Morgunblaðið - 22.09.2007, Side 52
52 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDIVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 12:30 - 3 - 5:30 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 4 - 6:30 - 8:30 LEYFÐ
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 10 B.i. 14 ára
THE TRANSFORMERS kl. 10:30 B.i. 10 ára DIGITAL
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 1:30 - 4 LEYFÐ DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
CHUCK AND LARRY kl. 12:30 - 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára
CHUCK AND LARRY kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP
MR. BROOKS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
BRATZ kl. 12:30 - 3 - 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
DISTURBIA kl. 8 - 10:30 B.i.14.ára
ASTRÓPÍA kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA LÚXUS VIP kl. 12:30 - 3 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 12:30 - 3 - 5:30 LEYFÐ
RATATOUILLE m/enksu tali kl. 3 LEYFÐ
HARRY POTTER 5 kl. 12:30 B.i.10.ára
/ ÁLFABAKKA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
ALLIR EIGA SÍN LEYNDARMÁL
ÓVÆNTASTI SÁLFRÆÐITRYLLIR ÁRSINS
HVERSU LANGT
MYNDIRU GANGA
FYRIR BESTA
VIN ÞINN?
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Á AKUREYRI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Á AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
eeee
Morgunblaðið
SÝND Í ÁLFABAKKA
SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB
eeee
– KVIKMYNDIR.IS
eee
– L.I.B TOPP5.IS
HERRA Brooks (Costner), tekur sig vel út í
upphafsatriðinu, vel snyrtur, klipptur og
smókingklæddur, hampar hann heiðrinum
„Maður ársins“, í samkvæmi þar sem mættur
er blómi samfélagsins. Kauði er ekki allur þar
sem hann er séður; undir fínpússuðu yfirborð-
inu, er Mr. Brooks sálsjúkt afstyrmi, raðmorð-
ingi sem drepur sér til ánægju og yndisauka
Upphafið lofar góðu og Mr. Brooks er
snyrtileg að ytri gerð, leiktjöld og búningar,
taka, hljóð, klippingar, allt í vænu meðallagi.
Innihaldið er engan veginn í samræmi, fyrsta
stundarfjórðunginn er efnið áhugavert og
óvenjulegt, við fáum að kynnast þankagangi
raðmorðingja, hann er í forgrunninum og
sjúka hliðin kaupsýslumannsins Brooks er
persónugerð í Marshall hinum morðóða, sem
William Hurt túlkar prýðilega.
Höfundarnir verða fljótlega ráðþrota, að-
alsagan víkur á löngum köflum fyrir rúm-
frekum skilnaðaerjum lögreglukonu (Moore),
sem vinnur að lausn málsins, við fyrrverandi
bónda sinn; voðamenni sem sleppur úr fangelsi
gerir ekkert til gagns en ruglar framvinduna
og nokkrar tengingar í atburðarásinni ganga
ekki upp. Enn ein fáránleg hliðarsagan, sem
gengur út á erfðaþátt drápshneigðar, kæfir
endanlega áhuga manns.
Til að bæta gráu ofan á svart er vitni að einu
morði Mr Brooks einhver daprasta persóna
kvikmyndanna og leikurinn er almennt ak-
vondur, svo vægt sé til orða tekið. Costner að
flytja æðruleysisbænina segir manni aðeins
eitt: Maðurinn hefur aldrei farið með bænirnar
sínar
Persónurnar eru vissulega svo fráhrindandi
og illa gerðar að þær eiga ekki betri leik skilið,
þó hefur tæpast verið ætlunin að vekja þau
viðbrögð hjá áhorfendum að þeim verður
hreinlega illa við allt heila klabbið á tjaldinu.
Raðmorðinginn, maður ársins
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Bruce A. Evans . Aðalleikarar: Kevin Cost-
ner, Demi Moore, Marg Helgenberger. 120 mín.
Bandaríkin 2007.
Mr. Brooks Lélegur „Costner að flytja æðruleysisbænina
segir manni aðeins eitt: Maðurinn hefur aldr-
ei farið með bænirnar sínar.“
Sæbjörn Valdimarsson
EINS og greint var frá í Morgunblaðinu þann
1. ágúst síðastliðinn hyggst Hinn íslenzki
þursaflokkur halda tónleika með Caput
hópnum á næstunni.
Nánari upplýsingar um tónleikahaldið
hafa nú verið gerðar opinberar en tónleik-
arnir fara fram í Laugardalshöllinni þann 23.
febrúar á næsta ári.
Þursaflokkinn skipa sem fyrr þeir Ásgeir
Óskarsson, Egill Ólafsson, Rúnar Vilbergs-
son, Tómas Magnús Tómasson og Þórður
Árnason. Staðgengill Karls Jóhanns Sig-
hvatssonar heitins á Hammond orgelinu
verður svo Eyþór Gunnarsson.
Þá má loks geta þess að Endurmennt-
unardeild Háskóla Íslands verður með marg-
þáttað námskeið sem tengist tónleikunum,
þar verður fjallað um íslenska tónlistararf-
inn, hvert Þursar sóttu efniviðinn og eins
verða nýju útsetningarnar á efninu kynntar.
Þá munu þátttakendur geta fylgst með æf-
ingum Þursa og Caput og að endingu upp-
lifað tónleikana.
Miðasala á tónleikana hefst í október.
Þursarnir og Caput
í Laugardalshöll
Í lopapeysum Hinn íslenzki Þursaflokkur í öllu sínu veldi ásamt ungum aðdáanda.