Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Samfylkingin hefur lítið sem ekk-ert blandað sér í umræður um
aðild Orkuveitu Reykjavíkur að hinu
sameinaða útrásarfyrirtæki, sem er
að verða til með sameiningu Geysis
Green og Reykjavík Energy Invest.
Í gær rauf Sam-fylkingin
þögnina með eft-
irminnilegum
hætti eða hitt þó
heldur.
Samfylkingintelur að með
því að selja hlut
Orkuveitunnar í hinu sameinaða fyr-
irtæki sé verið að hafa af borg-
arbúum mikinn framtíðarhagnað.
Hvað þýðir þessi stefnumörkunSamfylkingarinnar?
Hún þýðir að þessi jafnaðar-flokkur Íslands telur sjálfsagt
að opinber fyrirtæki heimti fé af við-
skiptavinum sínum til þess að leggja
í áhætturekstur í útlöndum.
Hún þýðir að Samfylkingin telursjálfsagt að selja rafmagn, heitt
og kalt vatn til íbúa Reykjavíkur og
nágrannabyggða fyrir hærra verð
en nauðsyn krefur til þess að hægt
sé að leggja þá peninga almennings í
áhættusaman rekstur í útlöndum.
Hvað er Samfylkingin – jafn-aðarflokkur Íslands að hugsa?
Hvað er Dagur B. Eggertsson,oddviti flokksins í borgarstjórn
Reykjavíkur, að hugsa?
Það virðist vera svo að það megialltaf treysta Samfylkingunni til
þess að taka vitlausan pól í hæðina.
Mikill leiðtogi Dagur!
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Samfylking vaknar
FRÉTTIR
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
*$;<
!"
" #
$%&
*!
$$; *!
!"#
!#
$
%#
&%
=2
=! =2
=! =2
$#" '(
'
)*+%',
>!-
=7
&
$'&
=
(
%
)"*!
+
!"
,
-
) $.
&
!
+
-
)
$ -)
$& /* -. %//
'%# 0%
+ %(
'
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
2
2
31 1 31 1 13
13
13
1 13
13
2
2
2
2
2
2
2
23
2
2
2
2
2
23
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Auður H. Ingólfsdóttir | 7. október
Nonni og ég
Ég hlustaði á þátt á rás
1 um helgina um rit-
höfundinn Jón Sveins-
son, eða Nonna, eins og
hann er betur þekktur
meðal þeirra sem hafa
lesið bækurnar hans.
Nonni spilaði talsvert hlutverk í
minni æsku, ekki aðeins vegna bóka
hans, heldur líka vegna þess að föð-
ursystir mín var lengi safnvörður í
Nonnahúsi á Akureyri, og ég heim-
sótti safnið oft sem krakki. Ég held
að ég hafi dregist að sögu Nonna...
Meira: aingolfs.blog.is
Hjörtur J. Guðmundsson | 8. október
Lénið www.fuf.is
Ungliðahreyfing
Frjálslynda flokksins
var víst stofnuð fyrir
fáeinum dögum og hef-
ur fengið nafnið Félag
ungra frjálslyndra,
skammstafað FUF.
Sama skammstöfun hefur sem kunn-
ugt er verið notuð af ungum fram-
sóknarmönnum um áratugaskeið um
aðildarfélög Sambands ungra fram-
sóknarmanna (SUF). Það er því
hætta á að verið sé með þessu út-
spili…
Meira: sveiflan.blog.is
Halla Rut | 8. október
Fordómar
Það hefur verið erfitt
og mikið álag á ein-
hverfan son minn að
aðlagast nýjum leik-
skóla en hann var
heima og án leikskóla
og þar af leiðandi án
allrar þjónustu í meira en þrjá mán-
uði sem reyndust honum og okkur
öllum mjög erfiður tími. … Ég vil
með þessum pistli reyna að opna
augu fólks fyrir því að lyf hjálpa
mörgum börnum að takast á við dag-
legt líf. …
Meira: hallarut.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 8. október
Forsetaframboð?
Á meðan að ég horfði á
drottningarviðtal við
Þorstein Pálsson, rit-
stjóra Fréttablaðsins
og fyrrum forsætisráð-
herra, í Silfri Egils
hugsaði ég mig um
hvort að hann væri að fara í forseta-
framboð. Þorsteinn kom fram með
þeim stíl að allt beinlínis öskraði á
mann um að þar færi maður sem
stefndi á Bessastaði. Fílingurinn við
að horfa á viðtalið var einfaldlega
með þessum brag. Hvað svo sem Þor-
steinn hyggst fyrir finnst mér karakt-
er hans minna mig ótrúlega mikið á
Ólaf Ragnar fyrir rúmum áratug er
hann setti stefnuna á Álftanesið.
Hvern hefði annars órað fyrir því fyr-
ir tveim áratugum þegar að Stein-
grímur Hermannsson og Jón Baldvin
Hannibalsson hentu Þorsteini út úr
forsætisráðuneytinu með kostulegum
hætti (í beinni sjónvarpsútsendingu)
og hann tapaði formannsembættinu í
Sjálfstæðisflokknum til Davíðs Odds-
sonar með eftirminnilegum hætti að
hann yrði einskonar grand old man í
stjórnmálapælingum. Mér fannst
hann líta þannig út að eitthvað væri í
spilunum. Þorsteinn talar um málin
með úthugsuðum og fræðilegum
hætti og einhvernveginn er maður
sem ég held að flestir gætu náð að
treysta þrátt fyrir allt. Það voru
margir undrandi þegar að Þorsteinn
varð ritstjóri Fréttablaðsins, flagg-
skips Baugsmiðlanna hjá 365-
prentmiðlum. Þorsteinn hafði þá fyrir
stuttu lokið störfum í utanríkisþjón-
ustunni en hann var á sex árum sín-
um sem sendiherra starfandi sem
slíkur í London og Kaupmannahöfn. Í
þau verkefni fór hann að stjórn-
málaferlinum loknum en hann var
leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi 1983-1999, forsætis-
ráðherra 1987-1988 og formaður
Sjálfstæðisflokksins 1983-1991. Hann
gegndi á þeim ferli sínum fjölda ráð-
herraembætta auk forsætisráð-
herraembættis, en hann var fjár-
málaráðherra 1985-1987,
iðnaðarráðherra 1987 og sjávar-
útvegs-, dóms- og kirkjumálaráð-
herra 1991-1999. Þorsteinn var ekki
nema 52 ára gamall er hann vék af
hinu pólitíska sviði og hélt út til sendi-
herrastarfa. Hann var aðeins 58 ára
er hann hætti þeim störfum og marg-
ir veltu þá vöngum yfir því hvað...
Meira: stebbifr.blog.is
BLOG.IS
GLEÐIN lýsir sér í öllum hreyfingum veiðihundsins
Pílu þar sem hún þeysist eftir ströndinni með gervi-
bráð í kjaftinum. Í blíðunni sem réð ríkjum um
helgina gafst gott tóm til leikja og starfa hjá mönn-
um og ferfætlingum og brá Píla undir sig betri fæt-
inum ásamt eiganda sínum og fékk góða þjálfun. Píla
er af tegundinni labrador retriever.
Eðlið lætur ekki að sér hæða, en það er að sækja
veiðibráð sem hefur verið felld og prúð hlýðir Píla
hverri bendingu frá húsbóndanum.
Píla er rétt að verða tveggja ára og þó að ekki sé
hún fullþjálfuð finnst henni ekkert skemmtilegra í
heiminum en að sækja bráð, raunverulega eða gervi,
og færa eiganda sínum. Fullþjálfuð fær hún að fara
með í veiðitúra og sækja fenginn um langar vega-
lengdir.
Morgunblaðið/Ingó
Prúð Píla sækir gervibráð
FRÉTTIR
„ÞETTA var alveg ótrúlegt. Ég
er búin að eiga miðann síðan árið
1989, en ég valdi fæðingardag
sonar míns á miðann, en aldrei
hefur komið vinningur á hann
fyrr,“ segir Ágústa Rósmunds-
dóttir, en hún varð heldur betur
hissa í síðustu viku þegar henni
var tilkynnt að hún hefði unnið
Lexus GS300, að verðmæti 6,3
milljónir, í happdrætti DAS.
Ágústa segir vinninginn hafa
komið sér mjög á óvart. Hún hafi
spilað með í happdrættinu í 18 ár
án þess að fá vinning. „Svo varð
ég amma í vor og keypti þá miða
fyrir litla guttann og keypti líka
miða og valdi afmælisdaginn
hans. Ég skrifaði svo happdrætt-
inu og spurði hvort það væru
ekki örugglega allir miðar með
vegna þess að ég hafði aldrei
unnið á hinn miðann. Ég fékk
þau svör að það hlyti að fara að
koma að mér og svo kom þessi
vinningur,“ segir Ágústa. Vinn-
ingurinn hafi verið góð afmæl-
isgjöf, en Ágústa varð fimmtug
núna í september.
„Þetta kemur sér vel, en ég hef
verið öryrki síðan 1998 og þetta
munar miklu,“ segir hún. Hún
hugsar sér að selja bílinn og
kaupa sér nýrri jeppling en hún á
núna. Ágústa hyggst halda áfram
að spila í DAS. „Þetta fer í mjög
gott málefni og við eldumst öll,“
segir hún.
Morgunblaðið/RAX
Vinningur Sigurður Ágúst Sigurðsson, forstjóri DAS, afhenti Ágústu lyklana.
„Var alveg ótrúlegt“