Morgunblaðið - 01.08.2007, Page 18
Morgunblaðið/Kristinn
Ný verslun Árdegis í dag verður opnuð ný Krónuverslun úti á Granda.
Lágvöruverðsverslun Krónunn-
ar við JL-húsið við Hringbraut
var lokað fyrir fullt og allt um
helgina og í dag klukkan 11 verð-
ur opnuð ný Krónuverslun við
Fiskislóð úti á Granda.
Krónan á Granda verður svipuð
og ný verslun Krónunnar í Mos-
fellsbæ að sögn Kristins Skúlason-
ar, rekstrarstjóra Krónunnar.
Meðal annars verði boðið upp á
stóra kjötdeild með um 20 metra
kjötborði, deild með lífrænt rækt-
uðum vörum, stóra ávaxta- og
grænmetisdeild og brauðdeild þar
sem brauð verða bökuð á staðn-
um.
Uppbygging lágvöruverðsversl-
unar til framtíðar hófst hjá Krón-
unni með versluninni í Mosfellsbæ
og búðir á Akranesi og Bíldshöfða
með svipuðu sniði fylgdu í kjölfar-
ið en Krónan á Granda er fjórða
verslunin í þessum nýja anda.
Mikil breyting
„Þetta er mikil breyting,“ segir
Kristinn og vísar til þess að farið
verði úr litlu húsnæði við JL-húsið
í um 2.200 fermetra verslun, boðið
verði upp á um 7.000 vörunúmer í
stað um 2.000 áður og starfsfólki
fjölgað úr 8 í 30. „Þetta verður
allt annað líf,“ segir Kristinn.
Krónan flyst
út á Granda
18 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
EKKI liggur fyrir hvar eða hvort Bónus verður áfram
með lágvöruverðsverslun á Seltjarnarnesi eftir 1. febr-
úar á næsta ári, en þá verður Bónus að fara úr núver-
andi húsnæði við Suðurströnd vegna íbúðabygginga á
Hrólfskálamel.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bón-
uss, segir að fullur vilji sé hjá fyrirtækinu til að reka
áfram verslun á Seltjarnarnesi en bæjaryfirvöld á
Nesinu sýni því lítinn áhuga. „Okkar vilji er að vera
áfram á Nesinu og ég held að það sé vilji allra nema
bæjaryfirvalda,“ segir hann og vísar til þess að allar
hugmyndir um framtíðarstaðsetningu Bónuss hafi
verið skotnar á kaf. Í því sambandi nefnir hann fyrst
og fremst verslanir á landfyllingu við Norðurströnd.
„Mér finnst þetta vera frekar skrýtin skilaboð sem ver-
ið er að senda íbúum á Nesinu,“ segir Guðmundur um
viðbrögð bæjaryfirvalda.
Að sögn Guðmundar hafa ýmsir möguleikar verið
skoðaðir í þeim tilgangi að halda áfram að sinna íbúum
Seltjarnarness og Vesturbæjar sem best. Spurður
hvort til greina komi að flytja verslunina í 107 Reykja-
vík, þar sem nú sé engin lágvöruverðsverslun fyrir,
svarar hann því að allt sem sé í boði verði skoðað, „en
við viljum helst ekki fara af Nesinu.“
Morgunblaðið/Kristinn
Nesið Bónus á Seltjarnarnesi er eina lágvöruverðsverslunin sunnan Hringbrautar.
Óvissa um verslunar-
rekstur Bónuss á Nesinu
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
Í GÆR var það gefið út með skýr-
um hætti að tjaldstæðin við Þór-
unnarstræti og á Hömrum verði í
forgangi fyrir fjölskyldur. Sam-
kvæmt tilkynningu frá Akureyr-
arbæ verða „viðmið sett um aðgang
einstaklinga á aldrinum 18–23 ára
og geta þeir að öllu jöfnu ekki búist
við að fá inni á tjaldstæðunum
þessa helgi.“ Ekki verður heldur
boðið upp á sérstök tjaldstæði fyrir
fólk á þessum aldri, líkt og var fyrir
ári.
Áhersla á fjölskylduhátíð
Þegar Sigrún Björk Jakobsdóttir
bæjarstjóri Akureyrar var spurð
um hvaða viðmið hér væri að ræða,
kom það skýrt fram hjá henni að
með þessu væri verið að sporna
gegn komu þess hóps ungmenna
sem undanfarin ár hefur verið með
drykkjulæti og jafnvel valdið spjöll-
um á Einni með öllu. Með þessari
ákvörðun væri skrefið stigið til að
koma í veg fyrir komu þessa hóps í
bæinn um verslunarmannahelgina.
„Þetta eru viðmið að því leyti að
ungt fjölskyldufólk sem er á aldr-
inum 18–23 ára og ætlar að koma
hingað til að taka þátt í fjöl-
skylduhátíð er velkomið,“ segir Sig-
rún Björk. „En að fenginni reynslu
undanfarinna ára þá erum við bara
komin að þeirri ákvörðun að það
þarf að setja stífan ramma um há-
tíðina. Fókusinn í ár er á fjöl-
skylduhátíð og við viljum sjá fjöl-
skyldur koma með unglingana á
hátíðina. Margt fólk er einfaldlega
búið að fá nóg af unglingahátíð.“
Sigrún Björk játar því að ákvörð-
unin sem tekin var valdi ekki
ánægju meðal allra í bænum: „Það
verður alltaf óánægja meðal ein-
hverra, enda hefur nú stórt skref
verið stigið. En það var nauðsynlegt
að taka af skarið og breyta til.“
Það verður í höndum rekstrar-
aðila tjaldstæðanna að annast nán-
ari útfærslu á viðmiðuninni, en til
þess hafa þeir „fullan stuðning bæj-
aryfirvalda.“ Það mátti skilja á
svörum Sigrúnar Bjarkar að sér-
stök áhersla yrði lögð á það um
verslunarmannahelgina að taka á
ölvunar- og vímuefnabrotum. Lög-
reglan mun þannig hjálpa skátun-
um við tjaldstæðin ef þörf krefur og
jafnframt hafa góðar gætur á opn-
um svæðum í bænum og vísa þeim á
brott sem hugsanlega tjalda í óleyfi.
Ungu fólki úthýst víðar
Eins og fyrr segir er ungt fjöl-
skyldufólk og unglingar á aldrinum
18–23 í fjölskyldum velkomið á
tjaldstæði bæjarins. Aðrir verða að
leita annað, en Akureyrarbær ætlar
ekki að beina fólki á önnur tjald-
stæði, að sögn Sigrúnar Bjarkar:
„Við ráðum því ekki hvað fólk gerir.
Það er fullt af hátíðum í boði og við
ætlum ekki að segja fólki hvað það
eigi að gera. Á Hrafnagili verður 20
ára aldurstakmark og ég vek at-
hygli á því að víða um land eru
tjaldstæði að hækka aldurstak-
mörk.“
Ein með öllu nema unglingum
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Fjölskylduhátíð Ein með öllu var vel sótt í fyrra og skemmti fólk sér vel. Í ár verða þó engin sérstök unglinga-
tjaldsvæði og fólk á aldrinum 18-23 ára mun alla jafna ekki komast á tjaldsvæðin nema það sé fjölskyldufólk.
„Það þarf að setja
stífan ramma,“
segir Sigrún
Björk bæjarstjóri
NÚ liggur end-
anlega ljóst fyr-
ir hverjir munu
skemmta á Síld-
arævintýrinu.
Fjölmargir
skemmtikraftar
verða á Siglu-
firði og boðið er
upp á afþrey-
ingu fyrir alla
fjölskylduna.
Páll Óskar mun skemmta gest-
um ásamt með söng og dansi, og
einnig munu X-factor-stjörnurnar
Jógvan og Hara-systur troða upp.
Hljómsveitin Bermúda með Ernu
Hrönn í broddi fylkingar mun
koma fólki á dansbragðið og
Labbi í Mánum ásamt Hljómsveit-
inni Karma mun leika við hvern
sinn fingur.
X-factor-stjarnan og gullbark-
inn Gylfi Víðisson mun flytja
nokkur lög og einnig kemur Lísa
Hauksdóttir Idolstjarna frá Idol
stjörnuleit 2005 fram.
Skagfirska sveiflan verður á
sínum stað þegar Geirmundur
Valtýsson mætir síkátur og sílétt-
ur með hljómsveitina og sitt
heillandi bros. Einnig mun
Tröllaskagahraðlestin töfra fram
nokkra tóna.
Að auki verður boðið upp á tí-
volí, atriði úr söngleiknum Abba-
babb, trúðana Búra og Bínu og
andlitsmálun og söngkeppni fyrir
börnin.
Síldarsaltanir og bryggjuböll
verða yfir alla helgina, en einnig
verður dorgveiðikeppni og sjó-
stangveiðimót á meðal dagskrár-
liða.
Nánari upplýsingar eru á
www.siglo.is
Dagskrá
Síldaræv-
intýrisins
Páll Óskar
Hjálmtýsson