Morgunblaðið - 22.09.2007, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Við bjóðum upp á stórkostlega skíðaferð um áramótin til bæjarins
Engelberg í Sviss. Svæðið er snjóöruggt, enda hægt að skíða á
fjölbreyttu svæði Titlis jökulsins. Brekkurnar eru 82 km og við allra
hæfi. Fjallasýnin er ólýsanleg og margir möguleikar á ýmiss konar
afþreyingu. Meðal annars sem við prófum er skemmtileg sleðaferð
og dagskrá á vegum skíðakennaranna er einnig í boði. Að upplifa
áramótin í öðru landi er frábær skemmtun auk þess að njóta
útiverunnar og renna sér á skíðum. Hér er engu til sparað og
hreinlega allt innifalið í þessari ferð!
Fararstjóri: Marianne Eiríksson
Verð á mann í tvíbýli: 204.500 kr.
28. desember 2007 - 6. janúar 2008
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Engelberg
SVIGSKÍÐAFERÐ
Áramótaferð til
VEÐUR
Nú er svo komið að ferðamenn íReykjavík þora ekki „af ein-
skærum ótta“ út af hótelinu sínu á
kvöldin.
Þannig var tónninn í lesandabréfifrá Heinz Kubitz í Morgunblað-
inu í gær. Hann var niðurbrotinn,
svekktur og sorgmæddur yfir
ástandinu í miðborginni um helgar.
Mörg þúsundunglingar
fara drukknir
með óspektir um
göturnar, brjóta
rúður og eyði-
leggja eignir
annarra.“
Og ennfremur:„Laugavegur leit á mánudegi
út eins og það hefði farið fram
styrjöld.“
Og Kubitz, sem heillaðist af feg-urð náttúrunnar og áhugaverð-
um ferðamannastöðum, hyggst
ekki koma aftur til Íslands að
óbreyttu: „Er þess ekki nokkur
kostur að koma vitinu fyrir þessa
óeirðaseggi? Og heldur fólk virki-
lega að yfirstandandi Íslandsbylgja
í Þýskalandi haldist með þessu
áframhaldi?“
Enn og aftur kemur á daginn aðstyrjaldarástandið í miðborg-
inni um helgar getur ekki viðgeng-
ist lengur. Ekki er nóg með að það
valdi íbúum á svæðinu og öðrum at-
vinnurekstri ónæði og jafnvel
eignaspjöllum, heldur er það líka
farið að spilla ímynd Íslands. Lög-
reglan er með viðbúnað í miðborg-
inni um hverja helgi eins og á útihá-
tíð. Ef óskað yrði eftir að halda
útihátíð með íslenskum formerkj-
um í miðborg Kaupmannahafnar,
drykkjuhátíð fram undir morgun í
hjarta höfuðborgarinnar, þá yrði
það álitin geggjun.
En hér á landi hefur það þótt sjálf-sagt. Þar til nú …
STAKSTEINAR
Ástand í
miðborginni.
Enn af stríðsástandi í miðbænum
FRÉTTIR
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
! ""#
$
$
:
*$;<
!"#
% &
'(
$
*!
$$; *!
%&
'
&
(
) *)
=2
=! =2
=! =2
%(' "!
+
"# , -!)".
<<$ -
8
)
$
%' $
62
%
*(
!+
$
%*#
$
*
;
,
# ,
-
*(!." $
% &
'(
#
$
/0!! )11 "!) 2 ) ) +
"#
3'45 >4
>*=5? @A
*B./A=5? @A
,5C0B ).A
$$
$ 3
3
$ $
$ $ $ $
$ $ $ $ $ $
$
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Sema Erla Serdar | 20. september
Önnur bók Khaleds
Hosseini
Bókin „A thousand
splendid suns“ er önnur
bók afganska rithöf-
undarins Khaleds Hos-
seini. Fyrri bók hans,
„Flugdrekahlauparinn“
ættu nú allir bókaunn-
endur að hafa lesið nú þegar.
Bókin segir sögu kvenna í Afgan-
istan en Flugdrekahlauparinn lagði
áherslu á karlpeninginn, og er mögn-
uð í alla stað.
Meira: semaspeaks.blog.is
Toshiki Toma | 20. september 2007
Kvenprestur
í Dómkirkjunni
Þetta eru góðar fréttir.
Mig langar til að óska
séra Önnu Pálsdóttur
hjartanlega til ham-
ingju, innilega.
Hún er góð í prests-
þjónustu sinni fyrst og
fremst, óháð því hvors kyns hún er.
Auk þess er það gott að kven-
prestur sé kominn í embætti Dóm-
kirkjunnar loksins. Ég fagna því!!
Meira: toshiki.blog.is
Oddgeir Einarsson | 20. september
Nú aukast innbrot
og vændi
Aðgerðir lögreglu
munu líklega hafa í för
með sér aukningu af-
brota og vændis. Af
hverju? Af því að þegar
framboð á einhverju er
minna en eftirspurn
hækkar verðið. … Eins og allir vita
þekkist það að fíklar fjármagni
neyslu með innbrotum og vændi þeg-
ar þá skortir fé. Þetta er engin heims-
endaspá heldur bara kommon sens.
Meira: oddgeire.blog.is
Baldur Kristjánsson | 20. september
Hatursfull umræða!
Hatursfull umræða er
víða hér á netinu og
vefsíður fullar af hatri í
garð annarra á hverju
strái. Nýnasistar eru
sennilega stórtækastir
með hatur sitt á gyð-
ingum og innflytjendum. Herská
múslímsk samtök eru einnig áber-
andi magnaðar af hatri í garð vest-
ræns þjóðskipulags. Hatursmenn ísl-
ams eru áberandi. Þessar síður
skipta hundruðum þúsunda á netinu.
Málstaður mannanna að baki þessum
síðum er alltaf heiður og klár. Allir
þeir sem tilheyra trúflokki eða hópi
eru fyrirlitnir. Bullandi rasismi er í
gangi. Í stað þess að beina gagnrýni
sinni að hernaðarstefnu Ísraels eru
allir gyðingar útmálaðir sem ill-
menni. Í stað þess að beina gagnrýni
sinni að öfgafullum múslimum eru
trúarbrögðin sjálf og allir fylgismenn
þeirra ataðir auri. Heimurinn svart/
hvítur. Offors þeirra á vefsíðum er
einnig viðbrugðið. Hatursfullur áróð-
ur hefur alltaf verið til staðar. Átök
og stríð legíó í sögu mannsins. Á
sama hátt hafa alltaf verið öflugar
hreyfingar sem hafa boðað og talað
fyrir umburðarlyndi og skilningi
t.a.m. hefur umburðarlynt fólk verið í
miklum meirihluta fylgjenda allra
trúarbragða.
Með netinu verða fulltrúar haturs-
ins áberandi. Hinn hatursfulli mál-
staður fær vængi. Það er e.t.v. hætt-
an við tímana. Öfgamenn eru yfirleitt
bráðvirkir eins og títt er um þá sem
hafa fundið sannleikann, efast ekki.
Ungir ómótaðir hugir verða fórn-
arlömb þeirra og einnig fólk á öllum
aldri sem óttast hið óþekkta og kaup-
ir einfaldar skýringar á böli heims-
ins. Ég er ekki að lesa um fjölda-
morðingjann Maó. Sú bók bíður þess
að ég komist í gegnum bók Simons
Sebag Montefiore um Stalín. Þvílíkt
illmenni Stalín. Það er alveg ótrúlegt
að lesa hvernig eitt stykki verðandi
illmenni gat náð tökum á heilum
flokki og heilli þjóð. Maó var víst
verri. Samkvæmt Jung Chang og
Jon Halliday í bókaþætti Egils í gær
drap hann 70 milljón manns.
Og ungir draumóramenn á Vest-
urlöndum elskuðu Maó, gengu með
merki hans í barminum og kölluðu
sig maóista, sátu kvöld eftir kvöld í
hring og lásu úr (ómerkilegum) verk-
um hans.
Meira: baldurkr.blog.is
BLOG.IS
ÞAÐ voru ljúfir tónar sem biðu farþeganna sem ferð-
uðust með strætó í gærmorgun. Tilefni tónanna var
Samgönguvikan sem hófst um síðustu helgi og lýkur í
dag. Eins og kunnugt er þá er Samgönguvikan átak um
bættar samgöngur í borgum. Miðar hún að því að
hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur. Tón-
listarkonan Ólöf Arnalds spilaði í vagni nr. 13 á leið frá
Öldugranda að Verslunarskóla Íslands í gærmorgun.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Tónlistin ómaði í strætó í morgunsárið