Morgunblaðið - 09.10.2007, Page 9

Morgunblaðið - 09.10.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 9 www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Fallegar peysur úr 100% bómull Str. M-4XL Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Kuldinn kemur Úrval af yfirhöfnum Nýtt frá Stuðningsbelti fyrir mitti og bak Fæst í svörtu og hvítu Verð kr. 4,900.- Póstsendum Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 haust Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið virka daga kl.10-18 Opið laugardag í Bæjarlind kl. 10-16 – Eddufelli kl. 10-14 Str. 36-56 Hnepptar peysur Póstverslun fyrir hannyrðavini Nýi haust- og jólalistinn er kominn Sími 533 5444 • Netfang: altex@altex.is • Altex ehf • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík Pantiðókeypiseintak! M b l 9 18 16 1 15% afsláttur af 140D stuðnings- sokkum og sokka- buxum frá Delilah Sendum í póstkröfu Elísabet kynnir hina frábæru þægindabrjósta- haldara kl: 14.00-17.00 15% afsláttur Kynning Tilboðsdagar í Sjúkravörum ehf. áður verslunin Remedia, í bláu húsi v. Faxafen, sími 553 6511 Opið 11-18 virka daga 10% afsláttur af amerískum sjúkra- skóm frá NURSE MATES M bl .9 19 54 8 Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík Sími 562 2862 STÓRGLÆSILEGT KÁPU OG ÚLPUÚRVAL Laugavegi 63 • S: 551 4422 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is „ÓFYRIRSÉÐUR kostnaður vegna Kárahnjúkavirkjunar er nú mun hærri en Landsvirkjun gerði ráð fyr- ir, vegna taps á orkusölu og hugsan- legrar kröfu Alcoa Fjarðaáls um skaðabætur vegna tafa á afhendingu orku, auk ófyrirséðs kostnaðar vegna endurhönnunar á stíflu og borun aðrennslisganga,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruvernd- arsamtaka Íslands. Haft var eftir Sigurði Arnalds hjá Landsvirkjun í Morgunblaðinu sl. föstudag að reiknað væri með að afl- vélar Kárahnjúkavirkjunar gætu all- ar verið komnar í gang um áramót. Það þyrfti þó að gerast í samhengi við það hversu hratt álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði gæti gang- sett öll ker hjá sér. Ákveðinn fjöldi kera verður gangsettur í hverri viku „Þetta þýðir á mannamáli að Alcoa geti ekki tekið við öllu rafmagninu frá Kárahnjúkavirkjun um leið og allar vélar fara í gang, heldur er ákveðinn fjöldi kera gangsettur í hverri viku, um fjögur ker á dag. Heildarfjöldi kera í álveri Alcoa er 336. Fjörtíu og tvö ker hafa þegar verið gangsett með orku annars staðar frá. Þá eru eftir 294 ker og séu fjögur gangsett á dag tekur 73,4 daga að gangsetja þau, sem gerir 10,5 vikur. Reiknað frá áramótum ættu öll kerin að vera komin í gang 11. febrúar, gangi allt að óskum. Það er fimm mánuðum síðar, en áætlað var að Alcoa hæfi fulla framleiðslu í þessu mánuði.“ Seinkun framkvæmda 15% Árni gerir einnig athugasemdir við orð Sigurðar í Morgunblaðinu á mánudag, þar sem haft er eftir hon- um að það að koma öllum vélum virkjunarinnar í gang um áramót í staðinn fyrir október telji Lands- virkjun ekki mikið miðað við fimm ára verktíma. „Sigurður rennur hér undan af sinni alkunnu snilld. Engin vél er komin í gang enn fyrir vatns- afli, en áætlað var að sú fyrsta yrði gangsett í apríl s.l. og síðan hver af annarri þar til allar vélarnar yrðu komnar í gang í október með fullum afköstum. Þannig gæti Alcoa Fjarðaál gangsett kerin hvert af öðru. Seinkunin nemur því ekki tveimur mánuðum, þ.e. nóvember og desember, líkt og Sigurður Arnalds gefur í skyn, heldur allt að níu mán- uðum. Landsvirkjun er að tapa orku- sölu frá virkjuninni alla þessa mán- uði. Miðað við 5 ára framkvæmda- tíma er það 15% seinkun“ segir Árni Finnsson. „Tapar orkusölu í allt að níu mánuði“ Ófyrirséður kostnaður virkjunar hærri en gert var ráð fyrir, segir Árni Finnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.