Morgunblaðið - 22.09.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 13
FRÉTTIR
FYRSTA skóflustungan að nýbygg-
ingu Bílabúðar Benna á Krókhálsi 9
var tekin í gær. Réttara væri að tala
um skóflustungurnar, þar sem allir
starfsmenn, makar þeirra og börn,
um 150 manns, voru með í að taka
þessa táknrænu skóflustungu. Allir
voru með skóflu í hönd, öryggishjálm
á höfði og samtaka í því að taka þessa
fyrstu skóflustungu að nýju húsinu.
Hópurinn raðaði sér svo eftir verð-
andi útlínum byggingarinnar. Fyr-
irhuguð nýbygging á Krókhálsi 9
mun hýsa alla starfsemi Bílabúðar
Benna.Ljósmynd/Odd Stefán
150 manns
tóku skóflu-
stungu
BEST er að búa á Norðurlöndunum
en þar er séð best um umhverfið og
íbúana. Þetta er niðurstaða rann-
sóknar, sem birtist í tímaritinu
Reader’s Digest í gærdag. Að mati
blaðsins er best að búa í Finnlandi en
síðan koma Ísland, Noregur og Sví-
þjóð. Stokkhólmur er besta borg
heims að mati blaðsins og Ósló fylgir
þar á eftir.
Alls er lagt mat á 141 land í könn-
un blaðsins. Á eftir Norðurlöndun-
um fjórum koma Austurríki, Sviss,
Írland og Ástralía. Neðst á listanum
eru Eþíópía, Níger, Síerra Leóne,
Búrkína Fasó og Tsjad.
Lagt er mat á umhverfisþætti, svo
sem loftslag og gæði vatns, virðingu
fyrir líffræðilegri fjölbreytni og
mengun.
Norður-
löndin best
EIGENDUR jarðarinnar Skálm-
holtshrauns í Flóahreppi hafa slitið
viðræðum sem þeir hafa átt í við
Landsvirkjun vegna virkjana í neðri
hluta Þjórsár.
Í bréfi sem lögmaður eigenda
jarðarinnar sendi Landsvirkjun
kemur fram að þeir leggist alfarið
gegn framkvæmdinni. Verði af fram-
kvæmdum við fyrirhugaðar virkjan-
ir mun stór stíflugarður rísa í landi
jarðarinnar og hluti hennar fara
undir vatn.
Slitu við-
ræðum
♦♦♦