Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ DIGITAL
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 10:20 B.i. 10 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
ASTRÓPÍA kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 8 - 10:10 LEYFÐ LÚXUS VIP
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 3 - 5:30 LEYFÐ DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 10:40 B.i.10.ára
THE TRANSFORMERS kl. 5 B.i.10.ára LÚXUS VIP
NANCY DREW kl. 6 B.i.7.ára
GEORGIA RULE kl. 8 B.i.7.ára
HARRY POTTER 5 kl. 3 - 8 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 3 - 4 LEYFÐ
OCEAN´S 13 kl. 10:30 B.i.7.ára
NANCY
DREW
YNGSTI OG KLÁRASTI EINKASPÆJARI HEIMS ER NÚ MÆTT Á HVÍTA TJALDIÐ
ÓVÆNTASTA
STELPUMYND ÁRSINS!
eee
H.J. - MBL
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN ÓDREPANDI JASON BOURNE
MATT DAMON
ER JASON BOURNE
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeeee
- SV, MBL
MAGNAÐASTA
SPENNUMYND
SUMARSINS
LANDSLIÐ GRÍNISTA
Í STÆRSTU ÍSLENSKU
BÍÓMYND ÁRINS.
PÉTUR OG SVEPPI HAFA
ALDREI VERIÐ FYNDNARI
- H.A, FM 957
EIN SÚ SKEMMTILE-
GASTA SÍÐAN SÓDÓMA
- Í.G, BYLGJAN
FRÁBÆR ÍSLENSK
AFÞREYING
- SVALI, FM 957
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI
Íslendingar eru í nostalgíukastium þessar mundir. Íslensk„eitís“-plata með gömlum
smellum og slögurum rýkur út.
Menn sperra eyru við tíðindum af
„kombakki“ útbrunninna hljóm-
sveita. Bíómyndir um gamlar
hetjur rata á hvíta tjaldið. Fólk
hummar stakar kryddpíuhendingar
á rölti um bæinn!
Maður veltir vöngum. Af hverju
að breyta hlutunum yfirleitt? Við
söknum þeirra hvort sem er bara
aftur.
Myndir byggðar á fornfrægumfígúrum hafa til að mynda
löngum tryllt bíógesti. Ekki endi-
lega vegna sjarma Transformers,
Turtles og He-man („öflugasta
manns í alheiminum“), heldur
vegna sjarma minninga áhorfenda.
Annað dæmi. Í hvert skipti sem
ný hljómsveit sem leikur „klassískt
rokk“ stígur fram á hampa spek-
ingar og mógular henni. Hvað eru
þeir samt raunverulega að dásama?
Fyrstu kynni sín af rokki?
Við viljum upplifa gamlar tilfinn-
ingar. En er það hægt? Og fyrst og
fremst: Er eitthvað á því að græða?
Um daginn sá ég unglingamynd-
ina The Breakfast Club frá árinu
1985. Frekar þunn frásögn af eft-
irsetukindum í „high school“ í
Bandaríkjunum, byggð á stereótýp-
um og fyrirsjáanleika. Engu að síð-
ur vakti hún þó sælar minningar
unglingsáranna. Myndin notfærir
sér „veikleika“ áhorfandans - for-
tíðarþrána sem blundar í brjósti
sérhvers manns.
Þegar ég svo að loknu glápi tók
spóluna úr tækinu (spóluna, nota
bene …) kviknuðu nokkrar hugleið-
ingar í annars ókvikum kolli mín-
um: Hversu gamlir þurfa svona
„nostalgíu-hlutir“ eiginlega að vera
svo að þeir höfði til nostalgíu-
áráttu okkar? Þurfa þeir að falla í
„gleymsku“ og „enduruppgötvast“?
Miðað við vinsældir Transform-
ers-myndarinnar nýju þurfa þeir
ekki að vera svo ýkja gamlir. Smá
fjarlægð litar fjöllin blá. Þannig
viljum við hafa þau. Þegar maður
kemur nær eru þau nefnilega svört
eða grá eða eitthvað, og í rauninni
bara ljót. Um leið og þau blána
langar okkur í fjallgöngu.
Ég sakna enn þá gömlu prins-póló-umbúðanna. Voru þær
betri en þessar nýju?
Já, ekki spurning.
Hvenær blánar fjall?
AF LISTUM
Sverrir Norland
»Ég sakna ennþágömlu prinspóló-
umbúðanna.
Eggert Jóhannesson
Legó Ótal minningar tengjast þessum litríku og fallegu kubbum.
sverrirn@mbl.is
JÖTUNMENNIÐ
Steven Seagal
kennir FBI um
fæð þeirra kvik-
myndahandrita
sem hann fær í
hendur sínar.
Leikarinn, sem
er þekktur fyrir
vinsælar, te-
stósterónhlaðnar
slagsmálamyndir
á borð Under
Siege og Out for
Justice, hefur nú í fyrsta skipti tjáð
sig opinberlega um fimm ára rann-
sókn þar sem kappinn er bendlaður
við ógnanir og hótanir í garð blaða-
manna.
Steven sagði Los Angeles Times:
„Falskar og rangar ásakanir FBI
kyntu undir þúsundum greina með
fullyrðingum um að ég sýni blaða-
mönnum í tvo heimana og umgang-
ist mafíuna. Þess háttar dylgjur
hræða stóru kallana í kvikmynda-
verunum og einnig sjálfstæða fram-
leiðendur - og drepa starfsferla.“
Seagal hefur aldrei verið ákærður
og neitar öllum tengslum við nokkra
glæpastarfsemi. Krefst hann þess að
mannorð sitt verði hreinsað.
Drap FBI
feril Stevens
Seagals?
Rægður Steven
Seagal spennir
greipar og vonar
að bjartari tímar
séu framundan.