Morgunblaðið - 12.08.2007, Page 70
Kr. 1100 fyrir fullorðna
Ferjugjald, vaffla
og kaffi/kakó
Kr. 600 fyrir börn
Ferjugjald, vaffla
og safi
Nánari
upplýsingar
www.videy.com
533 5055
Vöfflur og
Viðey
Uppgötvaðu Viðey
Kaffisala
kl. 13 – 17
... óskiljanlegt hvers
vegna ekki er meira
samneyti milli norrænna
listamanna. … 72
»
reykjavíkreykjavík
Danski leikstjórinn BilleAugust býr til skiptis íDanmörku og Bretlandi.Blaðamaður nær tali af
honum á fyrrnefnda staðnum þar
sem hann kvartar yfir veðrinu sem
leikið hefur Dani grátt í sumar. Hann
segist jafnframt hafa frétt að annað
hafi verið uppi á veðurteningnum hjá
okkur hér í norðri og blaðamaður
staðfestir að svo sé.
Tilefni samtalsins er frumsýning
nýjustu myndar Augusts, Goodbye
Bafana, sem sýnd verður á Bíódögum
Græna ljóssins sem hefjast 15. ágúst.
Myndin segir sögu James Gregorys
og er byggð á sjálfsævisögu hans, Go-
odbye Bafana: Nelson Mandela, My
Prisoner, My Friend. Kynni þeirra
Mandela hefjast þegar Gregory er
ráðinn fangavörður við fangelsið á
Robben Island í Suður-Afríku. Vegna
tungumálakunnáttu er hinum for-
dómafulla og rasíska Gregory falið að
fylgjast með Mandela og félögum
hans. Úr verður að Gregory fylgir
Mandela milli fangelsa allt þar til sá
síðarnefndi var látinn laus árið 1990.
Billie August hafði ekki lesið ævi-
sögu Gregorys þegar honum barst
kvikmyndahandritið til yfirlestrar.
„Ég les mikið af handritum eins og
gengur en strax eftir 30 blaðsíður af
þessu handriti vissi ég að ég væri með
eitthvað alveg sérstakt í höndunum
og að ég vildi gera myndina,“ segir
August. Hann hafði samstundis sam-
band við framleiðanda myndarinnar
og vildi hefjast handa en eitt vafðist
þó fyrir honum.
„Mér fannst mikilvægt að vera
sannur raunverulegum atburðum
myndarinnar. Ég hafði engan áhuga
á að gera úr þessu einhverja Holly-
wood-sápuóperu. Við náðum að fjár-
magna myndina algerlega sjálfir og
gátum gert hana eins og við vildum.“
En hvað var það við sögu James
Gregorys sem heillaði Billie August?
„Við kynnumst þessum einfalda
manni sem alist hefur upp við að-
skilnaðarstefnuna og trúir stað-
fastlega á hana. Eftir að hann hittir
Mandela má segja að hann verði lif-
andi sönnun þess sem Mandela boð-
aði, að fólk geti breyst, enginn sé
fæddur fordómafullur,“ segir August.
„Mandela hefur alltaf verið hetja í
mínum augum, hann hefur haft svo
stórkostleg áhrif á þjóð sína og okkur
öll. Ég held að ef einhver eins og
Mandela fyrirfyndist í Írak væri
ástandið öðruvísi þar í dag.“
Erfitt að leika Mandela
Sem fyrr segir var August mikið í
mun að myndin yrði sem raunveru-
legust og verandi lítt kunnugur að-
skilnaðarstefnunni frá sínum heim-
slóðum dvaldi hann rúmt hálft ár í
Suður-Afríku og las allt sem hann
komst í um þennan róstursama tíma í
landinu. Auk þess hitti hann eig-
inkonu Gregorys og afkomendur
hans sem og nokkra fanga sem dvalið
höfðu á Robben Island.
„Við sendum Mandela svo hand-
ritið til yfirlestrar og fengum skilaboð
frá honum til baka um að honum
fyndist mjög mikilvægt að myndin
yrði gerð en hann vildi að við gættum
þess að fara rétt með heimildir sög-
unnar.“
Það eru Joseph Fiennes (Shakesp-
heare In Love) og Dennis Haysbert
(forseti Bandaríkjanna í 24) sem fara
með hlutverk félaganna Gregorys og
Mandela. Blaðamanni lék forvitni á
að vita hvort August liti fyrst og
fremst til útlitsþátta við val á leik-
urum í hlutverk raunverulegra ein-
staklinga eða hvort eitthvað annað sé
þar að baki.
„Við valið á Gregory vildi ég fá há-
gæða leikara sem gæti bæði túlkað
þessa breytingu sem verður á honum
með tímanum og einnig leikara sem
gæti elst vel. Fiennes var fullkominn í
það hlutverk. Það er hinsvegar alltaf
erfitt að fara með hlutverk manns á
borð við Mandela, manns sem öll
heimsbyggðin kannast við. Allar örv-
ar virtust beinast að Haysbert og
hann var spenntur að takast á við
hlutverkið. Mér fannst mikilvægara
að fá leikara sem næði líkamstján-
ingu og málfari Mandela heldur ein-
hvern sem lítur út eins og hann, því
það gerir, jú, enginn,“ sagði August.
Kannski til Íslands
Kvikmyndir Augusts í gegnum tíð-
ina hafa flestar verið byggðar á
skáldsögum, sögum sem gerast með-
al annars á róstursömum tímum í
Suður-Ameríku (Hús andanna), á ís-
breiðum í Grænlandi (Smilla’s Sense
of Snow) og nú í fangelsum á tíma að-
skilnaðarstefnu í Suður-Afríku.
Skyldi það vera leikstjóranum mik-
ilvægt að róa á ný mið við gerð hverr-
ar myndar.
„Nei, ég hugsa það nú ekki þannig.
Það er alltaf fyrst og frest sagan sem
heillar mig og ég sé sjálfan mig sem
sögumann,“ segir August og segir
það misjafnt hvort sögurnar rati til
hans sem handrit, eins og Goodbye
Bafana, eða hvort hann heillist við
lestur bókar og vilji gera úr henni
kvikmynd, líkt og Hús andanna.
August sagðist að lokum ekki geta
greint frá þeim sögum sem hann
hyggst segja á hvíta tjaldinu í náinni
framtíð. Hann ýjar þó að því, eins og
fram kom í Morgunblaðinu í vikunni,
að hann muni mögulega leikstýra
kvikmyndinni A Journey Home, sem
gerð er eftir sögu Ólafs Jóhanns
Ólafssonar, Slóð fiðrildanna. Hvort úr
því verður getur tíminn einn leitt í
ljós.
Leikstjórinn „Ég hafði engan áhuga á að gera úr þessu einhverja Holly-
wood-sápuóperu,“ segir Bille August um Goodbye Bafana.
Sögumaður hvíta tjaldsins
Samband Nelson Man-
dela við fangavörð sinn
hefur fram að þessu
kannski ekki verið öll-
um kunnugt. Leikstjór-
inn Bille August boðar
breytingu þar á en
mynd hans, Goodbye
Bafana, er sýnd á Bíó-
dögum Græna ljóssins,
sem hefjast í vikunni.
Birta Björnsdóttir
ræddi við Bille.
Goodbye Bafana Nelson Mandela (Dennis Haysbert) í hlekkjum og James Gregory (Joseph Fiennes) fylgir á eftir.
»Ég held að ef ein-hver eins og
Mandela fyrirfyndist í
Írak væri ástandið
öðruvísi þar í dag.
birta@mbl.is