Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 23
irætlunum því stúlkan heillaðist svo
af bóhemísku lífi listamanna í
heimsborginni, að hún ákvað að
helga líf sitt listum.
Fyrsta skrefið var að innrita sig í
Central School of Speech and
Drama í London og þar með voru
örlögin ráðin. Aðeins sextán ára var
hún farin að leika á sviði í Frinton-
leikhúsinu í Essex. Þótt henni byð-
ist að fara með leikflokknum til
Bandaríkjanna, kunni hún aldrei al-
mennilega við sig á leiksviðinu. Hún
stefndi á kvikmyndaleik og varð
himinlifandi þegar henni bauðst
hlutverk í vísindaskáldskapar sjón-
varpsþáttaröðinni, A for Andro-
meda, árið 1961.
Eftir það var eins og hlutverkin
kæmu á silfurfati. Þótt sjöundi og
áttundi áratugurinn hafi verið
hennar mesta blómaskeið, hefur
hún leikið nógu mikið til að nafn
hennar hefur ekki fallið í gleymsk-
unnar dá. Sjálf er hún ekki mikið
fyrir að hafa sig í frammi og sagði
nýverið í viðtali á BBC að þáttur
sinn í kvikmyndasögunni skipti
engu máli. „Ég hef barist ötullega
við að komast yfir sumt það slæma,
sem fylgir mikilli frægð og aðdáun.
[…] Mér var spillt hræðilega á
tímabili,“ upplýsti hún meðal ann-
ars.
Einkalífið og þykjustulífið
Christie hefur alla tíð kappkostað
að halda einkalífi sínu utan við fjöl-
miðla, en varð ekki alltaf kápan úr
því klæðinu á árunum áður, sér-
staklega ekki þegar hún átti kær-
asta, sem vildu að eftir sér væri
tekið. Landi hennar, leikarinn Te-
rence Stamp, var einn þeirra í byrj-
un frægðarferils beggja.
Á árunum 1967 til 1974 átti hún í
ástarsambandi við bandaríska leik-
arann Warren Beatty og fluttist
með honum til Los Angeles. Þótt
Beatty hefði orð á sér fyrir að vera
óforbetranlegur piparsveinn og
kvennabósi, mun hann hafa beðið
Christie, en hún hafnað bónorðinu.
Af hálfu Christie komu hjónaband
og barneignir ekki til greina.
Þau léku saman í nokkrum mynd-
um, t.d. McCabe & Mrs. Miller 1971
og Shampoo 1975 og Heaven Can
Wait 1978, enda góðir vinir eftir að
leiðir skildi. „Leikarar vilja athygli
og að allt snúist um þá. Ég er mjög
róleg og kýs að tala við færri en
fleiri. Fyrir mér var þetta [lífið í
LA] eins og viðvarandi kokteil-
partý, án drykkjanna. Ég var að
fjarlægjast hið raunverulega líf og
fara inn í þykjustulíf. Ég er ekki
fyrst og fremst leikkona - og hef
aldrei verið,“ sagði Christie nýverið
í viðtali við Saga Magazine, tímariti
fyrir fimmtuga og eldri.
Baráttukona
Eftir skilnaðinn við Beatty sneri
Christie til raunveruleikans á Bret-
landi og sýndi að í henni bjó pólitísk
hugsjónakona. Hún hóf til að
mynda baráttu fyrir ýmsum fé-
lagslegum réttindum, umhverfis-
vernd og kjarnorkuafvopnun og
gegn misþyrmingu á dýrum í þágu
manneldis. Hún lætur slík málefni
sig enn þá varða og henni er sér-
staklega umhugað um að vel sé far-
ið með dýr.
Christie hefur aldrei gifst og á
engin börn, en hefur búið með
Duncan Campbell blaðamanni frá
árinu 1979, þar af fimm ár í Los
Angeles í lok tíunda áratugarins,
þegar hann var fréttaritari þar í
borg fyrir The Guardian. Að sögn
Christie var þá allt með öðrum
brag, enda þurfti hún ekki að eiga
neitt saman að sælda við kvik-
mynda- eða markaðsfólk.
Þau búa núna í austurhluta
Lundúna, en eiga líka heimili í Wa-
les. Campbell starfar enn sem
blaðamaður hjá The Guardian og
Christie helgar sig baráttumálum
sínum og hefur annað slagið ljáð
máls á að leika í myndum sem henni
hugnast.
Annars kveðst hún una sér best
fjarri heimsins glaumi. Á næsta ári
er þó allt eins líklegt að hún lendi
þar í miðri hringiðunni um stund-
arsakir a.m.k., verði hún tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í
Away from Her. Íslendingar geta
svo dæmt um hvort hún yrði vel að
sigrinum komin því myndin verður
sýnd á Bíódögum Græna ljóssins
15. til 29. ágúst.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 23
Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson
audur@jonsdottir.com | totil@totil.com
S
íðustu daga hefur verið algjör gúrka í fjölmiðlum fyrir utan
venjulegar fréttir af stríðsátökum og kvikmyndastjörnum. Er
þetta lognið á undan storminum? spurði Þórarinn.
Frekar sumarstilla í Skandinavíu, geispaði Auður og glápti
út um rútuglugga meðan þau siluðust til Stokkhólms frá ár-
legu þingi norrænna móðurmálskennara í Sigtuna; meðfram
dimmum skógum, gulum ökrum, tjörnum með rómantískum bryggju-
stúfum og rauðum bjálkahúsum.
Mér finnst þetta alveg stórfurðulegt, andvarpaði Þórarinn svo hún leit
loksins spyrjandi á hann. Í þessari gúrku hafa furðufréttir verið áberandi,
útskýrði hann. Þær hafa slæðst inn í alla netmiðla eins og … já, eins og eitt-
hvað sé undirliggjandi.
Hún hváði: Undirliggjandi!
Hann kinkaði kolli. Já, loftið er lævi blandið; ekkert eins og það sýnist.
Það hefur tekið mig allan daginn að fatta að stemningin minnir á byrjunina
í Meistaranum og Margarítu eftir Búlgakoff.
Hún gat ekki stillt sig um að spyrja hvort honum hefði verið byrlaður
torkennilegur mjöður hjá móðurmálskennurunum en þagnaði þegar hann
dró glósubók upp úr pússi sínu og tók að
lesa upp sérviskulegar athuganir sínar á
fréttum vikunnar:
Á Guardian.co.uk var fjallað um bresk-
an barnfóstrumorðingja, Lúkas lávarð,
sem hefur verið á flótta í rúmlega þrjátíu
ár; hann átti að hafa dúkkað upp í bíl með
pokarottu í aftursætinu – en í ljós kom að ekki var um morðingjann að ræða
heldur réttan og sléttan róna – ásamt pokarottu. Á Avisen.dk var frétt um
ítalskan mann sem faldi sig mánuðum saman úti í skógi af skömm yfir því
að hafa smitast af eyðni. Þegar hann kom loksins úr felum reyndust ein-
kennin aðeins vera saklaus sýking. Á Elpais.com var önnur furðufrétt um
Ítala, nefnilega listamanninn Piero Manzoni, sem átti að hafa sett kúk í
dósir fyrir fjörutíu árum – en nú lítur út fyrir að það hafi verið gifs í dós-
unum sem hafa undanfarið verið seldar fyrir níutíu og sjö þúsund evrur. Í
veröldinni er ekkert sem sýnist. En pældu í því sem er raunverulega jafn-
geggjað og það virðist vera! Bara á íslensku netmiðlunum las ég að slétt-
umýs reyni að leggja undir sig Spán, bjór hafi ráðist á konu í nágrenni
Stokkhólms, íslenskir jarðeðlisfræðingar búist fastlega við gosi á næstunni
og gríðarleg monsúnflóð geysi í Suður-Asíu. En á fréttavef BBC.com
stendur að heimskautaísinn bráðni hraðar en spár segi til um svo heim-
skautasumur verða jafnvel íslaus um miðja öldina. Og á Spiegel.de.in-
ternational er frétt um fjögur hundruð sprunguskemmdir sem fundust
skyndilega í minnismerki um helförina í Berlín. Þar er líka að finna rús-
ínuna í pylsuendanum: Plötusafn Hitlers kom nýlega í leitirnar í Moskvu!
Hann virðist hafa sökkt sér ofan í tónlist andstæðinga sinna þegar halla fór
undan fæti: Tsjaíkovskí, Borodín og Rachmaninoff.
Upptalningin hætti um leið og slánalegur maður í köflóttum jakkafötum
leiddi barn með kisugrímu inn í rútuna. Fölur stundi Þórarinn að hann
skynjaði kraumandi undiröldu; einhvers staðar biði kvika eftir því að gjósa
… vonandi væri ekki heimsendir í nánd.
Hún bað hann að róa sig því fréttir í einmitt þessum dúr væru daglegt
brauð. Svo yppti hún öxlum: En hver veit! Kannski liggur eitthvað drast-
ískt í loftinu. Á flestum þessum netmiðlum má finna frétt þess efnis að
hlutabréf hafi snarlækkað út um allan heim og það megi rekja til fast-
eignabrasks í Bandaríkjunum. Þessi frétt minnir á óreiðukenninguna; fiðr-
ildi sem blakar vængjunum og veldur fellibyl í annarri heimsálfu. Kemur
fasteignabrask í Bandaríkjunum til með að snerta okkur sem eigum engin
hlutabréf?
Núna var það hann sem starði þegjandi út um gluggann. Rútan silaðist
áfram meðfram kyrrum tjörnum og dimmum skógum. Og hlutabréfin
héldu áfram að lækka. Þau lækkuðu og lækkuðu meðan rútan færðist nær
Stokkhólmi.
FÖST Í FRÉTTANETI»
Í veröldinni er ekkert
sem sýnist. En pældu
í því sem er raunveru-
lega jafngeggjað
og það virðist vera!
Höfundar eru heimavinnandi hjón í Barcelona.
Heimsendir í
nánd – eða bara
Stokkhólmur
Síðsumarveisla
Heimsferða
frá kr. 14.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða síðustu sætin í síðsumarsólina austan hafs og
vestan á frábærum kjörum. Tryggðu þér síðbúið sumarfrí á ótrú-
legu verði! Nánar á www.heimsferdir.is.
Síðustu sætin
Fuerteventura - síðustu sætin
21. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 34.990
4. sept. örfá sæti - 2 vikur frá kr. 34.990
Montreal - Kanada - síðustu sætin
16. ágúst 7 sæti frá kr. 29.990
23. ágúst 19 sæti frá kr. 29.990
30. ágúst örfá sæti frá kr. 29.990
6. sept. örfá sæti frá kr. 29.990
13. sept. örfá sæti frá kr. 29.990
20. sept. örfá sæti - 8 nætur frá kr. 29.990
Mallorca - síðustu sætin
17. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 44.990
24. ágúst nokkur sæti frá kr. 29.990
31. ágúst nokkur sæti frá kr. 29.990
Costa del Sol - síðustu sætin
22. ágúst örfá sæti frá kr. 39.990
29. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990
5. sept. nokkur sæti frá kr. 39.990
12. sept. nokkur sæti frá kr. 39.990
19. sept. örfá sæti - 10 nætur frá kr. 44.990
Króatía & Trieste - síðustu sætin
19. ágúst 10 sæti frá kr. 24.990
26. ágúst örfá sæti frá kr. 24.990
2. sept. örfá sæti frá kr. 39.990
9. sept. 9 sæti frá kr. 44.990
16. sept. örfá sæti frá kr. 39.990
Alicante - Benidorm - síðustu sætin
16. ágúst 11 sæti frá kr. 14.990
23. ágúst 16 sæti frá kr. 34.990
30. ágúst nokkur sæti frá kr. 29.990
6. sept. nokkur sæti frá kr. 34.990
13. sept. nokkur sæti frá kr. 34.990
20. sept. örfá sæti - 6 nætur frá kr. 34.990
Barcelona/Lloret de Mar - síðustu sætin
17. ágúst 14 sæti - vikuferð frá kr. 49.990
24. ágúst 16 sæti - vikuferð frá kr. 49.990
7. sept. 6 sæti frá kr. 39.090
14. sept. vikuferð - fullt fæði frá kr. 49.990
21. sept. 11 sæti frá kr. 39.090
Frábær sértilboð - í ágúst og sept.
Birt með fyrirvara um prentvillur, uppseldar brottfarir og verðbreytingar.