Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 21
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Hafa skal það sem sannara reynist.
Síðast þegar ég skrifaði í þennan
dálk gerði ég Þjóðhátíð Vest-
mannaeyja að umtalsefni en hún
stendur á gömlum merg eins og
flestir vita. Þar greindi ég frá al-
mæltum sögnum um upphaf hennar
sem segja frá því að árið 1874 hafi
Eyjamenn ekki komist á Þingvöll til
að taka þátt í hátíðarhöldunum þar.
Þeir hafi ekki sætt sig við það, slegið
upp sinni eigin þjóðhátíð fyrstu
helgina í ágúst sama ár og sá siður
hafi haldist síðan.
Morgunblaðið var rétt komið á
götuna þegar Stefán Runólfsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri í
Vestmannaeyjum, hringdi í mig og
sagði þetta ekki rétt. Stefán var
mjög virkur í starfi ÍBV og árið 1997
kom í hans hlut að halda hátíðarræðu
við setningu Þjóðhátíðar.
Stefán lagðist í rannsóknir og komst
að því að skemmtanir í Herjólfsdal
áttu sér lengri sögu, líka að hátíðin
1874 var haldin þremur dögum á
undan hátíðinni á Þingvöllum og
saga hennar er ekki eins samfelld og
menn vilja vera láta.
Í þessum hluta ræðu sinnar segir
Stefán: „Fyrst fara sögur af því að
eyjaskeggjar færu í Herjólfsdal til að
skemmta sér uppúr miðri 19. öldinni
og í verslunarbókum Tangaversl-
unar frá 1859 kemur fram að Pétur
Bryde, eigandi verslunarinnar bauð
þangað árlega starfsmönnum sínum
og sparaði ekki til veitinganna. En
Þjóðhátíð Vestmannaeyja var fyrst
haldin 2. ágúst 1874 til að minnast
1000 ára afmælis Íslandsbyggðar.
Sá leiði og því miður allt of útbreiddi
misskilningur hefur öðru hvoru kom-
ið fram, bæði í ræðu og riti, að
Þjóðhátíð Vestmannaeyja hafi verið
haldin í Herjólfsdal vegna þess að
fulltrúar Vestmannaeyinga hafi ekki
komist til lands og þaðan til Þing-
valla. Hátíðin á Þingvöllum hófst 5.
ágúst eða þremur dögum síðar en
Vestmannaeyingar héldu sína
Þjóðhátíð í Herjólfsdal.
Þessi fyrsta Þjóðhátíð hér í
Herjólfsdal var því langt frá því að
vera haldin út úr einhverjum vand-
ræðum eða af tilviljun vegna þess að
fulltrúar Vestmannaeyinga kæmust
ekki á Þingvöll. Þetta var vandlega
undirbúin hátíð, þar sem tjöld voru
reist hér í dalnum og hann skreyttur
fánum, lyngi og blómum. Fluttar
voru ræður og matur fram borinn og
fór hátíðin fram með góðri glaðværð
og með bestu reglu og voru fáir ölv-
aðir, eins og segir í gömlum heim-
ildum.
Í samtímablöðum eða Almanaki
Þjóðvinafélagsins er síðan ekki getið
um þjóðhátíðarhald í Herjólfsdal
fyrr en árið 1901. Síðan hefur þjóð-
hátíðin verið haldin á hverju sumri í
Herjólfsdal fyrir utan árin 1914, þeg-
ar fyrri heimsstyrjöldin geisaði, og
síðan árin 1973 til 1976 á meðan dal-
urinn var þakinn vigri eftir eldgosið.
Það eru því margar og öruggar
heimildir fyrir því að eina Þjóðhátíðn
sem haldin er fyrir 1901 er fyrsta
Þjóðhátíðin sem haldin var 2. ágúst
1874 þegar minnst var eitt þúsund
ára byggðar í landinu.
Að framansögðu er því ljóst, að tala
Þjóðhátíða fylgir öldinni og er það
reyndar skemmtileg tilviljun þótt
rekja megi upphafið til fyrri aldar
eða ársins 1874,“ sagði Stefán.
Þótt ekki sé Þjóðhátíð í vændum er
rétt að þetta komi fram, því hafa skal
það sem sannara reynist.
Til fróðleiks má geta þess að á gos-
árunum, 1973 til 1976, var hátíðin
haldin á Breiðabakka sem er sunn-
arlega á Heimaey. Hér með er þessu
komið á framfæri en ekki mun þetta
breyta viðhorfi Eyjamanna til
Þjóðhátíðarinnar sinnar sem á djúp-
ar rætur í bæjarsálinni. Og enn
skiptist árið í fyrir og eftir Þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum.
VESTMANNAEYJAR
Ómar Garðarsson blaðamaður
Mannfögnuður Skemmtanir í Herjólfsdal eiga sér lengri sögu en hátíðin
1874, sem haldin var þremur dögum á undan hátíðinni á Þingvöllum.
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 21
Rúnar Kristjánsson á Skaga-strönd fylgdist með
umræðum í þinginu, segir
Ingibjörgu Sólrúnu hafa verið
komna „í öngstræti á sínum
pólitíska ferli eftir slakan
árangur í kosningunum, en þá var
henni bjargað í stjórn af
blámönnum“:
Endurreisti Ingibjörgu
íhaldið frá brotnum reyr.
Fylgja mun því fár í mörgu
fyrir mann sem heitir Geir!
Og Rúnar bætir við um annan
stjórnmálamann:
Steingrímur í stólnum virkur
stuðar þá sem hafa völdin.
Brattur fram í brúnamyrkur
blaktir hann sem fáni á kvöldin.
Þá sendir hann vísur til
Kristjáns Bersa:
Um fuglagers og fæðuslóð
fjörs með versi kláru,
rær hann Bersi af miklum móð
milli skers og báru.
Flensborgari af fyrstu gráðu
feykir dvala á allan hátt.
Ljær með svari stuðlum stráðu
sterkan svala úr vesturátt.
Kristrún Ólafsdóttir vakti
athygli umsjónarmanns á því að
lausnir við Vísnagátum í síðustu
viku hefðu ekki birst. Úr því er
bætt hið snarasta. Lausnarorðið
við 1. vísu er „hundur“, við 2. vísu
„skella“ og 3. vísu „brún“. Og
ágætt að bæta við nýrri vísnagátu
úr bókinni Orðabrellur:
Óskorað og æðsta vald,
eðalhlut í góðu standi.
Staður fyrir fundahald
fannst í „denn“ á Suðurlandi.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af þingi og vísnagátum
ar skoppuðu um allt
gólf. Honum var ekki
skemmt. Las aumingja
kassadömunni pistilinn
enda þótt ábyrgð henn-
ar væri vitaskuld engin.
Hversu oft skyldi þetta
eiga sér stað á degi
hverjum?“
Fljótlega eftir að
búðin tók til starfa voru
settir upp tveir kassar
með hefðbundnum pok-
um og nú er svo komið
að nær allir kassarnir
eru með gamla laginu.
Pokahringekjurnar eru
nánast horfnar úr
Krónunni í Mosfellsbæ.
Að mati Víkverja tók það Krónu-
menn heldur langan tíma að kyngja
stoltinu og viðurkenna að pokahring-
ekjan væri misheppnuð en betra
seint en aldrei. Hann tekur því hatt
sinn ofan fyrir þeim í dag. Nú komast
vörurnar sem Víkverji og aðrir við-
skiptavinir kaupa í Krónunni áfalla-
laust heim í skáp.
x x x
Víkverji fylgir hvorki ManchesterUnited né Sunderland að mál-
um í ensku knattspyrnunni en má
samt til með að lýsa aðdáun sinni á
Roy Keane, fyrrverandi fyrirliða
United og núverandi knattspyrnu-
stjóra Sunderland. Hann er töffari af
Guðs náð.
Keane var frábær leikmaður,
kannski ekki maður mikilla tilþrifa
en ótrúlega skilvirkur og farsæll.
Sannkallaður sigurvegari. Fáir menn
hafa líka stigið skrefið upp í knatt-
spyrnustjórastólinn jafnáreynslu-
laust og hann. Það hvorki dettur af
honum né drýpur.
Það kom berlega í ljós á Emirates-
leikvanginum í Lundúnum, þar sem
Arsenal gerði sig líklegt til að mis-
þyrma Sunderland á sunnudaginn.
Keane tók ágjöfina á brjóstið – m.a.
þegar stuðningsmenn heimaliðsins
fóru að syngja nafn höfuðandstæð-
ings hans gegnum árin, Patricks
Vieira – og hægt og bítandi komust
hans menn inn í leikinn. Þeir töpuðu
honum að vísu á endanum en gengu
beinir í baki frá rimmunni við mun
betur mannað lið sem hefur verið í
miklum ham að undanförnu.
Mikils er vænst af knattspyrnu-
stjóranum Roy Keane í framtíðinni.
Enska úrvalsdeildin þarf á hans lík-
um að halda.
Víkverji kaupir oftinn í Krónunni í
Mosfellsbæ og kann
hreint prýðilega að
meta þá verslun. Vöru-
úrvalið er gott og þjón-
ustan prýðileg. Eitt
hefur þó farið í taug-
arnar á honum allt frá
því verslunin var opnuð
– pokahringekjan við
kassana. Ekki svo að
skilja að hugmyndin sé
slæm, þvert á móti er í
henni fólgin góð þjón-
usta við innkaupendur.
Gallinn er aftur á móti
sá að pokarnir sjálfir
eru slíkt þunnildi að
burðarþol þeirra er sama og ekkert.
Víkverji vakti athygli á þessu í
pistli fyrir um þremur mánuðum. Þá
sagði hann m.a.: „Það er algjör hend-
ing ef þeir [pokarnir] lifa heimferðina
af. Sumir komast raunar aldrei út úr
versluninni, rifna í tætlur áður en
viðskiptavinurinn kemst að útidyr-
unum.
Víkverji varð vitni að atviki af
þessu tagi á dögunum. Maður nokk-
ur var að lyfta pokanum sínum upp
er botninn datt úr honum og vörurn-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
-hágæðaheimilistæki
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna frá Miele
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
AFSLÁTTUR
30%
Miele gæði
ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri
og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele þvottavélar.
Gerð Listaverð TILBOÐ
Þvottavél W1514 142.714 99.900
1400sn/mín/5 kg
Þurrkari T7644C 135.571 94.900
rakaþéttir/6 kg