Morgunblaðið - 23.06.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÞORLÁKSHÖFN hefur verið mikið
í umræðunni að undanförnu vegna
fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda.
Meðal annars skoðuðu fulltrúar frá
Alcan staðhætti fyrr í vikunni auk
þess sem sendinefnd frá Norsk
Hydro mun gera slíkt hið sama í
næstu viku. Þar fyrir utan er ál-
tæknigarður í deiglunni. Öllum ætti
að vera ljóst að þrátt fyrir að svæð-
ið sé víðfeðmt er ekki nóg af orku,
og bæjarstjórinn í Ölfusi segir allt á
huldu hvað verður.
Ráðgjafafyrirtækið Arctus hefur
undanfarin tvö ár verið að þróa
hugmynd að áltæknigarði við Þor-
lákshöfn, í samvinnu við erlend
stórfyrirtæki. Að sögn Jóns Hjalta-
lín Magnússonar, eins eiganda
Arctus, gengur undirbúningur
framar vonum og um þessar mund-
ir er verið að vinna tillögu að mats-
áætlun um umhverfismat sem af-
hent verður Skipulagsstofnun
bráðlega. Í framhaldi af því munu
erlendir eignaraðilar félagsins óska
eftir formlegum viðræðum við orku-
fyrirtækin. Þegar hefur verið unnin
hagkvæmnisáætlun, sem að sögn
Jóns lítur vel út.
Verkefnisáætlunin sem unnið er
eftir gerir ráð fyrir að byggja
fyrsta hluta álvers árið 2009, sem
framleiða mundi um 60 þúsund tonn
af áli árlega. Álverið yrði stækkað
eftir framboði og afhendingu á orku
á tímabilinu 2012-2020, samhliða
uppbyggingu fyrirtækja í full-
vinnslu áls og nauðsynlegra þjón-
ustufyrirtækja.
Jón getur ekki tjáð sig um hvaða
aðilar standa að byggingu álversins
með honum, en segir það gríðarlega
öflug og stór fyrirtæki. „En í þess-
um litla álheimi er ekki æskilegt að
upplýsa hvað menn eru að gera fyrr
en það er orðið algjörlega ákveðið.“
Hann segir það hins vegar verða
gert innan skamms.
Orkan er verkefninu allt
Jón segir verkefnið í raun standa
og falla með orkunni, en félagið
þarf að geta sýnt bæjarstjórn Ölf-
uss fram á raforkusamning, fjár-
mögnun, umhverfismat og hvaða
aðilar standa að verkefninu með
honum fyrir maí á næsta ári. Það er
í samræmi við yfirlýsingu sem gerð
var á milli Ólafs Áka Ragnarssonar
bæjarstjóra Ölfuss og Jóns um
einkarétt á viðræðum um stóriðju í
Þorlákshöfn.
Ólafur Áki segir að fulltrúum Al-
can og Norsk Hydro sé vel kunnugt
um þessa yfirlýsingu. „Það er engu
haldið leyndu í þessu máli en það er
alveg ljóst að Alcan t.a.m. hefur raf-
orkusamninginn, en Jón ekki. Við
höfum kynnt Alcan þetta ákvæði og
Jón hefur sinn tíma til að vinna
þessa hluti sem getið er um í yf-
irlýsingunni.“ Hann getur þess
einnig að engar ákvarðanir hafi ver-
ið teknar á þessum tímapunkti.
Keppt um lóðir undir
stóriðju við Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þorlákshöfn vinsæl Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, er í fínni stöðu um þessar mundir. Alcan og Norsk
Hydro skoða möguleikann á að reisa álver auk þess sem undirbúningur fyrir áltæknigarð gengur vel.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 24 ára gamlan karlmann
til 360.000 króna sektargreiðslu fyrir
glæfraakstur á bifhjóli. Maðurinn
hafði auk þess gerst sekur um ölv-
unarakstur bifreiðar og akstur án
ökuréttinda.
Glæfraaksturinn átti sér stað síð-
astliðið sumar en þá sást maðurinn
aka á ótryggðu og númerslausu hjóli,
án nægilegrar aðgæslu og varúðar,
vestur Suðurlandsveg við Hólavað.
Með honum í för var farþegi sem
var án hlífðarfata. Ökumaður hjóls-
ins virti stöðvunarmerki lögreglu að
vettugi. Var hjólinu ekið á allt að 183
km hraða á klukkustund, fram úr
fjórum bifreiðum við Rauðavatn og
inn í hringtorg við Breiðholtsbraut
þar sem lögregla missti sjónar á því.
Lögregla hafði hendur í hári manns-
ins nokkru síðar. Ákærði neitaði fyr-
ir dómi að hafa ekið hjólinu án nægi-
legrar aðgæslu og varúðar og sagðist
ekki hafa ekið á þeim hraða sem í
ákæru greindi. Með hliðsjón af fram-
burði lögreglumanna sem veittu
hjólinu eftirför og framburði ákærða
við yfirheyrslu, sem samræmdist
framburði lögreglumannanna, taldi
dómurinn sannað að ákærði hefði
gerst sekur um þá háttsemi sem
honum var gefin að sök í ákæru.
Sekt fyrir
ofsaakstur
STEFÁN Kon-
ráðsson sagði í
gær upp stöðu
framkvæmda-
stjóra Íþrótta- og
ólympíusam-
bands Íslands og
hefur ráðið sig
sem fram-
kvæmdastjóra Ís-
lenskrar getspár.
Stefán hefur
starfað fyrir ÍSÍ í nítján ár og segist
hafa kynnst mörgu góðu fólki þar í
gegnum árin.
Nú segir hann þó kominn tíma til
að taka nýjum áskorunum. „Ég
byrja á þessu verkefni eins og öllum
öðrum, með því að koma mér inn í
það. Þetta er fyrirtæki sem safnar fé
fyrir stóran hluta starfsemi ung-
mennafélaganna, Öryrkjabandalags-
ins og ÍSÍ,“ segir Stefán og bendir á
að vissar hættur leynist framundan.
„Erlend samkeppni sækir inn á
þennan happdrættismarkað í gegn-
um Netið og við þurfum á öllu okkar
að halda. Þetta er mikilvæg starf-
semi fyrir þessi félög.“
Stefán hættir
hjá ÍSÍ
Stefán Konráðsson
UNDANFARINN mánuð hafa engar tilkynn-
ingar borist um mengun í göngum Kára-
hnjúkavirkjunar. Matthías Halldórsson land-
læknir telur að þær aðgerðir sem farið var í til
að bæta loft í göngunum hafi skilað árangri.
Þetta kemur fram í skýrslu sem Matthías tók
saman um veikindi starfsmanna við Kára-
hnjúkavirkjun í apríl.
Í skýrslunni kemur fram að rúmlega 40
manns fengu matareitrun hinn 19. apríl og á
annan tug manna varð líklega eða örugglega
fyrir veikindum af völdum mengaðs lofts í
göngum Kárahnjúkavirkjunar í aprílmánuði. Í
skýrslunni kemur fram að flestir virðist hafa
náð heilsu á ný. Matthías bendir þó á að mik-
ilvægt sé að þetta verði staðfest með lækn-
isskoðun.
„Ráðstafanir hafa verið gerðar til að minnka
notkun loftmengandi vinnuvéla og bæta loft-
ræstingu í göngunum. Eftirlit með mengunar-
mælingum hefur verið hert, viðmiðunarmörk
vegna hættulegrar mengunar munu hafa verið
lækkuð tímabundið og læknar tilkynna nú
hvert hugsanlegt atvik og tengsl þess við
vinnuumhverfið á þar til gerðum eyðublöðum,
sem eykur möguleikana á að tengja veikindi
við vinnuumhverfi.
Þrátt fyrir aðgerðir voru enn vísbendingar
um að ástandið í göngunum kynni að standa
tæpt fyrstu vikurnar eftir heimsókn landlækn-
is, sóttvarnalæknis og yfirlæknis vinnueftir-
litsins og nokkrar einstaklingsbundnar til-
kynningar bárust. Brýnt þótti að fylgjast
grannt með mengun andrúmslofts og stöðva
vinnu þegar mengun færi umfram viðmiðunar-
mörk. Síðasta mánuðinn hafa engar slíkar til-
kynningar borist, sem bendir til þess að úrbæt-
ur hafi borið tilætlaðan árangur,“ segir í
niðurstöðum skýrslunnar.
Gerir athugasemd við
ummæli yfirlæknisins
Þegar fréttir af veikindum starfsmanna birt-
ust í apríl lét Þorsteinn Njálsson yfirlæknir
hafa eftir sér að eftir að hafa farið yfir sjúkra-
skýrslur hefði verið tekinn saman listi rúmlega
180 manna og hann afhentur Vinnueftirlitinu.
Forsvarsmenn Impregilo töldu að læknirinn
færi með rangt mál. Í framhaldinu tók rúss-
neski læknirinn Vladimir Stanovko ljósrit af
listanum og afhenti Impregilo hann. Hann
taldi að úr því fram hefði komið í fjölmiðlum að
tæplega 200 hefðu veikst væri nauðsynlegt að
kannað yrði strax hvar þeir hefðu verið við
störf.
Landlæknir telur að Stanovko hafi farið út
fyrir heimildir sínar en þó verði að líta til þess
að vinnuveitandi hafi ríka hagsmuni af því að
vita um heilsutjón, sem starfsemi hans kann að
valda starfsmönnum, svo unnt sé að gæta ör-
yggis þeirra.
„Ummæli yfirlæknisins í fjölmiðlum eftir að
málið komst í hámæli voru óheppileg og orðum
aukin, en mikilvægt er að það yfirskyggi ekki
aðalatriði málsins, sem er að verkamönnum við
Kárahnjúkavirkjun verði boðin starfsaðstaða
sem stofni ekki heilsu þeirra í hættu í bráð og
lengd. Eftirfylgd þeirra mála er á höndum
Vinnueftirlits ríkisins,“ segir Matthías um þátt
yfirlæknisins.
Ekki náðist í Þorstein Njálsson yfirlækni til
að fá viðbrögð hans við skýrslunni.
Ekki lengur kvartað undan mengun
Í skýrslu landlæknis um veikindi starfsmanna Kárahnjúkavirkjunar í vor kemur fram að 40 fengu
matareitrun og á annan tug starfsmanna veiktist líklega eða örugglega vegna mengaðs lofts
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Heimsókn Joao de Lima Pimentel, sendi-
herra Portúgals, heimsótti Kárahnjúka í vor.
♦♦♦
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
LÚÐVÍK Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, segir að fyrir liggi yf-
irlýsing frá Alcan um að starfseminni
verði haldið áfram í Straumsvík og
það skipti máli fyrir Hafnarfjörð að
vinnustaðurinn verði áfram í bænum.
Michel Jacques, forstjóri Alcan
Primary Metal Group, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að Alcan væri
að skoða möguleika á frekari fjárfest-
ingum á Íslandi og ýmsir möguleikar
kæmu til greina, en líklegt væri að
Alcan myndi starfrækja tvö álver
hérlendis.
Engin áhrif
Lúðvík segir ljóst að Alcan hafi
horft í kringum sig og leitað að tæki-
færum og möguleikum eftir íbúa-
kosningarnar í vor. Alcan hafi gefið
út yfirlýsingar þess efnis að starf-
seminni yrði hald-
ið áfram í
Straumsvík sam-
hliða því að leita
að tækifæri til að
fara af stað ann-
ars staðar. Hann
skildi þetta þann-
ig að Alcan myndi
gera ráðstafanir
til að geta fengið
nauðsynlega nýtingu út úr rekstr-
inum í Straumsvík. Rekstur annars
staðar hefði í raun engin áhrif á
reksturinn í Straumsvík, því rekst-
urinn þar yrði áfram með svipuðu
sniði og undanfarin 40 ár. „Ég skynj-
aði það í umræðunni fyrir álverskosn-
ingarnar í vor að þrátt fyrir þær
skiptu skoðanir sem voru og hafa ver-
ið uppi um það hvort ætti að stækka
verksmiðjuna eða ekki þá hefði það
verið almenn skoðun íbúanna að ál-
verið í núverandi mynd myndi starfa
áfram. Það kom meðal annars fram
með skýrum hætti í sjónarmiðum
Sólar í Straumi að menn voru ekki að
tala fyrir því að leggja verksmiðjuna
niður. Það skiptir máli að það liggi
ljóst fyrir að menn ætla að halda
áfram starfseminni.“
Framhaldið í höndum Alcan
Í kosningunum í vor höfnuðu íbúar
Hafnarfjarðar hugmynd að deili-
skipulagi um stækkun álversins. Lúð-
vík segir að það sé engra annarra en
Alcan að vega og meta hvort aðrir
kostir séu í stöðunni. Það sé ekki bæj-
arfélagsins að stýra því og ekki held-
ur sé það ætlunin að leggja það mál
fyrir íbúana á líðandi kjörtímabili
kæmi það upp. Hann gæti ekki lýst
yfir sérstökum vonbrigðum með stöð-
una, málið lægi fyrir eins og það hefði
verið afgreitt og ljóst væri að það
væri í höndum Alcan hvernig litið
væri á stöðuna og tækifærin.
Áfram starfsemi í Straumsvík
Lúðvík Geirsson