Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 17
HÖFUÐBORGIN
LANDIÐ
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ENDURBÆTUR eru hafnar á grá-
sleppuskúrunum við Ægisíðu í
Reykjavík og eru þær liður í átaki
menningar- og
ferðamálaráðs
Reykjavíkur til
að varðveita út-
gerðarminjarnar
við Grímsstaða-
vör.
Grímsstaðavör
er ein af sjö
vörum við Skerja-
fjörð og þekkt
fyrir útgerð grá-
sleppubáta. Björn
Guðjónsson gerði síðastur út frá vör-
inni en hann hætti sjósókn 1998.
„Hérna var mikil útgerð, allt upp í 16
bátar reru héðan þegar mest var á
árunum fyrir stríð,“ sagði hann í
samtali við Morgunblaðið í fyrra.
Menningarminjar
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og for-
maður menningar- og ferðamála-
ráðs, segir að skúrarnir hafi verið að
hruni komnir og ýmsir lagt til að þeir
yrðu hreinlega rifnir þar sem þeir
væru hættulegir börnum og engin
prýði að þeim. Aðrir hafi lagt áherslu
á að borgaryfirvöld skilgreindu vör-
ina og umhverfið sem menningar-
minjar og notuðu þær til að sýna
hvernig útræði var stundað. Slíkt
þekkist víða úti á landi og gegni slík-
ir staðir mikilvægu hlutverki. Í
Reykjavík hafi verið um 30 varir og
nú séu þær flestar horfnar. „Mér
fannst það góð hugmynd að taka eina
fræga vör og varðveita hana þannig
að komandi kynslóðir geti séð hvern-
ig þetta fór allt saman fram áður en
skúturnar, vélbátarnir og togararnir
héldu innreið sína,“ segir Kjartan.
Byrjað var á því að skipta um
bárujárn á hluta skúranna. Kjartan
Magnússon segir að sérhæfðir smið-
ir hafi verið fengnir til verksins og
ekki standi til að gera þá of „fína“
heldur sem líkasta því sem þeir voru
upphaflega.
Fyrir rúmlega ári afhjúpaði Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgar-
stjóri, upplýsingaskilti götumegin
við skúrana þar sem fræðast má um
sögu Grímsstaðavarar, en hún er
kennd við bæinn Grímsstaði á
Grímsstaðaholti sem Grímur Egils-
son reisti á svæðinu 1842.
Kjartan Magnússon segir að hug-
myndin sé að byggja svæðið upp og
meðal annars hafi verið rætt um að
laga aðkomuna með lýsingu. Ekki sé
vilji til að gera svæðið að yfirdrifnum
ferðamannastað með veitingarekstri
heldur verði lögð áhersla á að allar
framkvæmdir verði smáar í sniðum
og í sátt við íbúa í nágrenninu. Til
greina komi að borgin stuðli að út-
gerð frá Grímsstaðavör á vorin og
haustin til að fólk geti kynnst vinnu-
brögðunum eins og þau hafi tíðkast
um aldir.
Endurbætur hafnar á
grásleppuskúrunum
Morgunblaðið/Golli
Kennileiti Grímstaðavör og grásleppuskúrarnir eiga sér merka sögu.
Kjartan
Magnússon
TORFUSAMTÖKIN hafa sent frá
sér tillögu að uppbyggingu við
Laugaveg 4-6 þar sem gert er ráð
fyrir að núverandi hús á lóðunum
verði endurbætt og stækkuð með
hliðsjón af upphaflegum stíl.
Í tillögunni er sýnd ný götuhæð
með verslunarrými undir timb-
urhúsunum og á hún að uppfylla
nútímakröfur um lofthæð og að-
gengi. Aftan við gömlu húsin segja
þau að gæti komið nýbygging sem
tengdi þau saman og væri lítt eða
ekki sýnileg frá götunni.
Tillaga Torfusamtakanna
KRISTJÁN Snorrason, fram-
kvæmdastjóri KS verktaka hf., eig-
anda Nónhæðar í Kópavogi, ætlar að
vinna að nýjum skipulagstillögum á
svæðinu í nánu samráði við skipulags-
yfirvöld í Kópavogsbæ, en í fyrradag
hafnaði skipulagsnefnd skipulagstil-
lögum á Nónhæð og Arnarsmára 32,
fyrst og fremst vegna of mikils bygg-
ingarmagns og athugasemda íbúa.
Í vor var samþykkt að á svæðinu
yrði þétt íbúðabyggð, en samkvæmt
aðalskipulagi Kópavogs er gert ráð
fyrir blönduðu stofnanasvæði og
grænu opnu svæði á Nónhæð og
verslun og þjónustu á Arnarsmára 32.
Aldrei í eigu Kópavogs
Kópavogsbær hefur aldrei átt um-
rætt svæði. Baháíar keyptu Nónhæð
um 1970 í þeim tilgangi að reisa þar
musteri en þeim þótti of þrengt að sér
og seldu því hæðina upp úr 2000. Nú-
verandi eigendur Nónhæðar keyptu
hana 2002.
Smári Smárason, skipulagsstjóri í
Kópavogi, segir að bærinn hafi heim-
ilað lóðarhafa að kynna hugmyndir
sínar um nýtingu lóðarinnar og þess-
um hugmyndum hafi verið hafnað á
fundi skipulagsnefndar í fyrradag.
Lóðarhafar fái skýrslu um innsendar
athugasemdir og taki ákvörðun um
framhaldið. Hann áréttar að skipu-
lagsmál séu í höndum bæjarfélagsins
en það skipuleggi hvorki byggð né
nýtingu lands í eigu einstaklings.
Kristján Snorrason hefur átt landið
í fimm ár og hefur síðan unnið að því
að skipuleggja svæðið. Hann segir
ekki tímabært að úttala sig um næstu
skref en ljóst sé að skipulagstillögur
verði unnar í samráði við skipulags-
yfirvöld í Kópavogi.
Nýjar tillögur á Nónhæð
í samráði við yfirvöld
Sandgerði | Hvatt er til götu- og
hverfagrilla í gulum, rauðum,
grænum og bláum hverfum bæj-
arins á Sandgerðisdögum á laug-
ardag og síðan halda íbúarnir í
fylkingu niður á hátíðarsvæðið þar
sem kvölddagskrá tekur við.
Sandgerðisdagar hefjast á morg-
un, föstudag, og verða settir form-
lega þá um kvöldið með skemmtun
á sviði. Á hátíðinni verður lögð
áhersla á að fjölskyldur og vinir
komi saman, taki þátt og njóti þess
sem er í boði. Dagskráin hefst aftur
snemma á laugardegi með fótbolta-
móti, golfmóti, dorgveiði og afl-
raunakeppni. Hátíðin heldur svo
áfram á hátíðarsvæðinu þar sem
ýmsir skemmtikraftar mæta á
svæðið. Sölutjöld verða á svæðinu
þar sem ýmis varningur er til sölu.
Kvölddagskrá er á hátíðarsvæðinu
með skemmtiatriðum, balli, flug-
eldasýningu og varðeldi. Hægt er
að lesa nánar um Sandgerðisdaga á
www.245.is.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Grillað í mislitum hverfum
FERÐAMÁLASAMTÖK Suður-
nesja lýsa yfir miklun vonbrigðum
sínum með þann seinagang sem orð-
ið hefur á lagfæringu á vegum um
Reykjanesið. Kemur fram í tilkynn-
ingu frá samtökunum að margir veg-
ir séu enn með malarslitlagi og fái
lítið sem ekkert viðhald þrátt fyrir
mikla umferð.
Fram kemur að slæmt ástand
þessara vega hamli markaðssetn-
ingu Reykjanessins sem ferða-
mannasvæðis. Hafi ferðaskipuleggj-
endur jafnvel dregið úr skipulögðum
ferðum um svæðið vegna þess
hversu sumir vegir um Reykjanesið
eru í slæmu ástandi ár eftir ár.
Fjórir vegir eru nefndir sérstak-
lega en það eru Nesvegur frá
Grindavík að Reykjanesvita, Ósa-
botnavegur frá Básendum að Hafna-
vegi, Krýsuvíkurvegur í gegnum
Reykjanesfólkvang að Suðurstrand-
arvegi og Suðurstrandarvegur frá
Ísólfsskála til Þorlákshafnar. Ferða-
málasamtökin telja nauðsynlegt að
leggja bundið slitlag á þessa vegi
sem allra fyrst.
Vondir malarvegir
hamla ferðaþjónustu
Viltu fá
frítt í bíó?
Lumar þú á blaðburðapoka eða
kerru í geymslunni?
Ef þú hringir í okkur í síma 569 1440 sækjum við
kerruna eða pokann samdægurs og færum þér bíómiða
fyrir tvo að launum. Þú getur einnig skilað kerrunni eða
pokanum til Morgunblaðsins í Hádegismóum 2.
B
ÍÓ
M
IÐ
I
BÍ
ÓM
IÐ
I