Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 33 Þetta var mikið áfall fyrir alla. Ekki síst fyrir Má og dæturnar þrjár. Már átti mjög erfitt með að sætta sig við þennan missi. En sem betur fer náði Már áttum. Már giftist fyrir tíu árum tælenskri konu sem heitir Pensri. Már var augljóslega mjög heppinn að eignast Pensri sem eiginkonu. Hún er mjög indæl og dugleg kona og Má leið auðsjáanlega mjög vel með henni þessi tíu ár. Már var mjög rólegur og yfirveg- aður maður. Undir þessum rólegheit- um var einnig mjög ákveðinn maður sem stóð á sínu þegar þess var þörf. Hann var vinur vina sinna. Ávallt reiðubúinn til hjálpar ef falast var eft- ir því. Már var góður drengur. Við sexmenningarnir sem enn lif- um munum sakna hans. Við vitum að þó að okkar söknuður sé sár er söknuður eiginkonu hans, hennar Pensri, mun sárari og dætra hans, barnabarna og tengdasona. Við félagarnir sendum ykkur okkar hugheilustu samúðarkveðjur og von- um að góður Guð styrki ykkur í sorg ykkar. Þess óskum við af öllu hjarta. Jón Björnsson og Þorgerður H. Aðalsteinsdóttir. Þórarinn Þ. Jónsson og Þorbjörg Jónsdóttir. Böðvar Valtýsson og Hólmfríður K. Guðjónsdóttir. Kæri vinur, þá er baráttunni lokið, en ég hugga mig við það að nú ertu laus við þjáningarnar. Það var mitt lán að kynnast þér á Landspítalanum í júní, þú varst duglegur að skreppa með mér í reyk og þar áttum við mörg góð samtöl um lífið og tilveruna. Það lýsti þér vel að þegar þú fékkst grein- inguna hafðir þú mestar áhyggjur af dætrum þínum og vildir bíða fram yf- ir helgina með að segja þeim frá því, þú vildir ekki skemma fyrir þeim ferðalag sem var á döfinni þessa helgi. Það er mér góð minning að hafa komið við hjá þér á mánudaginn og fengið að halda í höndina á þér og kveðja þig, við vissum bæði hvert stefndi. Takk fyrir fallegu orðin sem þú sagðir við mig, ég geymi þau vel. Nú guð ég von’ að gefi, af gæsku sinni frið, að sársaukann hann sefi, af sálu allri bið. Og þó að sárt sé saknað, og sól sé bakvið ský, þá vonir geti vaknað, og vermt okkur á ný. Þá ljósið oss mun leiða, með ljúfum minningum, og götur okkar greiða, með góðum hugsunum. (I.T.) Innilegar samúðarkveðjur til eigin- konu, dætra og annarra sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls Más Karlssonar. Takk fyrir samveruna, kæri vinur, megi allir himinsins englar vaka yfir þér. Hvíl í friði. Elísabet. Elsku Mási, okkur langar til að kveðja þig með þessum fallegu orð- um. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson.) Við biðjum góðan guð um að veita eiginkonu, dætrum og fjölskyldum þeirra styrk í sorginni. Minningin um góðan dreng mun lifa með okkur. Sigrún (Systa) og börn. Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Sendum myndalista Sú harmafregn barst mér sl. mánu- dag að þú, vinur minn, værir farinn burt, svona snögglega og óvænt, án þess að kveðja. Þú kvaddir mig allt- af þegar þú fórst í ferðalag, hvort heldur þú fórst vestur á firði til for- eldranna eða austur til tengdafor- eldranna. Hversvegna fórst þú í ferðina löngu núna, burt frá ástvinum, burt frá okkur öllum sem höfum fengið að vera þér samferða og notið allra gleðistundanna með þér? Þú sem alltaf varst hrókur alls fagnaðar og ætíð gleðigjafinn á samverustund- um okkar. Húmor þinn hreif okkur öll með sér í gleði, brandarar og skrítlur runnu frá þér í stríðum straumum og viðstaddir nutu gleð- innar sem geislaði frá þér og þinni góðu nærveru. En nú ertu farinn frá okkur og kemur ekki aftur. Sjúkdómurinn lævísi sem þú barðist við hafði betur í hetjulegri baráttu þinni við þann mikla skugga. Það besta í lífinu á oft snöggan endi. Það var það sama með þig, þú hafðir einstaka mannkosti sem hver maður mætti óska sér og varst drengur góður. Kæri vinur, ég kveð þig með söknuði. Það er hörmulegt að sjá á eftir góðum dreng sem hverfur úr miðju lífsverki sínu. Sorgin er erfið þeim sem eftir lifa, en minningin um góðan dreng mun lifa með okk- ur. Ásu, börnunum og aðstandendum öllum votta ég samúð. Aðalbjörn Jóakimsson. Sumir menn sem maður kynnist á lífsleiðinni hafa þann kost og styrk- leika að láta öllum líða vel í nær- veru sinni. Þannig maður var Ás- geir Þór Jónsson. Hann var fljótur að kynnast fólki og hafði einlægan áhuga á högum þess og líðan. Ég kynntist Ásgeiri Þór fyrst sem ræðuskörungi að vestan þar sem hann birtist mér sjálfsöruggur, rökviss og skemmtilegur. Fljótlega lágu leiðir okkar saman í fé- lagsstarfi ungra sjálfstæðismanna þar sem tókst með okkur góð vin- átta. Við höfðum svipaðar hugsjónir og viðhorf til manna og málefna. Ásgeir var höfðingi heim að sækja hvort heldur sem var í Bol- ungarvík eða í námsmannaíbúð sinni á Flyðrugrandanum. Hann var rammíslenskur heimsborgari, sem stundaði nám bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum, og hafði gaman af því að kynnast menningu ann- arra þjóða. Hann var hrókur alls fagnaðar á mannamótum og þótti fátt skemmtilegra en að gleðjast í góðra vina hópi. Í minningunni geymi ég margar skemmtilegar stundir frá Bolungarvík, Ísafirði, Neskaupstað, Reykjavík, Sauðár- króki og Selfossi. Ásgeir var vinmargur og vin- fastur, og gerði sér far um það að við vinir hans „að sunnan“ kynnt- umst sterkum og samhentum vina- hópi hans að vestan. En Ásgeir átti sínar alvarlegu hliðar, hafði skoðanir og var rökviss í umræðum. Hann átti auðvelt með að skilja sjónarmið annarra og finna málamiðlanir. Hann var einn þeirra sem töluðu ekki oft á sama fund- inum, en þegar hann talaði, þá var hlustað. Ásgeir var forystumaður í samtökum ungra sjálfstæðismanna og einnig í Bolungarvík þar sem hann sat í bæjarstjórn fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Hann fluttist síðar til Reykjavíkur og kynntist þar eig- inkonu sinni, Ásu Ásmundardóttur. Í mörg ár skildu lönd og höf okk- Ásgeir Þór Jónsson ✝ Ásgeir ÞórJónsson fæddist í Reykjavík hinn 21. apríl 1967. Hann lést í Reykjavík hinn 12. ágúst síð- astliðinn. Ásgeir Þór var jarðsunginn frá Háteigskirkju 20. ágúst sl. ur að og samskiptin urðu stopulli en áður. Við hittumst fyrir ekki svo löngu og ræddum að nú þyrfti að taka upp þráðinn að nýju. Á kveðjustund sem þessari verður maður óþægilega var við hve lífið er hverfult. Vin- áttan er dýrmæt eign og því mikilvægt að leggja rækt við hana. Fráfall Ásgeirs Þórs minnir okkur á að ekki er hægt að gefa sér að góðar stundir megi geyma til „betri tíma“. Guð geymi góðan dreng og styrki fjölskyldu og ættingja hans. Jónas Friðrik Jónsson. Það er ekki mikið hægt að segja, þegar ungur maður, í blóma lífsins fellur frá. Hvað þá þegar þessi ungi maður er einn af mínum allra besti vinur. Við Ásgeir Þór hittumst fyrst þegar við hófum nám við Mennta- skólann á Ísafirði haustið 1983 og urðum fljótlega miklir vinir. Þessi vinátta hefur haldið alla tíð og síð- ustu tuttugu ár hefur ekki liðið sú vika að við félagarnir höfum ekki spjallað saman og farið yfir stöð- una, eins og Geiri sagði oft. Á þessum árum hefur margt ver- ið brallað, gefnar út söngbækur, settir saman geisladiskar, ferðast og einstaka sinnum jafnvel farið út á lífið, það er á túttípúttið! Það er á engan hallað þó ég segi að í okkar félagsskap, Vestfirskum gleðipinn- um, hafi Ásgeir Þór verið prímus- mótorinn í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Það er margt í þessu lífi sem maður skilur ekki og margt sem maður á hreinlega ekkert að skilja. Ásgeir hafði í mörg ár glímt við sinn sjúkdóm og hafði þannig lært að lifa með honum, að ég og aðrir héldum að sigur myndi vinnast en andstæðingurinn var lævís og hafði að lokum betur. Fyrir ekki svo mörgum árum sát- um við Ásgeir tveir heima og ætl- uðum að ráða lífsgátuna, hlusta kannski aðeins á Ragga Bjarna eða BG og Ingibjörgu, en þá bar svo við að Ásgeir var í símanum allt kvöld- ið, sem mér þótti nokkuð furðulegt. En þetta átti allt sínar skýringar. Helgina áður hafði hann hitt stelpu að austan, að mig minnir í Þjóðleik- húskjallaranum og átti hún upp frá því hug hans allan. Þarna var Geiri sem sagt að kynnast henni Ásu sinni, sem hann síðan giftist og eignaðist með yndislega fjölskyldu. Þó að Ásgeir Þór sé nú fallinn frá, mun minning hans lifa um ókomna tíð. Fjölskylda hans er stór og samhent, Jón Friðgeir og Mar- grét fyrir vestan og Magga, Einar Þór og Kristján fyrir sunnan og vin- irnir eru fjölmargir. Öll syrgjum við nú góðan dreng en þegar frá líður munum við einnig gleðjast yfir öll- um þeim góðu minningum sem hann skilur eftir sig. „Því ég geymi allt það vinur, það allt er gafstu mér. Góða ferð, vertu sæll, já góða ferð.“ Elsku Ása, Ásdís, Ásgrímur, Ás- gerður og litla systir. Ég og Hulda vottum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur og vonum að Guð gefi ykkur og okkur öllum styrk til að takast á við erfiða tíma. Hvíl í friði, kæri vinur, Halldór V. Magnússon. Þessa síðustu daga, frá því ég frétti andlát Geira vinar míns, hefur endurtekið rifjast upp fyrir mér sama myndin: Við vinirnir Bjarki Már ferjaðir síðsumardag fyrir næstum tveimur áratugum á bátsskel yfir Djúpið; fyrst grillir í land, svo hverfur það í hvítamyrkur þokunnar, birtist allt í einu aftur og þá bendir kafteinninn og segir „Jökulfirðir.“ Við sjáum fjöllin rísa æ hærra yfir okkur, það er farið að skyggja og ekki laust við að báran verði krappari því nær sem dregur landi. En svo, um það bil sem hrollurinn er að byrja að renna niður bakið á mér, sjáum við lendinguna í Grunnavík. Á hálf- hrundum bryggjusporði sjáum við stóra manninn standa og bíða eftir okkur. Handtakið er vel þétt og brosið, eins og alltaf, nær milli beggja augna. Hann kynnir okkur fyrir öðrum íbúum Grunnavíkur þessa helgi, eintómum Vestfirðing- um í óteljandi ættliði, með orðunum „Þetta eru vinir mínir“ og meira þarf ekki að segja – eftir u.þ.b. hálf- tíma dvöl í víkinni líður mér eins og heima hjá mér á malbikinu fyrir sunnan, ég er velkominn. Þannig leið mér í félagsskap Geira. Þannig er bara hægt að líða í félagsskap þeirra sem eru góðir drengir og vinir vina sinna. Ég votta aðstandendum Geira mína dýpstu samúð. Hlynur Níels Grímsson. Mér varð alvarlega brugðið, þeg- ar ég fékk fregnir af andláti vinar míns, Ásgeir Þórs Jónssonar. Mað- ur í blóma lífsins, tekinn frá eig- inkonu og fjórum börnum. Það var nú aðeins fyrir tæpum þremur vik- um síðan, eldsnemma á laugardags- morgni, sem ég fékk frá honum smáskilaboð þar sem honum og Ásu hafði fæðst dóttir. Svona getur ver- ið stutt á milli gleði- og ótíðinda. Það eru ekki svo margir dagar síð- an ég fékk myndir af nýjasta fjöl- skyldumeðlimnum á tölvupósti eins og Ásgeir var vanur að gera, þegar nýir erfingjar fæddust þeim Ásu. Ég kynntist Ásgeiri í Tækniskól- anum á árunum 1990 og 1992 og tókst með okkur góð vinátta sem entist til síðasta dags. Ásgeir kom mér fyrir sjónir sem skemmtilegur og orðheppinn drengur og alltaf var hann mikið snyrtimenni. Mér verð- ur hugsað til allrar þeirra hópvinnu sem við leystum saman í skemmti- legum og góðum hópi í Tækniskól- anum. Ofarlega í huga er útskrift- arferðin, þar sem við Ásgeir deildum saman hótelherbergi í London, en hann var vel kunnugur í London og gat farið með okkur Valla á mjög skemmtilegar og sér- stakar slóðir. Ekki hef ég komið til London síðan en ég á örugglega eft- ir að hugsa mikið til Ásgeirs, þegar ég ferðast þangað á næstu árum. Einnig hugsa ég til viknanna, áður en ég fluttist til Noregs en þá höfð- um við þrír félagarnir tekið upp á þeirri skemmtilegu hefð að hittast einu sinni í viku og borða saman góðan hádegisverð og spjalla um líf- ið og tilveruna. Að sjálfsögðu gegndi Ásgeir þar lykilhlutverki, með sinni framkomu og hnyttnu til- svörum. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til Ásgeirs og Ásu og þau höfðingjar heim að sækja. Ég minn- ist skemmtilegu þorrablótanna sem mér var boðið í og sérstaklega var heimsóknin til þeirra um síðustu páska skemmtileg, þar sem ég fékk loksins tækifæri til þess að heilsa upp á börnin þeirra. Elsti dreng- urinn fæddist jú nokkrum dögum áður en ég fluttist frá Íslandi og hafði mér ekki gefist tækifæri til þess að heilsa upp á hann og yngri systur hans, sem fæddist tæpum tveimur árum síðar. Ásgeir var alltaf traustur og ræktarsamur vinur og þrátt fyrir að fjarlægðin væri orðin meiri, núna síðustu ár, vorum við oft í sambandi í gegnum síma eða á Skype. Þar fékk ég fréttir af sameiginlegum vinum og kunningjum og einnig fékk ég fréttir af börnunum hans. Að leiðarlokum vil ég þakka þér kæri vinur, fyrir þau forréttindi að hafa kynnst þér og votta Ásu samúð mína, börnunum þeirra, systkinum Ásgeirs og öðru fólki sem á um sárt að binda á þessum tímamótum. Guð gefi ykkur styrk. Minning um góð- an dreng lifir áfram. Jón Þór Jóhannsson. Sumir menn hafa svo mikla per- sónutöfra að fyrstu kynni við þá líða manni ekki úr minni. Ásgeir Þór var slíkur maður, en ég man enn fyrsta fund okkar á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna í Borgar- nesi árið 1987. Á SUS-þingum koma hundruð ungra sjálfstæðismanna af öllu landinu saman til að rækta hug- sjónir sínar en ekki síður til að efla góð kynni. Á þessum vettvangi var Ásgeir einn af leiðtogum Vestfirð- inga, orðheppinn málafylgjumaður með andstyggð á lognmollu, þraut- góður félagsmálamaður og gleði- maður sem þótti hóf best í hófi. Enginn fundur var svo dauflegur að ekki mætti gera úr honum góðan fagnað með því að fela Ásgeiri veislustjórn. Kunningsskapur tókst strax með okkur Ásgeiri sem þróaðist í góða vináttu. Á meðan Ásgeir bjó fyrir vestan, kom hann oft til Reykjavík- ur ýmissa erinda og var þá oft efnt til gleði í boði hans eða einhvers úr hópi þess merka félagsskapar; Vestfirskra gleðipinna. Þegar Ásgeir var heimsóttur vestur í menninguna voru viðtök- urnar ekki heldur af verri endanum. Ef um hóp var að ræða var ekkert sparað til að gera ferðina skemmti- lega og fróðlega. Við félagarnir munum ætíð minnast ökuferða um vestfirska firði, upp á fjöll og út í víkur undir traustri leiðsögn Ás- geirs, mannlýsingum og gamanmál- um. Í þessum ferðum kom vel fram að hann bar hag heimabyggðar sinnar og Vestfjarða mjög fyrir brjósti enda barst talið oft að at- vinnumálum og framtíð byggðar þar. Þótt margt væri gert til gamans á þessum árum voru alvarleg málefni einnig rædd ef svo bar undir. Vissu- lega urðu vinir Ásgeirs þess áskynja að yfir honum sveimaði stundum dökkur fugl. Ásgeir vildi þó ætíð bera sig vel og sýndi að fátt var svo alvarlegt að hann gæti ekki fundið á því spaugilega hlið. Ásgeir vildi sjálfur takast á við vandamálin og sigrast á þeim en var jafnframt óspar á hjálp til annarra í svipuðum sporum. Gekkst hann m.a. fyrir námskeiðshaldi um fjármál einstak- linga og þunglyndi þar sem hann miðlaði af eigin reynslu. Þegar komið er fast að fertugu er auðvelt að telja sig búa yfir svo mikilli lífsreynslu að fátt geti lengur komið á óvart. Þegar staðið er frammi fyrir fráfalli góðs vinar á besta aldri, verðum við þó algerlega berskjölduð og máttvana. Á þetta vorum við minnt þegar okkur bár- ust fregnir af andláti Ásgeirs. Fyrir nokkrum vikum áttum við langt símtal, en nú vorum við í fríi í Bolungarvík en hann í Reykjavík, bíðandi óþreyjufullur eftir fæðingu yngstu dóttur sinnar. Það gladdi hann að við værum fyrir vestan og sem fyrr lagði hann línurnar með hvaða staði við skyldum skoða. M.a. var komið við á Traðarstígnum þar sem við fengum að vanda alúðlegar móttökur hjá foreldrum hans, Mar- gréti og Jóni Friðgeiri. Að því loknu var farið, eins og áður, í skoðunar- ferð um Víkina og upp á Bolafjall. Í símtalinu var rætt um að hittast bráðlega, jafnvel fyrir vestan. Ör- lögin hafa nú hagað því þannig að bið verður á þeim fundi. En minn- ingu um góðan dreng munum við halda í heiðri meðan okkur endast dagar. Kjartan Magnússon og Guðbjörg Sigurgeirsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Ás- geir Þór Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dög- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.