Morgunblaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is ÚTLENDINGAR eru um þessar mundir ekki aðeins ráðnir til starfa í ýmsa verka- mannavinnu eða í iðnaði og þjónustu, heldur hafa íslensk fyrirtæki einnig sótt starfs- krafta til útlanda í störf há- skólamenntaðra sérfræðinga. Matís er eitt þessara fyr- irtækja. Þar starfa hátt í 100 manns og þar af eru allnokkrir útlendingar. Sjöfn Sig- urgísladóttir, forstjóri Matíss, segir kröfur um menntun hafa aukist hratt og hafi ekki náðst að metta þann markað sem fyrir hendi er með ís- lensku starfsfólki. Erlendu starfsfólki hjá Matís hefur enda fjölgað mjög, bæði á þessu ári og í fyrra. Algengt að fólkið hafi lokið framhaldsnámi Margir þeirra sem vinna hjá Matís eru mennt- aðir á sviði efnafræði, efnaverkfræði, líffræði, matvælafræði, lífefnafræði og í fleiri raunvís- indagreinum. Algengt er að starfsmennirnir hafi lokið meistara- eða doktorsprófi. Sjöfn segir nokkrar meginástæður fyrir því að leita hafi þurft út fyrir landsteinana að starfsfólki fyrir Matís. „Það virðast vera færri sem fara í raunvísindi í dag heldur en áður,“ nefnir hún. Þá sé mikil þensla á vinnumarkaði og hún hafi einnig áhrif. Þenslan geri að verkum að mikil eftirspurn sé eftir fólki og það hafi í för með sér að sumir kjósi fremur að fara út á vinnumarkaðinn að loknu grunnháskólanámi, heldur en að halda til fram- haldsnáms. Ennfremur hafi viðskiptagreinar ver- ið vinsælar meðal námsmanna og það komi niður á fjölda nemenda í raunvísindagreinum. „Svo eru líka auknar kröfur um menntun,“ seg- ir Sjöfn og bendir á að eftirspurn eftir hámennt- uðu fólki á sviði raunvísinda hafa aukist mikið. Fleiri íslensk fyrirtæki, sem ráði fólk með raun- vísindamenntun til starfa, séu í svipuðum sporum og Matís. Sjöfn segir reynslu Matíss af því að hafa útlend- inga í vinnu almennt góða. „Það eru auðvitað kost- ir og gallar. Kostirnir eru að þeir eru oft með þekkingu og reynslu annars staðar frá sem við getum nýtt okkur. En gallinn er að það tekur ákveðinn tíma að aðlagast landinu, sumir aðlagast og aðrir ekki,“ segir Sjöfn. Þá hái tungumálið hin- um erlendu starfsmönnum oft. Erlendir starfsmenn Matíss koma frá öllum heimshornum og segir Sjöfn að fanga sé víða leit- að til að fá fólk til að koma hingað í vinnu. Meðal annars hafi verið leitað eftir starfsmönnum í gegnum erlendar ráðningarskrifstofur og sam- starfsaðila Matíss. Snúnustu málin séu þau sem varða ráðningu starfsfólks sem er frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Erfitt og tímafrekt sé að fá þessi leyfi „og við höfum nánast verið búin að missa af viðkomandi starfskrafti þegar leyfið kemur“, segir Sjöfn. Það taki marga mánuði að ganga frá leyfi fyrir slíkt fólk. Þetta sé bagalegt enda séu dæmi þess að þessir sérfræðingar búi yf- ir þekkingu sem ekki sé til á Íslandi. Sjöfn segir mjög misjafnt hvort þeir sérfræð- ingar sem koma til starfa hjá Matís hyggist dvelj- ast hér í skamman eða langan tíma. Sumir komi hingað til dvalar í stuttan tíma, til dæmis í gegn- um skiptisamstarf Matíss við erlenda aðila, en „margir eru alveg tilbúnir að koma hingað og búa hérna“, segir hún. Fannst Ísland áhugaverður kostur Jennifer Coe hefur B.Sc-gráðu í lyfjafræði en hún er frá Edinborg í Skotlandi. Hún hefur unnið hjá Matís á Akureyri um nokkurra mánaða skeið. Jennifer starfar við rannsóknir á fyrstu stigum fiskeldis, á sviði sameindaerfðafræði og við bakt- eríurannsóknir. Þá sinnir hún jafnframt kennslu í Háskólanum á Akureyri. „Mér fannst það áhuga- verð tilhugsun að fara til Íslands að vinna. Það fer gott orð af Íslandi og það er gott að dveljast hérna,“ segir hún um ástæður þess að hún kaus að ráða sig í vinnu hjá Matís. Jennifer var spennt fyrir því að skoða sig um í Skandinavíu og fannst ágætt að byrja á Íslandi. Hún kom hingað í ágúst í fyrra. Hún hefur ekki hugsað sér að dveljast á Íslandi til frambúðar en hefur enn ekki ákveðið hversu lengi hún hyggst starfa hjá Matís. Hún hefur starfað á Akureyri frá því hún kom hingað og lætur vel af dvölinni þar. „Það er fínt fyrir mig, sem er frá Edinborg, að prófa að búa í litlum bæ,“ segir hún. Sótt í erlenda sérfræðinga Forstjóri Matís segir auknar kröfur um framhaldsnám og þenslu á vinnumark- aði valda því að fyrirtækið leitar til útlanda eftir hámenntuðu starfsfólki Í HNOTSKURN »Erlendir starfsmenn Matíss koma víðaað. »Þar starfar nú fólk frá Póllandi, Sví-þjóð, Íran, Ísrael, Kanada, Kína og Portúgal. »Sumir útlendinganna vinna í Reykjavíken aðrir á landsbyggðinni. Sjöfn Sigurgísladóttir Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hjá Matís Jennifer fannst spennandi að dveljast um hríð á Íslandi og réð sig þess vegna í vinnu hjá Matís á Akureyri. JÓHANNA Sigurðardóttir félags- málaráðherra lagði fyrir ríkisstjórn í gær sameiginleg áform sín og fjár- málaráðherra um vinnu að því verk- efni stjórnarsátt- málans að minnka óútskýrðan kyn- bundinn launa- mun og hvernig störf kvenna yrðu endurmetin. Tveir hópar munu vinna á vegum félags- málaráðherra að því að ná markmiðum ríkisstjórnar- innar. „Ég mun óska eftir samstarfi aðila vinnumarkaðarins, ASÍ og SA, um þetta viðfangsefni og það var lagt fyr- ir ríkisstjórnina að ég mundi skipa fimm manna hóp með þessum aðilum ásamt fjármálaráðuneyti og fulltrú- um frá mér sem færu í að leita leiða til að eyða óútskýrðum launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði og jafna stöðu karla og kvenna í stjórnum og nefndum stofnana og fyrirtækja,“ segir Jóhanna. „Á mín- um vegum verður líka ráðgjafahópur skipaður fagaðilum sem þekkja vel til þessara mála. Þar er um að ræða há- skólana þrjá, HÍ, Bifröst og HR, auk fulltrúa frá Jafnréttisstofu, jafnrétt- isráði og Kvenréttindafélagi Íslands.“ Hópur verður skipaður á vegum fjármálaráðuneytis sem fjalla á sér- staklega um opinbera vinnumarkað- inn. BSRB, BHM og launanefnd Sambands sveitarfélaga munu eiga aðild að þeim hópi og markmiðið er að minnka launamun kynjanna á opin- bera vinnumarkaðnum um a.m.k. helming á kjörtímabilinu. „Félags- málaráðuneytið á líka aðild að þessu verkefni og forstöðumenn ríkisstofn- ana. Viðfangsefni hóps fjármálaráðu- neytisins verður sérstaklega að end- urmeta kjör kvenna hjá hinu opinbera.“ Samráðsvettvangur þessara þriggja hópa verður myndaður með formönnum hópanna þriggja og full- trúa ráðherranna og þar verður starf hópanna samhæft. „Ég tel að þetta sé mjög mikilvægt og eitt af því sem rík- isstjórnin leggur áherslu á og metnað sinn í, þ.e. að ná árangri í jafnrétt- ismálum og liður í því er að setja þessa hópa af stað,“ segir Jóhanna. Ljóst sé að viðfangsefni hópanna tengist mjög kjarasamningum og aldrei náist góður árangur nema í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins, hvort sem er í opinbera geiranum eða á almennum markaði. „Það er til- gangurinn með þessu og eitt af stóru málunum í að efla velferðarkerfið er að endurmeta kjör umönnunarstétta og þar sem konur eru í miklum meiri- hluta. Það er flótti úr þessum stéttum og meðan þannig hagar til er á bratt- ann að sækja í velferðarkerfinu.“ Þetta segir Jóhanna ekki hægt að leysa í einum áfanga heldur viðfangs- efni sem þurfi að glíma við á kjör- tímabilinu. „Og vonandi getum við tekið einhver skref í þessu.“ Hópar ráðast gegn launamun kynja Morgunblaðið/Þorkell Jafnrétti „… mjög mikilvægt og eitt af því sem ríkisstjórnin leggur áherslu á og metnað sinn í, þ.e. að ná árangri í jafnréttismálum,“ segir ráðherra. Jóhanna Sigurðardóttir OPINBER heim- sókn Geirs H. Haarde forsætis- ráðherra til Ír- lands hefst í dag en þetta mun vera fyrsta opin- bera heimsókn ís- lensks forsætis- ráðherra til Írlands. Er til- gangur heimsóknarinnar sá að efla tvíhliða samskipti landanna tveggja, bæði í viðskiptum og menningu. Geir mun m.a. í heimsókninni eiga fund með Bertie Ahern, forsætisráð- herra Írlands, og jafnframt hittir hann Mary McAleese, forseta Ír- lands. Hann mun einnig heimsækja nokkur fyrirtæki á Írlandi sem eru í eigu Íslendinga og kynna sér rekstur þeirra. Með í förinni verða m.a. sendiherra Íslands í Lundúnum, Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sem jafnframt er sendiherra Íslands gagnvart Írlandi og Margrét Hall- grímsdóttir þjóðminjavörður. Geir til Ír- lands í dag Geir Haarde ELDUR kom upp í verslun Pennans í Strandgötu í Hafnarfirði í fyrri- nótt. Starfsmaður Securitas kallaði á lögreglu eftir að hann varð var við reyk. Þegar slökkvilið kom á staðinn hafði eldurinn ekki náð að breiðast út um verslunina. Vel gekk að slökkva eldinn og var hættan úti um fimm mínútum eftir að slökkvi- lið kom á staðinn. Eldur í Pennan- um í Hafnarfirði TILKYNNT var um innbrot í fyrir- tæki í Síðumúla í fyrrinótt og var þaðan m.a. stolið tölvubúnaði. Um stundarfjórðungi síðar stöðvaði lögregla karl og konu á ferð í borg- inni sem reyndust hafa tölvubún- aðinn í fórum sínum. Þau voru einnig með hass á sér og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Stálu tölvubúnaði í Síðumúla NAFNI Höfðahrepps hefur verið breytt í Sveitarfélagið Skaga- strönd. Var þetta gert í samræmi við vilja íbúanna en mikill meiri- hluti þeirra kaus þessa breytingu í könnun sem lögð var fyrir við al- þingiskosningar síðastliðið vor. Höfðahreppur verður Skagaströnd NIÐURSTÖÐUR kjarakönnunar Félags viðskiptafræðinga og hag- fræðinga fyrir árið 2007 sýna að leiðréttur launamunur kynjanna er nú 8,8% en mældist 7,6% árið 2005 og 6,8% árið 2003. Laun karla og kvenna hafa hækkað álíka mikið frá síðustu mælingu. Laun kvenna um 12,8% en laun karla um 13,3%. Í tilkynningu frá félaginu segir að áhyggjuefni sé þó að þegar launamunur kynjanna er leiðréttur með tilliti til þátta eins og menntunar, starfs, atvinnu- greinar, aldurs, vinnuframlags, mannaforráða og starfsaldurs komi í ljós að launamunur kynjanna virð- ist heldur vera að aukast frekar en hitt. Niðurstöðurnar eru byggðar á svörum 2.035 viðskipta- og hag- fræðinga. Capacent Gallup gerði könnunina. Meiri launa- munur 2007

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.