Morgunblaðið - 23.08.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 41
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 9-16.30 smíði/
útskurður, kl. 9.30 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 13.30
hjólreiðahópur.
Ferðaklúbbur eldri borgara | 30. ágúst. Suður-
strönd, Seljalandsfoss, Skógafoss, Dyrhólaey,
Kerlingardalur, Vík í Mýrdal. Upplýsingar og
skráning í síma 892 3011, Hannes Hákonarson.
Allir eldri borgarar velkomnir.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids spilað kl.
13.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður kl.
9.15. Handavinnustofan opin. Hádegisverður kl.
11.40. Heitt á könnunni til kl. 16.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9 handavinna
og ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. 13 handavinna.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er opið
kl. 9-16.30, m.a. vinnustofur og spilasalur. Unnið
er að haust- og vetrardagskrá, óskir og ábend-
ingar eru vel þegnar. Postulínsnámskeið byrja um
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaað-
gerðir. Kl. 9-12 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15-15.30
handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 13-
14 leikfimi, Janick. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handavinnustofa opin
kl. 10-14.30, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, hár-
greiðslu og fótaaðgerðastofur opnar allan daginn.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282.
Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir.
Háteigskirkja | Kl. 20 alla fimmtudaga. Kyrrðar-
söngur, lesið úr ritningunni, bænir, altarisganga,
fyrirbæn með handayfirlagningu og smurningu.
Allir velkomnir.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund er hvert fimmtudagskvöld í Vídal-
ínskirkju kl. 21. Tekið er við bænarefnum af prest-
um og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundar.
mánaðamót, skráning á staðnum og í s. 575
7720.
Hittingur | Hópur fyrir ungmenni á aldrinum 16-
30 ára. Hópurinn er fyrir þá sem eiga fáa vini og
vilja bæta úr því. Upplýsingar gefur Ingibjörg í
síma 694-6281. Heimasíða: www.blog.central.is/
hittingur16-30. Netfang: hittingur@gmail.com.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og blöðin, al-
menn handavinna, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl.
12 matur, kl. 14 félagsvist, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnuð kl. 9. Bingó kl.
13.30.
Hæðargarður 31 | Starfið er opið öllum aldurs-
flokkum. Viltu læra á tölvu, spá í veðrið, læra
skrautskrift, tefla, flosa eða hvað? Kíktu inn og
sjáðu hvað stendur til boða. Skráningu lýkur mið-
vikudag 29. ágúst á Haustfagnaði. Hjördís Geirs
kemur í dag. S. 568 3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Boccia karlaklúbbur
kl. 10.30. Handverks og bókastofa kl. 13. Boccia
kvennaklúbbur kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30.
80ára afmæli. Í dag, 23.ágúst, er áttræð Kristín
Helgadóttir, Aðalgötu 17, Sauð-
árkróki. Af því tilefni tekur hún á
móti vinum og vandamönnum á
heimili sonar síns á Selbrekku 18,
Kópavogi, eftir kl. 16 í dag. Þeim
sem hafa hugsað sér að gleðja af-
mælisbarnið með gjöfum er vin-
samlegast bent á Langveik börn.
Hlutavelta | Þessar duglegu
stúlkur, Hanna Björt Stefáns-
dóttir og Freyja Ósk Þórisdóttir,
söfnuðu 2.546 krónum og færðu
Rauða kross Íslands ágóðann.
Hlutavelta | Þessar hressu stelpur héldu tombólu á Ísafirði á dögunum
og söfnuðu 3.600 krónum til styrktar Rauða krossi Íslands. Stelpurnar
heita Hafdís Bára, Aldís Huld, Brynja Dís Höskuldsdætur og Birta Rut
Rúnarsdóttir.
Hlutavelta | Þessar góðu vinkonur
og nöfnur, Halldóra Björg Jónas-
dóttir og Halldóra Björk Einars-
dóttir, héldu tombólu við Grímsbæ.
Þær söfnuðu 8.126 krónum og
færðu Rauða krossinum ágóðann.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 23. ágúst, 235. dagur ársins 2007
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. (Lúkas 6, 44.)
Erasmus-áætlunin er einföld ogaðgengileg leið fyrir íslenskaháskólastúdenta að stundaskiptinám í Evrópu, að sögn
Tryggva Thayer, verkefnisstjóra lands-
skrifstofu menntaáætlunar Evrópusam-
bandsins á Íslandi: „Erasmus-áætlunin
miðar að því að gera Evrópu að einu
samræmdu háskólasvæði. Stúdenta-
skipti eru einn stærsti þátturinn í starfi
áætlunarinnar, sem einnig sinnir kenn-
ara- og starfsmannaskiptum og ýmsum
þróunarverkefnum, en allir háskólar á
Íslandi eiga aðild að áætluninni,“ út-
skýrir Tryggvi. „Í gegnum Erasmus
stendur því íslenskum háskólanemum til
boða að stunda nám við vandaða háskóla
í flestum löndum Evrópu, í öllum náms-
greinum, í 3 til 12 mánuði.“
Tryggvi segir einfalt að sækja um
skiptinám, og að árlega fari um 200 ís-
lenskir stúdentar utan á vegum Eras-
mus-áætlunarinnar um leið og fjöldi
nemenda komi hingað til lands frá öðr-
um Evrópulöndum: „Skiptistúdentar á
vegum Erasmus eiga einnig kost á
ferðastyrk, uppihaldsstyrk og stuðningi
í tungumálanámi,“ segir Tryggvi.
„Ferðastyrkurinn er 600-700 evrur, og
uppihaldsstyrkurinn nemur 250 evrum
mánaðarlega. Ef stundað er nám á
svæði þar sem talað er annað mál en
enska, franska, þýska eða spænska er
víða boðið upp á tungumálahrað-
námskeið á vegum áætlunarinnar, og fá
nemendur uppihaldsstyrk á meðan á
tungumálanáminu stendur.“
Að sögn Tryggva geta íslenskir nem-
endur grætt mikið á því að stunda skipt-
inám: „Í skiptinámi öðlast nemandinn
mun sterkari tengsl við menningu og
þjóð námslandsins en hann gæti með
öðrum hætti. Þá er skiptinám kjörið
tækifæri til að læra og þjálfa sig í nýju
tungumáli. Ekki hvað síst veitir skipti-
nám nemendum reynslu í að starfa náið
með fólki í öðru menningar- og vinnu-
umhverfi en við eigum að venjast og er
slík reynsla orðin mjög eftirsótt í at-
vinnulífinu hérlendis.“
Finna má nánari upplýsingar um
Erasmus-skiptinám á slóðinni www.-
erasmus.is.
Vakin er athygli á að umsóknarfrest-
ur fyrir skiptinám á vorönn er til 15.
október nk.
Menntun | Erasmus-skiptinemar stunda nám í flestum löndum Evrópu
Aðgengilegt skiptinám
Tryggvi Thayer
fæddist í Texas
1968. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum
1990, BA-prófi í
heimspeki frá HÍ
2003 og MA-prófi í
stjórnsýslu alþjóðl.
menntunar frá Há-
skólanum í Minnesota 2007. Tryggvi
starfaði hjá Rannsóknarþjónustu Há-
skólans, síðar hjá CEDEFOP í Grikk-
landi, og hjá Mennt 2001-2004. Hann
hefur verið starfsmaður Alþjóðaskrif-
stofu háskólastigsins frá 2006.
Tryggvi er kvæntur Hlín Gylfadóttur
verkefnisstj. og eiga þau eina dóttur.
Tónlist
Næsti bar | Ingólfsstræti 1a.
Mood spilar í kvöld kl. 21.
www.mood.is.
Myndlist
Hafnarborg | Ice land scape colo-
ur-transfer in pulp. Þýski lista-
maðurinn Wolfgang Heuwinkel
hefur þróað með sér mjög sér-
staka nálgun við pappír og vatns-
liti. Sýningin stendur til 9. sept-
ember.
Fréttir og tilkynningar
Lýðheilsustöð | Út er kominn nýr
fræðslubæklingur Fólat- fyrir
konur sem geta orðið barnshaf-
andi. Lýðheilsustöð, Landlæknis-
embættið og Miðstöð mæðra-
verndar standa að útgáfu bækl-
ingsins en hann er hægt að panta
á heimasíðunni www.lydheilsu-
stod.is.
ÞAÐ varð að notast við krana í gær til að setja síðustu kubbana í hæsta turn sem búinn hef-
ur verið til úr Legó-kubbum. Turninn er 29,3 metrar á hæð en fyrra metið var „einungis“
28,75 metrar. Turninn stóri reis í Toronto í Kanda en það var hinn danski Per Knudsen
sem festi Legó-flagg á topp turnsins í gær.
Knudsen er einn þeirra örfáu sem geta skráð sig sem „kubbara“ í símaskrána, en hann
hefur það að aðalatvinnu að byggja úr Legó-kubbum um víða veröld.
Hæsti Legó-turn í heimi
Reuters
85ára afmæli. Í dag, 23.ágúst, er Ólafur Thoraren-
sen, fyrrverandi kaupmaður á
Siglufirði, 85 ára. Hann dvelst á
Kanaríeyjum.
hlutaveltur
ritstjorn@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistilkynning-
um og/ eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-
1100, senda tilkynningu og
mynd á netfangið ritstjorn-
@mbl.is, eða senda tilkynn-
ingu og mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins, www.mbl.is,
og velja liðinn Senda inn efni".
Einnig er hægt að senda vélrit-
aða tilkynningu og mynd í
pósti. Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Hlutavelta | Þessir fjórir vinir Kristófer Ingi Maack, Illugi Njálsson,
Jóhannes Kristjánsson og Viktor Freyr Sigurðsson komu og færðu
Rauða krossinum 7.500 krónur. Þeir söfnuðu flöskum og dósum hjá verk-
tökum í nýbyggingum í Kórahverfi í Kópavogi.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111