Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 29
✝ Karen ElisabethBryde fæddist á
Norðvestur-Sjálandi
í Danmörku 19. nóv-
ember 1912. Hún
lést á Vífilsstöðum
mánudaginn 1. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Christian
Christensen bóndi
og Christine Chris-
tensen húsmóðir.
Karen átti tíu systk-
ini og lifði hún þau
öll.
Karen giftist Claus P.K. Bryde
mjólkurfræðingi, f. 20.2. 1909, d.
30.7. 1985. Þau eignuðust fimm
börn, eitt dó í fæð-
ingu, á lífi eru Bent,
Leif, Inga Anna Lisa
og Axel. Barnabörn-
in eru fimmtán,
langömmubörn tutt-
ugu, og eitt langa-
langömmubarn.
Karen og Claus
stýrðu Mjólkurbúi
Flóamanna frá
1936–1941, og
Mjólkurbúi Hafnar-
fjarðar 1941–1948,
er það var lagt nið-
ur.
Karen verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku amma. Mikið á ég eftir að
sakna þessara vikulegu tebolla sem
við drukkum saman á fimmtudög-
um þegar ég kom með dönsku blöð-
in til þín, þá gátum við spjallað
saman um heima og geima.
Heimsóknir mínar til þín í Dan-
mörku eru ógleymanlegar þar sem
við gátum setið langt fram eftir
kvöldi og talað um hvað sem var og
margar voru þær sögurnar sem þú
sagðir mér um það þegar þú varst
að alast upp ekki svo langt frá bú-
staðnum þínum.
Kæra amma, nú ertu búin að
finna frið eftir 95 góð æviár en mik-
ið sé ég eftir þér.
Þín,
Anna María.
Nokkur orð um ömmu mína eða
ömmu dönsku eins og ég kallaði
hana.
Þegar ég var um 9 ára ferðaðist
ég alein til Danmerkur, til ömmu og
afa í sumarhúsið að eyða sumrinu
og í mörg sumur þar á eftir. Þvílíku
dekri og dúlleríi hafði ég aldrei
kynnst, fór út grá og grindhoruð en
var víst nánast óþekkjanleg í lok
sumars! kaffibrún og sældarleg,
enda hvernig átti annað að vera.
Amma bakaði ný brauð á hverjum
morgni og með því fékk maður að
sjálfsögðu „hjemmelavet syltetøj“
og nýtínd jarðarber með rjóma eins
og ég gat í mig látið.
Matvandari krakki var sjálfsagt
vandfundinn, en amma eldaði bara
handa mér það sem hún vissi að
mér þætti gott. Þó að það hnussaði
stundum í afa yfir öllu dekrinu var
hann ekkert skárri og leyfði mér
jafnvel að setja rúllur í hárið á sér
ef mér datt í hug að fara í hár-
greiðsluleiki og þau þræluðust með
mér allt sem mig langaði að fara; á
ströndina, í bæjarferðir, skógar-
göngur o.fl. þrátt fyrir að vera bæði
komin yfir sjötugt.
Ég var svo heppin að vera með
þeim öll fyrstu sumrin sem þau
voru í litlu paradísinni í Ordrup,
ekkert sjónvarp svo að það var farið
í göngu á hverju kvöldi til Kristjáns
bróður ömmu og Astridar konu
hans að horfa á fréttirnar og veðrið.
Amma var sífellt bakandi bollur og
eldandi mat, þannig muna flestir
hana eflaust enda óviðjafnanlegur
kokkur og nýbökuðu bollurnar
hennar himneskar.
Svo datt okkur systrum í hug að
heimsækja ömmu þegar ég var
ólétt að frumburðinum til að slappa
pínu af … ekki aldeilis, varla lentar
þegar amma var búin að bóka okk-
ur allar í rútuferð til Þýskalands
með danskri vinkonu sinni, eintóma
menningarferð til að sjá hvernig
austurhlutinn liti út rétt eftir að
Berlínarmúrinn var felldur, síðan á
bakaleið eftir 23 klukkutíma í rútu
var sú gamla alveg með á hreinu
hver héldi á líkjörasafninu, sem hún
hafði keypt tollfrjálst í ferjunni, í
gegnum tollinn! Nú, þessi ólétta
auðvitað! Það varð alltaf að vera
eitthvað til handa gestum sem voru
mjög tíðir í litla sumarhúsinu. Það
var sama hvort hún tók á móti
barnabörnum að koma veðurbörð-
um af Hróarskeldu eða heilu fjöl-
skyldunum til að vera í lengri tíma,
allir fengu bestu mögulegu mót-
tökur og áttu að vera sem lengst.
Allir ættingjar í Danmörku voru
boðnir og búnir hvenær sem var að
liðsinna ömmu, keyra hana þar sem
hún keyrði aldrei bíl, dytta að sum-
arhúsinu eða hvað sem er þegar
hún þurfti á að halda enda launaði
hún alltaf vel í mat og drykk.
Amma lifði góða ævi og fannst
hún ríkust í heimi af barnabörnum
og langömmubörnum sem hún hélt
mikið upp á, hún laðaði að sér öll
börn alls staðar enda leið öllum vel í
návist hennar.
Kveðja,
Unnur Lára.
Elsku besta amma Karen.
Þessa dagana streyma fram
minningar um þig, elsku amma. Við
systkinin erum lánsöm að hafa átt
þig að svona lengi og upplifað
margar skemmtilegar stundir með
þér.
Fyrstu minningarnar sem koma
upp í hugann tengjast sumarhúsinu
í Ordrup þar sem við systkinin
dvöldum nokkur sumur með þér,
kynntumst dönskum ættingjum
okkar og urðum nokkuð sleip í
dönskunni. Verslunarferðirnar til
Asnæs í strætó og þú alltaf með
maríuhænuna með þér, innkaupa-
kerruna kostulegu.
Sumarhúsið í Ordrup var sann-
kallaður sælureitur með jarðarberj-
um, hindberjum og perum í garð-
inum. Allt í umhverfi þínu fékk
notið alúðar þinnar; fólkið þitt,
gróðurinn og dýrin eins og rebbi
sem alltaf átti vísan kvöldverð sem
þú skildir eftir handa honum í garð-
inum... enda varð hann hændur að
þér eins og við systkinin.
Skrýtið hversu sterkt maður
finnur bolluilminn í minningunni.
Engum hefur tekist að baka boll-
urnar þínar sem allir voru svo
sólgnir í. Við systkinin eigum þó
væntanlega eftir að leggja okkur
fram um að ná tökum á því á næst-
unni.
Þú hefur alltaf staðið við bakið á
okkur systkinunum og hlúðir vel að
okkur þegar mamma féll frá. Við
vorum lánsöm að eiga ykkur Ásu
ömmu að á þeim erfiða tíma.
Við kveðjum þig með sárum
söknuði, amma, en vitum að afi og
mamma taka vel á móti þér. Í huga
okkar ertu fyrirmynd hins góða,
amma din.
Þín barnabörn.
Ása, Kristín, Páll
og Inga Axelsbörn.
Elsku besta amma Karen mín.
Ég var voðalega sorgmæddur
þegar mamma sagði mér að þú vær-
ir farin til Guðs og til Victoríu
ömmu.
En ég er ég svo glaður að hafa
kynnst þér svona vel, eignast svona
margar skemmtilegar minningar
um þig, og hafa farið til Dan-
merkur í sumarbústaðinn þinn.
Ég var rétt svo farinn að tala
þegar ég komst að því að ég gat
brætt þig með því að tala um brúnu
augun mín við þig og segja þér að
ég væri sko eins og þú, Axel afi og
mamma. Þú varst alltaf svo stolt og
glöð þegar ég minntist á það við
þig.
Ég hitti þig síðast í sumar, bara
nokkrum dögum áður en þú varðst
svona veik, þá kom ég með Axel afa
og ég lá uppí rúmi hjá þér og ég
knúsaði og kyssti þig svo mikið.
Ég er svo ánægður með að hafa
átt svona góða síðustu stund með
þér, amma mín.
Takk fyrir allt, elsku amma mín.
Þinn,
Axel „litli“.
Karen Elisabeth Bryde
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
✝
Okkar ástkæri
SIGURÐUR SIGVALDASON
húsasmíðameistari
frá Grund á Langanesi,
Hrauntungu 10,
Kópavogi,
lést að kvöldi miðvikudagsins 3. október á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Jarðaförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 10. október kl. 13.00.
Rósa Ingibjörg Oddsdóttir,
Oddur Magni Guðmundsson, Auður Finnbogadóttir,
Hólmar Ingi Guðmundsson, Tina Dalum,
Elma Bjarney Guðmundsdóttir, Þorgils Björgvinsson,
barnabörn og langafabarn.
✝
Innilegar þakkir fyrir aðstoð og samúð vegna
veikinda og andláts eiginkona minnar, móður
okkar, ömmu, tengdamóður og systur,
ÁSDÍSAR STEINGRÍMSDÓTTUR,
Framnesvegi 27,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar Karitas og
starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi.
Guðmundur Pétursson,
Bergljót Björg Guðmundsdóttir,
Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson,
Sigurður Árni Steingrímsson,
Halla Björg Sigurþórsdóttir,
Sindri Már Steingrímsson,
Guðmundur Páll Sigurþórsson,
Sveinn Haraldsson,
Rósa Margrét Steingrímsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR INGÓLFSDÓTTUR,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalar-
heimilinu Hlévangi, Keflavík, fyrir frábæra umönnun
og einstaka hlýju við hana og okkur.
Guð blessi ykkur öll.
Magnús Haraldsson, Sigurbjörg Halldórsdóttir,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Hinrik Sigurðsson,
María S. Haraldsdóttir, Sigmundur Ó. Steinarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RUTH JÓNSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
áður Sólvöllum,
Innri Akraneshreppi,
sem lést fimmtudaginn 4. október, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn
12. október kl. 14.00.
Elín Kolbeinsdóttir, Guðbjörn Ásgeirsson,
Þorgeir Kolbeinsson, Hrönn Hjörleifsdóttir,
Guðfinna Valdimarsdóttir, Sigurður Hauksson,
Ingólfur Valdimarsson, Guðný Sjöfn Sigurðardóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR INGÓLFSSON,
Laugarásvegi 58,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum sunnudaginn
7. október.
Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn
15. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krýsuvíkursamtökin,
banki 545-26-991 og kt. 560991-1189.
Sigríður Einarsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Anna Margrét Jónsdóttir,
Rósa Guðmundsdóttir,
María Guðmundsdóttir,
Jón Einar og Margrét Rós Guðmundsbörn.
✝
ÁRSÆLL EIRÍKSSON,
áður til heimilis á Mel
í Blesugróf,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 4. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
12. október kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Finna B. Steinsson.