Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HALLÓ HVERNIG HEFUR ÞÚ ÞAÐ? BARA FÍNT EN ÞÚ? HEF HAFT ÞAÐ BETRA Æ, NEI! STAÐAN ER 3-2 Í SÍÐASTA LEIKHLUTA VIÐ GETUM JAFNAÐ ÞETTA! EN KALLI ER Í ÞRIÐJU HÖFN OG VIÐ EIGUM AÐ SLÁ BOLTANN! HELDUR ÞÚ NOKKUÐ AÐ KALLI REYNI AÐ STELA HÖFN? EKKI EINU SINNI HANN ER NÓGU HEIMSKUR TIL ÞESS! ÆTTI ÉG KANNSKI AÐ STELA HÖFN? KALVIN, AF HVERJU ERTU SEINN Í SKÓLANN? AF HVERJU VARSTU EKKI Í SKÓLABÍLNUM? ÉG ÆTLAÐI AÐ SKRÓPA Í SKÓLANUM EN HÚN NÁÐI MÉR NÚ? HVER? MAMMA! HÚN HAFÐI ÞREKIÐ Í LOKASPRETTINN ÞURFTI HÚN AÐ ELTA ÞIG? JÁ... HÚN STÖKK MEIRA AÐ SEGJA YFIR RUNNA TIL AÐ NÁ MÉR HVERNIG VORU FYRSTU MÁNUÐIRNIR EFTIR AÐ ÞIÐ GIFTUÐ YKKUR? VIÐ RIFUMST MIKIÐ... ÉG FÓR MJÖG OFT HEIM TIL MÖMMU MINNAR OG ÉG FÓR ALLTAF MEÐ HENNI... ÞAÐ VAR EINA LEIÐIN TIL AÐ FÁ EITTHVAÐ ALMENNILEGT AÐ BORÐA! SJÁÐU BARA! ÉG VISSI AÐ ÉG MUNDI FINNA DÓS MEÐ HUNDAMAT! TAKK FYRIR AÐ HJÁLPA MÉR AÐ FLYTJA ÖLL HÚSGÖGNIN HEIM EKKERT MÁL ELSKAN EN ERT ÞÚ VISS UM AÐ ÞÚ GETIR UNNIÐ INNI Á SKRIFSTOFU? HÚN ER FREKAR LÍTIL EN ÞETTA VERÐUR Í FÍNASTA LAGI VIÐ HEFÐUM SAMT KANNSKI ÁTT AÐ MÆLA HANA FYRST ÞAÐ GÆTI ENGINN HALDIÐ LÍFI INNI Í ÞESSU ELDHAFI ÞÁ ER ANSI HEPPILEGT... AÐ ÞAU SÉU EKKI ÞARNA INNI! dagbók|velvakandi Virðingarleysi eða fáviska ÉG á ekki orð yfir umræðunni um 72 ára manninn sem var hent út eins og hverju öðru rusli. Ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur þegar ég heyri þessa umræðu. Erum við ekki samfélag? Það eiga ekki allir fjöl- skyldu til að leita til í erfiðleikum. Ef það versta sem getur gerst er að fleiri geti ekki greitt leiguna, hvað um það? Förum við á hausinn? Bendir það ekki til þess að þörfin sé mikil? Erum við of góð til að hugsa vel um samborgarana sem hafa minna á milli handanna en flestir? Lífsstíllinn á Íslandi hefur breyst. Nær það til eldri borgara, eða eiga þeir að lepja dauðann úr skel meðan restin af þjóðinni heldur ofneyslu- veislu? Við höfum ekki fjármagn þegar snýr að fólki. Þá birtast ábyrgðar- fullir fulltrúar borgarinnar og passa upp á aurana. En það virðist enginn bera ábyrgð á stærri fjárhæðum sem fara forgörðum. Við höfum vel efni á að setja mannvirðingu ofar öllu. Ég held að við ættum að kenna samkennd og virðingu sem skyldu- fag í grunnskóla. Það gæti breytt mörgu til hins betra. Sjálfsvirðing hjá ungu fólki er gott veganesti út í lífið. Í eldri íbúum þessa lands get- um við kynnst fortíðinni og lært að meta hana. Ég bendi einnig á að þeir sem ekki eiga fjölskyldur arfleiða ríki og borg að eigum sínum. Er það virðing við eldra fólk að ætlast til að það leggist upp á aðstandendur nauðugt viljugt? Auðvitað eiga margir góða að en ekki allir. Þeir þurfa á okkur sem þjóð að halda. Emma. Góð þjónusta fasteignasölu MIG langar þakka fasteignasölunni Húsið fyrir góða og vandaða þjón- ustu. Við gerðum tilboð hjá fyrir- tækinu í íbúð og eyddi starfsmaður þar dágóðum tíma með okkur í að út- skýra öll lán, lántökur, greiðslugetu og allt sem máli skipti alveg ofan í kjölinn. Við fengum góðar ráðlegg- ingar þó að við hefðum ekki sóst sér- staklega eftir þeim. Þar var ekki fyrst og fremst verið að hugsa um að selja sem fyrst eins og hjá stærri keðjunum, heldur haldið vel um hagsmuni kúnnans. Þó að ekki hafi orðið af kaupunum vil ég þakka góða þjónustu. Harpa. Síðhærðir árásarmenn Í FRÉTTUM Ríkissjónvarps kom fram um helgina að fjölskyldumaður hefði orðið fyrir fólskulegri árás í miðbænum. Tekið var fram að árás- armennirnir voru síðhærðir. Til hvers að blanda útlitseinkennum í málið? Er fylgni milli síðs hárs og líkamsárása? Ber fólki að óttast síð- hærða karlmenn í smáhópum? Ég hvet fréttastofu einnig að tilkynna árásir múgmenna með aflitað hár, skalla og þá fúlskeggjuðu, einungis til að varpa ljósi á mikilvægar töl- fræðiupplýsingar hvað varðar af- brotafélagsfræði. Einn úr minnihluthópi síðhærðra kappa. Góð þjónusta ÉG þakka fyrir frábæra þjónustu starfsmanna í BP merkingum, Vatnagörðum 14. Kona í Kópavogi. Sjal tapaðist á Menningarnótt LJÓST heklað sjal með stóru kögri tapaðist við Söngskóla Reykjavíkur, Snorrabraut 54, þegar Garðar Cort- es söng þar á Menningarnótt. Finn- andi vinsamlegast hafi samband við Guðrúnu í s. 553 6652. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is VERKAMENN sem vinna við viðgerðir á Þjóðleikhúsinu tóku sér kaffihlé á þaki þess. Þessi glæsilega bygging er hönnuð af Guðjóni Samúelssyni arki- tekt . Fimm leiksvið eru í Þjóðleikhúsinu sem var vígt árið 1950. Morgunblaðið/G.Rúnar Kaffihlé á Þjóðleikhúsinu FRÉTTIR NÝBÝLAVEGI í Kópavogi verður lokað frá Birkigrund vestur að Sæ- bólsbraut frá og með deginum í dag á meðan háspennustrengur verður færður. Stefnt er að því að opna veginn aftur laugardagskvöldið 25. ágúst. Bent er á hjáleið um Álfhóls- veg og Hamraborg. Ekki verður hægt að komast inn á Hafnarfjarð- arveg af Nýbýlavegi meðan á lokun stendur og eru ökumenn beðnir að fara heldur um Digranesveg. Veg- farendum sem leið eiga að fyr- irtækjum við Nýbýlaveg 232 er bent á hjáleið um Hamraborg, Skeljabrekku og Auðbrekku. Nýbýlavegi lokað um tíma Rangt föðurnafn RANGT var farið með föðurnafn Auðar Ákadóttur í myndatexta á bls. 19 í blaðinu á þriðjudag. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT UPP hefur komið galli í tjaldi sem hefur verið til sölu í Rúmfatalag- ernum síðan í vor. Í fréttatilkynningu frá versl- uninni segir að þeim hafi verið til- kynnt að ein gerð af tjaldi sem keypt er af Nordisk Company A/S sé gölluð. Tjaldið heitir „Wood- stock“, vörunúmer 47219000, tveggja manna „pop-up“ tjald. Gallinn felst í ófullnægjandi önd- un efnis í tjaldi. Hefur sölu tjald- anna þegar ver iðhætt og við- skiptavinir sem hafa keypt tjaldið eru beðnir að skila þeim í næstu verslun Rúmfatalagersins. Gölluð tjöld innkölluð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.