Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 15
ERLENT
HILLARY Rodham Clinton hefur
tekið forystu í baráttunni um út-
nefningu Demókrataflokksins
vegna forsetakosninga á næsta ári í
Iowa-ríki, en þar fara fyrstu for-
kosningarnar fram eftir áramót.
Clinton hefur haft yfirburði skv.
skoðanakönnunum yfir helstu
keppinauta sína, John Edwards og
Barack Obama, á landsvísu en bar-
áttan í Iowa hefur verið harðari og
Edwards raunar verið fyrstur þar
skv. nýlegum könnunum.
Úrslit í fyrstu forkosningunum –
í Iowa og í New Hampshire og öðr-
um litlum ríkjum – gætu vel skipt
miklu máli varðandi framhaldið.
Leggja mætti dæmið upp þannig að
ef annað hvort Obama eða Edwards
tækist að vinna í
Iowa og ein-
hverjum öðrum
ríkjum þar sem
kosið er snemma
þá gæti það þýtt
að staða þeirra
styrktist mjög í
baráttunni um-
fram það sem töl-
ur um stuðning á
landsvísu segja til um. Clinton hef-
ur því lagt mikla áherslu á það að
undanförnu að styrkja stöðu sína í
Iowa. Ný könnun sýnir að sú við-
leitni hennar hefur skilað árangri,
hún hefur stuðning 29%, en hafði
21% í maí. Edwards hefur 23% en
hafði 29% í maí, Obama hefur 22%.
Hillary Clinton styrkir stöðu
sína meðal demókrata í Iowa
Hillary Clinton
YFIRVÖLD í Rússlandi segjast vita
hver drap blaðakonuna Önnu Polit-
kovskayu. Hann hefur þó ekki verið
ákærður ennþá. Politkovskaya var
myrt fyrir ári, 7. október, og leikur
grunur á að morðið á henni hafi
tengst rannsóknarblaðamennsku
hennar um mannréttindabrot í Téts-
níu. Hún hafði ennfremur gagnrýnt
Vladímír Pútín Rússlandsforseta en
ýmsir hafa talið að það kunni að
skýra morðið á henni. Alls hafa tíu
verið handteknir á því ári sem liðið
er vegna morðsins, en rannsókn
málsins hefur enn ekki leitt til
ákæru, sem fyrr segir.
Segjast vita hver myrti
Önnu Politkovskayu
Myrt Morðið á Önnu Politkovskayu
vakti mikið umtal á sínum tíma.
Reuters
LÖGREGLUMAÐUR á frívakt
gekk berserksgang í bænum
Crandon í Wisconsin í Bandaríkj-
unum í fyrrinótt, skaut sex ung-
menni til bana og særði eitt til við-
bótar, en ungmennin höfðu safnast
saman til að borða flatböku og
horfa á bíómynd. Ódæðismaðurinn,
Tyler Peterson, var sjálfur skotinn
til bana af lögreglu skömmu eftir
atburðinn. Ekki er vitað um ástæð-
ur voðaverksins en getgátur voru
þó uppi um að ódæðismaðurinn –
sem var tvítugur og ekki miklu
eldri en fórnarlömbin – hefði rifist
við kærustu sína á staðnum og í
kjölfarið tekið fram byssu sína.
Skaut sex ung-
menni til bana
AP
Sorg Grandon er um 2.000 manna
bær og þar ríkir mikil sorg.
PERVEZ Mus-
harraf, forseti
Pakistans, hefur
skipað Ashfaq
Kiyani hershöfð-
ingja sem næst-
ráðanda sinn yfir
pakistanska
hernum. Kiyani
verður því vænt-
anlega æðsti
yfirmaður hersins þegar Musharraf
efnir það loforð sem hann hefur
gefið að hætta sem æðsti yfirmaður
hersins. Það fyrirheit gaf Mushar-
raf vegna vaxandi ólgu vegna þess
tvöfalda hlutverks sem hann hefur
haft undanfarin átta ár.
Musharraf var endurkosinn for-
seti Pakistans af þinginu á laug-
ardag og er gert ráð fyrir að hann
segi af sér sem yfirmaður hersins
þegar hæstiréttur landsins hefur
staðfest úrslit kosninganna.
Arftaki Mus-
harrafs valinn
Ashfaq Kiyani
BANDARÍKJAMENNIRNIR Mario R. Capecchi og Oliver Smithies og
Bretinn Martin J. Evans fá Nóbelsverðlaunin í læknisfræði 2007. Frá þessu
var greint í gær. Þremenningarnir fá verðlaunin fyrir uppgötvanir sínar í
stofnfrumurannsóknum sem leiddu til þróunar tækni sem kölluð hefur ver-
ið genamiðun, í músum. Tæknin hefur verið notuð til að hjálpa vísinda-
mönnum að finna hvers vegna ýmsir sjúkdómar verða til í fólki á frumu-
stigi, og hvernig ýmis veikindi á borð við hjarta- og æðasjúkdóma og
taugahrörnunarsjúkdóma, sykursýki og krabbamein geta myndast í ann-
ars heilbrigðu fólki.
Nóbelsverðlaun í læknisfræði
BRESKUR maður liggur í dái á
sjúkrahúsi í Skotlandi eftir að hann
smitaðist fyrstur Evrópumanna af
banvænni veirusýkingu, svonefndri
austurríkja-hestaheilabólgu (e.
Eastern Equine Encephalitis), sem
er afar sjaldgæfur sjúkdómur. Tal-
ið er að hann hafi smitast vegna
moskítóbits þegar hann var við
veiðar í New Hampshire í Banda-
ríkjunum.
Veiruna er aðallega að finna í
austurhéruðum Bandaríkjanna og
um þriðjungur þeirra sem smitast
læst af völdum sjúkdómsins. Að
sögn lækna er hvorki til lækning né
bóluefni við sjúkdómnum.
Moskítóbit
JAPANSKUR táningur, 16 ára,
leysti teningsþraut Rubiks á 12,46
sekúndum og varð heimsmeistari á
fyrsta Rubiks-heimsmeistaramót-
inu í Búdapest í Ungverjalandi um
helgina. Heimsmetið frá því í maí
er 9,86 sekúndur.
Þrautin leyst
FRÉTTASKÝRING
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
BRESKIR stjórnmálaskýrendur eru sammála um að
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hafi gert
slæm mistök með því að leyfa umræðum um yfirvofandi
þingkosningar að halda áfram jafn lengi, og verða jafn
háværar og raun bar vitni, til þess eins að lýsa því síðan
yfir á laugardag að ekki yrði um það að ræða, að boðað
yrði til kosninga í haust. Brown vildi þó ekki viðurkenna í
gær að vinnubrögðin bentu til að hann hefði verið mjög
tvístígandi – en sá eiginleiki er sjaldnast álitinn til marks
um ríka leiðtogahæfileika – enda hefði hann alltaf ætlað
að taka ákvörðun í málinu á þessum tiltekna tíma.
Brown hélt blaðamannafund í Downing-stræti 10 í
gærmorgun og dundu þar spurningarnar um þetta efni á
honum. Í sunnudagsútgáfum breskum blaðanna fóru
menn hamförum gegn Brown en helstu fréttaskýrendur
eru sammála um að umræðan um kosningar hafi verið
orðin svo hávær og svo augljóslega ýtt úr vör með vitund
og vilja Brown að það hafi verið neyðarlegt fyrir for-
sætisráðherrann að þurfa að lýsa því síðan yfir að af
kosningum yrði ekki.
Þá hafði það gerst að Íhaldsflokkurinn sótti í sig veðrið
í skoðanakönnunum og því hafði ákvörðun Browns á sér
yfirbragð þess, að hann einfaldlega hefði brostið kjark til
að stíga skrefið þegar til kom. Menn eru sammála um að
þetta veiki Brown, en hann hefur fram til þessa þótt hafa
tekist vel upp í nýju starfi forsætisráðherra.
Óþarfa sjálfsmark, hveitibrauðsdögunum lokið
Síðast var kosið í Bretlandi vorið 2005 og því er engin
þörf á því fyrir Brown að boða til kosninga fyrr en vorið
2010. Hann mun hins vegar hafa haft áhuga á að fá end-
urnýjað umboð frá bresku þjóðinni – en Tony Blair var
forsætisráðherra þegar síðast var kosið – og flest benti til
að staða hans og Verkamannaflokksins væri mjög sterk.
Brown viðurkenndi á fréttamannafundinum í gær að
hann hefði íhugað þann möguleika að halda kosningar í
haust. Hann hefði þó í grunninn verið þeirrar skoðunar
að rétt væri að gefa sér meiri tíma til að kynna helstu
stefnumál fyrir bresku þjóðinni. Það hefði orðið ofaná
þegar til kastanna kom.
Ýmsir helstu ráðgjafar Browns eru sagðir hafa þrýst
mjög á um að haldnar yrðu kosningar. Segja fréttaskýr-
endur að Brown hafi gert mistök er hann leyfði þeim að
leika lausum hala með tal sitt um yfirvofandi kosningar,
enda hafi hann þurft að bakka með allt saman á laug-
ardag. Brown varði í gær þessa ráðgjafa sína, sagðist
sjálfur bera fulla ábyrgð á því sem hefði gerst. Og hann
sagðist aðeins geta sagt við þá sem teldu að þessi uppá-
koma sýndi að hann væri veikur leiðtogi og óákveðinn að
sannir forystuhæfileikar snerust fyrst og síðast um að
taka réttar ákvarðanir varðandi efnahag Bretlands og
öryggi íbúa þess. Hann vildi ekki viðurkenna að hafa
hætt við kosningar vegna nýrra skoðanakannana sem
sýndu íhaldsmenn í sókn. „Ég tel að við myndum sigra í
kosningum, hvenær sem þær yrðu haldnar.“
David Cameron, leiðtogi íhaldsmanna, sakaði Brown á
sunnudag um að koma fram við breskan almenning eins
og fífl. Sagði hann ennfremur að Brown hefði gert sig
sekan um óheiðarleik. Allir vissu að hann hefði hætt við
áform um kosningar vegna þess að hann óttaðist skyndi-
lega að hann myndi tapa þeim.
Menzies Campbell, leiðtogi Frjálslyndra demókrata,
tók í svipaðan streng, sagði atburði síðustu daga skað-
lega fyrir ekki aðeins Brown sjálfan heldur fyrir stjórn-
mál í landinu almennt. Verkamannaflokkurinn hefði þeg-
ar öllu væri á botninn hvolft fyrst og fremst hugsað um
eigin hagsmuni, en ekki hag bresku þjóðarinnar.
Brast Brown kjark
á síðustu stundu?
Hugleiddi að halda kosningar í nóvember en hætti við
Skoðanakannanir höfðu þá sýnt íhaldsmenn í sókn
Reuters
Mistök Gordon Brown mætti bresku pressunni í gær-
morgun. Þar var sótt mjög hart að honum.
Í HNOTSKURN
»Gordon Brown tilkynnti í breska þinginu í gærað breskum hermönnum í Írak yrði fækkað
niður í 2.500 fyrir næsta vor. Nú eru um 5.500
breskir hermenn í Írak, einkum í suðurhlutanum.
»Brown greindi ennfremur frá því að Írökumsem unnið hafa fyrir breska herinn í Írak yrði
veitt fjárhagsleg aðstoð svo að þeir gætu hafið nýtt
líf, í Írak eða annars staðar í Mið-Austurlöndum,
sem og í Bretlandi sjálfu í tilteknum tilfellum.
MIKIÐ uppnám er í Tyrklandi eft-
ir að kúrdískir aðskilnaðarsinnar
drápu tvo tyrkneska hermenn í
árásum í gær og þrettán í fyrra-
dag í suðausturhluta landsins.
Æðstu ráðamenn sátu á neyð-
arfundi í gær en ljóst er að stjórn-
völd og her landsins eru einhuga
um að bregðast verði hart við
árásunum. Tyrknesk stjórnvöld
hafa um nokkurt skeið lýst
óánægju sinni við írösk og banda-
rísk stjórnvöld vegna þess hversu
aðskilnaðarsinnar Kúrda virðist
eiga auðvelt með að flýja inn í
norðurhéruð Íraks. Munu þau m.a.
hafa hugleitt hernaðaraðgerð inn
fyrir landamæri Íraks.
Reuters
Spenna í Tyrklandi vegna árása Kúrda