Morgunblaðið - 22.09.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
undirbýr miklar breytingar á lögum um greiðslur
til foreldra langveikra barna. Jóhanna segist hafa
varað mjög við því á sínum tíma þegar lögin voru
samþykkt að þau myndu ekki ná þeim tilgangi
sínum að veita foreldrum langveikra (eða fatlaðra)
barna raunverulega aðstoð. „Gildissviðið var allt
of þröngt, náði til mjög fárra og það mismunaði
foreldrum sem voru í þessari stöðu t.d. eftir því
hvort barnið var fætt degi fyrir gildistökuna eða
eftir. Foreldrar sem hafa í mörg ár verið bundnir
veikum börnum sínum og beðið eftir þessum
greiðslum fengu ekkert og voru skildir eftir. Þetta
mál var allt andvana fætt frá byrjun og við því
varaði ég mjög eindregið,“ segir Jóhanna.
Greiðslurnar sem lögin kveða á um í dag eru
mjög litlar og eru veittar til mjög skamms tíma,
að sögn Jóhönnu. „Það hefur líka komið í ljós að
gildissviðið er svo þröngt að miklu færri hafa
fengið aðstoð en ætlað var þegar frumvarpið var
lagt fram. Það eru örfáir einstaklingar, innan við
tíu, sem hafa notið góðs af þessum lögum,“ segir
hún.
Í Morgunblaðinu í gær birtist grein eftir Birnu
Sigurðardóttur, móður tveggja ára langveikrar
stúlku, Védísar Eddu Pétursdóttir, sem greindist
með banvænan hrörnunarsjúkdóm. Védís Edda
lést aðfaranótt 20. september. Grein Birnu leiðir í
ljós að lögin eru meingölluð en þau ná aðeins til
barna sem greindust eftir 1. janúar 2006.
Jóhanna segir þetta mjög átakanlegt dæmi um
hvernig kerfið hafi brugðist þeim sem þurfa mjög
á því að halda eins og í þessu tilfelli. „Ég finn mjög
sárt til með foreldrum þessara barna. Frá því ég
kom hingað í ráðuneytið hef ég verið að skoða
þessi lög og fara yfir þau og ég er staðráðin í að
reyna að ná því fram að þessum lögum verði
breytt. Ég er tilbúin með ákveðnar hugmyndir í
því sambandi, bæði að auka gildissvið þessara
laga þannig að allir sem eru með langveik börn
falli undir þau og að rýmka greiðslurnar og auka
þjónustu við þessa hópa. Þá er ég að tala um að
þjónustan sé ekki eingöngu í formi peninga-
greiðslna, heldur að þessum foreldrum verði boð-
in liðveisla og þjónusta í samræmi við almenna
stoðþjónustu, skammtímavistun og ýmsa aðra
þjónustu, sem er nú í lögum um málefni fatlaðra.
Það er mjög nauðsynlegt fyrir foreldra sem eru
bundnir yfir langveikum börnum að hafa þjónustu
frá opinberum aðilum á borð við skammtímavist-
un og aðra stoðþjónustu og liðveislu. Ég hef
áhuga á að rýmka lögin með þessum hætti þannig
að þessir foreldrar og börn þeirra fái þá þjónustu,
sem þau ættu fyrir löngu að vera búin að fá.“
Félagsmálaráðherra stað-
ráðinn í að breyta lögunum
Í HNOTSKURN
»Lög um greiðslur til foreldra lang-veikra barna ná aðeins til barna sem
greindust eftir 1. janúar 2006.
»Fjárhæðin er 93 þús. kr. á mánuði. Erlögin koma að fullu til framkvæmda
2008 eiga foreldrar rétt á greiðslu í 3 mán-
uði en heimilt er að framlengja þær um 6.
»Lögin tóku gildi í skrefum. Greiddurvar 1 mánuður í fyrra og 2 mánuðir í ár.
Í NÝJU hverfi sunnan Sléttuvegar í
Fossvogi í Reykjavík verður auglýst
eftir kauptilboðum í 22 lóðir fyrir 57
íbúðir að tillögu skrifstofustjóra
framkvæmdasviðs borgarinnar.
Lágmarksverð að meðtöldu gatna-
gerðargjaldi er samkvæmt tillög-
unni 4 milljónir pr. íbúð í fjölbýlis-
húsi og 7,5 milljónir í rað- og
tvíbýlishúsum. Er lagt til að í hverf-
inu verði tólf raðhúsalóðir, átta tví-
býlishúsalóðir, þ.e. sextán íbúðir, og
ein fjölbýlishúsalóð með 28 íbúðum.
Nöfnin tengjast náttúrunni
Afgreiðslu tillögunnar var frestað
á fundi borgarráðs sl. fimmtudag en
samþykkt voru nöfn á nýju göturn-
ar að tillögu byggingarfulltrúa.
Samþykkt var að gata næst Sléttu-
vegi fengi heitið Skógarvegur og
neðsta gatan í hverfinu heiti Laut-
arvegur. Hvort tveggja er valið með
tilliti til náttúru Fossvogsdals.
Um er að ræða nýja byggð sem
þar hefur verið deiliskipulögð en
gert er ráð fyrir að lóðirnar verði
byggingarhæfar í október/nóvem-
ber á næsta ári. Í drögum að út-
boðsskilmálum, sem fylgja tillög-
unni, er gert ráð fyrir að útboðinu
verði hagað þannig að allir, þ.e. ein-
staklingar og lögaðilar, geti gert til-
boð í byggingarrétt fyrir fjölbýlis-
hús, en einungis einstaklingar
byggingarrétt fyrir tvíbýlishús og
raðhús.
Raðhúsin munu samanstanda af
samtengdum íbúðareiningum sem
eru hver á sinni lóð. Skilyrði er um
samræmda hönnun. Þegar um tví-
býlishús er að ræða er gert að skil-
yrði að a.m.k. tveir einstaklingar
standi saman að tilboðinu.
22 lóðir
fyrir 57
íbúðir
Nafngiftir gatna
voru samþykktar
Morgunblaðið/Ómar
Nýtt hverfi Hverfið markast af lóð Borgarspítala, Kringlumýrarbraut, skógræktinni og Sléttuvegi í Fossvogi.
Tillögu um auglýsingu lóða neðan Sléttuvegar í Fossvogi frestað
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu borgarstjóra um að
Reykjavíkurborg greiði 334,6
milljóna króna aukaframlag til
rekstrar Strætó bs. á árunum
2007-2009. Í bréfi borgarstjóra
vegna málsins kemur fram að
þessum aukakostnaði verði mætt
með hækkun á áætluðum skatt-
tekjum í fjárhagsáætlun.
Skiptist framlagið þannig milli
ára að í ár verða greiddar 97,3
mkr., árið 2008 182,5 mkr. og ár-
ið 2009 54,8 mkr.
Verja auknu
fé til Strætó bs.
FATLAÐIR framhalds- og háskóla-
nemendur geta notað Ferðaþjón-
ustu fatlaðra í Reykjavík endur-
gjaldslaust í vetur í tilraunaskyni.
Var tillaga þess efnis samþykkt í
borgarráði á fimmtudag. Gagnrýnt
hafði verið að fatlaðir framhalds-
nemar nytu ekki góðs af því að
ókeypis sé í strætó í vetur. Hafa
fjölmargar fyrirspurnir borist vel-
ferðarsviði borgarinnar af þessum
sökum. Áætlað er að nemendur sem
ferðast með Ferðaþjónustu fatlaðra
í Reykjavík í dag séu um það bil
fjörutíu. Er samþykkt að velferð-
arsvið fái 3,2 milljóna króna viðbót-
arfjárveitingu vegna þessa.
Fatlaðir fá
frítt í skólann
YFIRVÖLD í Bandaríkjunum hafa
innkallað um milljón barnarúm sem
framleidd voru í Kína. Er um að
ræða vöru af gerðinni Simplicity
Inc. Vitað er um tvö dauðsföll og 55
óhöpp vegna slæmrar hönnunar á
lausri grind í einni hlið rúmsins.
Vitað er að 9 mánaða gamalt
barn og 6 mánaða barn hafa dáið
vegna þess að grindinni hafði óvart
verið komið fyrir á hvolfi. Myndast
þá rifa sem barnið getur kafnað í.
Mun einkum vera um að ræða rúm
af gerð sem seld var vestra milli
1998 og 2007. Dagmar Pétursdóttir
hjá versluninni Fífu segir rúm af
þessari gerð ekki hafa verið seld
hjá fyrirtækinu og ólíklegt sé að
aðrar verslanir hér selji slík rúm.
Innkalla barna-
rúm frá Kína
ENN eru lausar kennarastöður í 13
grunnskólum Reykjavíkurborgar.
20. ágúst var ljóst að vantaði tæp 35
stöðugildi kennara miðað við upp-
haflega áætlaða mönnun og standa
ráðningar enn yfir. Menntasvið
mun í lok mánaðarins safna upplýs-
ingum um stöðu starfsmannamála í
skólunum. Kemur þetta fram í svari
Ragnars Þorsteinssonar fræðslu-
stjóra við fyrirspurn fulltrúa
Vinstri grænna í borgarráði.
Kennara vant-
ar í 13 skóla
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
Reykjavíkur (ÍTR) samþykkti í gær
tillögu meirihlutans um að auka
sveigjanleika í þjónustu frístunda-
heimila fyrir grunnskólabörn í borg-
inni. Er markmið breytingarinnar að
nýta þá starfsmenn sem starfa á
heimilunum betur svo hægt sé að
fækka þeim börnum sem eru á bið-
lista eftir þjónustu.
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
ÍTR, segir að eftirspurnin eftir þjón-
ustu á frístundaheimilum hafi aukist
til muna á síðustu árum en það hafi
eftirspurn eftir starfsfólki einnig
gert. Um 110 starfsmenn vantar upp
á til að taka við þeim börnum sem nú
eru á biðlista og er staðan mjög mis-
munandi eftir hverfum bæjarins.
Skoðanakönnun sem ÍTR gerði á
dögunum sýnir hins vegar að um
þriðjungur barna
sem nota heimilin
núna þyrftu ekki
að vera þar alla
virka daga vik-
unnar. Verður því
nú reynt að at-
huga hvort ein-
hverjum foreldr-
um dugi að hafa
börnin færri daga
á heimilunum.
Segir Björn Ingi að með því að
auka sveigjanleikann í þjónustunni
með þessum hætti gefist færi á að
veita fleiri börnum þjónustuna.
Kostnaður vegna breytinganna er
um 5 milljónir króna en Björn Ingi
segir að foreldrar muni ekki þurfa að
greiða þann kostnað með hærra
þjónustugjaldi.
Reyna að koma
fleiri börnum að
Ný tillaga um frístundaheimili
Björn Ingi
Hrafnsson
Flokksstjórn-
arfundur Sam-
fylkingarinnar
verður haldinn
milli kl. 12 og
17 í dag á Hótel
Selfossi. Helsta
umræðuefni
fundarins verð-
ur þátttaka
flokksins í rík-
isstjórn, reynsl-
an af stjórnarsamstarfinu hingað
til og verkefnin framundan.
Flokksstjórn er æðsta valdastofn-
un Samfylkingarinnar milli lands-
funda og eiga þar sæti um 140 fé-
lagar. Dagskráin hefst með ræðu
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
og í kjölfarið eru almennar
stjórnmálaumræður.
Flokksstjórn
fundar í dag
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir