Morgunblaðið - 22.09.2007, Síða 22
|laugardagur|22. 9. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Hálendið speglast í hönnun
Jónu Bjargar Jónsdóttur, sem
vakið hefur athygli fyrir þjóð-
lega og frumlega hönnun. »26
tíska
Alda Ingibergsdóttir óperu-
söngkona er mikið fyrir kerti,
falleg ljós og skemmtilega
hönnun. »24
innlit Ég reyni að finna minn tónfrekar í gegnum hjartaðen hugann, í mínum tón-smíðum. Mér finnst elítan
í dag hugsa alltof mikið með höfðinu
en lítið með hjartanu og ég nenni
ekki að taka þátt í því. Auðvitað á öll
tónlist rétt á sér en ég skammast mín
ekkert fyrir að gera músík frá hjart-
anu. Ég vil vera trúr sjálfum mér og
það skiptir mig öllu máli að gefa.
Ákveðin auðmýkt fyrir tónlist er
mjög mikilvæg, hvort sem fólk er að
koma fram eða semja,“ segir Hreiðar
Ingi Þorsteinsson sem útskrifaðist í
vor frá tónsmíðadeild Listaháskóla
Íslands. Lokaverkefnið hans var tón-
verkið Stabat Mater sem hann samdi
fyrir finnska kórinn Chamber Choir
Cantinovum. „Þetta var mikill heiður
fyrir mig en verkið var sérstaklega
pantað af kórstjóranum og krafta-
verkakonunni Ritu Varonen. Hún tók
mig í tíma í kórstjórn þegar ég var
skiptinemi í Finnlandi og við urðum
góðir vinir. Hún hefur trú á tónlist-
inni minni og fyrir það er ég þakk-
látur.“
Stabat Mater er kirkjulegt verk
sem Hreiðar Ingi skrifaði út frá
krossfestingunni. „Ég hugsaði þetta
út frá íslensku vögguvísunni Sofðu
unga ástin mín og hvernig María mey
sefar grátinn vegna sonarmissis með
vögguvísu. Aðalröddin er etnísk altó-
rödd, eða finnsk þjóðlagarödd, sem
gefur verkinu sérstakan hljóm. Ég
fékk góð viðbrögð og í kjölfar frum-
flutningsins voru þrjú önnur verk
pöntuð hjá mér í Finnlandi. Fyrir
mér er Finnland gullæð, því það er
eitt af aðalkórlöndunum í heiminum.“
Ömmusöngur kveikir tónverk
Hreiðar Ingi er þessa dagana að
semja eitt af pöntuðu verkunum sem
er fyrir finnska kvennakórinn Jyvä-
skylä Female Choir. „Ég vinn alltaf
út frá ljóði og ég vil gera eitthvað
persónulegt. Þegar ég var lítill strák-
ur svæfði amma mín mig með því að
syngja Láttu nú ljósið þitt loga við
rúmið mitt, og þar sem hún verður
níræð á næsta ári ákvað ég að gefa
henni það að semja tónverk út frá
þessum texta fyrir þennan finnska
kvennakór. Ég bað hana að syngja
þetta fyrir mig í gegnum síma og ég
komst að því að hún söng þetta öðru-
vísi en nóturnar í sálmabókinni segja
til um. En ég ætla að að nota hennar
útgáfu. Ég læt verkið byrja á því að
kona í kórnum stígur fram og syngur
þetta á íslensku og ég er að hugsa um
að setja það skilyrði að hún sé amma.
Síðan tekur kórinn við og syngur á
latínu.“
Hilmar Örn örlagavaldur
Það er nóg að gera hjá Hreiðari
Inga í tónsmíðunum því nýlega hafði
suður-afríski kórinn TUKS Came-
rata samband við hann og fékk hann
til að semja verk fyrir sig í tilefni af
því að kórinn verður fjörutíu ára á
næsta ári. „Ég er auðvitað upp með
mér því þessi kór er margverðlaun-
aður en þau panta verk frá tónskáld-
um alls staðar að úr heiminum í til-
efni af afmælinu.“
Þegar Hreiðar Ingi semur tónlist
segist hann verða að hafa algjört
næði. „Það má helst enginn vera í
húsinu og ég vinn best frá níu til
fimm. Ef ég á að skilgreina mína tón-
list þá er hún mjög hefðbundin. Ég er
svolítið í þjóðlagastílnum og sumum
finnst tónlistin mín bera keim af
kvikmyndatónlist.“
Hreiðar Ingi hefur verið að semja
tónlist allt frá því hann var 12 ára og
kannski ekki að undra að hann hafi
verið kallaður Mozart þegar hann var
í Menntaskólanum á Laugarvatni.
„Ég hef alltaf haft þessa þörf fyrir að
tjá mig með söng og þegar ég var lít-
ill bankaði ég upp á hjá fólki og bað
um að fá að syngja fyrir það. Þegar
ég var tólf ára flutti ég í Laugarás í
Biskupstungum og það var mikil
gæfa fyrir mig því þá fór ég að syngja
hjá Hilmari Erni organista í Skál-
holti. Hann er stórkostlegur. Hann
kveikti ljós í hjarta mér. Hann lét
mig hlusta á H-moll-messuna eftir
Bach þegar ég var 14 ára og þá ákvað
ég að ég ætlaði að verða tónskáld.
Hilmar á í raun heiðurinn af því hvar
ég er staddur í dag.“
Hreiðar Ingi missti pabba sinn
þegar hann var 10 ára og hann segist
ekki hafa komist yfir þá sorg fyrr en
hann tók þátt í tónlistarlífinu í Skál-
holti hjá Hilmari. „Tónlist er eitt
besta meðal sem til er við sorg. Ég
samdi Sálumessu fyrir pabba minn
sem frumflutt var 2004. Langholts-
kórinn flutti hana og Ísak litli Rík-
harðsson söng með þeim. Ég varði
heilu ári í að skrifa þetta verk og
þetta var mikil hreinsun fyrir mig.
Núna vill Rita Varonen að ég endur-
skrifi þessa sálumessu fyrir kór og
sinfóníuhljómsveit sem til stendur að
flytja árið 2009.“
Hreiðar Ingi syngur með tveimur
sönghópum um þessar mundir, ann-
ars vegar er það raddbandið VoxFox
og hins vegar Laugaráskvartettinn.
„Hann samanstendur af mér og
Þresti bróður mínum og öðru pari af
bræðrum, þeim Agli og Þorvaldi
Pálssonum, en við ólumst allir upp
saman í Laugarási. Við höfum sungið
saman í tíu ár og sérhæft okkur í
barbershop-tónlist. Mér finnst algjör
forréttindi að syngja með mörgum af
mínum bestu vinum.“
Hreiðar Ingi hefur viðað að sér
þekkingu og er alltaf að bæta við sig.
Hann er útskrifaður tónmenntakenn-
ari, er að læra að verða söngkennari
og er að taka áttunda stig í Söngskól-
anum. „Ég er baritón-tenór en er að
skríða upp í tenórinn. Auk þess tók
ég að mér starf stjórnanda drengja-
kórsins í Langholtskirkju næstu tvö
árin. Ég verð með tuttugu stráka á
aldrinum sjö til fjórtán og ég hlakka
virkilega til að kenna þeim að syngja.
Nú er starfið í söngskólanum í Lang-
holtskirkju að fara af stað og á morg-
un ætlum við að vera með kynningu
þar sem allir kórarnir átta sem þar
starfa munu koma fram. Jón Stef-
ánsson og Ólöf Kolbrún hafa unnið
ómetanlegt starf þarna og þau hafa
skapað fjölmargar stjörnur. Í mínum
augum eru þau meðal kyndilbera í
þróun íslenskrar sönglistar.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Að störfum Tölva og píanó eru tækin sem Hreiðar Ingi þarf að hafa við höndina þegar hann semur.
Hann hefur samið tónlist frá því hann var tólf ára og í
bernsku bankaði hann upp á hjá fólki og bað um að fá
að syngja fyrir það. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti
tónskáld sem hefur nóg að gera við að semja tónlist
fyrir virta kóra úti í heimi.
www.hi.is/~sverriro/hreidar
www.myspace.com/voxfoxband
www.islandia.is/kvartett
www.cantinovum.fi
www.naislaulajat.net
www.tukscamerata.up.ac.za
Tenór í tónsmíðum
khk@mbl.is
ÞEIR eru kostulegir ásýndum jafnvægislistamennirnir sem hér hafa stillt
sér upp við höfnina í Hong Kong. Þeir eru hluti ástralska sirkusshópsins
„Circus Oz“ sem er talinn einn fyrsti „nútíma“-sirkusinn.
Jafnvægiskúnstir