Morgunblaðið - 23.08.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 13
ERLENT
Dhaka. AFP, AP. | Stjórnvöld í Bangla-
desh settu í gær útgöngubann í höf-
uðborginni Dhaka og fimm öðrum
stærstu borgum landsins og tók það
gildi kl. 20 að staðartíma, klukkan
14 að ísl. tíma. Útgöngubannið settu
stjórnvöld í kjölfar óeirða sem geis-
að hafa sl. þrjá daga.
Óeirðirnar hafa sprottið upp úr
mótmælum námsmanna sem vilja að
neyðarlög verði afnumin, en stjórn-
völd hafa stjórnað Bangladesh í
krafti þeirra síðan í janúar. Vilja
námsmenn að lýðræði verði end-
urreist í landinu. Fréttaskýrendur
segja átökin hafa farið harðnandi
dag frá degi og að í gær hafi ýmsir
aðrir þjóðfélagshópar en námsmenn
verið komnir til liðs við hreyfingu
mótmælenda.
Um klukkustundu áður en út-
göngubannið tók gildi í gær hættu
allir farsímar að virka og sögðu
heimildarmenn AP að yfirvöld hefðu
fyrirskipað að farsímakerfunum
yrði lokað tímabundið.
Útgöngubann eftir
átök í Bangladesh
AP
Bardagar Óeirðalögreglumaður eltir uppi þátttakanda í mótmælum nærri
háskólanum í Dhaka. Um 100 særðust í átökunum sem geisuðu í gær.
RÁÐAMENN í
Rússlandi vilja
að Tékkinn Jos-
ef Tosovsky
verði næsti yfir-
maður Alþjóða-
gjaldeyrissjóðs-
ins, IMF.
Evrópusam-
bandið hefur
mælt með því að
Frakkinn Dominique Strauss-Kahn
taki við starfinu. Tosovsky var
seðlabankastjóri Tékklands 1993-
1997 en nýtur ekki stuðnings nú-
verandi ríkisstjórnar landsins í
embættið hjá IMF sem styður
Strauss-Kahn. Fjölmiðlar í Tékk-
landi hafa sakað Tosovsky um að
hafa unnið með leynilögreglu
kommúnista sem misstu völdin í
flauelsbyltingunni svonefndu 1989.
Rússar styðja
Tosovsky
Josef Tosovsky
NURI al-Maliki, forsætisráðherra
Íraks, hafnaði í gær gagnrýni
Bandaríkjastjórnar á hendur hon-
um og sagði að aðeins írakska þjóð-
in gæti ráðið afdrifum stjórnar
hans. Bandaríkjamenn eru óánægð-
ir með hversu lítið hefur miðað í þá
átt að stuðla að sáttum milli súnníta
og sjíta í Írak, en þeir berast nú á
banaspjót á sumum svæðum. Maliki
sagði hins vegar að það væri ekki
Bandaríkjanna að setja stjórn hans
tímamörk í þessum efnum. Sakaði
hann bandaríska ráðamenn um
óábyrgt tal og skort á kurteisi.
Maliki keikur
MÚGUR, hlynntur herstjórninni í
Búrma, stöðvaði mótmæli um 150
aðgerðasinna í Yangon í gær. Kraf-
ist var lýðræðis í landinu en mik-
illar reiði hefur gætt vegna verð-
hækkana á bensíni undanfarið.
AP
Ákveðnar Konur voru í meirihluta
en átta voru teknir höndum í gær.
Vilja lýðræði
OPINBERIR starfsmenn sem búa á
Gaza-svæðinu fá nú full laun frá
ríkisstjórn Fatah hreyfingarinnar,
með því skilyrði að þeir mæti ekki
til vinnu. Meirihluti íbúa Gaza styð-
ur Fatah og vill hreyfingin hvorki
sjá starfsmennina verða Hamas að
gagni né sjá þá svelta. Um 50.000
starfsmenn á Gaza fá nú laun frá
Fatah en um 10.000 frá Hamas.
AP
Laun Beðið í röð til að fá borgað.
Borgað fyrir
að vinna ekki
FIMM danskir sjómenn sem var
rænt af sjóræningjum úti fyrir
ströndum Sómalíu 1. júní sl. eru nú
frjálsir á ný. Útgerð skipsins er tal-
in hafa greitt um 100 milljónir ís-
lenskra króna í lausnargjald fyrir
mennina, sem mun heilsast vel.
Danir frjálsir
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
0
7
-1
2
0
4
Kia Picanto er lipur og nútímalegur smábíll sem sameinar glæsilegt
útlit og frábæra aksturseiginleika. Nú bjóðum við takmarkað magn af
Picanto Dísil með sumar- og vetrardekkjum á frábæru verði, aðeins
1.430.000 kr. Með bílnum fylgir bílastæðaskífan sem færir þér ókeypis
bílastæði í miðborginni.
Engin útborgun
20.302 kr. á mánuði*
Fallegur og sparneytinn DÍSIL KIA PICANTO
eyðir aðeins 4,2 lítrum á hundraði í blönduðum akstri
Frábær kaup
* Afborgun miðast við 100% lán til 84 mánaða í blandaðri myntkörfu frá AVANT og 1,5% lántökugjald
Takmarkað magn!