Morgunblaðið - 29.07.2007, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 210. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 16°C | Kaldast 10°C
Suðvestan 3-8 metr-
ar á sekúndu og dálítil
súld eða rigning vest-
an til. Léttskýjað aust-
anlands. Hlýnar. » 8
ÞETTA HELST»
Takmörkuð auðlind
Vatn gæti innan fárra ára orðið að
dýrmætasta efni veraldar. Innan
tveggja áratuga er áætlað að þrír
milljarðar jarðarbúa muni búa við
ótryggt vatnsframboð. Baráttan um
yfirráð yfir vatnslindum kann að
verða helsta ástæða átaka á þessari
öld. » Forsíða
Ísland gæti náð lengra
Nóbelsverðlaunahafinn Edward
C. Prescott segir að Íslendingar hafi
náð eftirtektarverðum árangri í
efnahagsmálum og að íslenska hag-
kerfið sé eitt það fremsta í heim-
inum, en að enn sé hægt að stefna
hærra. » 6
Ferðamenn tilbúnir
að greiða fyrir aðgang
Ný rannsókn sýnir að mikill
meirihluti innlendra sem erlendra
ferðamanna er tilbúinn að greiða að-
gangseyri að vinsælustu ferða-
mannastöðum landsins fari féð til
uppbyggingar staðanna. » 2
Flýta á framkvæmdum
við Akureyrarflugvöll
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í
fyrradag að flýta skuli fram-
kvæmdum við Akureyrarflugvöll og
þeim skuli lokið haustið 2008. Krist-
ján L. Möller segir að þetta sé liður í
þeim áformum stjórnvalda að
styrkja þróun atvinnulífs á lands-
byggðinni. » Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Skeleggur
iðnaðarráðherra
Forystugreinar: Fjarvinnsla kemst
á flug | Reykjavíkurbréf
Ljósvaki: Svefngenglar á Skjánum
UMRÆÐAN»
Til varnar rökrænni umræðu
Hvers vegna?
Litli-Kláus og Stóri-Kláus á Íslandi
Hugsum hærra í vegamálum
TÓNLIST»
Suzanne Vega hefur
aldrei verið betri. » 60
Björgvin Halldórs-
son syngur með
Ragga Bjarna, Meg-
asi, Stebba Hilmars
og fleiri íslenskum
listamönnum. » 57
TÓNLIST»
Íslandslög 7
að koma út
KVIKMYNDIR»
Brad og Gwyneth saman
á ný á hvíta tjaldinu. » 70
TÓNLIST»
Prince er örlátur og gef-
ur Bretum plötu. » 61
Keira Knightley,
Natalie Portman,
George Clooney og
Brad Pitt koma öll
við sögu á kvik-
myndahátíð. » 58-59
Gnægtaborð
í Feneyjum
KVIKMYNDIR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Óleyfilegar útsendingar trufla …
2. Franskur ökuþór vísar …
3. Fór úr sónar í sjálfsvígsárás
4. J.K. Rowling aftur sest við …
„ÍSLENDINGUM finnst svo gaman
að tala ensku að það er mjög erfitt
að æfa sig í íslensku,“ segir finnskur
skiptinemi sem hefur verið að læra
íslensku í Háskóla Íslands.
Á hverju ári koma margir skipti-
nemar til Íslands, hver og einn með
vonir og væntingar til dvalarinnar.
Áttu erfitt með
að finna húsnæði
Í samtölum blaðamanns Morg-
unblaðsins við fjóra skiptinema, sem
birtast í dag, kemur fram að upp-
lifun þeirra á Íslandi var mjög mis-
munandi. Sumum fannst Íslend-
ingar sýna útlendingum mikla
andúð, en aðrir áttu ekki orð yfir það
hvað þeir voru heppnir að vera
hérna. Það barst í tal að ekki væri
auðvelt að nálgast Íslendinga og að
þeir hefðu litla umhverfisvitund.
Sumir skiptinemanna áttu í mestu
erfiðleikum með að finna húsnæði.
Auk þess fannst flestum íslensku-
kennslu í Háskólanum ábótavant,
fyrst og fremst vegna þess að of
margir voru í tímum og of hratt farið
yfir. | 28
Ólík upp-
lifun útlend-
inganna
LEITUN er að eftirminnilegri tón-
leikaför íslenskrar hljómsveitar en
þeirri sem Sigur Rós fór í um
sveitir landsins í fyrrasumar. Nú er
von á kvikmynd um ferðalagið og
verður fyrsta sýnishornið úr mynd-
inni frumsýnt á mánudaginn, bæði
á vefsíðu breska tónlistartímarits-
ins NME (nme.com) sem og á
mbl.is.
Einnig ber til tíðinda að tónlist
sveitarinnar heyrist í stuttmynd
Andrew McPhillips, „Blood Will
Tell,“ sem fjallar um stökkbreyttar
moskítóflugur sem herja á hol-
lenskan smábæ á sextándu öld.
Stuttmyndin verður sýnd á kvik-
myndahátíðinni í Toronto en enn á
þó eftir að ganga endanlega frá
svokölluðum „festival rights“ fyrir
notkun tónlistarinnar í myndinni en
um slíkt þarf að semja sérstaklega.
Myndskeið
frumsýnt
Klambratún Sigur Rós á tónleikum.
SKÝSTRÓKUR myndaðist á Skeiðarársandi, rétt aust-
an við Skeiðarárjökul, upp úr kl. 14.30 á föstudaginn
var. Jón G. Sigurðsson, flugmaður hjá Atlantsflugi sem
annast m.a. útsýnisflug úr Skaftafelli og tók myndina,
taldi skýstrókinn hafa a.m.k. teygt sig í 2.000 feta (610
metra) hæð. Sagði Jón strokkinn hafa verið mjög öfl-
ugan þegar hann myndaðist.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur bloggaði um
skýstrokkinn (esv.blog.is) og þótti tilurð hans „talsvert
mikil tíðindi“. Einar vitnaði í starfsmann Veðurstof-
unnar sem sá skýstrokkinn. Samkvæmt lýsingu hans
myndaðist raninn neðan úr dökkum skýjabotni. Hann
stækkaði og náði fljótt til jarðar yfir sandinum. Þá tók
skýstrokkurinn á rás og þyrlaði upp sandi og ryki.
Varði fyrirbærið í nokkrar mínútur og var afar til-
komumikið að sjá.
Þyrlaði upp ryki og sandi
Skýstrókur myndaðist á Skeiðarársandi
Ljósmynd/Jón G. Sigurðsson
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
SIMON Kirby, „njósnari“ Bolton og sonur Peggy og
George Kirbys, fyrrverandi þjálfara ÍA, notaði tæki-
færið í Íslandsferð með fjölskyldunni og trúlofaðist
Tony, unnustu sinni, á ferjunni Baldri á siglingu á
Breiðafirði.
George Kirby var sigursæll knattspyrnuþjálfari á
Skaganum. Hann var fyrst þjálfari Skagamanna 1974
og 1975 og urðu þeir Íslandsmeistarar á báðum tímabil-
um auk þess sem þeir léku til úrslita í bikarkeppninni
bæði árin. Ennfremur fögnuðu þeir fyrsta sigri ÍA á
heimavelli í Evrópukeppni.
Kirby var fjarri góðu gamni 1976 en kom aftur á
Skagann ári síðar og landaði Íslandsmeistaratitlinum í
þriðja sinn, en 1978 varð ÍA bikarmeistari í fyrsta sinn
og það undir hans stjórn. Kirby tók við liði ÍA í þriðja
sinn 1982 og enn varð það bikarmeistari. Hann var síð-
an með liðið 1990 þegar það féll í 2. deild.
Skagamenn hafa haldið góðu sambandi við fjölskyld-
una. Peggy Kirby missti mann sinn árið 2000 og hefur
ekki komið til Íslands síðan fyrr en nú. Af því tilefni
héldu forystumenn ÍA og meistarar undir stjórn
Kirbys hóf fjölskyldunni til heiðurs í Byggðasafninu á
Görðum og leystu mæðginin út með gjöfum.
Simon Kirby starfar hjá enska úrvalsdeildarliðinu
Bolton Wanderes og er hlutverk hans að finna nýja
leikmenn. Hann var á barnaskólaaldri, þegar hann kom
fyrst til Íslands með foreldrum sínum, og innsiglaði
hrifningu sína á landi og þjóð með því að trúlofast á
Breiðafirði.
Trúlofaði sig á Breiðafirði
Ekkja George Kirbys, fyrrverandi þjálfara ÍA, í heimsókn
á Íslandi Sonur hennar trúlofaði sig á ferjunni Baldri
Ljósmynd/Helgi Daníelsson
Rækta tengslin Gunnar Sigurðsson, forseti bæjar-
stjórnar á Akranesi, og Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
afhenda Peggy og Simon Kirby gjafir frá Akranesbæ.