Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 52
FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Þjónustuskortur  Fangelsismálastofnun hefur yfir tveimur sálfræðingum að ráða, en þeir eiga að sinna tæplega 500 skjól- stæðingum. » Forsíða Þjóðverjar enn týndir  Leit að tveimur þýskum ferða- mönnum sem ekki hafa sést síðan 17. ágúst síðastliðinn gekk treglega í gær vegna erfiðra aðstæðna. Leitað var í Skaftafelli og á Vatnajökli. » 6 Vatnsréttindi metin  Vatnsréttindi vegna Kárahnjúka- virkjunar voru metin á 1,6 milljarða. Lögmaður nokkurra landeigenda segir aðferðafræði matsnefnd- arinnar furðulega. » 2 Samdráttur, ekki kreppa  Robert Wade, prófessor við Lond- on School of Economics og Þorvarð- ur Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur Seðlabankans, telja að óróa á fjár- málamörkuðum sé ekki lokið. » Viðskipti SKOÐANIR» Staksteinar: Eftir storminn … Forystugreinar: Alþingi verður að taka afstöðu | Staða fangelsismála á Íslandi Ljósvaki: Frábærar og flottar … UMRÆÐAN» Upplýsingar í fjölbreyttu formi Að styðja Hamas en fordæma Norðmenn Lækkum verðlag Hótanir OPEC hafa lítil áhrif Kennslan var erfiðasta verkefnið Baráttan um OMX harðnar Pókerspil til bjargar alheiminum? VIÐSKIPTI » 3  "4#  ,! ) !" 5 !  ! ! 1    2  2  2 2 2  2   2  2 2 2 2  2 2 2   2    2 + 6'/ #  2  2  2 2 2  2  2  7899:;< #=>;9<?5#@A?7 6:?:7:7899:;< 7B?#66;C?: ?8;#66;C?: #D?#66;C?: #0<##?1E;:?6< F:@:?#6=F>? #7; >0;: 5>?5<#0)#<=:9: Heitast 18°C | Kaldast 10°C  Suðvestanátt og víða 5-13 m/s og skúrir en þurrt og bjart veður austan til á landinu. Hlýjast fyrir austan. » 10 Bourne Ultimatum fær fullt hús stiga hjá gagnrýnanda sem segir hana bestu spennumynd- ina í áraraðir. » 51 KVIKMYND» Fimm stjarna hetja TÓNLIST» Magnaðar vinsældir Magna. » 45 Sverrir Norland veltir fyrir sér for- tíðarþrá okkar allra og hann saknar gömlu Prins póló- umbúðanna. » 48 AF LISTUM» Fjöllin sem verða blá TÓNLIST» Færeyingurinn Búi Dam talar íslensku. » 44 FÓLK» Seagal kennir FBI um dapran feril. » 48 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Bubbi Morthens í átökum við … 2. Britney hætti á síðustu stundu … 3. Maserati bifreiðin næstum … 4. Bill Murray gripinn drukkinn … BRUNINN í Austurstræti, vöxtur úthverfanna, reykingabann og slagsmálamenning eru meðal þeirra skýringa sem íbúar í Þingholtunum nefna á því að í sumar hefur sóðaskapur, hávaði og al- mennt ónæði af skemmtanalífinu stóraukist. Erna Valdís Valdimarsdóttir hefur búið í Ing- ólfsstræti í tvö ár. Hún hefur undanfarið safnað undirskriftum nágranna sinna á mótmælaskjal gegn ástandinu og hafa flestir þeirra sömu sögu að segja. „Þetta hefur versnað gríðarlega. Ég hugsa að bruninn í Austurstræti hafi haft sitt að segja, því þá færðist fólkið sem hélt sig áður niðri á torgi hingað ofar.“ Bjarni Einarsson, nágranni Ernu, hefur búið alla sína ævi í miðbænum. Hann tekur undir það með henni að undanfarið hafi skemmtanalífið breyst mjög til hins verra. Hann nefnir að úthverfi höfuðborgarinnar hafi vaxið mjög síðustu ár og að margir þeirra sem koma í bæinn að skemmta sér um helgar hafi engin önnur tengsl við miðborgina. „Það ríkir algjört virðingarleysi gagnvart sam- félagslegu hliðinni, að það sé fólk sem býr hérna. Fólk lítur bara á þetta sem stað til þess að detta í það. Ég var kýldur fyrir stuttu síðan þegar ég spurði mann sem var að pissa á húsið hjá mér hvað hann væri að gera,“ segir Bjarni. Hann segir að ákveðin slagsmálamenning sé við lýði þar sem ungir menn hittast í miðbænum um helgar til þess að slást. „Þeir eru hinsvegar ekki lengur bara að útkljá málin innbyrðis, heldur lenda saklausir borgarar á milli.“ Hann segir eit- urlyfjaneyslu áberandi í þessum hópi. Bjarni er ekki í vafa um að sóðaskapur sé meiri nú en áður. „Öll umgengni í miðbænum hefur snarversnað síðan reykingabannið skall á. Núna er umhorfs um hverja helgi eins og áður var bara eftir 17. júní.“ | 4 Sóðaskapur og ónæði  Íbúar miðbæjar Reykjavíkur segja ástandið um helgar hafa snarversnað  Skemmtanalífið hefur breyst eftir reykingabannið og brunann í Austurstræti Rusl Glerbrot og rusl á menningarnótt. ÆSKULÝÐURINN á myndinni tók sín fyrstu skref eftir mennta- veginum langa í útiskólastofu Norðlingaskóla í gær. Í Norðlingaskóla, sem kallar sig sveitaskólann í Reykjavíkurhreppi, trúa menn ekki á vond veður, því allar veðurþrautir mega vinnast með réttum fatnaði. Í anda þeirrar stefnu var skólinn settur í gær í útiskólastofunni í Björnslundi, þar sem skólabörnin nýbökuðu, ásamt vinum sínum og velunnurum, bökuðu epli yfir opn- um eldi til þess að halda upp á dag- inn. Ekki er að sjá að nokkur hafi æmt undan votviðrinu, enda er und- an litlu að kvarta þegar volg epli eru í boði og öll ævintýri grunn- skólans eru framundan. Bökuðu epli yfir eldi Morgunblaðið/Árni Sæberg Snillingurinn, meistarinn, veitingamaðurinn á Þremur frökkum og yfirkokkur Fiskidagsins mikla Úlfar Eysteinsson. Til hamingju með daginn elsku kallinn…þú ert flottastur, aldur er afstæður og 60 ár eru nú ekki mikið þegar þú eldar fyrir tugþús- undir án þess að blása úr nös, enda þekktur fyrir stáltaugarnar. Stjórn Fiskidagsins mikla, íbúar Dalvíkurbyggðar og gestir. Ljósmyndari: Helgi Steinar Halldórsson LEIKRITIÐ Dubbeldusch, frum- raun Björns Hlyns Björnssonar sem leikskálds, verður sýnt á sviði Leik- félags Akureyrar í vetur. Þar segir frá hjónum á miðjum aldri sem þurfa skyndilega að horfast í augu við 30 ára gamalt leyndarmál. Þrjú önnur verk verða frumsýnd á Akureyri í vetur, enda segir Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri aðsókn- ina hafa aukist gríðarlega. Leikárið hafi verið lengt og framboð aukið til þess að svara þessari eftirspurn. Fyrsta frumsýning vetrarins er á leikritinu Óvitum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Þar minnkar fólk með aldrinum, svo börn leika full- orðna og öfugt. Aðrar nýjar sýn- ingar eru Öku- tímar eftir Paulu Vogel, með frum- saminni tónlist eftir Lay Low, og Fló á skinni í nýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar. | 46 Fjórar nýjar sýningar á fjalirnar hjá LA Magnús Geir Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.