Morgunblaðið - 22.09.2007, Page 16
16 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
KJARNORKA mun áfram gegna
lykilhlutverki þegar reynt verður
að minnka losun koldíoxíðs, að sögn
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins í gær. Þriðjungur raforku
ESB-ríkjanna kemur nú frá kjarn-
orkuverum og í Frakklandi er hlut-
fallið um 80%.
Í yfirlýsingu frá framkvæmda-
stjórninni er sagt að sérstakt ráð
muni fá fulltrúa iðnaðarfyrirtækja
og vísindamanna til að móta fram-
tíðarstefnu sem tryggi að Evrópu-
menn hafi sem fyrr forskot í nýt-
ingu kjarnorku.
Janez Potocnik, sem fer með mál-
efni vísinda og rannsókna í stjórn-
inni, sagði að „fyrir þau ríki sem
það kjósa“ myndi kjarnorka verða
„mjög mikilvægur liður í að tryggja
orku og samdrátt í losun gróður-
húsalofttegunda“. En tryggja yrði
að ekki hlytist af þeirri stefnu um-
hverfistjón og einnig yrði að
minnka framleiðslu úrgangs og
auka endurvinnslu.
Kjarnorka áfram í lykilhlut-
verki í Evrópusambandinu
AP
ÁÐUR en Ísraelar gerðu loftárás á skotmörk í Sýr-
landi nýverið vöruðu þeir Bandaríkjamenn við því að
Norður-Kóreumenn væru ef til vill farnir að deila
kjarnorkuleyndarmálum með Sýrlendingum. Kemur
þetta fram í frétt í blaðinu The Washington Post í gær.
Ísraelskir ráðamenn, þ.á m. Ehud Olmert forsætis-
ráðherra, þögðu þunnu hljóði um árásina og hið sama
gerðu Sýrlendingar en Benjamin Netanyahu, leiðtogi
Likud-flokksins í Ísrael, staðfesti í vikunni að umrædd
loftárás hefði verið gerð og hún tekist með ágætum.
Er talið að Sýrlendingar hafi talið skást að segja sem
minnst um málið þar sem þeir hafi verið teknir í bólinu.
Bandaríska blaðið segir að stjórn George W. Bush forseta hafi verið
mjög brugðið þegar upplýsingar Ísraela, þ.á m. myndir teknar með
gervihnöttum, bárust. En Bush hafi ákveðið að gera ekki neitt í málinu
um sinn til að hindra að viðkvæmar viðræður við N-Kóreumenn færu út
um þúfur. Þeir hafa heitið að hætta öllum tilraunum til að smíða kjarn-
orkuvopn.
Vöruðu við kjarnorkusam-
starfi N-Kóreu við Sýrland
Ehud Olmert
BANDARÍSKI leikfangaframleið-
andinn Mattel hefur viðurkennt
hönnunargalla í flestum leikfang-
anna sem fyrirtækið hefur inn-
kallað að undanförnu. Hefur Mattel
staðfest að sökin sé ekki kín-
verskra fyrirtækja. Aðstoðarfor-
stjóri Mattel bað í gær kínverska
framleiðendur afsökunar á þeim
álitshnekki sem málið hefur valdið
þeim.
Gallarnir ekki
sök Kínverja
ENN ein flugvélin af gerðinni
Dash-8 varð að nauðlenda í gær
vegna bilunar í lendingarbúnaði.
Að þessu sinni var það vél í eigu
Lufthansa sem nauðlenti í Münc-
hen. Enginn mun hafa slasast.
Dash-vél nauðlenti
GRIPIÐ var til hertra öryggis-
ráðstafana í sendiráðum Frakk-
lands í N-Afríku í gær í kjölfar
sjálfsmorðstilræðis í Alsír þar sem
tveir Frakkar og einn Ítali særðust.
Á varðbergi
Washington. Los Angeles Times. | Rúm-
ur þriðjungur Bandaríkjamanna
undir 65 ára aldri var ekki sjúkra-
tryggður síðustu tvö árin eða hluta
þeirra, að sögn bandarísku neyt-
endahreyfingarinnar Families
USA.
Alls voru 89,6 milljónir Banda-
ríkjamanna einhvern tíma án
sjúkratryggingar á þessum tíma,
þar af 47 milljónir allt síðasta ár.
Flestir voru án sjúkratryggingar
í Kaliforníu þar sem um þrettán
milljónir, eða 41% íbúa undir 65 ára
aldri, voru ekki sjúkratryggðir.
Texas kom næst með 9,3 milljónir
manna.
Fólk sem náð hefur 65 ára aldri á
rétt á sérstökum sjúkratryggingum
fyrir aldraða, Medicare.
Rúm 70% þeirra sem ekki voru
sjúkratryggðir allt tímabilið eða
hluta þess voru í fullu starfi. Rúmur
helmingurinn var án sjúkratrygg-
ingar í níu mánuði eða lengur.
Þeim Bandaríkjamönnum sem
eru án sjúkratryggingar hefur
fjölgað um 17 milljónir frá fyrstu
könnun Families USA sem náði yfir
árin 1999-2000.
!
" #$%
!
"
#
$%&
'(
%
)*%'
%
!
"
!
+,,'-+,,#
&#'()(**+,-%.-$+/0%&1''(-'%
4567 '859:;;<97
'(
"
!#
"
.
/01
21
34
15 67
819
:;
39
90
<3/:
6=
<1
8>
7: 6>
0>
6?
76
81
73
14
70 1@
@1
.@
A1
:6
28
8@ 86 3
78
9B
6B
6
71
48
<:
6C
>?
7>
7?
2B
D1
=12=
=:
6<
0<
+, $, , (,&
E F
23
G"
F
43 2 5 G"
'(
F
4 62
!" # #" $%%&
Þriðjungur
ekki sjúkra-
tryggður
Carancas. Los Angeles Times, AP. |
Þegar Isabel Junquilla, 53 ára kona í
Perú, heyrði sprenginguna var hún
viss um að stríð hefði blossað upp.
„Við héldum að Chilebúar hefðu
gert loftárás,“ sagði Junquilla og
skírskotaði til þess að Perú og Chile
hafa lengi eldað grátt silfur. „Þetta
var það sem allir sögðu. Það var óg-
urlegur hávaði.“
Stór gígur myndaðist í sprenging-
unni nálægt Titicaca-vatni við landa-
mærin að Bólivíu um helgina.
Stjarnfræðingar segja nú að flest
bendi til þess að gígurinn hafi mynd-
ast við árekstur loftsteins, en mjög
sjaldgæft er að það gerist.
Fyrstu viðbrögð heimamanna við
sprengingunni minntu einna helst á
töfraraunsæið í suður-amerískum
bókmenntum. Íbúar í grennd við
Titicaca-vatn fullyrtu að fólk hefði
fengið furðulega sjúkdóma, aðrir
sögðust hafa fundið sterkan daun frá
gígnum, orðrómur komst á kreik um
að gerð hefði verið loftárás, varað
var við mikilli geislamengun og enn
aðrir sögðu að gulli hefði rignt af
himnum ofan.
Vísindamenn tóku sýni úr jarð-
veginum og vatni í gígnum til rann-
sóknar. Þeir staðfestu síðan í fyrra-
dag að gígurinn hefði myndast við
árekstur loftsteins – ekki af völdum
eldgoss, loftárásar eða geimrusls.
„Við erum núna viss um að þetta
var loftsteinn,“ sagði Ronald Wood-
man, yfirmaður Jarðvísindastofn-
unar Perú, sem sendi rannsókn-
armenn á staðinn. „Slíkt fyrirbæri
getur verið hættulegt, ef það fellur á
bæ, hús eða fólk. Sem betur fer
gerðist það ekki í þessu tilviki.“
Woodman sagði að gígurinn væri
12,7 metrar að þvermáli og fimm
metra djúpur. Áreksturinn olli jarð-
skjálfta sem mældist 1,5 stig á
Richters-kvarða.
Sérfræðingar við kjarnorkustofn-
un Perú sögðu að loftsteinninn hefði
líklega verið í mesta lagi metri að
þvermáli þegar hann skall á jörðinni
á firnamiklum hraða. Algengt er að
hlutir berist í lofthjúp jarðar úr
geimnum en flestir þeirra brenna
þar upp og lenda ekki á jörðinni.
Gígurinn við Tititaca-vatn vakti
því heimsathygli.
„Jafnvel áður en hann féll heyrð-
ist mikill hávaði, eins og frá flugvél,“
sagði Marina Llanqui Mamani, 53
ára kona í indíánabænum Carancas,
sem er með um 3.000 íbúa. „Og þeg-
ar hann skall á jörðinni var eins og
jarðskjálfti riði yfir. Allir urðu skelf-
ingu lostnir. Jafnvel dýrin mín urðu
logandi hrædd og hlupu út um allt.“
Bæjarbúarnir vonast nú til þess
að ferðamenn flykkist á staðinn.
„Núna þegar sérfræðingar frá Jap-
an og fleiri löndum hafa fullvissað
okkar um að þetta hafi ekki neinar
alvarlegar afleiðingar ætlum við að
eigna okkur loftsteininn,“ sagði Ben-
ito Mosaja Pari, 56 ára aðstoðarhér-
aðsstjóri í Carancas. „Við ætlum að
grafa hann upp. Vísindamennirnir
segja okkur hann sé hluti af veröld
sem splundraðist. Hann er því mikils
virði. Og núna eigum við hann.“
AP
Dularfull veiki Djúpur gígur myndaðist þegar loftsteinn skall á jörðinni í Perú um helgina. Heimamenn sögðu að
200 manns hefðu veikst af völdum reyks eða gufu, sem stigið hefði upp úr gígnum, en vísindamenn drógu það í efa.
„Við héldum að Chile-búar
hefðu gert loftárás“
» Vísindamenn stað-
festu að gígurinn
hefði myndast við
árekstur loftsteins –
ekki af völdum eldgoss,
árásar eða geimrusls
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Tryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630
Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16
Útivistar-
fatnaður
25–7
0%
AFS
LÁT
TUR
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA
25–70% afsláttur af útivistarfatnaði. Nú er lag að gera
kjarakaup og dúða sig vel fyrir veturinn.