Morgunblaðið - 29.07.2007, Page 34

Morgunblaðið - 29.07.2007, Page 34
34 SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Sími 533 4800 165,7 fm þakíbúð í miðborginni með frábæru útsýni. Íbúðin er 5 herbergja og skiptist í 3 svefnherbergi, stofu, borðstofu, sjónvarpskrók, eldhús, 2 baðherbergi, forstofu, þvottaherbergi og góðar svalir með útsýni yfir sjóinn. Eign sem vert er að skoða. V. 59,9 millj. Hverfisgata – frábært útsýni 81,5 fm íbúð á fjórðu hæð með 4,5 fm geymslu á jarðhæð. Íbúðin skiptist í sjónvarps- hol, 2 svefnherbergi, snyrtingu, eldhús, stofu og góðar svalir. Stæði í bílageymslu fylg- ir. V. 25 millj. Boðagrandi Stórglæsileg 144,6 fm neðri sérhæð í tvíbýli auk 24,4 fm bílskúrs, alls 169,0 fm. Húsið sem er byggt árið 2004 skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, eldhús, sjónvarpshol, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Sjón er sögu ríkari. V. 68,5 millj. Súlunes – Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! – Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Sími 533 4800 Vorum að fá í einkasölu 480 fm stórglæsi- legt einbýli á tveimur hæðum á frábærum stað í Reykjavík. Húsið skilast fullbúið að utan og fokhelt að innan, ásamt ísteyptum hitalögnum. Möguleiki er að fá húsið afhent lengra komið. Lóð skilast grófjöfnuð. Mikil lofthæð er í húsinu. 112 fm þaksvalir. Húsið er teiknað af Gunnari Óskarssyni. Hönnun raflagna frá Lúmex. Nánari upplýsingar á skrifstofu Miðborgar. V. 135 millj. Stigahlíð – Nýtt einbýli – Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! – STEFÁN Þórarinsson rifjaði upp í sunnudagsblaðinu 8. júlí, hvernig stjórn sjávarútvegsráðu- neytisins á aflamarki þorsks hófst 1984. Þá starfaði hann í ráðuneyt- inu. Um það leyti, sem stjórn þorskaflamarks hófst, hélt Líf- fræðifélag Íslands málþing um ástand þorskstofnsins. Þar var því haldið fram, að hug- myndir Hafrann- sóknastofnunar um uppbyggingu þorsk- stofnsins væru vit- lausar, þar sem þær tækju ekki tillit til fæðuskilyrða, helsta áhrifavalds um við- gang dýrastofns. Með- al þeirra, sem héldu þessu þar fram í fyr- irlestri, voru Jón Gunnar Ottósson, nú forstjóri Nátt- úrufræðistofnunar Ís- lands, og Jón Kristjánsson fiski- fræðingur. Þeir Jón Kristjánsson og Tumi Tómasson, nú for- stöðumaður Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna, lögðu um leið fyrir fréttamenn samantekt á gagnrýni á stefnu í fiskveiðum (www.fiski.com/skrar/ gagnr84.html). Nú orðið er Jóni einum gjarna eignaður sá mál- staður, sem þarna kom fram, þar á meðal af Stefáni Þórarinssyni í áð- urnefndu viðtali. Fleiri atkvæðamikilla líffræðinga verður að geta, sem hafa op- inberlega haft sjónarmið það, sem þeir Jónar og Tumi settu fram 1984. Fyrst er að nefna Jón Jóns- son, forstöðumann Hafrann- sóknastofnunar, sem bendir á í grein um mikilvægi fæðuskilyrða í Ægi 1964 (Ofveiði eða kjörveiði), hvernig of lítil veiði getur verið skaðleg, sbr. athugasemd mína í Náttúrufræðingnum 2001 (Ofveiði, of lítil veiði eða kjörveiði). Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur hélt því fram í Morgunblaðinu 1992, að mikilvægt væri að meta fæðuskilyrði og fann að því, að svo var ekki gert í stofnun, sem hann kynnti sér og hafði verið talin til fyrirmyndar, sbr. grein mína í Morgunblaðinu sama ár (Villuljós Hafrannsóknastofnunar). Lands- samband útvegsmanna hefur þrátt fyrir það ekki fundið að því, að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um aflamark er ætíð án tillits til fæðu- skilyrða, og hefur Kristján þó starfað þar alla tíð síð- an þá. Raunar fór hann til starfa hjá Landssambandinu með það í huga að kenna slíkt; áður en til þess kom, hafði hann kennt mér nokkuð í þeim efnum, þar sem við vorum á sama vinnustað. Greinin um Villuljós er um sögu ráðandi skoðana, þar sem kemur fram, að þeir þrír Jónar, sem hér eru nefndir, flytja mál, sem var almennt viðurkennt, og er grundvöllur líffræði ofan sjávar og neðan, og um það, hvern- ig menn villtust. Loks nefni ég líf- fræðinginn Össur Skarphéðinsson, sem lofaði fiskveiðiráðgjöf Jóns Kristjánssonar í umræðum á Al- þingi í fyrravetur. Það kemur fram í viðtalinu við Stefán Þórarinsson, að hann hefur lagt á ráðin um víða um heim, en í aflamarksstjórn er aldrei tekið til- lit til fæðuskilyrða. Það er reyndar ekkert óvenjulegt, að þróun- araðstoð sé vitlaust hugsuð frá grunni. Og nú vill hann bæta um betur hér á landi með tillögum um tilflutning á aflamarki og að draga úr veiðiálagi á fiskistofn, sem þeg- ar er vesæll, vitaskuld af því, að fiskarnir eru of margir um tak- markaða næringu. Stefán reynist því ekki kunna annað, þegar hann kemur til viðtals við Morgunblaðið, en það, sem menn villtust til að halda 1984. „Hann er léttur“ hafði Morg- unblaðið eftir framkvæmdastjóra Landssambands útvegsmanna um þorskinn, þegar Hafrann- sóknastofnun kynnti ráðgjöf sína í vor. Það er svo í lífríkinu, að dýra- stofn, sem býr við vesöld („er létt- ur“), verður enn vesælli, ef menn hlífast frekar en áður við að veiða hann. Þegar þess er gætt, að að Landssambandinu standa öflug fyrirtæki með velmenntaða starfs- menn, er merkilegt, að eigendur fyrirtækjanna horfi upp á það, án þess að finna að, að ekki sé beitt aðferðum aðgerðagreiningar að meta þá stöðu, sem er („hann er léttur“), á þá ráðstöfun að tak- marka veiði enn frekar. Verkefnið til greiningar væri þetta: Dýra- stofn hefur verið veiddur að vissu marki, aflamarki. Dýrin eru nú vannærð og vesæl og ekki girnilegt hráefni til matar. Til hvers mundi það leiða, ef enn yrði dregið úr veiði? Mundi stofninn braggast og stækka, eins og menn vilja? Hafrannsóknastofnun verður fyr- ir miklu aðkasti, en hún haggast ekki. Allmargir starfsmenn hennar hafa reyndar sagt upp starfi und- anfarið. Þeir, sem halda fram gagnrýni á rök og ráð stofnunar- innar, verða líka fyrir aðkasti og óþægindum. Sumir haggast, óttast aðkast og sitja hjá. Ég nefndi hér að ofan nokkra atkvæðamikla menn. Það er ekki að sjá, þar sem helst mætti vænta, að neitt kveði að þeim í þessum efnum. Vernd vesælla þorska Björn S. Stefánsson skrifar um þorskaflamark og fisk- veiðiráðgjöf » Það er svo í lífríkinu,að dýrastofn, sem býr við vesöld, verður enn vesælli, ef menn hlí- fast frekar en áður við að veiða hann. Björn S. Stefánsson Höfundur er dr.scient. og er í Vís- indafélagi Norðmanna. GUÐNI Ágústsson formaður Framsóknarflokksins hefur ekki verið æstur aðdáandi þess að Ís- land gengi í Evrópu- sambandið. Hann gerir sér hins vegar grein fyrir því að rússíbanareið ís- lensku krónunnar er að valda miklum bú- sifjum hér á landi. Í viðtali við Við- skiptablaðið fyrir skömmu sagði hann sögu af tveimur bændum sem komu til hans út af þungri greiðslubyrði af lán- um vegna drátt- arvélakaupa. Í viðtal- inu segir orðrétt. „Guðni nefnir sem dæmi að fyrir fimm árum komu til hans tveir bændur sem voru að velta því fyr- ir sér að breyta sín- um íslensku skuldum úr krónum í japönsk jen. Á þeim tíma töldu bankamenn og telja margir enn að maður ætti að hafa skuldir sínar og tekjur í sömu mynt. „Annar þessi bóndi gekk þessa leið en hinn hélt sig við íslensku myntina og verðtrygginguna. Skuldirnar hafa bara minnkað hjá þeim sem er með jenin en hjá hinum hafa þær hækkað. Þannig að þarna glímum við við vandamál sem póli- tík dagsins í dag og framtíð- arinnar þarf að fást við... Við verð- um því að velta þessu fyrir okkur með okkar krónu, aðalatriðið er að verðbólgan fari niður. Síðan þurfa menn að spyrja hvort við eigum að tengja krónuna á annan hátt. Það getur vel verið að tenging við dollara sé ekkert síðri en við evru. Þetta er verk- efni bæði hagfræðinga og stjórnmálamanna.“ Á þessu sést að Guðni er ekki bjart- sýnn á að íslenska krónan eigi framtíðina fyrir sér. Þetta er at- hyglisvert því hingað til hefur hann haldið jafn mikill tryggð við krónuna og íslensku nautgripina. Við spyrjum því háttvirtan formann Framsókn- arflokksins: Telur hann það vænlegri lausn að tengja okkur við bandaríska mynt þar sem við eigum um 10% af okkar við- skiptum frekar en við mynt Evr- ópusambandsins þar sem yfir 70% af okkar viðskiptum fara fram? Guðni og dráttarvélarnar Andrés Pétursson skrifar um íslensku krónuna og teng- inguna við aðrar myntir Andrés Pétursson » Guðni erekki bjart- sýnn á framtíð íslensku krón- unnar Höfundur er formaður Evrópusam- takanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.