Morgunblaðið - 09.10.2007, Page 3
NJÓTTU netsins!
Nýttu þér netið
Kynntu þér málið á spron.is
SPRONnet
SILFURnet GULLnet PLATINUMnet
Nýr hagstæður debetreikningur á netinu
AR
G
US
0
7-
05
42
Þvílík
heppni!
Kona í Sandgerði, sem óskar nafn-
leyndar, varð fyrir því óláni nýlega
að týna hundinum sínum á ferða-
lagi um Norðurland. Hún lýsti eftir
hundinum í Degi og fékk svar um
hæl. Kona á bóndabæ í nágrenni
við Grenivík lét vita af hundi sem
hafði verið að sniglast í kringum
heimili hennar og lýsingin í blaðinu
gat átt við. Konan fékk hundinn
sinn og ákvað í framhaldinu að
koma við í versluninni Jónsabúð á
Grenivík og fá sér bita. Hún keypti
auk þess skafmiða og borgaði með
SPRON-kortinu sínu. Það má með
sanni segja að hún hafi verið hund-
heppin því að á skafmiðanum var
vinningur upp á eina milljón. Ekki
fylgir sögunni hvað konan ætlar að
gera við peningana en það má gera
ráð fyrir að hundurinn verði verð-
launaður á einhvern hátt. Er nema
von að viðskiptavinir SPRON séu
jafnánægðir og raun ber vitni?
Hamingju-
samir Ís-
lendingar
Samkvæmt
rannsókn, sem
gerð var af
samtö-
kum
sem
kallast New
Economics
Foundation
and Friends of the
Earth, eru Íslendingar
hamingjusamastir Evrópu-
búa. Norðurlandabúar komu
hlutfallslega best út úr rannsókn-
inni og var Svíþjóð í öðru sæti og
Noregur í því þriðja. Danmörk var
einnig ofarlega á listanum, í sjötta
sæti. Könnunin náði til 30 landa
innan Evrópu og var meðal annars
mæld lífsgleði Evrópubúa. Það er
spurning hvort veður hafi haft áhrif
á lífsgleði Íslendinga en einmuna
blíða ríkti hér á landi þann tíma
sem könnunin var gerð á meðan
rigndi eins og hellt væri úr fötu á
frændur okkar. Einnig hefur verið
bent á þá staðreynd að sífellt fleiri
Íslendingar ganga til viðskipta við
SPRON og eins og alþjóð veit er
ánægjan hvergi meiri en meðal
þeirra.