Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VITUR maður hefur sagt að næst því að missa afkomu sína sé fátt holl- ara úngum þjóðum en missa menn- ingararf sinn. Það er nauðsynlegt hverri þjóð að eiga sér sögu og í því samhengi má ég til með að minnast þess þegar ævagamlar risastyttur voru vísvitandi eyðilagðar í Afganist- an fyrir ekki svo löngu á þeim for- sendum að hugmyndafræðin á bak við stytturnar þóknaðist ekki þáver- andi stjórnvöldum. Þegar svo er kom- ið að þjóð afneitar fortíð sinni er illa komið fyrir henni, þá er komið drep í sál þjóðarinnar sem gæti tekið langan tíma að gróa. Það liggur ljóst fyrir að þessi til- teknu hús eru ekki í sinni fallegustu mynd. Fyrir flestum blasir ekkert annað við en einhverjir kofaræflar, en til eru þeir sem kynnt hafa sér húsa- gerðina sem liggur að baki og verða ekki blindaðir af núverandi ástandi húsanna, þeir sjá fyrir sér hvernig húsin litu út, hvernig þau muni geta litið út og hvað þau myndu gera mikið fyrir götu- myndina ef þau væru lagfærð. Þegar fólk gengur um vel heppn- aða gamla bæjarhluta í borgum Evrópu, sem oft eru 200-1.000 ára gamlir, er hollt að minnast þess að flest húsin þar hafa einhvern tímann verið í jafn slæmu ástandi og húsin sem nú eiga að víkja. Með öðrum orðum, ef það að hús er í vondu ásigkomulagi, réttlættir alltaf niðurrif væri líklegast ekki mikið eftir af t.d. gamla borgarhlutanum í Prag. Það er margt sem mælir gegn því að þessi tilteknu hús séu rifin, þetta eru með elstu húsum Reykjavíkur, í raun ein af sárafáum húsum sem sýna eldri gerð timburhúsa, þ.e. áður en sveitser stíllinn varð allsráðandi. Húsin standa við einn heillegasta hluta Laugavegar, frá húsi númer 2 að húsi númer 22, eru einungis 3 hús sem reist eru eftir 1918. Í okkar ungu byggingarsögu jafnast þetta á við götumyndir sem eru 500 ára í erlend- um borgum. Stundum hefur verið haft á orði að Laugavegurinn sé of sundurleitur. Ef það væri lagt til grundvallar segir það sig sjálft að það væri mun minna verk að rífa þessi þrjú hús sem byggð eru eftir 1918 frekar en hrófla meira við gamla stílnum sem enn er ríkjandi. Nýbyggingar byggðar eftir tískusveiflum dagsins í dag myndu gera lítið annað en að auka enn á sundurleitn- ina. Það eru ekki margir staðir í Reykjavík þar sem jafn lítið þyrfti í raun að gera til að mynda heil- legan bæjarhluta í gömlum stíl. Stað sem myndi virka sem segull á ferða- menn jafnt sem vin fyrir íbúa. Fyrir þessu er hugsað í flestum ef ekki öll- um öðrum borgum í Evrópu, en það er einmitt sú hugsun sem varð svo ill- þyrmilega útundan í núverandi deili- skipulagi. Ég hef áður bent á það og legg það enn og aftur til að miklu skyn- samlegra væri að byrja á að leyfa nið- urrif norðan megin götunnar frá húsi númer 47 og upp úr. Þar með væri hægt að koma til móts við kröfur kaupmanna, auka verslunarrými töluvert án þess að eyðileggja heilleg- ustu götumyndirnar. Það þarf að byggja á sérstöðunni sem neðri hluti Laugavegar þrífst á en það eru ein- mitt lítil eða meðalstór versl- unarrými, kaffihús, veitingahús og önnur starfsemi sem ekki þrífst í stærri verslunarmiðstöðum. Það er nóg pláss á Laugavegi fyrir alla og óskynsamlegt að hunsa verðmæti sem þjóðin á saman vegna skamm- tíma gróðasjónarmiða fárra manna. Ég hóf greinina á bjagaðri tilvitnun í frægan íslenskan rithöfund. Það er ekki alveg úr lausu lofti gripið þar sem sá hin sami var fastagestur á kaffihúsi sem var í öðru af húsunum sem nú eiga víkja, þ.e. Laugavegi 6. Tvö yfirlætislaus hús við Laugaveg Þórður Magnússon skrifar um endurnýjun Laugavegar »Ef það að hús er ívondu ásigkomulagi réttlættir alltaf niðurrif væri líklegast ekki mik- ið eftir af t.d. gamla borgarhlutanum í Prag. Þórður Magnússon Höfundur er tónlistarmaður og situr í stjórn Torfusamtakanna. Laugavegur 4 fyrir tíma flennistórra nærfataauglýsinga. EINN mikilvægasti hornsteinn í lýðræðislegu og opnu samfélagi er virk þátttaka almennings í stjórn- málum. Aðeins með upplýstri um- ræðu fólks er líklegt að hið mikla vald stjórnmálamanna yfir borgurum sé nýtt til þess að setja og fylgja stefnu sem hefur réttlæti og almannahag að leiðarljósi. Samband ungra sjálfstæðismanna er ein öflugasta stjórnmálahreyfing á Íslandi. Þetta helgast fyrst og fremst af því að í pólitísku starfi ungs fólks eru það ekki gamalgróin hags- munatengsl eða fyrirgreiðsla sem ræður för. Enn fremur hefur ungt fólk jafnan ekki hag af því að viðhalda úr sér gengnum hugmyndum – held- ur getur það litið yfirvegað á skipan mála og lagt til lausnir sem þjóna al- mennri skynsemi og réttlæti. Undanfarin ár hefur starf ungra sjálfstæðismanna verið mjög blóm- legt. Sterk staða Sjálfstæðisflokksins meðal ungs fólks helgast meðal ann- ars af þeim málflutningi sem heyrst hefur frá ungum sjálfstæðismönnum. Enda er það svo að rödd frelsisins hefur ætíð haft mikinn samhljóm með ungu fólki og er í takt við lífsviðhorf þeirra og drauma. Innan Sjálfstæð- isflokksins hefur ungliðahreyfingin oft verið kölluð „samviska flokksins“, enda hafa ungir sjálfstæðismenn jafnan haldið því að fulltrúum sínum á þingi og í sveitarstjórnum að þeir bregðist ekki grundvallarhugsjónum flokksins þegar þeir komast í áhrifa- stöður. Borgar Þór Einarsson, núverandi formaður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna, hefur verið öflugur tals- maður frelsis og minnkandi ríkisaf- skipta, sem aukinheldur skilur eftir sig djúp spor hvað varðar skipulag og starfshætti í samtökunum. Hann hef- ur afráðið að gefa ekki kost á sér áfram sem formaður nú þegar ungir sjálfstæðismenn koma saman til að velja sér forystu til næstu tveggja ára á Seyðisfirði um miðjan september. Borgar hefur í starfi sínu öðlast óskorað traust og virðingu þeirra sem með honum hafa starfað. Hann á mik- inn stuðning vísan ef hann kýs að gefa kost á sér til frekari starfa á hinu pólitíska leiksviði. Nú þegar hefur verið greint frá því að Þórlindur Kjartansson muni sækj- ast eftir stuðningi til þess að taka við formennsku í Sambandi ungra sjálf- stæðismanna. Vitað er að hann nýtur til þess víðtæks stuðnings þeirra sem starfað hafa með honum á ýmsum vettvangi undanfarin ár. Við erum báðir meðal þeirra sem vonumst eftir því að Þórlindur hljóti góðan stuðning og brautargengi til þess að taka við forystunni í Sambandi ungra sjálf- stæðismanna. Formannsskipti í SUS Davíð Örn Jónsson og Teitur Björn Einarsson skrifa um starf Sambands ungra sjálfstæð- ismanna og komandi formanns- skipti Davíð Örn er rafmagnsverk- fræðinemi. Teitur Björn er stjórn- armaður í SUS. » Sterk staðaSjálfstæð- isflokksins með- al ungs fólks helgast meðal annars af þeim málflutningi sem heyrst hef- ur frá ungum sjálfstæð- ismönnum. Davíð Örn JónssonTeitur Björn Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.