Morgunblaðið - 12.09.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.09.2007, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FRÉTTASKÝRING Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is GREINARGERÐIR tveggja helstu ráðgjafa George W. Bush í málefnum Íraks frammi fyrir þing- nefndum í Washington munu reyn- ast Bandaríkjaforseta öflugt vopn, trúlega allt til þess er hann hverfur úr embætti í janúar árið 2009. Skýrslur þeirra Davids Petraeus, yfirmanns heraflans í Írak, og Ryans Crockers, sendiherra Bandaríkja- stjórnar í landinu, eru fallnar til að tryggja að meginlínur stefnu Bush í málefnum Íraks haldist óbreyttar út embættistíð hans og auka þannig lík- ur á að hann geti kvatt Hvíta húsið án þess að um hann verði sagt að hann hafi neyðst til að láta í minni pokann fyrir andstæðingum sínum. Greinargerðir þeirra Crockers og Petraeus fela því í sér tiltekna „út- gönguleið“ fyrir forsetann og varpa ábyrgðinni á að ljúka afar erfiðu og óvinsælu stríði yfir á herðar eftir- manns hans. Þeir Petraeus og Crocker komu fyrir þingnefndir í gær og á mánu- dag og gerðu þar ítarlega grein fyrir stöðu mála í Írak í hernaðarlegu og pólitísku tilliti. Hershöfðinginn greindi frá þeim árangri sem náðst hefði í kjölfar þeirrar ákvörðunar forsetans fyrr í ár að fjölga í herlið- inu um 30.000 manns. Hugsunin að baki þeirri fjölgun var sú, að með því móti mætti draga úr ofbeldinu og skapa svigrúm fyrir víðtæku póli- tísku samkomulagi fylkinga í land- inu. Crocker fjallaði síðan um hverju þessu herfræði hefði skilað á stjórn- málasviðinu. Líkt og vænta mátti er helsta nið- urstaðan sú, að árangri á stjórnmála- sviðinu verður ekki líkt við þann sem náðst hefur í hernaðarlegu tilliti í Írak á síðustu mánuðum. Sú ákvörð- un forsetans að fjölga í herliðinu hef- ur, að sögn Davids Petraeus, skilað mælanlegum árangri en Crocker gat ekki fullyrt að aukið svigrúm for- ystumanna Íraka hefði komist nærri því að skila þeirri niðurstöðu sem stefnt er að. Hann hélt á hinn bóginn uppi vörnum fyrir leiðtoga Íraka, einkum Nouri al-Maliki forsætisráð- herra sem sætt hefur mikilli gagn- rýni vestra og beitti sendiherrann m.a. þeirri röksemd að Bandaríkja- menn hefðu öldum saman tekist á um grundvallaratriði í þjóðskipulagi sínu svo sem þrælahald. Írakar væru nú í svipaðri stöðu. Í fréttaflutningi af greinargerðum ráðgjafa Bush hefur þung áhersla verið lögð á þau ummæli Petraeus að unnt verði að fækka smám saman í heraflanum í Írak á næstu mánuð- um. Þessi áhersla er hæpin að því marki að fyrir lá að nauðsynlegt yrði að fækka í liðsaflanum þar. Í apríl á næsta ári verður óbreyttum fjölda, 168.000 manns, ekki lengur haldið úti í landinu án þess að lengja dval- artíma hermanna þar um þrjá mán- uði hverju sinni eða að kalla út þjóð- varðliðið. Í pólitísku tilliti má heita útilokað að sú leið yrði fær Bush for- seta og vitað er að æðstu ráðamenn hersins treysta sér ekki til að mæla með henni. Sú fækkun sem Petraeus lýsti felur því í sér að í júlí á næsta ári verða um 130.000 bandarískir hermenn í Írak, sami fjöldi og þar var í janúarmánuði er Bush forseti ákvað að fjölga í liðsaflanum. Varnarleikur demókrata Boltinn er nú hjá bandarískum demókrötum, sem þrátt fyrir stór orð um að kalla beri herinn heim frá Írak, hafa ekki reynst tilbúnir að beita meirihluta sínum á þingi af full- um þunga. Óánægja sökum þessa fer vaxandi í röðum kjósenda demó- krata og skoðanakannanir sýna að traust almennings í garð þingheims fer ört þverrandi. Vörn demókrata í þröngri stöðu mun á næstunni eink- um felast í því að þeir geti í raun litlu breytt m.a. með tilliti til þess að þeir búi ekki yfir nægum styrk í öldunga- deildinni til að fá hnekkt neitunar- valdi Bandaríkjaforseta. Frambjóð- endur flokksins í prófkjörum vegna forsetakosninganna á næsta ári munu nú þurfa að laga sig að breyttri stöðu mála og miða málflutning sinn við að það komi í hlut viðkomandi að ljúka stríðinu í Írak og kalla herafl- ann heim. Styrkari staða Bush mun létta frambjóðendum Repúblikanaflokks- ins lífið á næstu mánuðum. Þetta gildir um þingmenn, sem leita eftir endurkjöri, og frambjóðendur í próf- kjörum repúblikana vegna forseta- kosninganna næsta haust, sem nú geta haldið því fram að fækkun í her- aflanum í Írak sé fyrirsjáanleg þótt þar ræði um innan við 20% hans og fjöldinn verði eftir það sá sami og í janúar í ár. Í pólitískum efnum er flestum grundvallarspurningum um framtíð Íraks enn ósvarað, greinargerð Crockers sendiherra var að þessu leyti meingölluð. Í hernaðarlegu til- liti verður ekki annað séð en stefnu Bush forseta verði fylgt allt til loka kjörtímabils hans. Bush kann að telja heppilegt að fækka enn frekar í herliðinu í Írak á síðustu mánuðum sínum í embætti en flest bendir til að þar verði haldið úti 100.000 manna liðsafla, hið minnsta, þegar forsetinn yfirgefur Hvíta húsið. Óbreytt Íraksstefna út kjörtímabilið Skýrslur tveggja helstu ráðgjafa Bandaríkjaforseta auka líkur á að George W. Bush nái að knýja fram vilja sinn í málefnum Íraks og það komi í hlut eftirmanns hans að ljúka herförinni umdeildu Í HNOTSKURN »David Petraeus telur að„ótímabær“ fækkun í liðs- afla Bandaríkjamanna í Írak myndi hafa „hörmulegar af- leiðingar“ og m.a. reynast fallin til að styrkja stöðu vígahópa þar, sem tengjast al-Qaeda-hryðjuverkanetinu. »Petraeus kynnti varfærn-islega áætlun um fækkun í liðsaflanum í Írak og sagði að ákvörðun um frekari fækkun yrði vart tekin fyrr en í mars á næsta ári. Féll sá boðskapur í grýttan jarðveg í röðum demókrata, sem and- mæltu niðurstöðum hershöfð- ingjans af auknum þunga í gær. ASSOCIATED PRESS Gagnrýni Eindregnustu andstæðingar stríðsins í Írak beina nú spjótum sínum að David Petreaus og draga hlutleysi hans og heilindi í efa. TVÆR sænskar herþyrlur rákust saman og hröpuðu nálægt bænum Ryd í suðurhluta Svíþjóðar í gær og allir um borð, fjórir menn, fórust. Heræfing fór fram á svæðinu þegar slysið varð, að sögn sænskra fjöl- miðla, sem sögðu að kviknað hefði í þyrluflökunum. Fórust í þyrluslysi LÖGFRÆÐINGAR Nawaz Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pak- istans, hafa áfrýjað brottvísun hans úr landi til hæstaréttar sem hafði áður úrskurðað að Sharif gæti snú- ið heim úr útlegð. Lögfræðingar hans segja brottvísunina lögbrot. Sharif áfrýjar ÍSRAELAR gerðu loftárás á sýr- lenskt landsvæði á fimmtudaginn var til að senda Sýrlendingum þau skilaboð að þeir kæmust ekki upp með að vopna Hizbollah-hreyf- inguna í Líbanon, að sögn banda- rískra embættismanna í gær. Gerðu loftárás LÖGREGLAN í Portúgal segir að sýni, sem fundust í skotti bíls for- eldra bresku stúlkunnar Made- leine McCann, séu ekki blóð, heldur aðrir „líkamsvökvar“. Um 88% sam- ræmi sé á milli erfðaefnisins, sem fannst í bílnum, og erfðaefnis Made- leine. Lögreglan segir að svo mikið hafi fundist af hári úr Madeleine í bílnum að það hljóti að hafa komið beint frá lík- ama hennar og hafi ekki borist þangað með fatnaði eða leik- föngum. McCann-hjónin leigðu bíl- inn 25 dögum eftir að stúlkan hvarf. Madeleine McCann Hár úr Made- leine í bílnum ÞESS var minnst vestur í Bandaríkjunum í gær að sex ár voru liðin frá hryðjuverkaárásunum á New York og Washington, en þær kostuðu um 3.000 manns lífið. Minningarathafnir voru haldnar þar sem World Trade Center stóð í New York en þar mátti finna þetta minnisspjald um eitt fórnarlamba hryðjuverkaárásann, við Hvíta húsið og við skrifstofubygg- ingu varnarmálaráðuneytisins, Pentagon, í útjaðri Washington. Reuters Sex ár frá hryðjuverka- árásunum á Bandaríkin Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is SEX árum eftir að nær 3.000 manns létu lífið í árásunum á Bandaríkin 2001 virðist sem hryðjuverka- samtökin al-Qaeda séu fjarri því að vera hrunin. Óvíst er samt hvort samtökin eru nú fær um að skipu- leggja sjálf umfangsmiklar aðgerðir en ljóst að þau eru fyrirmynd fjöl- margra hópa sem oft vinna alger- lega sjálfstætt en sækja sér inn- blástur í áróður al-Qaeda. Leiðtogi al-Qaeda, Osama bin Laden, sendi sl. föstudag frá sér myndband þar sem hann hvatti til frekari aðgerða gegn Bandaríkja- mönnum og þeim sem styddu þá. Annað myndband samtakanna var birt í gær, þar les bin Laden textann og hyllir minningu eins flugræningj- anna, Waleed al-Shehri. Segir hann al-Shehri hafa „meðtekið þann sann- leika“ að leiðtogar arabaríkjanna séu „handbendi“ Vesturveldanna og þeir hafi svikið íslam. „Nú eigum við eftir að uppfylla skyldur okkar,“ segir bin Laden. „Brjálæðislegir skattar“ Athygli vakti á fyrra myndband- inu að stíll bin Ladens hefur breyst verulega, hann ver meiri tíma en áð- ur í að fjalla um ýmis veraldleg vandamál sem vestrænir borgarar kljást við dags daglega. Hann harm- ar að vísu ákaft stöðu múslíma og trúarinnar í heiminum, múslímar búi við kúgun og aðra vesöld vegna þess að þeir hafi vanrækt skyldur sínar við Guð og hunsað kröfuna um heilagt stríð, jihad. Og leiðtoginn segir Bandaríkjamönnum að eina leiðin til að öðlast frið sé að snúast á sveif með íslam. En hann notar einn- ig orðfæri sem minnir á áróður vinstri róttæklinga í Bandaríkj- unum. Bin Laden ávarpar Bandaríkja- menn, segist vita að „margir ykkar eru þjakaðir af hávaxtaskuldum, brjálæðislegum sköttum og veðum vegna húsnæðislána“. Einnig að „hnattræn hlýnun og eymdin sem henni fylgir“ stafi af „útblæstri frá verksmiðjum stórfyrirtækjanna“. Einnig hrósar hann visku málvís- indamannsins og vinstrimannsins Noams Chomskys. Bandarískir leyniþjónustumenn eru sannfærðir um að bin Laden njóti nú ráðgjafar Adam Gadahn, 28 ára gamals Bandaríkjamanns sem talið er að hafist nú við á sömu slóð- um og bin Laden, í fjallahéruðum á mörkum Afganistans og Pakistans. Gadahn hefur komið fram í mörgum myndböndum al-Qaeda og m.a. for- dæmt hnattvæðingu. Hann er sagð- ur stýra fjölmiðlaáróðri samtakanna gagnvart enskumælandi fólki. Gadahn skrifaði á unglingsárum dóma fyrir tímarit sem fjallar um þungarokk. Hann fluttist til Pakist- ans árið 1998 og varð aðstoðarmaður Khalid Sheikh Mohammed, sem tal- inn er hafa verið aðalskipuleggjandi hryðjuverkaárásanna 2001. Bin Laden gegn vaxtaokri Fyrrverandi þungarokkari sagður veita leiðtoganum fjölmiðlaráðgjöf Osama bin Laden Adam Gadahn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.