Morgunblaðið - 12.08.2007, Side 4

Morgunblaðið - 12.08.2007, Side 4
4 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir um- hverfisráðherra þáði nýverið boð heimamanna við Þjórsá um kynnis- ferð um svæðið við neðri hluta árinn- ar en þar hyggst Landsvirkjun reisa þrjár virkjanir. Þá var haldinn óformlegur fundur þar sem heima- menn og stuðningsmenn þeirra fóru yfir ýmsar hliðar málsins sem þeim hefur þótt lítið fjallað um. Þórunn sagðist í samtali við Morg- unblaðið hafa kynnt sér svæðið áður en það hafi verið gott að fara aftur um það og eiga fund með fólkinu. Hún sagði þá sem hún ræddi við hafa haft afar lítinn áhuga á gylliboðum Landsvirkjunar. Málið snertir marga beint „Þjórsárdalurinn verður aldrei samur ef þessar virkjanir verða að veruleika en mér finnst afstaða íbú- anna mjög skiljanleg og eðlileg og ég hef mikla samúð með þeirra afstöðu í þessari baráttu,“ segir Þórunn. Spurð um þann hátt Landsvirkjunar að greiða lögfræðingum landeigenda varnarlaun, segist Þórunn hafa fyrst haft veður af því á áðurnefndum fundi og þyki henni það vægast sagt undarlegt fyrirkomulag. Sól á Suðurlandi segir málið allt vera í höndum heimamanna en ekki ríkisstjórnarinnar og vill félagið meina að ýmislegt í undirbúnings- ferlinu ætti fullt erindi inn á ríkis- stjórnarfund. Þórunn segir eðlilegt að hagsmunaaðilar á svæðinu leiti allra leiða til að kynna sinn málstað og sína afstöðu fyrir ráðamönnum þjóðarinnar en málið snerti beint landeigendur og ábúendur, bændur, fólk í ferðaþjónustu og marga fleiri. Boðnar veitingar úr Þjórsá Að lokinni skoðunarferð Þórunnar um svæðið var henni boðið í Skaft- holt í Gnúpverjahreppi þar sem fjöl- margir heimamenn biðu með heima- gerðar veitingar, t.d. laxasalat úr Þjórsárlaxi og grænmeti sem ræktað er á Þjórsárbökkum. Sveitarstjórnir í Flóahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi eiga eftir að samþykkja tillögur um breytt aðalskipulag en þær ákvarð- anir ráða miklu um framhaldið. Þórunn er þriðji ráðherrann sem heimsækir svæðið en nýlega lögðu Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð- herra og Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra leið sína um staðinn. Þjórsárdalurinn aldrei samur verði af virkjunum Umhverfisráð- herra kynnti sér virkjanasvæðið Við Þjórsá Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra segist hafa mikla samúð með baráttu heimamanna gegn fyrirhuguðum virkjunum. GÍSLI Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, stakk sér fyrstur til sunds í ár- legu áheitaboðsundi Sundfélags Akraness sem fram fór í gær. Syntu 15 ung- menni félagsins, auk Gísla, samtals 21 km frá Reykjavíkurhöfn til Akranes- hafnar en markmiðið er að fjármagna ferð félagsins í æfingabúðir sunnar í Evrópu. Bátar frá Faxaflóahöfnum og Björgunarfélagi Akraness sigldu með sundgörpunum. Þeir sem syntu mest fóru tæpa 4 kílómetra en þeir yngstu, rétt rúmlega fermdir, syntu hins vegar minna. Hafnarstjórinn synti sjálfur 150 metra en að sögn kunnugra virtist hann tilbúinn að synda miklu meira. Hafnarstjórinn stakk sér í höfnina Morgunblaðið/Ómar ELLEFU af fjórtán slökkviliðs- mönnum Egilsstaða hafa sagt upp starfi sínu og hætta frá og með 1. september næstkomandi vegna kjaradeilu við nýtt brunasamlag. Jón Guðmundur Guðmundsson, slökkviliðsmaður á Egilsstöðum, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fólk gæti rétt ímyndað sér hvaða áhrif uppsagnirnar hefðu því að slökkviliðið á Egilstöðum væri eitt annasamasta slökkvilið á lands- byggðinni. Hann benti á að flugmála- stjórn er inni í brunasamlaginu. „Flugvöllurinn á Egilsstöðum er þess vegna inni í þessu og talsvert af millilandaflugi fer þar í gegn, aðal- lega vegna álversins og virkjana- framkvæmda, þannig að uppsagn- irnar geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi flugvallarins.“ Að sögn Jóns hefur stjórn bruna- samlagsins ekki brugðist við upp- sögnum slökkviliðsmannanna sem eru allir í hlutastarfi. „Eftir að við lögðum fram uppsagnirnar 1. júlí þá hafa einfaldlega ekki fengist nein svör.“ Jón sagði að brunasamlagið hefði breytt launakerfinu frá grunni og greiðslur fyrir bakvaktir slökkviliðs- mannanna hefðu hækkað um 4%. Út- borguð laun fyrir útköll hefðu hins vegar lækkað verulega, miðað við fyrra kerfi. „Ef við mætum á eina æfingu og fáum eitt útkall í mánuði er lækk- unin á útborguðum launum 17%, ef útköllin eru tvö er lækkunin 25% en við þrjú útköll fáum við 31% minna í vasann en áður.“ Slökkviliðsmenn á Egils- stöðum segja upp starfi Í HNOTSKURN » Fyrra brunasamlag semslökkviliðsmennirnir á Eg- ilsstöðum störfuðu hjá náði yf- ir Fljótsdalshérað og Fljóts- dalshrepp. » Í nýja brunasamlaginubættust við Djúpivogur, Vopnafjörður og Borgar- fjörður eystri og það er með starfsstöðvar á þessum stöð- um. Starfsmennirnir þar hafa ekki sagt upp störfum. SKORTUR á menntuðum hjúkrun- arfræðingum hefur víða gert vart við sig að undan- förnu. Tólf stofn- anir sem heyra undir Heilsu- gæslu höfuðborg- arsvæðisins aug- lýstu eftir hjúkrunarfræð- ingum til starfa. Þórunn Ólafs- dóttir hjúkrunar- forstjóri segir að meðaltali vanta einn til tvo hjúkrun- arfræðinga á hverja stöð. „Við erum búin að fá þó nokkuð mikið af um- sóknum, en það vantar samt fleiri.“ Þórunn segir oft erfiðast að manna stöður hjúkrunarfræðinga við skólana. „Hjúkrunarfræðingar eru að vinna einir í skólunum, þó þeir séu starfsmenn heilsugæslunnar. Þetta er líka starf sem að tekur svo- lítinn tíma að komast inn í og sumir hafa ekki þolinmæði til þess að bíða eftir því. Það getur tekið alveg tvö til þrjú ár að átta sig á því hvernig skól- inn fúnkerar og hvaða möguleikar eru til þess að vinna þar vel.“ Þórunn segist bjartsýn á að það rætist úr ástandinu, en segir þetta viðvarandi vandamál. „Við náttúrulega erum í vandræðum, ekki bara við heldur all- ar heilbrigðisstofnanir á landinu, því alls staðar er erfitt að fá hjúkrunar- fræðinga til starfa. Eins og er höfum við fengið umsóknir um helming þeirra starfa sem við auglýstum.“ Minna álag en á spítölunum Ástandið hefur verið skárra í heilsugæslunni en á spítölunum, enda hentar vinnutíminn þar fjöl- skyldufólki betur en vaktakerfið á sjúkrahúsunum. Þórunn segir álagið líka minna í heilsugæslunni. Við- varandi vandamál Þórunn Ólafsdóttir Erfitt að fá hjúkrunar- fræðinga í skólana ÓSK SMÁÍS, Samtaka myndrétt- hafa á Íslandi, um lögbann á sölu fyrirtækisins Sky Digital Ísland á áskriftum að gervihnattaútsend- ingum Sky-sjónvarpsstöðvarinnar, hefur verið hafnað af sýslumanns- embættinu í Keflavík. Friðjón Örn Friðjónsson, lögmaður SkyDigital Íslands, segist bera fullt traust til embættisins. Það hafi komist að því að engin rök væru fyrir því að fall- ast á kröfuna og telur hann þá nið- urstöðu hárrétta. SMÁÍS geti þó leitað réttar síns fyrir dómstólum. Lögbannskröfu hafnað ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.