Morgunblaðið - 12.09.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007 41
WWW.SAMBIO.IS
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI SÍMI: 482 3007
KNOCKED UP kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
ASTRÓPÍA kl. 8 - 10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 8 LEYFÐ
BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
RUSH HOUR 3 kl. 10 B.i. 12 ára
/ AKUREYRI
VEÐRAMÓT kl. 8 - 10
LICENSE TO WED BOÐSÝNING kl. 8 B.i. 7 ára
ASTRÓPÍA kl. 6 - 10 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
eeee
- JIS, FILM.IS
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeeee
- SV, MBL
MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN ÓDREPANDI JASON BOURNE
MAGNAÐASTA SPENNU-
MYND SUMARSINS
SÝND Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
MATT DAMON
ER JASON BOURNE
3 VIKUR Á TOPPNUM Á ÍSLANDI
FRÁBÆR ÍSLENSK
AFÞREYING
- SVALI, FM 957
PÉTUR OG SVEPPI HAFA
ALDREI VERIÐ FYNDNARI
- H.A, FM 957
SÚ SKEMMTILEGASTA
SÍÐAN SÓDÓMA
- Í.G, BYLGJAN
ÞAR SEM
REGLURNAR
BREYTAST
YFIR 32.000 MANNS
eeee
- JIS, FILM.IS
eeee
- A.S, MBL
eeee
- RÁS 2
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
Ertu að fara að gifta þig?
Þá viltu alls ekki
lenda í honum!!!
HLJÓÐ OG MYND
SJÓNVARPSMAÐURINN Rich-
ard Hammond virðist ekkert sér-
staklega spenntur fyrir því að læra
af reynslunni. Hann slapp á dög-
unum ómeiddur þegar hann ók
kappakstursbifreið út af braut á
miklum hraða á meðan tökur stóðu
yfir á sjónvarpsþættinum Top Gear.
Hammond var að taka þátt í
sólarhringslöngum kappakstri sem
ber heitið Britcar 24 Hour þegar
slysið átti sér stað. Auk Hammond
tóku félagar hans Jeremy Clarkson
og James May auk hins dularfulla
ökumanns The Stig, sem reglulega
kemur fram í þáttunum, þátt í kapp-
akstrinum.
Bifreiðin sem Hammond ók
skemmdist nokkuð, en þó tókst að
gera við hana og gat Hammond
haldið áfram kappakstrinum nokkru
síðar.
Innan við ár er síðan Hammond
slasaðist mikið og varð fyrir heila-
skemmdum er hann missti stjórn á
bifreið sem knúin var þotuhreyfli og
var á um 464 kílómetra hraða á
klukkustund.
Öryggisfulltrúi á vegum hins opin-
bera sem gerði skýrslu um slysið
gagnrýndi BBC fyrir lélegt öryggis-
eftirlit og sagði Hammond ekki hafa
haft nægilega reynslu til að aka bíln-
um.
Óheppinn Richard Hammond er á
batavegi, í annað sinn.
Annað
bílslys
„ÞETTA bar þannig til að ég var
einhverju sinni að dæma erlendu
plötu vikunnar uppi á Rás 2. Við-
fangið var þá Icky Thump, ný plata
White Stripes, og í loftinu var tit-
illagið, þrusurokkari. Óli Palli veltir
því þá upp hver væri nú góður í að
sjá um metal-þátt í vetur. Án þess að
hugsa mikið út í það stakk ég upp á
sjálfum mér. Og fljótlega vorum við
báðir orðnir sannfærðir um að það
væri bara hin prýðilegasta hug-
mynd.“
Þannig lýsir Arnar Eggert Thor-
oddsen tildrögum þess að hann er að
fara að stýra vikulegum þunga-
rokksþætti á Rás 2. Ber hann nafnið
METALL! og verður á dagskrá á
fimmtudagskvöldum frá lokum tíuf-
rétta til miðnættis.
„Mér líst þrusuvel á þetta og ég
þykist vita að þessu verði tekið fagn-
andi. Þungarokk er að heita má öfl-
ugasti undirgeirinn í dægurtónlist-
inni og fólk leggur líf sitt og sál í
þetta. Ég ætla líka að taka allan
skalann inn í þetta og spila allt frá
léttu, hárblásnu glysrokki að hætti
Poison út í blóðþyrst og brjálað
svartþungarokk. Fróðleikurinn mun
svo flæða yfir allt, gestir munu kíkja
við og undirstefnur, hljómsveitir og
jafnvel heilu plöturnar verða teknar
sérstaklega fyrir. Nýtt og spennandi
efni verður þá að sjálfsögðu kynnt
og ég ætla ennfremur að leggja
„þunga“ áherslu á það sem er að
gerast á Íslandi í þessum efnum og
hvet í því skyni íslenskar bárujárns-
og harðkjarnasveitir að vera í sam-
bandi upp á spilun á efninu þeirra.
Þær geta sent mér póst – og lög – á
persónulega netfangið mitt,
arnareggert@gmail.com.“
Svartir bolir
Þó að Arnar hafi þjónað vel á alt-
ari hins níðþunga í fjölda ára segist
hann þó ekki vera þessi dæmigerði
metalhaus, staðreynd sem eigi eftir
að koma þættinum til góða.
„Ég var með þætti síðasta vetur á
tveimur rokkstöðvum, XFM og svo
X-inu, en þeir voru almenns eðlis.
En eðlilega er það toppurinn að vera
kominn hingað, bæði hvað dreifingu
og almenna fagmennsku varðar.“
„Aðkoman að honum verður því
fersk, og það verður dálítið annar
vinkill en vaninn hefur verið með
þætti af þessu tagi. En þetta er auð-
vitað bölvanlegt, ég hef t.d. aldrei
náð að safna síðu hári. Það verður
bara að afrókollu! Ég reyni hins veg-
ar að bæta það upp með því að kaupa
mér svarta boli.“
Arnar er sáttur með að vera kom-
inn inn á Rás 2.
Meiri metall!
Arnar Eggert stýrir þungarokksþætti á Rás 2 í vetur
Metall! er á dagskrá Rásar 2 á
fimmtudögum frá kl. 22.10 til mið-
nættis.
Metall Arnar Eggert segist sjálfur aldrei hafa náð að safna síðu hári.
VEGLEG tónleikadagskrá á
skemmtistaðnum Organ heldur
áfram og í kvöld eru það Jakob-
ínarína og Lada Sport sem leika fyr-
ir viðstadda.
Jakobínarína er á leið í tónleika-
ferðalag í Bretlandi til að fylgja eftir
fyrstu plötu sinni, The First Cru-
sade. Tvennir tónleikar á höfuð-
borgarsvæðinu eru þó áætlaðir áður
en sveitin leggur af stað til landvinn-
inga í suðri, annarsvegar á Organ í
kvöld og svo hitar sveitin upp fyrir
Franz Ferdinand á Nasa næstkom-
andi föstudagskvöld.
Eftir Bretlandstúrinn er svo kom-
ið að tónleikum á Airwaves áður en
sveitin heldur í tónleikaferð með
bresku sveitinni Kaiser Chiefs.
Þá verður nóg um að vera á Organ
um helgina. Tónlistarvefsíðan Rjó-
minn.is heldur tónleika á föstudag-
inn og á laugardaginn verða sér-
stakir aukatónleikar skosku
gleðisveitarinnar Franz Ferdinand.
Rokk
á Organ
jakobinarina.com
myspace.com/jakobinarina
myspace.com/ladasport
Morgunblaðið/Árni Torfason
Jakobínarína Það er í nógu að snú-
ast hjá liðsmönnum sveitarinnar á
næstunni, innanlands sem utan.