Morgunblaðið - 09.10.2007, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● FORSTJÓRASKIPTI urðu í gær hjá
Borgun hf., áður Kreditkortum hf.,
sem er helsti samstarfsaðili Master-
Card á Íslandi. Ragnar Önundarson
hættir um næstu áramót og við starfi
hans sem forstjóri tekur Haukur
Oddsson, sem var framkvæmda-
stjóri Viðskiptabankasviðs Glitnis á
Íslandi þar til síðastliðið vor. Haukur
tekur strax til starfa.
Ragnar segir tildrögin þau að fram-
undan séu breytingar á starfsem-
inni og markaðnum sem kalli á nýja
stefnu. „Ég sé þörf fyrir að sá sem
leiðir félagið á næstunni hafi nýja
reynslu og þekkingu að færa félag-
inu. Þannig var ég fyrir rúmum 9 ár-
um þegar ég kom að þessu en ég get
ekki leikið það hlutverk aftur núna á
sama vettvangi. Ég lít ánægður yfir
farinn veg og fæ góðan umþóttunar-
tíma sem nýtist til að sinna öðrum
hugðarefnum,“ segir Ragnar.
Haukur forstjóri
)
*
*
(
+,-
./ 0
1
#
()*$ +
"
)
(
(
(
(%
%( %(
(
( (
(
(
(
%( (
(
( %(
(
( (
%%(
(
(
(
( (
6 -
. 3(
!
72& ,&!8
" 3
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
5
. 3(
-
-
-
-
-
-
9!( !
. .
,-./0
" "/$.
(& : & 3;#
<.5 : & 3;#
1=(;#
+: & 3;#
:( 2 ;#
6#13#>!
?@ : & 3;#
" 30 !2 ;#
+ 2 ;#
*&@
;& ;#
( -< /
/ #2;#
7A;#
B ;#
1
&
-23) $
;#
#@;#
( (@C( & C
1<
!: & 3;#
D &A<
?@ @: & 3;#
* ;#
E4; ;#
7 A!! ! (5 ;#
F (5 ;#
,
$4
$!25
G ( A G&
6<: ;#
63 ;#
H*I6
H*I7
#
) (
) (
J
J
H*I8
9<I
#
) (
) (
J
J
9&KL&
EM
#
#
) (
* (
J
J
71
9I
#
#%
) (
) (
J
J
H*I: H*I4
#
#
* (
) (
J
J
ÞETTA HELST ...
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísi-
talan hækkaði um 0,35% í 8.528
stig. Mest hækkun varð á hlutabréf-
um í Icelandair, um 3,25%, í Exista
um 1,98% og í Atorku um 1,97%.
Mest lækkun varð á bréfum Marels,
um 2,55% og Atlantic Petrolium, um
1,76%. Mest viðskipti voru með bréf
Kaupþings, sem námu tæplega 3,5
milljörðum króna.
Hækkun í Kauphöll
● JEAN-Claude
Trichet, seðla-
bankastjóri Evr-
ópu, sagðist í
gær ekki sjá það
fyrir sér að EFTA-
ríki eins og Ísland
gæti tekið upp
evruna án þess
að ganga í Evr-
ópusambandið.
„Þátttaka í því
starfi án þess að eiga aðild að
Evrópusambandinu er algerlega úti-
lokuð,“ sagði Trichet á opnum fundi
þegar íslenskur embættismaður
spurði hvort hann sæi möguleika á
að Ísland tæki upp nánari tengsl við
evrusvæðið.
„Varðandi Ísland, þá segi ég:
Gangið í Evrópusambandið, ég held
að það væri best,“ bætti Trichet við.
Verða að ganga í ESB
Jean-Claude
Trichet
● LANDSBANKINN er ekki eini bank-
inn sem orðaður er við kaup á írska
fjármálafyrirtækinu Irish Nation-
wide. Í frétt frá Reuters kemur fram
að írski hluti breska bankans HBOS
og fjárfestingarsjóðurinn Quinlan Pri-
vate séu einnig að íhuga að leggja
fram kauptilboð. Þá segja írskir fjöl-
miðlar að GE Money, sem er í eigu
General Electric, sé meðal hugs-
anlegra kaupenda. Talið er að Irish
Nationwide muni verða seldur fyrir
verð á bilinu 1 til 1,5 milljarða evra.
Áhugi á kaupum á IN
UM árabil hefur Wal-Mart versl-
anakeðjan verið með valdamestu að-
ilum á bandarískum smásölumark-
aði, ef ekki sá valdamesti. Með því
að leggja áherslu á lágt vöruverð og
hraða og stanslausa stækkun fyr-
irtækisins hefur Wal-Mart breyst úr
lítilli keðju lágvöruverðsverslana í
Arkansas í verslunarveldi sem hefur
bein áhrif á stærsta hagkerfi heims.
Í nýrri grein í The Wall Street
Journal er þeirri spurningu hins
vegar velt upp hvort gullöld Wal-
Mart sé á enda runnin, hvort upp-
skriftin sem fyrirtækið hefur starf-
að eftir undanfarin 40 ár sé orðin
úrelt.
Wal-Mart nýtti sér á afar áhrifa-
ríkan hátt svokallaðan virðishring,
þar sem verðlækkanir skila sér í
aukinni sölu og hagnaðurinn af
henni er nýttur til að fjármagna
frekari verðlækkanir. Þessi hringur
skilar hins vegar ekki þeim árangri
sem hann gerði áður. Á tímabilinu
1995-2005 jókst sala í Wal-Mart
verslunum að meðaltali um 5,2% á
ári, en það sem af er þessu ári hefur
sala hins vegar aðeins aukist um
1,3%.
Í greininni segir að kaupákvarð-
anir bandarískra neytenda ráðist í
sífellt meiri mæli af gæðum og þæg-
indum í stað verðs. Fólk sé ekki
lengur jafnviljugt til að leggja krók
á leið sína til að versla í stórmarkaði
Wal-Marts. Þá er forskot Wal-Marts
á keppinautana hvað verð varðar
ekki eins mikið og áður var. Aðrar
verslanakeðjur hafa tekið upp, og
jafnvel betrumbætt, sparnaðar-
aðferðir í anda Wal-Mart.
Gullöld Wal-Mart
á enda runnin?
Eftir Soffíu Haraldsdóttur
soffia@mbl.is
SKELJUNGUR hf. hefur verið tekinn til sölu-
meðferðar hjá Glitni en bankinn annast ekki ein-
ungis sölu Skeljungs heldur hefur jafnframt
tryggt söluna þannig að ef ekki fæst tiltekið verð
fyrir félagið þá leysir bankinn það til sín. Þetta
viðmiðunarverð fékkst ekki gefið upp.
Samkomulagið er þó gert með fyrirvara um nið-
urstöðu áreiðanleikakönnunar, sem gerð verður á
næstu vikum. Í kjölfarið mun Glitnir hefja við-
ræður við áhugasama fjárfesta en greint verður
frá niðurstöðum þeirra viðræðna þegar þær liggja
fyrir. Skeljungur er í eigu Uppsprettu eignar-
haldsfélags, sem aftur er í eigu Fons hf.
Rétta augnablikið til að selja
Pálmi Haraldsson er annar eigenda eignar-
haldsfélagsins Fons. Hann segir tvær megin-
ástæður fyrir sölu Skeljungs.
„Ég tel að þetta sé rétta augnablikið til að selja
gott félag. Tilgangur Fons er að kaupa fyrirtæki,
vinna að þeim og selja aftur. Skeljungur er stórt
og gott félag byggt á traustum grunni með mikinn
mannauð og með kaupunum í Færeyjum hefur
Skeljungur skapað sér mikla sérstöðu,“ segir
Pálmi um fyrri ástæðuna og telur hann nú tíma-
bært að aðrir taki við rekstri fyrirtækisins.
Hin ástæðan segir Pálmi að vegi ekki síður
þungt: „Ég er að fást við mörg stór verkefni er-
lendis og maður kemst ekki yfir allt,“ segir hann
án þess að vilja fara nánar út í það sem er í píp-
unum.
Pálmi vill ekkert gefa upp um söluverð sem sóst
verður eftir fyrir Skeljung en hann er fullviss um
að margir muni sýna Skeljungi áhuga. Enda sé
ekki einungis um að ræða reksturinn sjálfan held-
ur allar lóðir og fasteignir félagsins, bæði á Íslandi
og í Færeyjum, auk olíuskips. Skeljungur rekur
hátt í 100 verslanir og þjónustustöðvar um allt
land auk þess sem dótturfélagið Bensínorkan á
rúmlega 20 Orkustöðvar í landinu. Þá keypti
Skeljungur fyrr á árinu allan rekstur Shell í Fær-
eyjum. Starfsmenn Skeljungs eru um 400 talsins,
þar af um 300 á Íslandi.
Skeljungur til sölu
Morgunblaðið/Árni Torfason
EIMSKIP hefur samið um kaup á
60% hlut í kínverska gámageymslu-
svæðinu Luyi Depot, sem er það
fimmta stærsta í Qingdao og samtals
um 110 þúsund fermetrar. Að auki
hefur Eimskip samið um kauprétt á
20% hlut til viðbótar en fyrri eigend-
ur halda enn 40% hlut og verður
frekari rekstur gámageymslusvæð-
isins byggður upp í samstarfi við þá.
Magnús Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Eimskips, sagði í samtali
við Morgunblaðið að kaupin í kín-
verska gámafyrirtækinu væru hluti
af því langtímaverkefni að skapa sér
sterka stöðu í flutningastarfi í Kína,
með Qingdaoborg sem miðstöð
þeirra flutninga. Umrætt fyrirtæki
höndlaði með um 12 þúsund gáma í
hverjum mánuði, aðallega frysti-
gáma, og þetta væri góð viðbót við
starfsemi Eimskips.
„Þetta er liður í þeirri keðju sem
við höfum verið að sjóða saman í
Kína, sem er ákaflega mikilvægt
markaðssvæði fyrir okkur. Við höf-
um verið hérna í nokkur ár og Bald-
ur Guðnason forstjóri og hans fólk
hafa unnið ötullega í því að undirbúa
þetta, með góðum stuðningi frá ís-
lensku utanríkisþjónustunni, aðal-
lega Gunnari Snorra Gunnarssyni
sendiherra svo og forseta Íslands.
Grunnurinn að þessu var lagður í
heimsókn forsetans til Kína fyrir
tveimur árum,“ sagði Magnús.
Hann sagði starfsemina í Qingdao
fara mjög vel af stað og ljóst að Kína
væri einn af vaxtarbroddum Eim-
skips til framtíðar litið. Einnig hjálp-
aði til að borgaryfirvöld í Qingdao
væru framsýn og viðskiptalega sinn-
uð. Kínverjar hefðu tekið hugmynd-
um Eimskips mjög vel og ákveðið að
ganga til samstarfs við félagið.
Luyi Depot var stofnað árið 2000
og er staðsett í Qingdao-höfn, sem er
sú þriðja stærsta í Kína.
Eimskip með 60%
hlut í Luyi Depot
Ljósmynd/Þórhallur Jónsson
Punkturinn yfir i-ið Magnús Þor-
steinsson segir Eimskip vera að
styrkja stöðuna í Kína.
● MINSHENG-bankinn, fyrsti einka-
rekni banki Kína, hefur keypt 9,9%
hlut í bandaríska bankanum UCBH
Holding, sem er með höfuðstöðvar
sínar í San Francisco. Jafnframt hef-
ur kínverski bankinn gert valréttar-
samning um kaup á frekari hlutum í
UCBH. Um mitt ár 2009 gæti Mins-
heng því hafa eignast allt að 20%
hlut í bandaríska bankanum. Þetta
er í fyrsta skipti sem viðskiptabanki
frá meginlandi Kína eignast kjöl-
festuhlut í bandarískum banka en
Minsheng er sagt þurfa að greiða á
bilinu 212–317 milljónir dala fyrir
hlutinn. UCBH hefur sérhæft sig í
þjónustu við Bandaríkjamenn af kín-
verskum ættum og bandarísk fyrir-
tæki sem eiga viðskipti í Kína.
Kaupir hlut í banda-
rískum banka