Morgunblaðið - 23.06.2007, Side 18
FORELDRAR bresku stúlkunnar
Madeleine McCann slepptu í gær
fimmtíu gulum og grænum blöðr-
um upp í heiðbláan himininn á
strönd í Algarve í Portúgal til að
minnast þess að fimmtíu dagar
voru liðnir frá því að hún hvarf af
hóteli sínu í Praia da Luz.
Madeleine, sem var fjögurra
ára, var sofandi á hótelherbergi
sínu ásamt tveggja ára systrum
sínum tveimur þegar spurðist til
hennar síðast. Óttast er að einhver
hafi numið hana á brott. Foreldr-
arnir, Gerry og Kate McCann,
hafa neitað að gefast upp í leitinni
að Madeleine og hafa ferðast vítt
og breitt um Evrópu til að vekja
athygli á málinu, í þeirri von að
vísbendingar bærust um afdrif
Madeleine. Þau hafa einnig átt
fund með Benedikt XVI. páfa
vegna málsins. AP
50 dagar
frá hvarfi
Madeleine
18 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Brussel. AP, AFP. | Kanslari Þýska-
lands, Angela Merkel, reyndi enn í
gær ákaft að finna málamiðlun um
drög að breytingum á reglum um
ákvarðanatöku í Evrópusambandinu
en leiðtogafundur ESB stendur nú yf-
ir í Brussel. Pólverjar hafa barist hart
gegn tillögum um breytt atkvæða-
vægi sem þeir telja valda því að áhrif
þeirra dvíni.
Merkel lagði í gærkvöldi til að
samningar hæfust án aðildar Pól-
verja. Skömmu eftir þetta óvænta út-
spil Merkel sagði fulltrúa Litháa að
samningar væru að takast við leið-
toga Pólverja um málamiðlun, hið
sama sagði Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands. Hann sagði rétt fyr-
ir miðnætti að staðartíma að líklega
þyrftu menn eina eða tvær stundir í
viðbót til að ljúka samningunum en að
sjálfsögðu myndu
Pólverjar ákveða
sjálfir hvað þeir
vildu gera.
Blair var mjög
sáttur við þær
breytingar sem
gerðar höfðu verið
á samningsdrög-
um Þjóðverja til
að koma á móts
við óskir Breta er vilja m.a. hafa rétt
til að segja sig frá sameiginlegum
reglum á sviði löggæslu- og félags-
mála.
Þjóðverjar eru í forsæti ESB þetta
misserið fram til loka mánaðarins. Í
sjálfu sér gæti sambandið hafið samn-
ingaviðræður um breytingatillögurn-
ar þótt Pólland neitaði þátttöku, nóg
er að einfaldur meirihluti taki slíka
ákvörðun. En Merkel vildi reyna að
ná fram fullri einingu á fundinum um
framhaldið.
Jaroslaw Kaczynski, forsætisráð-
herra Póllands, olli miklu úlfaþyt er
hann sagði í sjónvarpsviðtali fyrr um
kvöldið að hann væri ekki ánægður
með þann árangur, sem náðst hefði.
„Ef þið spyrjið mig hvernig viðræð-
unum muni ljúka þá tel ég að þær
endi með því að við beitum neitunar-
valdi vegna þess að þvergirðingshátt-
ur viðmælenda okkar á sér engin tak-
mörk,“ sagði Kaczynski. Leiðtogar
Frakka og Breta, Nicholas Sarkozy
forseti og Tony Blair áttu báðir fundi
með Lech Kaczynski, forseta Pól-
lands sem er tvíburabróðir Jaroslaws
og situr fundinn í Brussel.
Pólverjar eru mjög andvígir nýjum
tillögum um atkvæðavægi ríkja innan
ESB sem m.a. gera ráð fyrir því að 15
af aðildarríkjunum 27 geti komið
fram málum ef íbúar í þessum 15 ríkj-
um eru að minnsta kosti 65% af öllum
íbúum í ESB en þeir eru nú um 490
milljónir.
Vongóðir um að Pólverjar
fallist á málamiðlun
Í HNOTSKURN
»Markmið fundarins var aðundirbúa samning er kæmi
í stað stjórnarskrárdraganna
sem felld voru í þjóðaratkvæði
í Frakklandi og Hollandi.
»Deilt hefur verið um margtá fundinum, m.a. hlutverk
ESB-fánans, sem er blár með
12 gullnum stjörnum og Óðinn
til gleðinnar, lag Beethovens,
oft nefnt þjóðsöngur ESB.
Angela Merkel
Genf. AFP. | Talsmenn Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF)
fordæmdu í gær vonda meðferð á
börnum sem uppvíst hefur orðið um
á munaðarleysingjahæli í Bagdad í
Írak og hvöttu þeir írösk stjórnvöld
til að gera þegar í stað úttekt á að-
stæðum allra barna sem búa á rík-
isreknum munaðarleysingjahælum.
Bandarískir hermenn fundu fyrir
nokkrum dögum 24 drengi á aldr-
inum þriggja til fimmtán ára sem
sættu hroðalegri meðferð á Al-
Hanan-munaðarleysingjahælinu í
Bagdad. Sumir voru bundnir fastir
við rúm sín og máttu liggja í saur sín-
um, en aðrir voru of veikburða til að
geta staðið upp. Myndir af aðstæð-
um voru sýndar hjá bandarísku sjón-
varpsstöðinni, CBS, og vöktu tölu-
vert umtal.
„Jafnvel í landi þar sem ofbeldi er
framið daglega þá voru þessar
myndir sannarlega hroðalegar á að
líta. Það er fullkomlega óviðunandi
að láta börn þjást með þessum
hætti,“ sagði Roger Wright, tals-
maður UNICEF í málefnum Íraks.
Fagnaði hann þeirri yfirlýsingu
Nuris al-Maliki, forsætisráðherra
Íraks, að aðstæður á munaðarleys-
ingjahælum í Írak yrðu kannaðar.
Harma
slæma með-
ferð barna
AP
Óviðunandi Írösku drengirnir búa
nú við betri aðstæður en áður.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
BRÁÐNANDI ísjakar á reki við
Suðurskautslandið eru eins konar
umhverfisorkustöðvar sem efla líf-
ríkið í sjónum í kringum sig og eiga
sennilega þátt í að draga úr hættunni
á því að hlutfall koldíoxíðs verði of
hátt í andrúmsloftinu. Jakarnir gefa
frá sér steinefni sem þeir hafa skrap-
að upp af klöppum Suðurskauts-
landsins, efnin fara í gegnum fæðu-
keðjuna og valda því að úrgangur
með koldíoxíði sekkur niður á sjáv-
arbotn, segja bandarískir vísinda-
menn sem rannsakað hafa lífríkið á
þessum slóðum, að sögn vefsíðu
breska útvarpsins, BBC.
„Á sama hátt og vatnslindir eru
„heitir reitir“ í eyðimörkum eru ís-
jakar á reki eins og vinjar í hafinu við
Suðurskautslandið, þeir ýta undir
framleiðslu á lífrænu efni,“ sagði
Russell R. Hopcroft sem starfar við
haffræðistofnun Alaska-háskóla í
Fairbanks.
Svif étur steinefnin, kríll svifið
Hann segir menn hafa vitað að
svipað ferli ætti sér stað við jaðarinn
á ísrönd á hafinu en nýtt sé að það
gerist einnig við staka jaka.
Örsmátt
plöntusvif lifir
á steinefnunum
og kom í ljós að
það þrífst afar
vel í grennd við
jakana en
dvergrækja er
nefnist kríll ét-
ur síðan
plöntusvifið. Geysimikið er af kríl við
Suðurskautslandið, úrgangurinn frá
honum inniheldur meðal annars kol-
díoxíð sem sekkur til botns. Kríll er
ein helsta fæða sumra hvala, þ.á m.
steypireyðar, stærstu skepnu heims.
Fjöldi ísjaka á þessum slóðum hef-
ur aukist síðustu áratugi vegna hlýn-
unar andrúmsloftsins, segir í grein
vísindamannanna sem birtist í vefrit-
inu Science Express. Rannsóknirnar
fóru fram í Weddell-hafi í árslok
2005 og var athyglinni beint að tveim
jökum, annar var um einn ferkíló-
metri að flatarmáli, hinn mun stærri
eða um 100 ferkílómetrar. Safnað
var sýnum með neti og fjarstýrðu
vélmenni. Í ljós kom að mun meira
var af steinefnum, plöntusvifi, kríl og
sjófuglum á svæðinu umhverfis jak-
ana en annars staðar á auðum sjó.
Áhrifin mældust í allt að 3,7 kíló-
metra fjarlægð frá jökunum.
Bráðnandi ísjak-
ar efla lífríki
Bæta mikilvægum steinefnum í sjóinn
MotorMax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400
MotorMax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070 - MotorMax Akureyri - Sími 460-4350
www.motormax.is
Við hjá MotorMax erum nú að afgreiða nýja
Camp-let tjaldvagna og Starcraft fellihýsi.
Líttu við og skoðaðu þessa sannkölluðu draumavagna.
„Draumavagninn þinn
er tilbúinn hjá okkur”