Morgunblaðið - 29.07.2007, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 61
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
WWW.SAMBIO.IS
tv - kvikmyndir.is
eee
LIB, Topp5.is
HLJÓÐ OG MYND VIPSALURINNER BARA LÚXUSER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
NANCY DREW FORSÝND kl. 8 B.i. 7 ára
THE SIMPSONS m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
HARRY POTTER K. 5 - 10 B.i. 10 ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
NANCY DREW FORSÝND kl. 8 B.i. 7 ára
GEORGIA RULE kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 10 B.i. 10 ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ
eeee
FGG - Fréttablaðið
eeee
ÓHT - Rás2
eeee
Morgunblaðið
eeee
RUV
eeee
DV
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
ÁSTIN ER BLIND
STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS
HEFURÐU UPPLIFAÐ HIÐ
FULLKOMNA STEFNUMÓT?
FORSÝNING Í KVÖLD
REYKJAVÍK • KEFLAVÍK • AKUREYRI
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
SPARBÍÓ 450kr
á allar sýningar merktar með appelsínugulu
Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK
Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR laugardag og sunnudag
www.SAMbio.is
HARRY POTTER 5 - KL.1 OG 2 Í ÁLFABAKKA, 2:30 Í KRINGLUNNI OG KL 2 Á AKUREYRI
SHREK 3 MEÐ ÍSLENSKU TALI KL. 1 OG 2 Í ÁLFABAKKA, OG KL. 2 Í
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK EVAN ALMIGHTY KL. 2 OG 4 Í ÁLFABAKKA
SparBíó 450krí
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
TÓNLISTARMAÐURINN Prince
fer jafnan eigin leiðir í tónsmíðum og
flutningi. Nýverið fór hann og
óvenjulega leið með nýrri skífu sinni,
Planet Earth – gaf hana og hagnaðist
vel fyrir vikið.
Málið er að um næstsíðustu helgi,
sunnudaginn 15. júlí, fylgdi platan
með hverju seldu eintaki af blaðinu
Mail of Sunday, en blaðið kostar jafn-
an um 170 krónur.
Samband plötuverslana í Bretlandi
mótmælti þessu athæfi harðlega svo
Columbia, fyrirtækið sem leigði út-
gáfuréttinn að Planet Earth (Prince á
allan rétt á sínum plötum), hætti við
að gefa plötuna út í Bretlandi og fyr-
irtækið sem tekur saman topplista
neitaði að hafa hana með á metsölu-
listanum þó að ljóst væri að hún hefði
átt heima á toppnum, því 2,6 milljónir
eintaka seldust af blaðinu og plötunni
þar með.
46. hljómplatan
Planet Earth var 26. hljóðversskífa
Prince og 46. platan sem hann gefur
út frá því fyrsta platan, For You, kom
út fyrir tæpum þrjátíu árum. Sú skífa
var ósköp venjuleg, en með þriðju
plötunni, Dirty Mind, sýndi hann
hvers hann er megnugur, brautryðj-
endaverk, og fjölmargar frábærar
plötur fylgdu í kjölfarið. Hæst náði
Prince á ferlinum með Purple Rain,
sem kom út 1984 og seldist í 20 millj-
ónum eintaka, en hans besta verk er
Sign ’O’ the Times sem kom út 1987,
þó fjölmargar af hans plötum séu
hreint afbragð.
Síðustu ár hefur síðan hallað undan
fæti hjá Prince, meðal annars vegna
deilna hans við útgáfufyrirtæki sitt,
en hann hefur smám saman náð átt-
um og síðustu plöturnar á undan
Planet Earth eru góðar, sérstaklega
3121 sem kom út á síðasta ári. En
þrátt fyrir það hefur sigið á ógæfu-
hliðina hjá honum hvað varðar plötu-
sölu, ekki síst í Bretlandi þar sem
3121 seldist ekki nema í um 80 þús-
und eintökum (hún fór í um 500.000
eintökum vestan hafs).
Heillaráð
Í því ljósi er sú ákvörðun Prince að
gefa skífuna heillaráð, í raun frábær
auglýsing fyrir hann sem tónlistar-
mann, ekki síst ef litið er til þess að
platan er einkar vel heppnuð. Fleira
hangir líka á spýtunni. News on
Sunsday borgar Prince sem svarar
um 30 milljónum króna fyrir að fá að
dreifa plötunni með blaðinu og greiðir
að auki framleiðslukostnað og öll
gjöld vegna höfundar- og flutnings-
réttar, um 120 milljónir króna. Þetta
er allnokkru meira en Prince hefði
fengið fyrir 80.000 eintaka sölu af
Planet Earth.
Til viðbótar við þetta kemur svo að
Prince hyggur á tónleika í O2 Arena í
Lundúnum (Þúsaldarhöllinni) á tíma-
bilinu 1. ágúst til 16. september, 21
tónleika alls. Áður en platan kom út
var uppselt á fimmtán þessara tón-
leika, en um 20 þúsund manns kom-
ast að á hverja tónleika. Þessar ríf-
lega tvær milljónir eintaka sem dreift
var af plötunni í Bretlandi urðu svo til
þess að nú er nánast uppselt á alla
tónleikana, sem gefur veltu upp á
tæpa tvo milljarða.
Snilldar markaðssetning
Prince hefur gert meira en ofan-
greint til að koma sér rækilega í
sviðsljósið að nýju; setti upp klúbb í
Las Vegas þar sem hann spilaði tvisv-
ar í viku fyrir fullu húsi mánuðum
saman, spilaði í hálfleik á úrslitaleik
ruðningsins bandaríska, sendi frá sér
ilmvatn og lagði til lag í auglýsinga-
herferð Verizon og seldi fyrirtækinu
leyfi til að gefa titillag Planet Earth,
hefur haldið sértónleika þar sem hver
miði kostar hundruð þúsunda og svo
má lengi telja.
Það er löngu sannað að fáir standa
Prince á sporði hvaða varðar snilli-
gáfu í tónsmíðum og flutningi, en
hann er nú búinn að skjóta öllum
keppinautum sínum ref fyrir rass
hvað varðar markaðssetningu og
kynningu á tónlist á nýrri öld. Hann
er búinn að sanna að samdráttur í
plötusölu þýðir ekki að minni áhugi sé
fyrir tónlist og að það sé ekki lögmál
að tónlistarmenn geti þá aðeins lifað
að útgefendur hagnist.
Prince nýrrar aldar
Prince Tónlistarmaðurinn er gjafmildur eins og aðalsfólki sæmir.