Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ AðalsteinnHelgason fædd-
ist í Hnausakoti í
Miðfirði 15. október
1925. Hann lést á
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 30. septem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Helgi Jónsson, f.
1884, d. 1965 og
Ólöf Jónsdóttir, f.
1880, d. 1969. Systk-
ini hans eru Ólafur
Jóhannes, f. 1909, d.
1999; Jón, f. 1910, d. 2000; Guðrún,
f. 1911, d. 2005; Marinó Ragnar, f.
1913, d. 1991; Jóhann, f. 1914, d.
2001; Ólöf, f. 1918 og Björn, f. 1921.
Aðalsteinn kvæntist Sonju Sjöfn
Albertsdóttur, f. 11.10. 1933. Börn
þeirra eru: a) Albert Rúnar, f.
Aðalsteinn var húsgagna-
smíðameistari frá Iðnskólanum í
Reykjavík. Hann rak eigið hús-
gagnaverkstæði um árabil og
var prófdómari við Iðnskólann í
mörg ár. Eftir að hann hætti eig-
in rekstri starfaði hann hjá J.P.
innréttingum í 12 ár. Haustið
1979 tók hann við starfi sem um-
sjónarmaður húseigna við
æfingaskóla Kennaraskóla Ís-
lands og gegndi því starfi til sjö-
tugs. Aðalsteinn tók virkan þátt í
félagsstörfum. Hann var for-
maður Húnvetningafélagsins í
mörg ár og heiðursfélagi þess.
Hann sat í sóknarnefnd Háteigs-
kirkju og söng í kirkjukórnum
frá upphafi. Skógrækt var
brennandi áhugamál Aðalsteins
og aflaði hann sér traustrar
þekkingar á trjárækt, sem hann
beitti með góðum árangri í Mið-
firði.
Útför Aðalsteins verður gerð
frá Háteigskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
30.11. 1950, d. 21.11.
2006. b) Helgi, f. 23.3.
1954, d. 25.12. 2006,
kvæntur Kristínu
Sigríði Óskarsdóttur,
f. 11.11. 1960, börn
þeirra eru Að-
alsteinn Óskar og
Aníta Tara. c) Ólafur
Ísfeld, f. 1.8. 1964,
kona hans er Betty
Aðalsteinsson, f.
16.6. 1943, dóttir
þeirra er Parris.
Aðalsteinn og Sonja
skildu.
Seinni kona Aðalsteins er Signý
Þórkatla Óskarsdóttir, f. 19.5.
1930. Börn hennar og fósturbörn
Aðalsteins eru Sigríður Ósk, f.
17.12. 1956; María Jóna, f.
15.3.1960, d. 3.2 2003 og Þorkell, f.
26.5. 1961.
Aðalsteinn föðurbróðir minn var
hæglátur maður og kurteis í allri
framgöngu. Hreyfingar hans voru
settlegar og dálítið straumlínulaga.
Hann var völundur í höndum, frem-
ur hægvirkur en fataðist hvergi og
þurfti aldrei að bæta um betur. Inn-
an við tvítugt sá hann um smíði kjall-
arans í Hnausakoti sem foreldrar
mínir byggðu og þá kom verklagni
hans glöggt í ljós og næmt auga fyrir
vönduðu handverki. Eftir að hús-
gagnasmiðurinn Aðalsteinn stofnaði
heimili í Reykjavík kom fjölskyldan
gjarnan í sumarheimsókn í Miðfjörð-
inn og þá komu handtök hans sér vel.
Skólastráknum að norðan gaf Aðal-
steinn síðar skrifborð, stól og dívan
og svefnsófa þegar varanleg sambúð
kallaði á tvíbreidd.
Atvik höguðu því svo að um árabil
vorum við frændur samstarfsmenn í
Æfingaskóla Kennaraháskólans þar
sem hann var umsjónarmaður hús-
eigna. Samskipti við nemendur á við-
kvæmum aldri geta boðið ýmsum
hnökrum heim. En aldrei vissi ég til
þess að Aðalsteinn lenti í útistöðum
við nemendur, þvert á móti gerði
hann sér far um að kynnast þeim og
hann ræddi við þá af virðingu og
sanngirni. Stundum mátti sjá hann
sitja að tafli við ögn óstýriláta pilta
sem hvesstu augun á skákborðið og
högguðust hvergi enda mikið í húfi
að vinna húsvörðinn og þurfti dálítið
til.
Ég er þess fullviss að margir nem-
endur skólans minnast kynna við
hann af virðingu og þökk. Fyrir
stjórnendur skólans var samband
hans við nemendur ómetanlegt.
Aðalsteinn varði mestum hluta
starfsævi sinnar sem húsgagnasmið-
ur og rak eigið verkstæði um árabil.
Á síðari árum varð trjárækt hugð-
arefni hans og hann lét þess ein-
hvern tíma getið að hann vildi skila
móður náttúru til baka nokkru af
gjöfum hennar sem hann hefði nýtt
sem smíðavið.
Ásdísarlundur er útivistar- og
trjálundur í eigu kvenfélagsins í
Miðfirði. Konurnar gerðu samning
við Aðalstein um að hann hirti um
lundinn og fékk hann Hafþór frænda
sinn frá Neðra Núpi til liðs við sig.
Eftir að heilsu Aðalsteins hrakaði
fyrir nokkrum árum slóst ég í hópinn
og tók Þórð Helgason félaga minn
með. Við frændur urðum þó ásáttir
um að bjóða honum fyrst sem gesti
til sjá hversu hann dygði, en að lok-
inni þeirri prófraun fékk hann fulla
aðild að þeim þrönga frændhópi
karla sem þjónar kvenfélaginu í
þágu Ásdísarlundar. Að loknu dags-
verki í lundinum slógum við upp
veislu í náttstað. Þar var feitt hangi-
ket í mestum metum. Við snæddum
án mikilla orðaskipta en sýndum vel-
þóknun okkar með því að gera matn-
um góð skil.
Eitt af síðustu verkum Aðalsteins
á liðnu sumri var að gefa Ásdísar-
lundi trjáplöntusafn sem á að mynda
fræðslulund fyrir áhugasama rækt-
endur framtíðarinnar.
Ekki verður lífshlaup Aðalsteins
rakið hér. Hann var fáorður um eigin
hag, birti gleði sína í svipmóti og fasi
en bar harm sinn í hljóði þegar svo
skipuðust veður.
Að leiðarlokum þökkum við Mar-
grét frænda mínum fyrir langa sam-
fylgd og vináttu. Signýju og afkom-
endum Aðalsteins vottum við
einlæga samúð. Blessuð sé minning
hans.
Ólafur H. Jóhannsson.
Það má telja það einkennilegan sið
að þakka þeim sem gengnir eru sam-
fylgdina í lífinu með greinarkorni í
blaði, en ef ekki hefur verið fullþakk-
að, þá vil ég færa Steina föðurbróður
þakkir fyrir margar góðar endur-
minningar honum tengdar. Minning-
ar er spanna meira en hálfa öld.
Fyrst frá Heiðargerði 24, íbúðarhús-
inu sem Steini reisti, þar sem ég er
að negla saman afsag sem átti að
breytast í bíl. Síðar koma minningar
af verkstæði er Steini kom upp á lóð-
inni. Þar er ég staddur og hef fengið
verkefni, og er talin trú um að gagn
væri að. Þannig liðu æskuárin með
Heiðargerðið sem þátt í tilverunni.
Vik varð milli vina er ég flutti
norður í Miðfjörð og hóf búskap, þótt
ekki slitnaði þráðurinn. Hann var
aftur tekinn upp fyrir rúmum 20 ár-
um er Steini fékk svolítinn blett hér í
Huppahlíð til trjáræktar. Með því
vildi hann heiðra minningu Ólafar
móður sinnar, en hún hafði sagt hon-
um frá því að í brekkunni sem tekin
var til trjáræktar hefði hún tínt blá-
ber sér til gagns og ánægju. Eftir að
trjáræktin hófst var koma Steina ár-
viss vorboði. Hann kom á Lödunni
með kerru með gulri ábreiðu í eft-
irdragi og í henni var ungviði sem
átti að festa rætur í Miðfirði. Rækt-
unarstarfið fór hljóðlega fram og af
mikilli hógværð. Allt var vel hugsað
og vandað. Reglurnar voru einfald-
ar; farðu þér hægt, hugsaðu málið
vel og vandaðu það sem þú gerir. Ár-
angurinn var góður, afföllin lítil og
nú hefur ungviðið sem upp úr kerr-
unni kom sýnt að lengi býr að fyrstu
gerð. Með trjáræktinni fylgdu önnur
samskipti og eru mér stundirnar yfir
morgunkaffinu minnisstæðar. Þar
voru umræður um landsins gagn og
nauðsynjar á dagskrá og vorum við
Steini sammála um að vera ekki allt-
af sammála um hvað myndi best
gagnast til að gera þjóðfélagið betra.
Þannig liðu árin og nú skilur leiðir.
Dauðinn var í þínum huga ekki kvíð-
vænlegur, ekki frekar en að leggjast
til svefns að kvöldi eftir annasaman
dag.
Ég þakka samfylgdina og vil í lok-
in segja smá sögu er þú sagðir mér.
Rétt fyrir stríð varst þú, unglingur-
inn, ráðinn á bæ í Miðfirði til að gæta
fjár. Tíðarfar var gott og ærnar látn-
ar út á morgnana og beitt allan dag-
inn, svo lítið þurfti að gefa. Leið svo
nokkur tími og þá bar gest að garði,
sem var Jóhannes frændi þinn frá
Huppahlíð. Honum var boðið í bæinn
og eftir góðgerðir fór hann að ræða
við þig um fjármennskuna. Hann,
reyndur bóndi, ræddi við þig sem
jafningja, þótti þér það upphefð. Ein
spurning sem hann lagði fyrir þig
var sú, hvort eldri ærnar vildu ekki
leggjast of fljótt, og ef svo væri þá
gerðir þú rétt að hygla þeim, því ekki
bitu þær meðan þær lægju og gætu
því misfarist. Þetta skyldir þú at-
huga. Það gerðir þú og varst frænda
þínum ævinlega þakklátur fyrir ráð-
gjöfina og hvernig hún var borin
fram.
Ég segi þessa sögu sem dæmisögu
fyrir okkar samskipti. Í minningunni
finnst mér þú frá upphafi hafa talað
við mig sem jafningja og það sem ég
hef af þér lært hafi verið numið á
þann hátt að maður tók ekki eftir
fyrr en maður hafði tileinkað sér
það. Hafðu þökk fyrir.
Samúðarkveðjur sendi ég að-
standendum.
Helgi Björnsson, Huppahlíð.
Mig langar að minnast í örfáum
orðum vinar míns Aðalsteins Helga-
sonar frá Hnausakoti. Ég kynntist
Aðalsteini fyrst fyrir um það bil 40
árum og hef ætíð síðan átt við hann
góðan félagsskap. Ég var þá við nám
í húsgagnasmíði en Aðalsteinn í
prófnefnd þar.
Í útskriftarhófi að prófi loknu
fylgdi Aðalsteinn hinum nýútskrif-
uðu iðnaðarmönnum úr hlaði með
nokkrum orðum. „Tveir menn voru
að ganga frá súð á þaki og skyldi síð-
an klæða yfir með bárujárni. Eitt-
hvað mistókst snið og féll ekki sem
skyldi. Þá sagði annar: – Þetta er nú
allt í lagi, það sér þetta ekki nokkur
maður þegar járnið er komið yfir. –
En Guð sér það, sagði þá hinn.“
Með kynnum mínum af Aðalsteini
gegnum árin hefur mér fundist sem
hann hafi fylgt þessu heilræði betur
en margir aðrir. Allt sem hann fram-
kvæmdi var vandlega undirbúið og
síðan framkvæmt af stakri natni og
samviskusemi, sama þó klætt væri
yfir.
Aðalsteinn starfaði lengi að mál-
efnum Húnvetningafélagsins í
Reykjavík og gegndi hann þar for-
mennsku um árabil. Með sinni hóg-
væru framkomu, útsjónarsemi og
ósérhlífni tókst honum vel að fá fólk
til liðs við félagið. Aðalsteinn var
mikill ræktunarmaður með skóg sem
sérgrein. Aflaði hann sér mikillar
þekkingar á þessu sviði með lestri og
námskeiðasetu. Það var því ekki lán-
laust fyrir Húnvetningafélagið að fá
svona liðsmann. Þórdísarlundur í
Vatnsdal, sem félagið hefur átt síðan
1950 hefur notið ómældra krafta
hans. Árlegar vinnuferðir þangað
með Aðalsteini ásamt fleira góðu
fólki er hreint ekki lítill partur af til-
verunni sem fjölskylda mín öll vill
þakka.
Fáir kunnu betur að meta nýjan
silung úr Arnarvatni en Aðalsteinn.
Jóhann bróðir hans fullyrti í mín
eyru að þar væri besti silungur í
heimi. Þegar Aðalsteinn heyrði það
bætti hann í og sagði, „þó víðar væri
leitað“. Eftir svona athugasemdir
kom ævinlega sérstakur og svolítið
strákslegur kímnisglampi í andlit
Aðalsteins.
Þó ætla megi að í nýjum heim-
kynnum Aðalsteins sé flest sem við-
kemur gróðri og umhverfi í góðu lagi
trúi ég að hann muni með lagni færa
eitt og annað til enn betri vegar.
Við Matthildur sendum Signýju
og öðrum aðstandendum innilegar
samúðarkveðjur.
Ingimundur Benediktsson.
Aðalsteinn fór ekki hratt yfir.
Hlaup og asi var ekki hans stíll. Þeg-
ar við hófum störf við Æfingaskóla
Kennaraháskólans var hann hús-
vörður þar á bæ. Hæglátur, íhugull
og setti spurningarmerki við allt. Við
þrír náðum strax góðu sambandi,
sennilega vegna þess að allir áttum
við rætur að rekja til landsbyggð-
arinnar þótt sitthver sýslan væri.
Verk sín vann hann vel og nákvæm-
lega en stundum varð forgangsröð
hans ekki sú hin sama og aðrir
væntu, hvað þá hversu fljótt verkið
var unnið. Húsverðir mæðast í
mörgu en Aðalsteinn lét fátt trufla
sig. Ef þurfti að biðja Aðalstein um
viðvik var best að setjast niður, taka
lífinu með ró. Ræða við meistarann
um helstu stefnur og strauma í upp-
eldis- og menntamálum, viðra hug-
myndir um bestu aðferðir til þess að
fá tré til að þrífast og dafna, áður en
erindið var borið upp. Þá fór allt vel.
Aðalsteinn var afskaplega vænn við
börnin í skólanum og vildi þeim vel,
einnig hafði hann yndi af að ræða
skólamál og hlúa að trjágróðri en
snjómokstur þótti honum oft þarf-
laust og innantómt verk sem mátti
bíða.
Hann stundaði viðamikla trjárækt
í heimasveit sinni og vildi því hemja
sauðfé innan girðingar öndvert við
marga samtímarmenn sína. Sam-
hliða uppeldi á börnum í skólanum
var rekin umfangsmikil gróðurstöð í
kjallaraherbergi í skólanum, þar réð
Aðalsteinn ríkjum. Ungviðið í kjall-
araherberginu voru skógarplöntur
sem voru þar að styrkjast og dafna
svo þær mættu verða að trjám í
Húnavatnssýslu. Plönturnar höfðu
allan forgang. Það er alllangt síðan
við þrír áttum góða stund saman. Þá
vorum við í okkar árlegu hunda-
hreinsun, höfðum bankað uppá hjá
Aðalsteini. Svo mergjaðar voru lýs-
ingar Aðalsteins á landgæðum
Húnavatnssýsla að okkur fannst við
sjá þær út um eldhúsgluggann þarna
í Háteigshverfinu. Megi Aðalsteinn
hvíla í friði og allar hans trjáplöntur
dafna vel.
Andrés og Gísli.
Aðalsteinn Helgason
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæra föður,
tengdaföður og afa,
HALLDÓRS EYÞÓRSSONAR,
Syðri-Löngumýri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Blönduóss.
Birgitta Hrönn Halldórsdóttir,
Sigurður Ingi Guðmundsson,
Halldór Ingi Sigurðsson,
Guðbjörg Pálína Sigurðardóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT JÓNA JÓNSDÓTTIR,
Heiðarvegi 24,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík,
föstudaginn 5. október.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
12. október kl. 14.00.
Jóhann Björn Dagsson,
Dagbjartur Björnsson,
Valur Björnsson, Erla Guðjónsdóttir,
María Björnsdóttir, Svavar Sædal Einarsson,
Ingiþór Björnsson, Regína Rósa Harðardóttir,
Bjarnveig Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hofsvallagötu 22,
lést á heimili sínu laugardaginn 29. september.
Útför hennar fer fram í Fossvogskapellu
þriðjudaginn 9. október kl. 15.00.
Sigurjón Guðmundur Jóhannesson,
Áslaug Sigurjónsdóttir, Sigurður Ólafsson,
Jakob Sigurðarson, Helga Sjöfn Magnúsdóttir,
Jóakim Snær Sigurðarson,
Sigrún Sif Sigurðardóttir
og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma,
KRISTJANA HARÐARDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnu-
daginn 7. október.
Jarðaförin verður gerð frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 15. október kl. 13.00.
Friðrik Ottó Ragnarsson,
Ágúst Birgir Friðriksson,
Hörður Ottó Friðriksson,
Laufey Friðriksdóttir
og barnabörn.