Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 51

Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 51 JARÐIR - LANDSPILDUR - SUMARHÚS YFIR 100 BÚJARÐIR OG LANDSPILDUR OG UM 60 SUMARHÚS Á SÖLUSKRÁ FM EINNIG Á SÖLUSKRÁ MIKILL FJÖLDI EIGNA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU. Sjá nánar á www.fmeignir.is - www.fasteignamidstodin.is Stangarhyl 5, sími 567 0765 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á www.motas.is Íbúðir fyrir fólk 50 ára og eldri, við Sóleyjarima 19-23, Grafarvogi. Frábært útsýni. Glæsilegar íbúðir fyrir 50 ára og eldri • Gróið hverfi. • Frábært útsýni. • Ísskápur, kvörn í vaski og uppþvottavél fylgja. • Granít á borðum og sólbekkjum. • Innangengt úr bílageymslu í lyftur. Söluaðili: Sóleyjarimi 3ja og 4ra herbergja íbúðir á besta stað í Grafarvogi til afhendingar í október 2007. Sóleyjarimi Grafarvogur > Yfir 20 ára reynsla > Traustur byggingaraðili > Gerðu samanburð www.motas.is Sími 533 4040 | www.kjoreign.is ÍS L E N S K A S IA .I S M O T 3 79 19 0 6/ 07 Landsbankahúsið - Akranesi FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali Til sölu er Landsbankahúsið á Akra- nesi. Húsið er kjallari og þrjár hæðir samtals að gólffleti 1.412 fm auk 42,0 fm bílskúrs. Einnig er til sölu aðliggjandi lóð, 1.170 fm, þar sem byggja mætti þriggja hæða íbúðarhús með alls átta til níu íbúðum auk bílakjallara, samtals um 1.070 fm. Frábær staðsetning í hjarta bæjarins. Teikningar og allar frekari upplýsingar á skrifstofu. Blessuð sértu sveitin mín! sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín – yndislega sveitin mín! – heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu sveitin mín! sumar, vetur, ár og daga (Sigurður Jónsson frá Arnarvatni/ Bjarni Þorsteinsson) KIRKJUGESTIR söfnuðust saman blautir og kaldir og sungu í sig hita með þessum fagra sálmi um sveitina ástkæru. Söngurinn og sam- kenndin á kveðju- stund voru svo trú- verðug – svo innvígð í sálirnar, svo sannfær- andi að vermdi um hjartarætur. Landsvirkjun fer hamförum Í sjónvarpi birtist nýverið mynd af nokkrum hinna sömu og fyrrum sungu í kirkju Stóranúps. Í hvanngrænni brekku sátu þau nú og horfðu yfir blessaða sveitina sína þar sem Þjórsáin rennur og höfuðprýðin Hekla blasir við. Sum hafa þau horft á þessar gersemar hvern einasta dag, allt sitt líf. Þau reyna nú að skilja örlög sem þeim virðast búin, ekki af völdum nátt- úruhamfara heldur hamfara af manna völdum. Þau horfa fram á veg við öllu búin og munu ekki gefa upp varnir fyrr en í fulla hnefana. Hver hefði líka trúað því að okk- ar eigin landar í Landsvirkjun legð- ust svo lágt að svívirða þessa dýr- mætu arfleifð með áformum um að sökkva í eðju ómetanlegum nátt- úruperlum og landi í byggð, auk heldur landnámsjörðum í ábúð og þiggja fyrir smánina smáaura? Blóðpeningar nefnast slíkir aurar. Ef af verður mun gjörningurinn verða stjórn Landsvirkjunar til ævarandi, ævarandi skammar. Hrindum martröðinni af höndum okkar Ég bý í Reykjavík og elska og blessa þá sveit bernsku minnar á sama hátt og Gnúpverjar elska sína sveit. Mér sem Reykvíkingi kemur þó vissulega við hvernig með aðrar sveitir landsins er farið. Forstjóri Landsvirkjunar og fleiri úr stjórn búa í Reykjavík. Hvað segðu þeir ef til stæði að sökkva götunni þeirra og hús- eignum undir uppistöðulón? Tækju þeir því fagnandi? Trauðla. Því segi ég það, okkur kemur öll- um við hvernig með landið okkar er farið. Í Gnúpverjahreppi á ég kæra vini, sem þar hafa búið mann fram af manni. Nú horfir fólk þar í gaupnir sér eða starir út í bláinn í forundran og spyr: Getur þetta ver- ið? Er þetta ekki bara vondur draumur – martröð? Í hugann kemur söngurinn Blessuð sértu sveitin mín… hann hljómar enn skært fyrir eyrum mér. Minnum hvert annað á. Ekki láta græðgi stórvesíra villa okkur sýn. Spyrnum við fæti og strengir munu titri í brjóstum nógu margra Íslendinga til að stöðva glæpinn, því glæpur er það gagnvart núlifandi og óbornum Íslend- ingum að sökkva grón- um sveitum, í sæ og gera landið að fúafeni eimyrjuspúandi verk- smiðja. Þræða síðan of- anjarðar um allar sveitir stórmengandi og lífshættuleg raf- magnsmöstur. Ég skora á allt hugsandi fólk að taka þátt í að hindra ill áform Landsvirkjunar og láta ekki kalla eins konar heimsendi yfir byggð og bú í einni fegurstu sveit landsins. Okkur kemur sú aðför öllum við. Blessuð sértu sveitin mín Elín G. Ólafsdóttir skorar á fólk að hjálpa til við að hindra virkj- un Þjórsár Elín G. Ólafsdóttir »Ef af verðurmun gjörn- ingurinn verða stjórn Lands- virkjunar til ævarandi, ævar- andi skammar. Höfundur er kennari. Fréttir í tölvupósti mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.