Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 39

Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 39
Íslenskukennsla Nokkrir nemendur og kennarar Íslenskuskólans í Hollandi sem starfræktur hefur verið síðustu tólf árin af foreldrum barnanna, með stuðningi frá íslenskum fyrirtækjum og menntamálaráðuneytinu. leikara. Nemendur skólans og fjölskyldur þeirra fengu meðal annars að njóta hæfileika þeirra á sýningunni „Töfraveröld tóna og hljóða“ sem er skemmtileg og fræðandi dagskrá sem þau hafa sett saman fyrir börn á leik- skólaaldri. Dagskráin felur í sér hljóðfærakynningu þar sem sögð er sagan af Jóni bónda með ýmiss konar hljóðum og tónum. Íslensk þjóðlög eru spiluð og sungin, farið með vísur og þulur og leikur Steef meðal annars undir á skyrdós, sandpappír og steinaspil, sem Páll dið við í Hollandi Guðmundsson, myndlistarmaður á Húsafelli, bjó til handa honum. Komust í sjónvarpsþátt Utan hefðbundins skólatíma hefur hópur nemenda Íslensku- skólans farið saman á söngleik og nokkur þeirra urðu svo lánsöm að komast að í sjónvarpsþætti hjá K3, sem er vinsælt stúlknaband í Belgíu og Hollandi, þar sem elstu stúlkurnar, Íva Marín og Ýr Aimee, hjálpuðu til við að elda ís- lenskan mat og kynna landið. Um miðjan maí síðastliðinn voru skólaslit Íslenskuskólans svo haldin að venju með veglegri grillveislu þar sem viðburðaríkt skólaárið var kvatt. Með tólfta starfsár skólans að baki er ljóst að Íslenskuskólinn hefur skipað sér fastan sess í lífi margra íslenskra barna í Hollandi og þjónar vel mikilvægu hlutverki sínu í að viðhalda þekkingu þeirra á íslenskri tungu og menningu. hannalara@hetnet.nl | bjorg@planet.nl MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 39 Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík Sími: 591 9000 · www.terranova.is Akureyri sími: 461 1099 Hafnarfjörður sími: 510 9500 Bibione í ágúst og september frá kr. 49.995 Terra Nova býður einstakt tilboð á gistingu á Planetarium Village í lok ágúst og í september. Glæsilegt nýtt íbúðahótel á Bibione ströndinni um 400 m. frá miðbænum. Frábær aðbúnaður og einstaklega fallegar og glæsilegar íbúðir þar sem hvergi hefur verið til sparað. Stórt sund- laugasvæði með frábærri aðstöðu, móttöku, sundlaugarbar og skemmtilegu leiksvæði fyrir börnin. Skemmtidagskrá í boði. Góð eldunaraðstaða, öryggishólf, gervihnattasjónvarp, loftkæling o.fl., o.fl. í öllum íbúðum. Frábær gistivalkostur á ótrúlegum kjörum! Bibione er sannkölluð paradís, fyrir fjölskyldur jafnt sem einstaklinga, með ein- stakar strendur, frábæra veitingastaði og fjölbreytta afþreyingu. Kr. 49.995 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, í íbúð í viku. Aukavika kr. 18.000 á mann. Kr. 59.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna, í íbúð í viku. Aukavika kr. 18.000 á mann. Síð us tu sæ tin ! Sértilboð á Planetarium Village - glæsileg gisting!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.