Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 23
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 23 Skipulagsmál hafa skotið upp koll- inum upp á síðkastið á Akureyri. Nú í lok sumarsins tínast menn úr fríinu og taka til við ákvarðanir og fram- kvæmdir. Svona er þetta.    Í Síðuhverfinu eru breytingar framundan þar sem reisa á stúd- entaíbúðir þar sem verslunin Síða stendur nú (og stóð hún enn síðast þegar ég vissi). Verslunin verður rif- in í óþökk eigandans.    Í gærkvöldi var jafnframt kynnt nýtt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir tveimur 7 hæða blokkum austan við Bónus. Um 70 nýjar íbúðir, útivist- arhverfi og ný einbýlishús eru á meðal þess sem sjá má í tillögunni.    En ég held ég gerist ekkert alltof hlutdrægur þótt ég segi sisvona: Mál málanna (að minnsta kosti þessa dagana) er Akureyrarvakan. Það sést best á pósthólfinu mínu, sem að þriðjungi inniheldur upplýs- ingar um viðburði komandi helgar.    Frá föstudagskvöldi fram á sunnu- dagsmorgun (eða svona hér um bil) verða viðburðir úti um allan bæ; allt frá Hlíðarfjalli niður á höfn. Allir í bænum eru í startholunum til að toppa hátíðina í fyrra þegar 5 þús- und manns fylltu Listagilið og hlýddu á tónleika undir berum himni.    Í dag fer fram upphitun við Pollinn þegar Benedikt Lafleur æfir sig fyr- ir gerning með Önnu Richards með því að synda yfir fjörðinn og svamla til baka ef allt gengur eftir. Búið er að hvítmála vegginn þar sem nýjasta VeggVerkið verður sett upp. Nýr hljómsveitarpallur er risinn í Gilinu og Frúin í Hamborg er flutt.    Sést hefur til bæjarlistamanns- ins Kristjáns Ingimarssonar með bros aftur að eyrum og til baka, og ljóst er að hann er að plotta loka- atriði sem gefur hinu brennandi hestaorgeli ekkert eftir. Að þessu sinni skilst mér að hann ætli að gera eitthvað með fíflum, og ég hef satt best að segja ekki hugmynd um hvort hann ætlar að valsa um með blómum eða mönnum.    En það er best að vera ekkert að hlaupa of langt fram úr sér. Það er frekar að maður láti það bara standa, þangað til nær dregur, að nú fer að líða að þessum herlegheitum.    Akureyrarvakan er annars ekki ein af þessum þriggja daga hátíðum með Húkkaraballi® eða Þukl- araballi© í aðdragandanum. Þó geta áhugasamir brugðið sér á Græna hattinn í kvöld, ef menn vilja gæða sér á ljúfum tónum í aðdraganda vökunnar. Þar mun Jóhanna Gunn- arsdóttir, læknir á FSA, sýna á sér nýja hlið og syngja ljúfar ballöður í bland við lög úr söngleikjum, popp- og djasslög. Undirleikur verður í höndum Margotar Kiis á píanó, Stef- áns Ingólfssonar bassaleikara og Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur fiðlu- leikara. AKUREYRI Hjálmar Stefán Brynjólfsson Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mannhaf Áhorfendaskarinn á Akureyrarvöku í fyrra troðfyllti Listagilið. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Óðum styttist í að reykvískirforeldrar barna á aldrinum6 – 18 ára geti byrjað aðnýta Frístundakortið sem Reykjavíkurborg hefur kynnt til sög- unnar. Með kortinu geta foreldrar greitt að hluta eða öllu leyti fyrir frí- stundastarf barna sinna. Um er að ræða 12 þúsund króna niðurgreiðslu á frístundastarfi barna í borginni fram að áramótum. Á næsta ári mun niðurgreiðslan nema 25 þúsundum króna fyrir hvert barn á þessum aldri og árið 2009 verður hún 40 þúsund krónur á barn. Að sögn Sólveigar Valgeirsdóttur, verkefnastjóra Frístundakorta hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykja- víkur (ÍTR) geta foreldrar byrjað að ráðstafa styrknum þann 1. sept- ember næstkomandi en skilyrði er að barnið sé þá skráð í tómstundastarf hjá félagi eða aðilum sem ÍTR hefur samþykkt. „Félögin sækja um aðild hjá okkur en við þurfum að samþykkja starf- semi þeirra til að börn sem eru skráð hjá þeim geti notað Frístundakortið til að niðurgreiða námskeiðsgjöldin,“ segir Sólveig en á heimasíðu ÍTR, www.itr.is, má finna reglur og skil- yrði sem félag þarf að uppfylla til að verða samþykkt. „Öll helstu íþróttafélög, tónlistar- skólar, skátafélög, ballettskólar og fleiri eru þegar samþykkt af okkar hálfu en samtals eru hátt í 80 félög á skrá hjá okkur. Þar með eru líka fé- lög utan Reykjavíkur því krakkar héðan sækja margir hverjir tóm- stundastarf í nágrannasveitar- félögin.“ Ekki beingreiðslur til foreldra Á heimasíðu ÍTR má finna lista yf- ir þau félög sem þegar hafa verið við- urkennd en Sólveig tekur fram að sá listi sé ekki tæmandi þar sem stöðugt bætist nýir samstarfsaðilar í hópinn. „Svo má benda á að kirkjan er aðili því þótt æskulýðsstarfið hjá þeim sé almennt gjaldfrjálst eru einstaka námskeið á þeirra vegum sem þarf að borga fyrir og þá má ráðstafa styrkn- um á móti þeim.“ ÍTR setur það sem skilyrði að tóm- stundastarfið sem um ræðir sé iðkað í tíu vikur samfellt að lágmarki. „Við viljum að krakkarnir stundi starfið yfir einhvern tíma því félagslegi þátt- urinn er svo stór,“ segir Sólveig. „All- ar kannanir sýna að krakkar, sem eru í slíku langvarandi tómstunda- starfi, byrja t.d. síður að drekka ung.“ Til að foreldrar geti nýtt styrkinn þarf viðkomandi félag, skóli eða sam- tök að hafa sent ÍTR tilkynningu um skráningu barnsins. Eftir 1. sept- ember geta forráðamenn barnsins farið inn á heimasíðu Rafrænnar Reykjavíkur en tengil þangað má finna á heimasíðu borgarinnar, www.reykjavik.is. Þar birtist yfirlit yfir það félagsstarf sem barnið er skráð til þátttöku í svo forráðamenn geti valið til hvaða félags styrknum verður ráðstafað, öllum eða að hluta. Þannig er ekki um beingreiðslur til foreldra að ræða. Sólveig bendir á að ekki þurfi að sækja sérstaklega um styrkinn. „Það er nóg að vera búsettur í Reykjavík og eiga barn á þessum aldri og þá kemur hann sjálfkrafa. Fólk þarf ein- göngu að fara í gegn um Rafræna Reykjavík til að ráðstafa styrknum, að því tilskyldu að félagið hafi skráð barnið inn í kerfið.“ Þeir sem ekki hafa tölvuaðgang geta leitað til þjón- ustumiðstöðva borgarinnar sem að- stoða þá við ráðstöfun styrksins. Búið að greiða allt árið Sem fyrr segir er upphæðin 12 þúsund krónur fram að áramótum og 25 þúsund á næsta ári en upphæð- irnar flytjast ekki milli ára. En hvað þá um þá sem eru þegar búnir að greiða þátttökugjöld alls ársins fyrir börn sín? „Sum félög hafa farið þá leið að endurgreiða fólki ef það ráð- stafar styrknum til þeirra,“ svarar Sólveig. „Þetta er eitthvað sem for- eldrar þurfa að útkljá við viðkomandi félag því við greiðum styrkinn ekki út til einstaklinga.“ Aðspurð segir Sólveig ÍTR vak- andi yfir því hvort félögin noti tæki- færið til að hækka skráningar- og þátttökugjöld. „Hækkanir þurfa ekki allar að vera óeðlilegar, einfaldlega vegna verðbólgunnar. Hins vegar kölluðum við inn gjaldskrár félag- anna frá því í fyrra og á þessu ári ein- mitt í þeim tilgangi að fylgjast með þessu. Ef okkur finnst hækkanir fé- laganna óeðlilegar gerum við at- hugasemdir. Eins biðjum við foreldra að vera vakandi yfir þessu og koma til okkar ábendingum, ef einhverjar eru. Við höfum þegar fengið slíkar ábendingar inn á borð til okkar.“ Í verstu tilfellum segir Sólveig jafnvel mögulegt fyrir ÍTR að slíta samstarfi við viðkomandi félag. „Auð- vitað er það hagur félaganna að vera skráð hjá okkur því þannig fá þau til sín fleiri iðkendur. Kannski verður þetta til þess að starfið hjá ein- hverjum verði metnaðarfyllra en áð- ur vegna þess að þau vilja uppfylla okkar skilyrði um samstarf.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Upprennandi Reykvískir íþróttamenn framtíðarinnar geta nú notið nið- urgreiðslu á æfingagjöldum sínum með Frístundakorti ÍTR. Tómstundir niðurgreidd- ar með Frístundakorti www.itr.is www.reykjavik.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.