Morgunblaðið - 29.07.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 39
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
NESBALI - ENDARAÐHÚS
Vorum að fá í einkasölu glæsilegt 251 fm
endaraðhús á Seltjarnarnesi. Húsið skiptist
m.a. í stórar stofur, borðstofu, eldhús, tvö
baðherbergi og fimm herbergi. Arinn í
stofu. Mikil lofthæð er í húsinu. Glæsilegt útsýni. Falleg lóð til suðurs. Einstök
staðsetning en húsið stendur við opið svæði næst Nestjörn.
Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali.
Til sölu er rekstur veitingastaðarins Fjöruborðsins á Stokkseyri, stað-
settur á frábærum stað við sjávarsíðuna. Húsnæðið hefur verið mikið
endurnýjað á undanförum árum og tekur um 250 manns í sæti í þrem-
ur sölum auk útiaðstöðu. Staðurinn er opið allt árið. Rekstaraðilar hafa
haft húseignina á leigu, en möguleiki er að kaupa fasteignina samhliða
kaupunum. Veitingastaður
sem hefur skapað sér sér-
stöðu í bæ sem hefur verið
í miklum blóma síðustu ár.
Fjöruborðið - Stokkseyri
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Nánari upplýsingar
veittar á skrifstofu.
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
SUMARHÚS - HALLKELSHÓLAR
Mjög vandað 45,5 fm heilsárshús byggt 1992 með heitum potti
og verkfærahúsi. Góð verönd og skjólveggir. Bústaðurinn skipt-
ist í hol, stofu, eldhús, 3 svefnherbergi og baðherbergi m. nýjum
sturtuklefa. V. 13,9 millj. 7420
Húsið er til sýningar um helgina 28. og 29 júlí
Nánari upplýsingar gefur Ásgeir í síma s. 821-7100
SANDAVAÐ - PENTHOUSE
Vorum að fá í einkasölu glæsilega, u.þ.b. 125 fm, 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í
þessu vandaða lyftuhúsi. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Fullbúin ný íbúð með
vönduðum eikarinnréttingum, eikarparketi, öll tæki í eldhúsi fylgja m.a. ísskápur,
uppþvottavél og örbylgjuofn. Stórar suðvestursvalir þar sem gert er ráð fyrir potti.
Glæsilegt útsýni. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning. Áhvílandi u.þ.b. 26 millj
til 40 ára, ÍLS og hattalán. Verð 34,9 millj.
Sími 534 8300 • Kirkjustétt 4 • 113 Reykjavík • www.storborg.is • storborg@storborg.is
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Vesturgata - Hafnarf. - parhús
Nýkomið í einkasölu glæsilegt,
175,8 fm, parhús á friðsælum stað
við miðbæinn og höfnina. Húsið
afhendist strax, fullbúið að utan.
Búið er að mála að innan. Sjón er
sögu ríkari. Batteríið arkitektar.
Verð 47 millj.
ÞAÐ dylst engum sem leið á um
Sveitarfélagið Hornafjörð að þar
stendur mikið til um þessar mundir.
Allt er á fullu í und-
irbúningi fyrir 10. Ung-
lingalandsmót UMFÍ
sem fram fer um versl-
unarmannahelgina.
Nú er nýlokið fram-
kvæmdum við Sindra-
velli þar sem byggð var
upp glæsileg aðstaða
fyrir frjálsar íþróttir og
nýtt gras lagt á knatt-
spyrnuvöllinn. Fram-
kvæmdir sem þessar
kosta auðvitað umtals-
verða fjármuni en
framkvæmdirnar eru
samstarfsverkefni
sveitarfélagsins, ríkissjóðs, UMFÍ
og Ungmennasambandsins Úlfljóts.
Á Unglingalandsmótinu sumarið
2005 sem haldið var í Vík í Mýrdal
var það opinberað að stjórn UMFÍ
hefði ákveðið að Ungmenna-
sambandið Úlfljótur skyldi halda
mótið sumarið 2007 á Hornafirði.
Mikil gleði og eftirvænting greip þá
þegar um sig í herbúðum Hornfirð-
inga og fólk fór strax að undirbúa
mótið. Frá upphafi var ljóst að mikið
verk var fyrir höndum í uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja. Sveitarfé-
lagið tók höndum saman við íþrótta-
hreyfinguna á staðnum og fólk var
staðráðið í því að byggja hér upp
glæsilega aðstöðu. Það hefur nú
gengið eftir.
Unglingalandsmót bæta að-
stöðu íþróttafólks á lands-
byggðinni
Allur undirbúningur Unglinga-
landsmótsins hefur verið gríðarleg
vítamínsprauta fyrir allt íþróttalíf
Hornfirðinga. Iðkendur í frjálsum
íþróttum sjá nú fram á skemmtilega
æfinga- og keppnisdaga við frábærar
aðstæður og knattspyrnufólk Sindra
hlakkar til að geta spilað á glænýjum
grasvellinum næsta sumar. Einnig
var ráðist í það verkefni með Akst-
ursíþróttafélag Austur-Skaftafells-
sýslu að byggja upp mótorkross-
braut í nálægð við þéttbýlið á Höfn
svo hægt yrði að keppa í mótorkrossi
á landsmótinu. Aldrei hefur áður
verið keppt í þeirri grein á Unglinga-
landsmóti. En þetta er ekki það eina
sem umstangið í kringum mótið hef-
ur getið af sér.
Þegar forsvarsmenn Ungmenna-
sambandsins Úlfljóts leituðu eftir
fjármagni einkaaðila á staðnum í
tengslum við uppbyggingu íþrótta-
mannvirkjanna kom í ljós vilji út-
gerðarfyrirtækisins Skinneyjar-
Þinganess hf. til þess að koma mynd-
arlega að uppbyggingunni. Áhugi
fyrirtækisins var ekki síst tilkominn
vegna þess að fyrirtækið fagnar 60
ára afmæli sínu um þessar mundir.
Eftir umhugsun og umræður var það
niðurstaða stjórnar Skinneyjar-
Þinganess hf. að leggja a.m.k. 60
milljónir kr. í uppbyggingu knatt-
spyrnuhúss í líkingu við Risann sem
Fimleikafélag Hafnarfjarðar reisti í
Kaplakrika. Þetta verkefni er nú
komið á fullt skrið hjá sveitarfé-
laginu og vonumst við til þess að
framkvæmdir við knattspyrnuhúsið
hefjist í vetur.
Fljótlega eftir að ljóst varð að
Unglingalandsmótið 2007 yrði haldið
á Hornafirði komu fram óskir hjá
íbúum sveitarfélagsins um nýja
sundlaug. Sú gamla er lítil og þjón-
usturými af skornum skammti en
laugin hefur þjónað sínu hlutverki
mjög vel engu að síður. Bæjarstjórn
Hornafjarðar tók ákvörðun um það
fljótlega eftir að óskir um nýja sund-
laug komu fram að ráðist skyldi í
byggingu nýrrar sundlaugar. Ákveð-
ið var að byggja 25 metra laug með
glæsilegri þjónustubyggingu. Hér er
um gríðarlega stórt og metnaðarfullt
verkefni að ræða fyrir sveitarfélag
eins og Hornafjörð. Skemmst er frá
því að segja að ekki tókst að ljúka
byggingu sundlaugarinnar fyrir
Unglingalandsmótið af tæknilegum
ástæðum. Bygging sundlaugarinnar
er í fullum gangi þessa dagana og
vonandi geta gestir og
heimamenn tekið sund-
sprett í nýrri laug áður
en langt um líður.
Af þessari upptaln-
ingu að dæma er ljóst
að sú ákvörðun að
halda Unglingalands-
mót UMFÍ 2007 á
Hornafirði hefur haft
mjög jákvæð áhrif á allt
íþróttalíf í sveitarfé-
laginu. Allri uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja
hefur verið hraðað hjá
sveitarfélaginu og
einkaaðilar hafa komið
að uppbyggingunni með mynd-
arlegum hætti. Þetta hefur allt stuðl-
að að því að brátt mun hornfirskt
íþróttafólk búa við frábærar að-
stæður til þess að iðka sína íþrótt.
Engum blöðum er um það að fletta
að góð aðstaða hvetur fólk til dáða og
mun auka iðkun hvers kyns íþrótta í
samfélaginu til muna.
Mikið sjálfboðaliðastarf
Eins og gefur að skilja er það
langt frá því að vera einfalt mál að
taka á móti 10.000 gestum á einni
helgi. Það krefst mikils skipulags og
mikillar vinnu. Það er greinilegt að
Hornfirðingar eru mjög meðvitaðir
um það og nú þegar hafa hátt í
hundrað manns boðið sig fram til
þess að starfa sem sjálfboðaliðar á
mótinu. Þetta sýnir svo ekki verður
um villst að heimamenn munu gera
sitt ýtrasta til þess að hlutirnir gangi
vel fyrir sig um verslunarmannhelg-
ina svo dvöl gesta okkar verði
ánægjuleg. Á göngu um bæinn finn-
ur maður vel spennuna fyrir mótinu
magnast á meðal bæjarbúa og maður
finnur vel að allir eru staðráðnir og
samstiga í því að láta helgina verða
eftirminnilega. Við slíkar aðstæður
er gaman að starfa.
Undirritaður vill því nota þetta
tækifæri til þess að bjóða allt það
fólk sem hefur áhuga á því að
skemmta sér með okkur á þessari
áfengis- og vímulausu hátíð velkomið
á Unglingalandsmót UMFÍ á Horna-
firði um verslunarmannhelgina.
Unglingalandsmót
UMFÍ á Hornafirði
Landsmótið hefur jákvæð áhrif
á allt íþróttalíf í sveitarfé-
laginu, segir Árni Rúnar Þor-
valdsson
»Engum blöðum erum það að fletta að
góð aðstaða hvetur fólk
til dáða og mun auka
iðkun hvers kyns íþrótta
í samfélaginu til muna.
Árni Rúnar
Þorvaldsson
Höfundur er forseti bæjarstjórnar
Hornafjarðar.