Morgunblaðið - 12.08.2007, Page 56

Morgunblaðið - 12.08.2007, Page 56
56 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Þ að voru óskemmtilegar fréttir sem bárust um heimsbyggðina í ný- liðinni viku, nánar til- tekið 8. þessa mán- aðar, í kjölfar skýrslu alþjóðlegs leiðangurs sem í lok árs í fyrra komst að hinu sanna. Einni dýra- tegundinni enn hafði verið útrýmt úr ríki náttúrunnar og mann- skepnan og athafnir hans var og er sökudólgurinn. Og ekki í fyrsta sinn. Núna var lítill og gæfur höfr- ungur fórnardýrið sem lagt var á þetta altari myrkursins og heims- kunnar. Undir það síðasta átti hann aðalheimkynni í miðhluta og neðri hluta Yangtze-fljótsins í Kína. Hann var gjarnan nefndur Baiji. Hvað næst verður fyrir hinum grimma ljá mannsins vitiborna er erfitt um að segja. Af nógu er samt að taka, því árið 2006 kom fram á lista Alþjóða náttúruvernd- arsamtakanna (IUCN) að fjöldi dýrategunda væri í mikilli útrým- ingarhættu í náinni framtíð, ef ekki yrði gripið til einhverra ráð- stafana til mótvægis. Í sumum til- vika væri það reyndar orðið um seinan. Þetta voru 1.093 spen- dýrategundir, 1.206 fuglateg- undir, 341 skriðdýrategund, 1.811 froskdýrategundir og 1.173 fisk- tegundir. Og ef með eru taldir hryggleysingjar, plöntur, sveppir og fléttur og skófir, er um að ræða samtals 16.118 tegundir. Þar af eru plönturnar 8.390 en þær eru frumskilyrði til að dýr geti þrifist. Steingervingar benda til þess að umræddur fljótahöfrungur hafi komið fram á sjónarsviðið fyrir um 25 milljónum ára og leitað svo úr Kyrrahafinu og upp í Yangtze fimm milljón árum síðar. Var hann því ein af elstu dýrateg- undum þessarar reikistjörnu. Í kínverskri þjóðtrú er hann sagður vera endurholdgun prins- essu, sem drekkt hafði verið af fjölskyldu sinni fyrir að neita að gefast manni sem hún ekki elsk- aði. Er þetta sögð ástæðan fyrir öðru heiti Baiji, sem er Gyðja Yangtze-fljótsins. Var hann löngum álitinn tákn friðar, hag- sældar og kærleika. Sjávarlíffræðingar giska á að fram til aldamótanna 1900 hafi fjöldinn verið 3.000-5.000 dýr en árið 1980 er sú tala þegar komin í 400. Og 5-6 árum síðar í 300. Árið 1993 er rætt um að ekki séu nema 150-240 höfrungar eftir og árið 1995 sennilega færri en 100. Árið 2003 ekki nema örfáir tugir. Síðast urðu menn hans varir í september 2004. Meginástæða fækkunarinnar og algjörs hruns að lokum er rakin til iðnvæðingar þjóðarinnar – stór- aukinnar umferðar báta og skipa (árekstur, lent í skrúfum) löglegra sem og ólöglegra veiðiaðferða (net, dýnamít, rafmagn), umferðar gámaskipa, virkjanaframkvæmda og mengunar. Í kringum og á þessu fyrrum svæði höfrungsins búa nú um 12% íbúa jarðarinnar. En Baiji er ekki eina dýrateg- undin sem níðst hefur verið á með fyrrgreindum afleiðingum. Það bara fer ekki hátt. Um þetta má lesa á http://extinctanimals.pet- ermaas.nl/. Nú er líka svo komið, að helm- ingur regnskóganna er uppurinn. Á Filippseyjum eyddust 55% hita- beltisskógarins á árunum 1961- 1985 og í Tælandi hurfu 45% á sama árabili; í Bangladesh er allur upprunalegur regnskógur horf- inn, og á Haítí og Sri Lanka er hann skemmdur. Í suðurhluta Kína er helmingurinn á burtu og á fílabeinsströnd Afríku er hröð skógareyðing, einungis örlitlar leifar enn þá eftir. Nígería verður innan tíðar skóglaus, ef áfram verður haldið á sömu braut og ver- ið hefur. Í Kongó eru uppi áætl- anir, sem gera ráð fyrir að höggva 68% skóganna. Og í Kólumbíu er allt að þriðjungur regnskóga landsins í hættu. Þetta eru bara fáein dæmi. Í umræddum skógum er talið að vaxi 155.000 af 225.000 þekktum háplöntutegundum, sé að finna 80% af skordýrategundum heims- ins, eigi 90% prímata heimkynni sín og lifi 25% allra fuglategunda jarðar. Í þessu sambandi er hollt að minnast orða Karls Sigurbjörns- sonar biskups, í bókinni „Ísland á nýrri öld“, sem út kom árið 2000, og hefur að geyma framtíðarsýn 22 þjóðkunnra Íslendinga en þar segir hann m.a.: „Við erum kölluð til sérstaks hlutverks í þessari veröld, sem er blessuð, signuð af krossi Krists, endurleyst veröld, frelsað líf! Þetta er heimur Guðs. Heilög jörð. Guð hefur skapað þennan heim og hann er enn að verki, hann er enn að skapa … Þegar kristin játning heldur því fram að við séum sköpuð í Guðs mynd þá felst í því að maðurinn ber sér- staka ábyrgð og hefur einstöku hlutverki að gegna. Maðurinn er skapaður til umhyggju og ábyrgð- ar. Manneskjan hefur samvisku og val milli góðs og ills, þess vegna er hún ábyrg og hefur skyldum að gegna í því að hlúa að lífinu, vera ráðsmaður og samverkamaður Drottins. Eða eigum við að segja: Okkur ber að vera garðyrkju- menn í aldingarði sköpunarinnar og standa sem slík ábyrg gagnvart Guði, og öllu því sem lifir, og kom- andi kynslóðum. Og okkur ber að greiða veg því sem eflir lífið en hamla gegn græðgi, fýsn og valdi.“ Gyðjan í Yangtze sigurdur.aegisson@kirkjan.is „Því meir sem ég kynnist Homo sapiens, þeim mun vænna þykir mér um hundinn minn,“ er haft eftir ónefndum einstaklingi. Sigurður Ægisson er með til umfjöllunar í dag nokkuð sem þessu tengist. HUGVEKJA ✝ Erlingur Þor-steinsson læknir fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1911. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Drop- laugarstöðum 23. júlí síð astliðinn. Hann var sonur hjónanna Þorsteins Erlingssonar skálds og ritstjóra, og síðar kennara, og Guð- rúnar Jónsdóttur húsfreyju. Erlingur átti eina systur, Svanhildi, f. 1905, d. 1966. Erling- ur kvæntist árið 1936 Huldu Ólafs- dóttur Davíðsson. Dóttir þeirra var Ásthildur Erna, f. 17. mars 1938, d. 22. nóv. 1993. Þau skildu. Erlingur kvæntist árið 1962 Þórdísi Toddu Guðmundsdóttur. Börn þeirra eru Þorsteinn og Guð- rún Kristín. Barnabörn Erlings eru sex. Erlingur nam við Mennta- skólann í Reykjavík og varð stúd- ent þaðan 1931. Stundaði síðan nám í læknisfræði við Háskóla Ís- lands og lauk þaðan cand. med.- prófi 1937. Almennt lækningaleyfi öðlaðist hann 1938 og sérfræð- ingsleyfi í háls-, nef- og eyrna- lækningum árið 1945. Erlingur var starfandi læknir í Reykjavík frá september 1945 og rak lækn- ingastofu til ársins 1989. Hann fór til Bandaríkjanna í október 1960 til náms í heyrnarbæt- andi aðgerðum og aflaði sér aðgerðas- másjár árið eftir. Erlingur var fyrstur manna til að fram- kvæma smásjár- aðgerðir hér á landi, auk þess sem hann framkvæmdi aðrar aðgerðir. Hann stofnaði fyrstu heyrnarstöð hér á landi, í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur árið 1962 og var yfirlæknir deildar- innar í hálfu starfi 1973-79. Þá vann hann að stofnun Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands sem tók til starfa 1. janúar 1979 og var yf- irlæknir hennar til júníloka árið 1980. Erlingur sat í stjórn Lækna- félags Reykjavíkur 1955-58. Hann sat í stjórn Heyrnar- og talmeina- stöðvar Íslands 1980-81. Erlingur ritaði tugi greina í innlend og er- lend rit um heyrnarskemmdir, há- vaða- og heyrnarvernd. Hann skráði einnig ævisögu sína sem kom út í Reykjavík 1990. Erlingur hlaut Riddarakross Hinnar ís- lensku fálkaorðu 1. janúar 1976. Útför Erlings var gerð í kyrr- þey 2. ágúst. Elsku faðir minn er látinn, tæp- lega níu tíu og sex ára að aldri. Þótt pabbi hafi verið orðinn rígfullorðinn er söknuðurinn mikill og minning- arnar einar eftir, en þær eru ófáar og munu lifa með mér um ókomna tíð og ylja mér um hjartarætur. Það er ekki ætlun mín að rekja ævi hans né starfsferil hér. Það hef- ur hann sjálfur gert í ævisögu sinni sem hann skrifaði og kom út fyrir allnokkrum árum. En það er ekki ofsögum sagt að líf hans hafi verið viðburðaríkt á langri ævi og svo langt frá því að það hafi verið dans á rósum – eins og sagt er. Sorgin sótti hann snemma heim, en faðir hans lést þegar pabbi var að- eins þriggja ára. Hann þurfti því ungur að standa á eigin fótum og standa fyrir sínu, enda sjálfstæður og staðfastur með eindæmum. Kjör- orð þau sem hann hafði að leiðarljósi í lífinu segja meira um hann, en margt annað. Þau voru orð skáldsins Einars Benediktssonar: „vilji er allt sem þarf“, en hann gerði þau að sín- um og sagði „að vilja er allt sem þarf“, og eftir þeim breytti hann, enda komst hann oft langt á viljan- um einum saman. Að gefast upp var ekki til í hans huga. Það sýndi hann og sannaði meðal annars í sínu læknastarfi þar sem hann var frum- kvöðull á sviði smásjáraðgerða hér á landi og framkvæmdi heyrnarbæt- andi aðgerðir ásamt öðrum aðgerð- um, með góðum árangri. Ég var og er stolt af föður mínum og því góða sem hann lét af sér leiða í lífinu. Ég vil þakka honum allar góðu stundirnar sem við áttum saman og fyrir þá leiðsögn sem hann veitti mér í lífinu, hvort heldur sem það var við nám eða annað. Þótt pabbi hafi verið önnum kafinn maður gaf hann sér tíma til að setjast niður með mér og þær voru margar stundirnar sem við sátum saman og hann leiðbeindi mér með námið. Hvort heldur það var danska, þýska, enska eða franska. Heilu doðranta lásum við oft. Hann var mikill tungumálamaður. Ferðalög voru eitt af hans aðal- áhugamálum fyrir utan laxveiðina sem hann stundaði af kappi á meðan heilsan leyfði. Ég tel mig mjög lán- sama að hafa haft tækifæri til, á upp- vaxtarárum mínum, að ferðast um heiminn með foreldrum mínum og bróður. Af þeim fjölmörgu utanlandsferð- um sem við fórum í er mér efst í huga ferðin til Suður-Ameríku þar sem pabbi sótti alheimsþing háls-, nef- og eyrnalækna í Buenos Aires í Argentínu sem stóð í um viku tíma. Það var haldið í marsmánuði árið 1977. Að þinginu loknu ferðuðumst við ásamt nokkrum læknum frá hin- um Norðurlöndunum og mökum þeirra um mörg lönd þessarar frá- bæru heimsálfu í tæpar fjórar vikur. Þvílíkt ævintýri! Ég og foreldar mín- ir ásamt góðum og glaðværum hópi fólks á framandi slóðum. Fyrir mér er pabbi enn ljóslifandi. Í raun ódauðlegur. Ég á bágt með að trúa því að hann sé farinn, þó svo að hann hafi síðustu dagana sem hann lifði verið mjög veikur og að ég hafi setið við rúmið hans og haldið í hönd hans eftir að hann kvaddi þetta líf. Fyrir margt ber að þakka. Ekki síst þá góðu heilsu sem hann hafði mest allt sitt líf og bar gæfu til að geta stundað vinnu sína, kominn fast að níræðu. Myndirnar í huga mér eru ótelj- andi, en dagur var kominn að kveldi hjá honum og kveð ég hann með miklum trega og söknuði og bið ég honum Guðs blessunar með þakk- læti fyrir allt og allt. Þín elskandi dóttir Guðrún Kristín. Meira: mbl.is/minningar Afi Erlingur var enginn venjuleg- ur afi. Virka daga var hann klæddur hvítum sloppi og með ævintýralegt höfuðfat, sem hafði þann eina sýn- lega tilgang að halda kringlóttum spegli með gati í miðjunni. Ekki varð hrifningin minni þegar hann seildist eftir græna bauknum efst á stóra skjalaskápnum og bauð brjóstsykur úr honum. Við þessi tækifæri gant- aðist hann gjarnan smávegis, smellti speglinum fram fyrir hægra augað og setti upp lævísan svip, okkur krökkunum til ómældrar ánægju. Væri afi ekki á stofunni sinni við Miklubrautina, þá gat hann verið á einhverju ævintýralegu ferðalaginu um fjarlæg lönd. Á heimili hans voru óteljandi minjagripir úr þessum ferðum, í flestum tilvikum framandi hlutir sem komu ímyndunaraflinu á flug; lítill uppstoppaður krókódíll, suðrænar risaskeljar, sandstjarna frá Sahara, útskornar trégrímur. Og ekki voru þær síður áhugaverðar gjafirnar sem hann kom færandi með. Einna minnisstæðust er mér skrautleg batíkmussa frá Ghana, sem ég fékk þegar hippatískan stóð hvað hæst og hitti beint í mark. Á sunnudagsmorgnum var afi fastagestur í laugunum. Við systk- inin vorum það líka með honum pabba okkar og það fyrsta sem við gerðum var að skima eftir hvítu hett- unni með bláu röndinni í miðjunni, en án þessarar forlátu sundhettu fór afi Erlingur aldrei í sund. Þá var hann mikill höfðingi heim að sækja og þau voru ófá boðin og stórveislurnar sem við fjölskyldan sóttum heim til afa og Þórdísar. Hann átti rosaflottan kokteilskenkj- ara man ég, svona rafdrifna „græju“, sem endurspeglaði á vissan hátt brennandi áhuga hans á öllu er laut að tækni og tækniframförum. Þetta áhugasvið hans naut sín þó hvergi betur en á læknastofunni hans, sem var um langt skeið sú tæknivædd- asta hér á landi. Nei, hann var eng- inn venjulegur afi, hann afi Erlingur. Á skrifstofunni sinni heima í Skafta- hlíð þöktu fjölskyldumyndir nánast heilan vegg, þar á meðal mynd af honum með systur sinni Svanhildi. Hann svona lítill í einkennilegum stuttbuxum en hún sjö árum eldri með hvíta slaufu í síðu hári sem tók henni niður á mitti; börn þjóðskálds- ins Þorsteins sem lést fyrir aldur fram og Guðrún langamma kom á legg af mikilli þrautseigju og útsjón- arsemi. Þessi lyndiseinkunn átti ekki síður við um afa. Þrátt fyrir lítil efni, braust hann af þrautseigju og út- sjónarsemi til mennta og lagði að því búnu grunninn að háls-, nef- og eyrnalækningum sem sérfræðigrein hér á landi. Skapanornir ætla okkur mann- fólkinu misjafnan hlut, allt eftir lengd og áferð þess örlagavefs sem þær spinna hverjum manni. Vefur afa var ekki síður langur en hann var margbrotinn. Þegar hann lést skömmu fyrir 96. afmælisdag sinn, átti hann að baki langan og glæstan feril sem einn virtasti læknir sinnar samtíðar og flest það sem hann tók sér fyrir hendur virtist leika í hönd- unum á honum. Hann fór þó ekki varhluta af því mótlæti sem lífið ætlar hverju okkar. Þegar móðir mín lést langt fyrir ald- ur fram árið 1993, tókst hann á við það erfiða hlutskipti að fylgja elsta barni sínu til grafar. Þau feðginin voru alla tíð náin, en því miður hög- uðu örlögin því svo, að okkur auðn- aðist ekki að taka þennan nána þráð upp, þar sem hann slitnaði við fráfall mömmu og urðu samskipti okkar því ekki eins náin og efni stóðu til. Eftir stendur minning um merkan mann sem var allt annað en venju- legur afi. Megi Guð blessa þig, elsku afi. Helga Guðrún Jónasdóttir. Ég tel mig vera mjög heppinn að hafa fengið alnafna minn, Erling Þorsteinsson, sem afa. Hann var maður sem ég virti mikils og leit mjög mikið upp til. Hann tók alltaf á móti mér með bros á vör og kenndi mér að koma fram við alla af virðingu. Hann átti mjög viðburðaríka ævi og ég vona að ég nái að gera eins mikið og hann gerði um ævina og hafa eins mikil áhrif á líf annarra til góðs og hann hafði á líf mitt. Ef ég á að nefna eitthvað eitt sem ég hef lært af honum afa mínum öðru frem- ur, er það að vera þakklátur fyrir allt það sem ég hef og að reyna að gera sem best úr öllu. Takk fyrir allt og allt, elsku afi minn. Ég veit að þú hefur það gott hvar sem þú ert núna. Ég lofa að bera nafn þitt vel. Þinn sonarsonur Erlingur. „Elsku pabbi, mér þykir svo vænt um þig og ég hlakka svo til að sjá þig og segja þér frá öllu sem hefur gerst. Þín Ásthildur.“ Þessi orð eru úr bréfi móður minnar u.þ.b. 11 ára gamallar, sem undirritaður fann óvænt. Ég var að fara í gegnum yfir 50 ára sögu af hlutum sem safnast höfðu upp á æskuheimili móður minnar og síðar mínu eigin. Þetta bréf snart mig djúpt, ekki eingöngu fyrir þær sakir að vera spegilbrot tímans af hugsunum hennar, sem var þá látin fyrir nokkrum árum, heldur vegna þess að það hafði í sér að geyma föðurást sem var dýpri en ég hafði gert mér grein fyrir. Þarna varð ég þess líka áskynja að það var gegnum þessar sterku rætur móður minnar sem höfðu myndast svo löngu áður, að tengsl mín við afa mynduðust. Þegar ég var barn og nýfluttur heim frá Danmörku varð ég þess Erlingur Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.