Morgunblaðið - 12.08.2007, Page 36
ferðafélag íslands
36 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Í vetur verður frítt í strætó fyrir framhalds- og háskólanema
á höfuðborgarsvæðinu. Nú geturðu lesið blöðin, sötrað kaffi
og fundið ástina á leiðinni í skólann. Allt frítt.
FRÍTT Í STRÆTÓ
FYRIR NÁMSMENN!
Nánari upplýsingar á rvk.is/betristraeto og á straeto.is
Ífyrirhugaðri fossagöngu verðaskoðuð vel geymd leyndarmálíslenskra óbyggða, sem allt offáir hafa séð og notið.
Umrædd gönguleið liggur með
Þjórsá vestanverðri á Gnúpverja-
afrétti. Þar rennur Þjórsá í gljúfri
sem hún hefur myndað í aldanna rás
og þar eru fossarnir Kjálkaversfoss,
Dynkur og Gljúfurleitarfoss, hver og
einn með sínu lagi. Í þessari göngu
er farið hjá þeim tveimur síðar-
nefndu. Fleiri fossar og vatnsföll eru
á leiðinni því einnig er gengið með
þremur bergvatnsám sem falla í
Þjórsá, Dalsá, Hölkná og Geldingaá,
sem allar skarta einstaklega fögrum
fossum, háum og lágum. Einn þeirra
geta fimir menn gengið upp í orðsins
fyllstu merkingu!
Þessi leið sem hér er lýst er ekki
ökufær og sennilega er það orsökin
fyrir því hve fáum er kunnugt um
þetta landsvæði.
Ferðatilhögun
Fossaferðin hefst við félagsheim-
ilið Árnes í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi. Þangað þurfa menn að koma
sér sjálfir í rútuna sem fylgir hópn-
um. Strax í upphafi ferðar, má líta
fegurð Þjórsár í mynni Þjórsárdals á
svæðinu frá Minna-Núpi og við land-
námsbæinn Haga. Þar er nú deilt um
hvort flúðir, eyjar og landsvæði
hverfi undir miðlunarlón. Ekið er inn
Þjórsárdal og inn Gnúpverjaafrétt
sem liggur með Þjórsá frá Þjórs-
árdal að Hofsjökli og er innsti hluti
hans sjálf Þjórsárver.
Sjálf gangan hefst við Dalsá og er
henni fylgt þar til hún rennur í
Þjórsá. Landslag við ána er afar fag-
urt og um margt sérstakt. Á einum
stað fellur þessi vatnsmikla á í
þröngum klettastokki sem nefnist
Hlaupið. Fræknustu menn hafa
hlaupið þar en aðrir skyldu ekki
reyna. Á öðrum stöðum dreifir Dalsá
úr sér og fellur í breiðfossum og flúð-
um sína leið. Þjórsá er fylgt að Dynk
sem mörgum finnst stórkostlegasti
foss landsins. Hann er 38 metra hár
og fellur fram af mörgum stöllum og
myndar fossakerfi. Þar eru fögur
form og margbreytilegir regnbogar,
eins og litagos þegar sólin skín.
Að endingu er gengið á Kóngsás
þar sem rútan bíður göngufólks og
flytur það í hús í Gljúfurleit þar sem
boðið er upp á heitan kvöldmat,
kvöldvöku og gistingu.
Á seinni degi Fossagöngunnar er
Hölkná fylgt að Þjórsá en árnar
tvær mynda tanga sem heitir Ófæru-
tangi.
Þar er hár og breiður slæðufoss,
fallegasti foss landsins segja sumir.
Hann er nafnlaus, líklega af því að
ekkert nafn er nógu gott fyrir svo
fagran foss, og rennur niður í gljúfur
mikið.
Innan við Ófærutanga eru Skóg-
arbrekkur en þangað ná efstu skóg-
arleifar við Þjórsá. Skammt framan
við Ófærutanga er Gljúfurleitarfoss.
Þar steypist Þjórsá fram af 28 metra
hárri brún. Skammt þar frá er annar
tangi, Geldingatangi, sem skagar
fram á milli Þjórsár og Geldingaár.
Þótt Geldingaá sé ekki mikið vatns-
fall þá skartar hún mörgum fögrum
fossum þar sem hún fellur stall af
stalli á leið sinni í fljótið mikla,
Þjórsá. Síðasti spölur Fossagöng-
unnar liggur upp með Geldingaá.
Öræfakyrrð og lítt spillt land
Það svæðið sem skoðað er í Fossa-
göngu FÍ er að mestu vel gróið og
þar eru margar gróðurtegundir, m.a.
allar innlendar víðitegundir, birki og
einir. Þetta er hluti af því svæði sem
margir vilja að verði gert að friðlandi
og tengist Friðlandi Þjórsárvera og
var í tillögum Umhverfisstofnunar
um friðlýsingar í Náttúruverndar-
áætlun 2004-2008. Sú tillaga var
byggð á hugmyndum Áhugahóps um
verndun Þjórsárvera um að stækka
friðland Þjórsárvera þannig að það
næði yfir öll verin og tengdist síðan
enn stærra friðlandi sem næði yfir
gljúfur Þjórsár ásamt nærliggjandi
svæðum suður að Sultartangalóni.
Á þessu svæði er enn að finna
öræfakyrrð og nær óspillt land og
gönguleiðin er fjarri vegum. Þjórsá
hefur hins vegar misst um 40% af
vatni sínu til Kvíslnaveitna og eru
fossarnir að sama skapi vatnsminni
en náttúran ætlaði þeim. Enn er ekki
búið að útiloka að Þjórsá verði svipt
meira vatni því ekki er enn búið að
kasta rekunum yfir Norðlingaöldu-
veitu.
Fossar á Gnúpverjaafrétti
Stiklað yfir Hölkná Á seinni degi Fossagöngunnar er Hölkná fylgt að Þjórsá en árnar tvær mynda Ófærutanga.
Fossaganga Ferðafélags
Íslands verður helgina
18.-19. ágúst og er ferðin
nú farin í fimmta sinn. Að
þessu sinni er gengið um
Þjórsá vestanverða á
Gnúpverjaafrétti og
munu þær Sigþrúður
Jónsdóttir og Björg Eva
Erlendsdóttir, sem báðar
eru heimamenn í Gnúp-
verjahreppi, vísa veginn.
Séð frá suðri Dynkur sem margir kalla konung íslenskra fossa.
„ÞEGAR á heild-
ina er litið hefur
allt gengið mjög
vel hjá okkur í
sumar og veðrið
hefur leikið við
okkur,“ segir
Erna Bergþóra
Einarsdóttir,
skálavörður í
Landmannalaug-
um. Hún segir að
umgengni í skál-
anum og á svæðinu hafi verið með
miklum ágætum. „Við kvörtum ekki
þegar hver og einn hugsar um sitt
rusl,“ segir hún og brosir, „og
stemningin hjá okkur skálavörðum
hefur sannarlega verið fín.“
Ferðamenn í Landmannalaugum
koma úr ýmsum áttum. „Já, þetta er
fólk á öllum aldri og svo virðist sem
skipulagðar dagsferðir hafi aukist og
það er greinilegt að eldri borgarar
kunna vel að meta þær. Hingað kem-
ur líka talsvert af ungu fólki, sem er
jafnvel nýkomið með bílpróf og þráir
að komast út í náttúruna og fjöl-
skyldur, stórar og smáar, njóta hér
samveru.“
Ferðafélagið reisti fyrst sæluhús í
Landmannalaugum árið 1951 en nú-
verandi hús er að stofni til frá árinu
1969. Það stendur við jaðar Lauga-
hrauns, við heitar uppsprettur sem
njóta mikilla vinsælda. „Laugin hef-
ur sannarlega mikið aðdráttarafl,“
segir Erna en þangað leita margir
göngugarpar til að hvíla lúin bein.
Góð nýting á skálanum
Frá Landmannalaugum eru einnig
fjölmargir aðrir skemmtilegir
göngumöguleikar, á Bláhnúk, á
Brennisteinsöldu, á Skalla, Hatt og
Reykjakoll, í Suðurnámur og á Há-
öldu og í Brandsgil eða Sveinsgil, svo
eitthvað sé nefnt. Þeir sem lengra
vilja leita geta farið í Jökulgil eða
upp á Torfajökul.
Nýtingin á skálanum hefur verið
mjög góð. „Hér er alltaf fullt og nóg
að gera,“ segir Erna en pláss er fyrir
75 manns í kojum og á dýnum. Húsið
er upphitað en gas er notað til elda-
mennsku. Þar eru pottar og pönnur,
leirtau og hnífapör. Auk gistiskála er
þar stórt hreinlætishús með sturtum
og vatnssalernum. Tjaldstæði eru á
flötunum í grennd við skálann.
Erna er ekki farin að hugsa til
næsta sumars en þegar störfum
hennar sem skálavörður lýkur í
haust ætlar hún að leggja fyrir sig
einkaþjálfun fram að áramótum en
þá fer hún í nám í íþróttalýðháskóla í
Árósum í Danmörku.
Erna Bergþóra Ein-
arsdóttir, skálavörður
í Landmannalaugum
Erna Bergþóra
„Hér er alltaf fullt
og nóg að gera.“
Alltaf fullt
og nóg
að gera