna að ná lengra en strákarnir, sýna hvað í
þeim býr og það var kominn tími til. Þær eru
svo sannarlega „stelpurnar okkar“ og allir
vilja loksins eiga þær.“
Árangur-
inn hefur
góð áhrif
Sigrar landsliðsins inn-
legg í jafnréttisbaráttuna
Eftir Friðrik Ársælsson
og Unu Sighvatsdóttur
„ÞAÐ er mikið áhyggjuefni hvað
okkur miðar skammt í þessum
málum og það hlýtur að vera mjög
ríkt tilefni núna við endurnýjun
kjarasamninga til að setjast niður
og fara yfir það hvað er til ráða á
okkar vettvangi, hinum almenna
vinnumarkaði,“ segir Grétar Þor-
steinsson, forseti ASÍ, inntur eftir
viðbrögðum við niðurstöðum nýrr-
ar rannsóknar Hagfræðistofnunar
á launagreiðslum íslenskra fyrir-
tækja árið 2006. Niðurstöðurnar
gefa til kynna að munur á föstum
mánaðarlaunum karla og kvenna,
sem ekki verður skýrður með öðru
en kyni, nemi 10-12% körlum í vil.
„Við þurfum að fara yfir þetta af
mikilli alvöru við samningaborðið,
skoða hvað er til ráða og slá á þá
strengi sem mönnum sýnast lík-
legastir til að þoka þessum málum
áfram,“ segir Grétar og kveðst
engar efasemdir hafa um það að
viðsemjendur ASÍ hafi fullan vilja
til slíks hins sama.
„Ég fagna innilega þessum um-
mælum forseta ASÍ og tel að hann
komist þarna að kjarna málsins;
kynbundnum launamun verður
ekki náð niður nema við samninga-
borðið,“ segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra. Að
öðru leyti kveður hún könnunina
gott innlegg í umræðuna um kyn-
bundinn launamun og Jafnréttis-
stofa og ráðuneyti sitt muni leggj-
ast yfir hana á næstunni og hafa til
hliðsjónar við þá stefnumótun sem
standi fyrir dyrum í málaflokkn-
um. Hún bendir hins vegar á það
að könnunin beinist aðeins að föst-
um mánaðarlaunum og það skekki
niðurstöðuna sennilega talsvert,
þar sem það hafi sýnt sig að alls
kyns aukagreiðslur, á borð við
bílastyrki, hafi miklu frekar runn-
ið til karla en kvenna.
„Mergur málsins er sá að þessi
könnun staðfestir hversu brýnt er
að taka á kynbundnum launamun
og hve mikilvægt ákvæði stjórn-
arsáttmálans um aðgerðir til þess
að minnka óútskýrðan kynbund-
inn launamun á kjörtímabilinu er í
raun,“ segir Jóhanna. Að hennar
sögn er gott samstarf við vinnu-
markaðinn grundvallarforsenda
þess að þessi mál komist í rétt horf
og afstaða forseta ASÍ lofi góðu
um framhaldið. | Miðopna
Launamunurinn
mikið áhyggjuefni
Forseti ASÍ segir fulla ástæðu til þess að fara yfir kyn-
bundinn launamun við endurnýjun kjarasamninga
Í HNOTSKURN
»Karlmenn hafa 10-12%hærri laun en konur í
sambærilegri stöðu skv.
viðamikilli könnun.
»Forseti ASÍ telur þettamikið áhyggjuefni og
segir nauðsynlegt að fara
yfir það hvað sé til ráða þeg-
ar kjarasamningar verða
endurnýjaðir næstu áramót.
MIKIL stemning var í Viðey í gærkvöldi í tilefni
Jónsmessunnar. Jónsmessumót og Skúlaskeið var
haldið í eynni en bryddað var upp á þeirri nýbreytni
að láta Landnemamót skáta og Jónsmessumótið
renna saman. Dagskrárnar sköruðust því í eina
klukkustund þar sem gestir beggja móta yljuðu sér
við varðeld og sungu saman ýmis sönglög í sumar-
sólinni.
Fyrir gesti Jónsmessumótsins var boðið upp á
göngu, grill og messu. Margt var því um manninn í
Viðey í gærkvöldi og skemmti fólk sér konunglega,
enda veðrið einkar gott.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikil Jónsmessugleði í Viðey
TOGARAR á grá-
lúðuveiðum á
Hampiðjutorginu
hafa að und-
anförnu þurft að
flýja þaðan vegna
mikillar þorsk-
veiði. Hilmar
Helgason, skip-
stjóri á Hrafni
Sveinbjarnarsyni, hefur stundað þar
veiðar á hverju sumri síðan 1990 og
segir að aldrei fyrr hafi verið svona
mikið af þorski á slóðinni. Þorsk-
urinn heldur sig nú mun dýpra en
áður og einnig lengra utan við land-
grunnið. Menn velta því fyrir sér
hvort þetta sé fiskur sem er að fara
yfir Sundið í ætisleit eða hann að
koma frá Grænlandi. | 14
Togarar flýja
þorskinn
YFIRTAKA Novator á Actavis þýð-
ir að félagið verður tekið af mark-
aði. Markaðsverð þess er yfir 303
milljarðar og metur Greining
Kaupþings það svo að um 35% séu í
íslenskri eigu. Þegar kaupverðið er
greitt út í evrum til innlendra hlut-
hafa má gera ráð fyrir að þeir leiti
að vinnu fyrir peningana hér
heima, með jákvæðum áhrifum á
bæði krónu og hlutabréfamark-
að. | 16
Milljarðar í um-
ferð á Íslandi