Morgunblaðið - 12.08.2007, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 12.08.2007, Qupperneq 34
I. Það var fimmtudaginn 5. júlísl., að við hjónin flugum tilÍsafjarðar til þess aðhalda upp á 80 ára afmæli mitt daginn eftir, hinn 6. júlí. Jafn- framt var þetta 43 ára hjúskapar- afmæli okkar hjóna. Við höfðum tryggt okkur herbergi 508 á Hótel Ísafirði, en það er með jafnbestu „svítum“ á landinu. Næsta dag héldum við af stað til Ingjaldssands með fjallabíl Ástþórs Ágústssonar (f. 1949) fyrrum bónda að Múla í Nauteyrarhreppi og var því nokkuð jafnt á með okkur komið, báðir upp- flosnaðir bændur, ég frá Álftanesi á Mýrum en hann frá Múla. Lá leið okkar í gegnum göngin í Breiðadalsheiði í Önundarfjörð, yfir Gemlufallsheiði, síðan sem leið ligg- ur hjá Mýrum í Dýrafirði, Núpi og Gerðhömrum, þar til lagt var á Sandsheiði (534 m.y.sm.) Við höld- um hiklaust áfram að Sæbóli II, þar sem Elísabet Pétursdóttir (f. 1957) rekur hannyrðaverslun, en hún er ekki heima, líklegast í innkaupum, þar sem helgi fer í hönd. Hún er al- mennt kölluð Betty. Kirkja er á Sæbóli II og er hún opin og skoðum við hana, en vitum ekki að undir kirkjugólfinu er safn- aðarheimili, en það bíður seinni tíma. Við göngum niður að strönd- inni en hún er ægifögur þegar brimið leikur sér við hana. Grípum tvo sérstæða steina til minningar. Þegar Óskar Einarsson (1893- 1967) þá læknir á Flateyri, ritar í Árbók Ferðafélags Íslands, árið 1951, kaflann um Ingjaldssand, seg- ir þar m.a.: „Frá alda öðli hafa sex jarðir verið í sveitinni: Sæból, Álfa- dalur, Hraun, Háls, Brekka og Vill- ingadalur. Venjulega var tví-, þrí- eða fjórbýli á jörðum þessum og ár- ið 1703 búa 100 manns í hreppnum. Þórkatla ríka Jónsdóttir hefur orðið Sandmönnum svo minnisstæð, að þeim hættir við að tengja flestar fornar sagnir við hana. Hún var ættuð frá Flatey á Breiðafirði, dótt- ir Jóns bónda Torfasonar (d. 1661), þess er gaf Brynjólfi biskupi Sveinssyni (1605-1675) Flateyj- arbók.“ II. Í Landnámu segir svo: „Ingjald- ur Brúnason nam Ingjaldssand á milli Hjallaness og Ófæru.“ Í ritinu Landið þitt Ísland eftir Steindór Steindórsson og Þorstein Jósepsson er Ingjaldssandi þannig lýst: „Dal- ur milli Hrafnaskálanúps og Barða við sunnanverðan Önundarfjörð.“ Ekki vita menn, hvar Ingjaldur bjó, en margir telja að hann hafi búið í Álfadal, þar sem fjórði maður frá honum, Ljótur spaki, bjó. Ljót- ur seldi Grími kögra á Brekku, læk til áveitu. Mun það vera fyrsta áveita, sem getið er um á Íslandi. Af þeim kaupum spruttu síðan deil- ur og vígaferli. Þessi lækur og foss- inn í honum er frá fornu fari nefnd- ur Ósómi. Nú er hann oftast nefndur Hálsfoss og lækurinn Þverá. III. Guðmundar saga refaskyttu Einarssonar Hann var fæddur á Heggstöðum í Andakílshreppi í Borgarfjarðar- sýslu 19. júlí 1873 og dó 22. júlí 1964, 91 árs gamall. Foreldrar hans voru Einar bóndi á Heggstöðum (1837-1884) og kona hans Guðrún (1877-1967) Magnúsdóttir á Eyri í Flókadal og Tungufelli í Lund- arreykjadal, Eggertssonar. Theo- dór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi í Öxarfirði (1901-1985) hefur ritað ævisögu Guðmundar og nefnist hún Nú brosir nóttin og kom út hjá POB á Akureyri 1960. Er þetta með merkustu bókum sem ég hefi lesið og ætti að vera skyldulesning í öllum framhaldsskólum, jafnvel í Háskóla Íslands. Hann missir föður sinn kornungur og móðir hans stendur uppi með sex börn innan við fermingu og eitt aðeins hálfs- mánaðar gamalt. Guðmundur var 9 ára er hann missir föður sinn, sem drukknaði í Grunnafirði skammt norðan við Akranes, er hann var á heimleið úr kaupstaðarferð. Þrátt fyrir ungan aldur féll fljótlega mikil ábyrgð á hinar ungu herðar og er saga bernsku- og unglingsáranna eilíf barátta við hreppsnefndir og oddvita þeirra, sem lítt voru kunnir fyrir miskunn og enn ófróðari um hinn miskunnsama Samverja. En fjölskyldan gafst aldrei upp og er þátturinn um viðskipti Guðmundar við Andrés Fjeldsted (1835-1917) óðalsbónda á Hvítárvöllum mikils virtan héraðshöfðingja, ein minn- isstæðasta frásögnin í bók Theo- dórs. Andrés var einnig hreppstjóri í sinni sveit. Mannýgt naut frá Hvítárvöllum, nefndur „Spánski boli“ réðst að Guðmundi litla og taldi sig eiga alls kostar við hann en sá litli gafst ekki upp, kom bola inn í fjárhúsin á Heggstöðum, þar sem hann varð fastur í heytóft en sá litli komst upp á vegginn við tóftina og lét hellur dynja á baki og haus bola, þannig að hann varð mjög sár og blæddi úr sárunum. Síðan barst leikurinn út í mýri, þar sem boli stóð fastur en þangað elti Guð- mundur litli hann með staur og lét höggin dynja á honum. Andrés gaf Guðmundi tvær krón- ur að loknum viðskiptum þeirra og mælti: „Hafðu þetta fyrir það óvenjulega hugrekki og þá hrein- skilni sem þú hefur sýnt. Það virð- ist ekki vera til neins að ógna þér. Þetta líkar mér vel. Svona skaltu alltaf vera. Ég ætlaði ekki að gera þér neitt illt. Ég var aðeins að reyna kjark þinn. Mig grunaði þetta eftir að þú áttir við bola. Nú veit ég að þú lætur ekki beygja þig fremur en hann faðir þinn. Með þetta veganesti munt þú komast áfram þó eitthvað erfitt verði á vegi þínum, vertu nú sæll.“ Síðar á æv- inni komu þessi orð Andrésar oft upp í huga Guðmundar. IV. Guðmundur Einarsson stundaði refaveiðar í 53 ár, frá tvítugu til 73 ára aldurs. Hafa fáir Íslendingar haldið svo lengi út í baráttunni við rebba. Eigi er talið að hann hafi átt mörg „feilskot“, maðurinn var af- burðaskytta meðan sjón entist. Kristján, (1918-1988) sonur hans, tók við búi á Brekku á Ingjalds- sandi árið 1947 og er húsið að Brekku nýtt af börnum hans, en þau voru tíu. Eitt þeirra er kjarn- orkukonan Helga Dóra bóndi í Tröð í Önundarfirði, gjaldkeri hjá Sýslu- manninum á Ísafirði, formaður Sambands vestfirskra kvenna, skógarbóndi, sauðfjárbóndi svo eitt- hvað sé nefnt. Guðmundur Einarsson varð þjóð- sagnapersóna í lifanda lífi. Hann hóf búskap á Brekku árið 1909 og stýrði búi þar í 37 ár, og andaðist þar 91 árs að aldri 22. júlí 1964. Hann eignaðist 21 barn með tveim- ur konum og komust 16 upp. Þrátt fyrir barnamergðina þurfti grenja- skyttan á Brekku aldrei að þiggja sveitarstyrk. Refaveiðarnar urðu Guðmundi allt í senn, „íþrótt, vís- indi og ótrúlega drjúg tekjulind“. Hann lá á grenjum í 2.469 nætur og veiddi 2.464 dýr auk verðlítilla yrð- linga. V. Hinn 2. júlí 1947 ritar Ingimar Jóhannesson, fulltrúi á Fræðslu- málaskrifstofunni, afmælisgrein um Guðrúnu Magnúsdóttur konu Guð- mundar Einarssonar: „Víst er, að þegar litið er yfir æviferil þeirra Brekkuhjóna, þá verður hlutur hús- freyju ekki talinn minni, þegar um ræðir hve vel þeim hefur farnast. Ég veit að Guðmundur bóndi vinur minn telur hlut Guðrúnar stórum meiri, einkum varðandi barnaupp- „Áttræður á Ingjaldssandi“ Kirkjan á Sæbóli (Sæbólskirkja). Guðmundur Einarsson refaskytta. Eftir Leif Sveinsson                                                                                                     !  "  # $% ! !                        &   !!  '       (    # #        Ástþór bílstjóri okkar og Halldóra Árnadóttir kona greinahöfundar. Það er ferðalýsing 34 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.