Morgunblaðið - 23.08.2007, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
AUSTURLAND
Morgunblaðið/Gunnar Gunnarsson
Sveitungar Vilhjálmur Snædal frá Skjöldólfsstöðum og Aðalsteinn Að-
alsteinsson frá Vaðbrekku voru meðal gesta við opnun veiðihússins.
Eftir Gunnar Gunnarsson
Jökulsárhlíð | Nýtt veiðihús hefur
verið tekið í notkun við Hálsakot í
Jökulsárhlíð. Veiðiþjónustan
Strengir sem á húsið sem áður var
félagsheimili. Húsið stendur
skammt frá Kaldá, einni af þverám
Jökulsár á Dal, en í báðar árnar hafa
Strengir sleppt laxaseiðum.
Þröstur Elliðason, sem stýrir
Strengjum, er bjartsýnn á framtíð
laxveiði í Jöklu og þverám hennar.
„Fyrir ári kom ég til að veiða lax í
Kaldá og þá kviknaði hjá mér sú
hugmynd að hér væri hægt að gera
meira. Við slepptum þá litlu magni
seiða í tilraunaskyni og fyrir
skömmu fóru laxar úr þeirri slepp-
ingu að skila sér á land. Veiðst hafa
17 eða 18 laxar. Það sýnir að verk-
efnið munu ganga upp. Ég hef trú á
að við sjáum fleiri laxa veiðast hér á
næsta ári og eftir fimm til tíu ár
verðum við í nokkuð góðum málum.“
40 til 50 þúsund seiðum sleppt
Þröstur segir að umtalsverð til-
raunastarfsemi sé í gangi í kringum
laxveiði í Jöklu og þverár hennar. „Í
ár sleppti ég 40 til 50 þúsund seiðum
úr sjö sleppitjörnum. Þetta er lax
sem mun leita til baka á þetta svæði.
Við slepptum meðal annars í Hrafn-
kelu, rúma 100 kílómetra frá sjó, en
menn hafa sjaldan, eða aldrei, sleppt
seiðum jafn langt frá sjó.
Við rennum nokkuð blint í sjóinn
með Jöklu, hvort hún fóstri einhvern
lax af viti. Kaldá hefur náttúruleg
seiði svo skilyrðin virðast fyrir hendi
en ég tel að það verði að sleppa laxa-
seiðum í árnar til að veiðin glæðist
fyrir alvöru.“
Þröstur segir framundan að auka
við gistirýmið í Hálsakoti. „Í dag er
pláss fyrir 4 til 6 manns, en við ætl-
um að tvöfalda það á næsta ári. Við
ætlum líka að fara skipulegar í veiði
á svæðinu.“
Strengir sjá einnig um Breiðdalsá.
„Veiðin þar er heldur minni en í
fyrra, enda hefur ekki rignt þar síð-
an í byrjun júní. Við teljum að það sé
meiri lax í ánni en áður en vatns-
leysið dregur úr veiðinni.
Þurrkar hafa leikið Laxá í Nesjum
illa. Þar hafa veiðst ríflega 10 laxar
og þá bara niður við ósinn. Laxinn
kemst ekki upp í ána vegna þurrka.“
Laxaseiðum sleppt í
jökulá 100 km frá sjó
Egilsstaðir | Á fjórða tug kven-
félagskvenna af Austurlandi kom
saman á Vilhjálmsvelli síðastlið-
inn mánudag. Tilefnið var annar
fundurinn í landsátaki Kven-
félagasambands Íslands sem ber
yfirskriftina „Landsátak Kven-
félagasambands Íslands um
aukna hreyfingu og bætt mat-
aræði.“ Fundurinn var haldinn í
samstarfi við Samband aust-
firskra kvenna.
Það var Una María Ósk-
arsdóttir, varaforseti Kven-
félagasambandsins, sem hafði
framsögu á fundinum á Egils-
stöðum og kynnti verkefnið.
Byrjað var á kynningu í Hettunni
en síðan var farið út í stutta
göngu og teygjuæfingar undir
stjórn Auðar Völu Gunnarsdóttur
íþróttakennara.
„Við viljum auka heilbrigði og
hreysti þjóðarinnar,“ sagði Una
María. „Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin hefur áhyggjur af vaxandi
offitu í heiminum og það sem við
viljum gera er að hvetja meðlimi
okkar til að vanda sig við inn-
kaupin og hreyfa sig,“ sagði hún
en kvenfélögin eru fjölmennasta
kvennahreyfing landsins.
Hún segir ýmsar einfaldar leið-
ir færar fyrir þá sem vilja hreyfa
sig meira. „Í stað þess að keyra
eða fara í lyftuna leggurðu
lengra frá eða gengur upp stig-
ana heima hjá þér. Lýðheilsustöð
mælir með hálftíma hreyfingu á
dag sem er mjög fljót að koma ef
menn hugsa fyrir henni.“
Una María segir mikilvægt fyr-
ir konur að finna fyrir hvatningu.
„Við hvetjum kvenfélögin til að
byrja með einhverja hreyfingu,
námskeið, fá næringarfræðing
eða koma upp klúbbum til að
koma starfinu af stað.“
Morgunblaðið/Gunnar Gunnarsson
Hreyfing Kvenfélagskonur ganga á Vilhjálmsvelli.
Þarf að vanda inn-
kaup og hreyfa sig
Egilsstaðir | Heimasíður allra leik-
skóla Fljótsdalshéraðs voru form-
lega opnaðar á hátíð í leikskólanum
Hádegishöfða þegar fagnað var
tuttugu ára afmæli leikskólans. Ei-
ríkur B. Björgvinsson bæjarstjóri
opnaði síðurnar með dyggri aðstoð
leikskólabarna úr öllum skólunum.
Fram kom við athöfnina að það
er von starfsfólks leikskólanna og
annarra sem að málefnum leikskól-
anna koma að heimasíður skólanna
megi verða til að efla starfsemina
og tengja þá enn betur við umhverfi
sitt og samfélag. „Nútímasamfélag
gerir kröfur um auðvelt aðgengi að
markvissum upplýsingum. Heima-
síður gegna þar lykilhlutverki,
enda hafa sífellt fleiri greitt og
öruggt að gengi að upplýsingum
sem þar birtast,“ segir í frétta-
tilkynningu frá sveitarfélaginu.
Fimm heimasíður opnaðar
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
Á FUNDI Hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverf-
is í Glerárskóla í gærkvöldi voru kynnt drög að
skipulagi á byggingarreit sem afmarkast af
Langholti, Miðholti, Krossanesbraut og Und-
irhlíð á Akureyri. Um var að ræða fund til að
kynna tillögur að byggingum á svæðinu áður en
málið verður tekið til umræðu í skipulagsnefnd
Akureyrarbæjar. Gestir fundarins voru Jón Ingi
Cæsarsson formaður skipulagsnefndar, Pétur
Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri, Sigurður Sig-
urðsson framkvæmdastjóri SS Byggis og Logi
Már Einarsson arkitekt hjá Kollgátu.
Skiptar skoðanir voru meðal fundargesta um
umrædd drög, en ekki var um að ræða end-
anlega tillögu að skipulagi reitsins. Á fundinum
kom fram að málið hefði verið í vinnslu í eitt og
hálft ár, og að stefnt væri að því að vinna það
áfram með íbúum hverfisins.
Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir að SS
Byggir reisi tvær 7 hæða blokkir með um 70
íbúðum syðst á svæðinu, auk þess sem bíla-
geymsla verður á milli húsanna. Áður hafði ver-
ið gert ráð fyrir þremur blokkum, en þeim hug-
myndum var breytt. Keyrt verður inn að
blokkunum frá Undirhlíð, og því munu þær bera
sama götuheiti.
Svæðið áður talið óbyggilegt
„Við óskum semsagt eftir að byggja þessar
blokkir á svæðinu,“ segir Sigurður Sigurðsson.
„Á þessu svæði er töluvert dýpi, og áður var það
talið óbyggilegt. En tæknin í dag leyfir okkur að
byggja á því; við ráðum við það. Við höfum
hugsað okkur að byggja syðst, en við munum
fylla upp í miðhlutann með jarðvegi og þar er
meiningin að gera útivistarsvæði fyrir hverfið.
Nyrst á svæðinu verða einbýlishús, en þau verða
ekki á okkar höndum.“ Þessi einbýlishús verða
reist á lóðum sem Akureyrarbær mun síðar út-
hluta.
Umrætt svæði er skilgreint sem íbúasvæði á
aðalskipulagi Akureyrarbæjar, en SS Byggir
hefur áður séð um að gera tillögur að deiliskipu-
lögum fyrir bæinn. Fyrirtækið reisti blokkirnar
við Baldurshaga, og segir Sigurður að þá hafi
verið lagðar fram margar tillögur áður en end-
anlegt deiliskipulag var samþykkt.
„Þessi mýri sem við viljum nú byggja á er bú-
in að vera lýti á bænum,“ segir Sigurður. „Það
er æskilegt að fara að gera eitthvað fallegt þar.
Þetta eru okkar tillögur til að snyrta þetta
svæði.“ Sigurður segir jafnframt mikinn áhuga
vera á íbúðum í blokkunum, og að margir hafi
skráð sig fyrir þeim.
Nýjar hugmyndir um Undirhlíð
Tillagan SS Byggir mun reisa tvær krosslaga blokkir syðst á reitnum, en einbýlishús rísa nyrst. Á
myndinni sést verslun Bónuss í horninu efst til hægri, en reiturinn er austan við verslunina.
TÓNLISTARHÁTÍÐIN AIM – Ak-
ureyri International Music Festival
var haldin í byrjun júní og þótti tak-
ast vel. Boðið var upp á allar gerðir
tónlistar, allt frá pönki upp í djass,
með viðkomu í tangó og kúbverskri
tónlist. Í kjölfarið hafa skipuleggj-
endur hátíðarinnar ákveðið að
fjölga tónlistarviðburðum norðan
heiða á komandi vetri.
Fyrstu tónleikarnir undir nafn-
inu AIM Concerts verða haldnir á
Akureyrarvöku og er það stórsveit
Samúels J. Samúelssonar. Þeir
verða ókeypis og getur hver sem
leið á um Listagilið nk. laugardags-
kvöld kl. 21 fengið að njóta þeirra.
Tónleikarnir eru unnir í samstarfi
við Landsbankann og Akureyr-
arstofu.
„Við ætlum að halda mán-
aðarlega tónleika fram að næstu
hátíð,“ segir Baldvin Esra Ein-
arsson verkefnastjóri AIM. „Stefn-
an verður að hafa enga stefnu og
bjóða upp á alls kyns tónlist með
hvort tveggja íslenskum og erlend-
um böndum.“ Tónleikarnir í vetur
verða að sögn Baldvins flestir
haldnir á Græna hattinum.
Morgunblaðið/Golli
Sammi Boðið verður upp á fjöruga
tónleika í gilinu á laugardagskvöld.
AIM sækir
á í vetur