Morgunblaðið - 22.09.2007, Page 2
Á góðri stundu Úrhellið hefur sett strik í reikning íslensku ferðalanganna en þeir eru allir heilir á húfi og héldu í gær í fjallgöngu á öruggar slóðir.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„SLÓVENAR kalla þetta nátt-
úruhamfarir því það gekk svo
mikið á. Sólarhringsúrkoman
hérna varð yfir 300 millimetrar.
Ég hef lent í hressilegri rigningu
en aldrei í annarri eins úrkomu og
þessari,“ sagði Halldór Hreinsson,
fararstjóri hjá Íslandsvinum, en
hann er nú staddur í Slóveníu
ásamt 30 manna hópi Íslendinga.
Þarna eru á ferð 22 hjúkr-
unarfræðingar, sem eru að halda
upp á fjörutíu ára útskrift-
arafmæli, ásamt fylgdarliði.
Ofsafengið vatnsveður, sem varð
sl. þriðjudag, er það mesta sem
orðið hefur í landinu síðastliðna
þrjá áratugi. Olli veðrið gífurlegu
tjóni og sex manns létust í ham-
förunum. Aurskriður urðu víða og
gríðarlegir vatnavextir í vötnum
og ám sem sópuðu hundruðum
bíla burt, eyðilögðu vegi og brýr
og skemmdu fleiri hundruð hús.
Tjón vegna hamfaranna er það
mikið að forsætisráðherra landsins
hefur sagt að leita þurfi fjárhags-
aðstoðar til Evrópusambandsins, í
fyrsta sinn síðan landið gekk í
bandalagið árið 2004.
„Þetta hefur sett ákveðið strik í
reikninginn í ferðinni, en við erum
öll heil á húfi og það skiptir
mestu,“ segir Halldór.
Valgerður Jónsdóttir hjúkr-
unarfræðingur segir ferðina alla
hafa verið mikið ævintýri. „Við
vorum orðin svoleiðis gegnblaut að
það var ekki á okkur þurr þráður.
En fararstjórinn tók vel á mál-
unum og kom okkur öllum fyrir á
hóteli.“
Spáð var vatnsveðri á þriðjudag
og tók Halldór tillit til þess í
ferðaáætlun hópsins. Til hafði
staðið að fara á fjöll en af því varð
ekki. „Þetta endaði þannig að við
urðum strandaglópar við Bled-
vatnið og vorum svo heppin að fá
þar hótelherbergi því það voru
auðvitað margir í sömu sporum og
við. Vegir fóru í sundur, m.a. veg-
urinn að Bohinj-vatninu þar sem
við ætluðum að gista. Samgöngur
eru ekki enn komnar í eðlilegt
horf en við höfum komist leiðar
okkar með því að velja fjallabaks-
leiðir.“
Hópurinn hélt þrátt fyrir þetta í
fjallgöngu í gær á öruggar slóðir
og góð stemning var í hópnum.
„Það var hrikalegt að sjá ástandið
í gær en í dag [föstudag] er heið-
ríkja,“ segir Halldór.
Hjúkrunarfræðingar í úrhelli
AP
Eyðilegging Flóðin í Slóveníu hafa kostað sex manns lífið.
Í HNOTSKURN
»Gorenjska-héraðið, sem erum 60 kílómetra norð-
vestur af höfuðborginni Lju-
bljana, varð verst úti í hamför-
unum.
»Þorp þar eru sum hver ennán samgangna þar sem
ofsaveðrið sópaði vegum og
brúm burt.
»Er tjónið metið á um 200milljónir evra, eða um 17,7
milljarða króna.
2 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SKIPULAGSRÁÐ Reykjavíkur hef-
ur samþykkt að gerð verði breyting
á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-
2024 vegna Keilugranda 1. Breyting-
in felst í því að skilgreindur verði nýr
þéttingarreitur við Keilugranda þar
sem gert er ráð fyrir allt að 130 íbúð-
um. Fjöldi íbúa í nágrenni lóðarinnar
hefur mótmælt breytingum á skipu-
lagi hennar og m.a. bent á að sam-
kvæmt gildandi deiliskipulagi og að-
alskipulagi sé einungis gert ráð fyrir
50 íbúðum á reitnum.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, for-
maður skipulagsráðs, lagði í samtali
við Morgunblaðið áherslu á að nú
hefði einungis verið samþykkt að
skilgreina reitinn sem þéttingarreit
á aðalskipulagi þar sem gert sé ráð
fyrir allt að 130 íbúðum. Aðalskipu-
lagsbreytingin fæli ekki í sér sam-
þykkt á framkvæmdum heldur ein-
ungis skilgreiningu á notkun
reitsins. Næsta skref er gerð deili-
skipulags og sagði Hanna Birna að
það væri í vinnslu. Þar verður m.a.
kveðið á um hæð húsa, útlit þeirra,
umferð á svæðinu o.fl. Hún sagði að
við gerð deiliskipulagsins yrði farið
yfir athugasemdir og mótmæli sem
hefðu borist. „Málinu er langt frá því
lokið,“ sagði Hanna Birna.
Tillagan var samþykkt með at-
kvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks. Fulltrúar
Samfylkingarinnar og VG greiddu
atkvæði gegn tillögunni og lögðu
fram bókun ásamt áheyrnarfulltrúa
Frjálslyndra og óháðra. Þar leggjast
þeir gegn auglýstri tillögu að breyt-
ingu á aðalskipulagi. Þeir segja m.a.
að ekki verði séð að breytingin þjóni
íbúum í nágrenninu eða hagsmunum
grenndarsamfélagsins. Ennfremur
segja þeir að svo virðist sem verið sé
„að þjóna hagsmunum eigenda lóð-
arinnar, verktökum og þeim sem
hafa væntingar um hagnað undir yf-
irskini þéttingar byggðar,“ eins og
segir m.a. í bókun minnihlutans.
Í bókun fulltrúa meirihlutans
kemur m.a. fram að undirbúningur
að þéttingu byggðar á Keilugranda 1
hafi hafist undir forystu Samfylking-
ar og Vinstri grænna á síðasta kjör-
tímabili.
Aðalskipulagi breytt
vegna Keilugranda
Tölvuteikning/Loftmynd
Hugmyndir um stórhýsi við Keilu-
granda kölluðu fram mótmæli.
MIKLAR breytingar urðu á
starfsumhverfi og starfsemi Land-
spítala, áður Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, frá stofnun spít-
alans með samruna sjúkrahúsanna
í Reykjavík árið 2000 þar til í
fyrra, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá spítalanum.
Íbúum á höfuðborgarsvæðinu
hefur fjölgað um 9,4% frá 2000 til
2006 eða um tæplega 16.500, sem
samsvarar heildaríbúafjölda á Ak-
ureyri í árslok 2006. Fjölgunin er
mest meðal eldri borgara. Tæpur
fjórðungur legudaga á LSH er
nýttur af fólki 80 ára og eldri og
fer það hlutfall heldur vaxandi
þótt legudögum hafi fækkað um
20% frá sameiningu spítalanna.
Komum á dag- og göngudeildir
hefur fjölgað um 74.500 á tíma-
bilinu, eða um ríflega 26%.
Heimaþjónusta er einnig veitt í
mjög vaxandi mæli og hefur slík-
um vitjunum fjölgað úr 5.125 árið
2000 í 6.875 árið 2006, eða um
34%. Komum á slysa- og bráða-
deildir hefur fjölgað um tæp
14.000, eða 18%.
Stöðugildum á Landspítala
fækkaði úr 4.127 árið 2000 í 3.866
árið 2006, eða sem nemur 6,3%.
Miklar breyt-
ingar á LSH
MAÐURINN sem féll í Sogið við
Bíldsfell síðastliðinn miðvikudag
fannst látinn um kl. 15 í gær.
Vinir hins
látna og félagar
í Stangaveiði-
félagi Reykja-
víkur fundu
hinn látna fyrir
ofan Álftatanga,
skammt ofan við
þar sem Sogið
rennur í Álfta-
vatn. Hans hafði
verið leitað frá
því á miðvikudag og tók fjöldi
fólks þátt í leitinni.
Lögreglan í Árnessýslu gat þess
í fréttatilkynningu í gær að hún
hefði verið beðin að koma sér-
stökum þökkum frá aðstand-
endum hins látna til þeirra fjöl-
mörgu, sem að leitinni komu, fyrir
frábært og óeigingjarnt starf.
Hinn látni hét Árni Eyjólfsson,
hann var 53 ára, til heimilis í
Reykjavík. Hann lætur eftir sig
þrjú uppkomin börn og eitt barna-
barn.
Fannst látinn
Árni Eyjólfsson
♦♦♦