Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 21
Algjört aðsóknarmet í ár „Við erum algjörlega að toppa okk- ur í sumar. Að jafnaði höfum við verið með sex til sjö ferðir í gangi á hverju sumri. Ferðirnar fóru í tólf í fyrra og þær stefna í þrettán í ár. Auk far- arstjóra er rekstrarstjóri með í hverri för, kokkur og tvær stúlkur, sem sjá um stóðið. Óhætt er að segja að gleðin skíni úr hverju hjarta við heim- komu og það gefur okkur svo sann- arlega mikið að sjá hvað fólk er yf- irkomið af landinu og náttúrunni í hvaða veðri sem er auk þess sem ís- lenski hesturinn slær náttúrlega allt- af í gegn,“ segir Elsa Björk, sem talar um Saltvíkurútgerðina sem sumarfrí þeirra hjóna. Þau sinna bæði öðrum störfum yfir vetrartímann og búa þá á Húsavík ásamt dætrunum fjórum sem eru á aldrinum tveggja til fimm- tán ára. Elsa er þroskaþjálfi í grunn- skólanum og Bjarni er íþróttakennari í Mývatnssveit. „Þetta stúss er ægilega skemmti- legt, en brjáluð vinna. Maður leggur allt í þetta, bæði vinnuna og sálina, en við viljum hafa andrúmsloftið af- slappað og svolítið þjóðlegt hérna í sveitinni. Auk hafragrautarins á morgnana fá gestir til dæmis ýsu, skyr, lambalæri, silung, íslenska kjöt- súpu og hjónabandssælu að borða svo eitthvað sé nefnt.“ join@mbl.is www.saltvik.is MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 21 Ferðin var hreint dásamleg og ég ætla í aðra einseftir helgi,“ sagði hinn 79 ára „táningur“ Guð- mundur Júlíusson, kaupmaður í Melabúðinni, sem var ásamt öðrum glöðum gestum að koma í hlað í Saltvík eftir fimm daga Northern Exposure-ferð þegar Dag- legt líf stoppaði við einn sólríkan föstudag fyrir skömmu. Ferðahópurinn samanstóð af Ítölum, Belgum, Þjóð- verjum, Dönum, Svíum og þremur Íslendingum og var lagahöfundurinn Þormar Ingimarsson fararstjóri í ferðinni. Mikið var sungið og trallað á leiðinni enda hefur „The Icelandic Cowboy’s Songbook“ að geyma lög á fjölmörgum tungumálum. Guðmundur sagðist hafa verið hestamaður í ald- arfjórðung og hefur byggt sér upp myndarlega að- stöðu á Langanesmelum við Eystri-Rangá auk þess sem hann er með hesthús í Víðidalnum. „Ég hef nú ekki komið til Húsavíkur frá því ég var á síldveið- unum hér sautján ára gamall og ákvað því að taka þetta með trompi og pantaði tvær fimm daga ferðir. Ég fór yfir Kjöl í fyrra og fjörurnar á Snæfellsnesi frá Stóra-Kálfalæk. Það var hreint æðislegt enda eru þau Ólöf og Siggi dásamlegt fólk. Alltaf er gaman að ríða Arnarfellið hið mikla inn að Hofsjökli og svo er alltaf flott að fara Nyrðra- og Syðra-Fjallabak,“ sagði Guðmundur, sem fór svo að sóla sig á tröppunum í Saltvík ásamt bræðrunum Birgi og Magnúsi Vil- hjálmssonum, sem sögðust hafa fengið hestaferðina í jólagjöf frá eiginkonum sínum og væru alsælir með viðurgjörninginn og vellystingarnar. „Pantaði tvær ferðir“ Alsælir Guðmundur Júlíusson í Melabúðinni var í skín- andi skapi eftir 5 daga ferð um Þingeyjarsýslur, en hér er hann með ferðafélögunum og bræðrunum Birgi og Magnúsi Vilhjálmssonum. Rúnar Kristjánsson á Skaga-strönd hjó eftir því að verið væri að yfirtaka peningastofnanir eins og sparisjóðinn í Skagafirði: Orðið býsna svart er sviðið, svikabreytnin ólm. Grasrótin og græðgisliðið ganga víða á hólm! Hallmundur Kristinsson mælist til þess á bloggi sínu að hver bloggari byrji hvern dag sinn á blogginu með því að blogga eftirfarandi bæn og gefur góðfúslegt leyfi sitt til þess: Af því öll við höfum hag að hafa salt með ketinu. Guð oss öllum góðan dag gefi hér á netinu. Davíð Hjálmar Haraldsson heyrði af áformum um olíuhreinsunarstöð í Arnarfirði: Þeir fara á sjóstöng á vestfirska vísu og veiða á grunni en stíma svo heim. Að bryggjunni koma með blávarta ýsu og bleikju og þyrskling með olíukeim. VÍSNAHORNIÐ Af olíu, Guði og blogginu pebl@mbl.is Innköllun skuldabréfa Kaupþings banka hf., 1. flokkur 2002. Með vísan til ákvæða 1. skuldabréfaflokks Búnaðarbanka Íslands hf. árið 2002 (KAUP 02 1A, áður BUN 02 1; ISIN IS0000007474), þá mun útgefandi, nú Kaupþing banki hf., nýta rétt sinn skv. skilmálum bréfanna til að innkalla öll skuldabréf í umræddum flokki. Innköllunin tekur gildi þann 1. desember 2007. Skuldin verður greidd í samræmi við skilamála bréfanna. Greiðslustaður skuldabréfanna er hjá Kaupþingi banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík, sími 444 6000. Vísað er að öðru leyti til skilmála bréfanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.