Morgunblaðið - 09.10.2007, Page 38
NÝJASTA plata Samúels J. Samúelssonar
og stórsveitar, Fnykur, fær lofsamlega um-
sögn í nýjasta tölublaði Wax Poetics. Þar
segir greinarhöfundurinn Jon Kirby að
Samúel takist með frábærum árangri að
sneiða framhjá endurvinnslu þeirri sem svo
oft plagi fönktónlistina en helst megi líkja
plötunni við samblöndu af Medeski Martin
& Wood tríóinu stórgóða og Duke Ellington
auk þess sem útsetningarnar leiði hugann
að ELO og Jimmy Page. Greinin endar svo
á fyrirsjáanlegum nótum um fegurð ís-
lenskra kvenna, jökla og vatnsfalla en tón-
list Samúels og stórbandsins gefi manni
enn aðra ástæðu til að heimsækja þessa
eyju sem er „mitt á milli Nýfundnalands og
Noregs.“
Stórsveitarferð um landið
Stórsveit Samúels heldur af stað í fimm
daga rútutónleikaferð um landið dagana
10.–14. október. Að sögn Samúels mun
þetta vera í fyrsta skipti á Íslandi sem Stór-
sveit fer í svona alvöru tónleikaferð og hefst
hún á Jazzklúbbnum Múlanum miðviku-
daginn 10. október.
Daginn eftir er stefnan tekin á Snæfells-
nes þar sem leikið verður í Framhaldsskól-
anum á Grundarfirði. Á föstudag verða tón-
leikar á Græna Hattinum á Akureyri.
Stórsveitin hélt í ágúst s.l. stórtónleika á
Akureyri er hún kom fram á Akureyravöku
við vægast sagt frábærar undirtektir.
Laugardaginn 13. október er komið að
Austurlandi en þá verða tónleikar í gamla
bíóhúsinu Herðubreið á Seyðisfirði. Loka-
tónleikarnir verða svo sunnudagskvöldið
14. október í Rauða húsinu á Eyrarbakka.
Fyrsta upplag Fnyks er búið hjá útgef-
anda en von er á öðru upplagi á næstu dög-
um.
Fnykur á ferð um landið
Bláir tónar Greinin sem birtist í Wax Poetics á dögunum.
Morgunblaðið/Golli
Lengi lifir fönkið Sammi er ókrýndur fönkkóngur Íslands og nú
hyggst hann ferðast um lendur sínar með tónsprotann að vopni.
Nýjasta plata Sam-
úels J. Samúelssonar
og stórsveitar fær já-
kvæða dóma í er-
lendu tímariti
38 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Halloween kl. 5:30 - 8 - 10:25 B.i. 16 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Shoot’em Up kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 - 6
Hairspray kl. 5:30 - 8
Knocked Up kl. 10:20 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (Síðustu sýn) 300 kr.
Halloween kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
SuperBad kl. 6 - 8 B.i. 12 ára
Chuck and Larry kl. 6 - 10:10 B.i. 12 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Sími 551 9000
Halloween kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
The 11th Hour kl. 6 - 8 - 10:20
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Brothersom Man kl. 6 - 8 - 10
Frá gaurnum sem færði okkur The 40
Year Old Virgin og Knocked Up
Ver
ð aðeins
600 kr.
Vinsælasta kvikmyndin á íslandi í dag
“Skylduáhorf fyrir alla unglinga”
- Dóri DNA, DV
- J.I.S., FILM.IS
Dómsdagur djöfulsins!
Frá meistara Rob Zombie kemur ein svakalegasta mynd ársins!
Sló í gegn í
Bandaríkjunum
og fór beint á
toppinn
Missið ekki af þessari mögnuðu hryllingsmynd!
Stranglega bönnuð innan 16 ára
“Ferskur og fyndinn smellur”
- T.S.K., Blaðið
- H.J., MBL
Leonardo DiCaprio
kynnir
The 11th Hour
Það er okkar kynslóð sem fær að breyta heiminum.....
að eilífu
Heimildarmynd um vaxandi umhverfisvandamál og hvernig
mögulegt er að leysa þau á skynsamlegann máta.
Sagan Sem mátti ekki Segja
eeee
- S.V., MBL
eeee
- R.H., FBL
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.G., Rás 2
eeee
- R.V.E., FRéttablaðið
eeee
- S.V., MoRgunblaðið
eee
T.V. Kvikmyndir.is
eee
- J.I.S., Film.is
eee
„Skotheld skemmtun“
- T.S.K., Blaðið
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRTSÝÐUSTU
SÝN.
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
kRónuR
í bíó
*
Ver
ð aðeins
300 kr.
Hasar og adrenalín flæði frá upphafi til enda
Grettisgata
Mikið endurnýjuð sérhæð
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 151 fm neðri sérhæð í
þríbýlishúsi í miðborginni. Íbúðin er með góðri lofthæð og
skiptist í þrjú góð herbergi, tvennar bjartar samliggjandi
stofur með rennihurðum og því möguleiki að nýta aðra
stofuna sem herbergi, eldhús með eyju klædda grásteini
og flísalagt baðherbergi. Tvær sér geymslur.
Góð eign í miðborginni.
Verð 35,0 millj.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
SÖNGKONAN Christina
Aguilera á von á sér og
fór um helgina í einka-
ferð í búðina Bel Bambini
í Los Angeles til að setja
saman gjafalista fyrir svo
kallaða „baby shower“
sem tíðkast vestanhafs.
Þá hittast vinir og ætt-
ingjar verðandi foreldra
og „sturta“ barnagjöfum
yfir þá. Með í för um
helgina voru eiginmað-
urinn Jordan Bratman,
tengdamóðir Aquilera og
mágkona.
Blaðið People hefur
eftir sölumanneskjunni
Crystu Smith að Aguilera
hafi sagst vera „gríð-
arlega spennt yfir því að
vera ólétt“. Hún sagði
starfsfólki búðarinnar
hvors kyns barnið væri
en bað það um að segja
ekki neinum. Fólkið stóð
við sitt og People gat ekki
fengið orð upp úr því um
málið. Christina hefur
reyndar aldrei staðfest
formlega að hún sé ólétt
en spekingarnir giska á
að hún sé komin um sex
mánuði á leið.
Ekki segja!
Ófrísk og ánægð
Christina Aquilera.