Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 25
Það ætti að vera baráttumál
allra að almenningur í landinu fái
greidd mannsæmandi laun. En
það er ekki síður mikilvægt að
fólkið eigi kost á vörum og þjón-
ustu á sanngjörnu verði. Það er
hin hliðin á kjarabaráttunni og að
mínu viti einn mikilvægasti þáttur
kjarabaráttu nútímans.
Það gengur ekki að bjóða fólk-
inu í landinu eitt hæsta verð á
matvælum, lyfjum, og bensíni í
heimi og þá háu vexti sem allir
þekkja. Við þurfum að ná íslensku
verðlagi og ýmsum daglegum
kostnaði almennings niður.
Við þurfum sömuleiðis að létta
af þjóðinni úreltum gjöldum, s.s.
vörugjöldum, tollum og stimp-
ilgjaldi. Við þurfum einnig að auka
niðurgreiðslur á nauðsynlegri
þjónustu. Má þar nefna leik-
skólagjöld, tannlæknakostnað og
námskostnað barna.
Þetta er verkefni margra aðila í
samfélaginu. Hið opinbera, bæði
ríki og sveitarfélög, gegna hér lyk-
ilhlutverki. Nýr ríkisstjórn-
armeirihluti hefur nú þegar skuld-
bundið sig til að lækka verð til
neytenda og bæta kjör þeirra
hópa sem standa höllum fæti.
Þessi ríkisstjórn mun einnig af-
nema stimpilgjöld og endurskoða
vörugjöld og beita sér markvisst
fyrir minni verðbólgu og lægri
vöxtum. Þá mun ríkisstjórn Sam-
fylkingar og Sjálfstæðisflokks
bæta tannvernd barna með gjald-
frjálsu eftirliti og auknum nið-
urgreiðslum á tannviðgerðum
barna ásamt því að tryggja að
nemendur í framhaldsskólum fái
stuðning til kaupa á námsgögnum.
Auðvitað getur ríkisvaldið gert
enn meira í þessum efnum en ný
ríkisstjórn mun þó leggja sitt af
mörkum til að hægt sé gera lífið á
Íslandi ódýrara. En eftir stendur
að atvinnurekendur, verslunareig-
endur og innflytjendur átti sig á
því að verkefnið í þessum efnum
er ekki síður hjá þeim. Hér þurfa
allir að leggjast á eitt.
Ágúst Ólafur Ágústsson
Lækkum verðlag
Höfundur er varaformaður Sam-
fylkingarinnar og formaður við-
skiptanefndar Alþingis.
Fréttir í tölvupósti
Til leigu í Skútuvogi 1
Atvinnuhúsnæði - 3 x 173,7 fm –
Frábær staðsetning
Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali
Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is
tákn um traust
Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir á skrifstofu Hóls, Skúlagötu 17.
Upplýsingar gefur Stefán Bjarni í síma 694 4388.
Um er að ræða þrjár einingar
sem hver um sig er 173,7 fm að
stærð.
Fyrsta einingin er á 3.hæð og er
með góðum innkeyrsludyrum.
Gæti hentað vel fyrir heildsölu-
eða þjónustufyrirtæki.
Önnur og þriðja einingin eru á
fjórðu hæð og gætu hentað
prýðilega undir ýmiskonar skrif-
stofustarfsemi.
Leigist saman eða í sitthvoru
lagi.
Hóll kynnir - til leigu
vandað skrifstofu- og lagerrými
ERUM MEÐ KAUPENDUR AÐ EIGNUM
Á EFTIRFARANDI SVÆÐUM:
• EINBÝLI 160 - 200 FM. GARÐABÆ, KÓPAVOGI, MOS-
FELLSBÆ
• 3JA HERB. VERÐ 30 - 35 MILLJ. Í VESTURBÆ
• 2JA HERB. VERÐ 14 - 16 MILLJ. Í 109, 111, 200, 201
• 3JA HERB. VERÐ 21 - 25 MILLJ. Í 104, 108, 105.
• SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI VERÐ: 40 - 50 MILLJ. REYKJAVÍK /
KÓPAVOGI.
• ATVINNUHÚSNÆÐI VERÐ:150 - 200 MILLJ. REYKJAVÍK /
KÓPAVOGI.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
SELJENDUR ATHUGIÐ!
Upplýsingar veitir Sveinn Eyland sölumaður
á skrifstofu Fasteign.is eða í gsm:6-900-8020
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 • Fax 533 4041
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali
Mjög góð og mikið endurnýjuð 1. hæð og ris með viðbyggðum bíl-
skúr í tvíbýlishúsi. Stærð alls 200,0 fm. Tvær samliggjandi stofur og
fimm svefnherbergi. Suður svalir. Hellulögð innkeyrsla með snjó-
bræðslu. Góð staðsetning. VERÐ: 45.0 Millj.
jöreign ehf
LAUGATEIGUR
MEÐ BÍLSKÚR
Tækniþróunarsjóður
Kynningarfundur 28. ágúst
í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Tækniþróunarsjóður boðar til opins kynningarfundar í Húsi atvinnu-
lífsins þriðjudaginn 28. ágúst kl. 8:30 - 10:00.
Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum
en umsóknarfrestur í sjóðinn er til 15. september.
Dagskrá
Davíð Lúðvíksson forstöðumaður Samtaka iðnaðarins er fundarstjóri.
• Sveinn Þorgrímsson formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs gerir grein fyrir hlutverki
sjóðsins.
• Snæbjörn Kristjánsson og Oddur Már Gunnarsson, starfsmenn Rannís, fjalla um
umsóknar- og matsferli sjóðsins.
• Snæbjörn Kristjánsson kynnir Eurostars sem er nýr möguleiki fyrir fjármögnun verk-
efna sptotafyrirtækja sem stunda ransóknir.
• Tvö verkefni kynnt sem hlutu stuðning vorið 2006
Boðið verður upp á morgunverð á fundinum.
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra. Sjóðurinn fjármagnar
nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs.
Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.